Morgunblaðið - 08.05.1935, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.05.1935, Qupperneq 8
M 0 R GUNBLAÐIÐ 8 Miðvikudaginn 8. maí 1935. Anglýslngar Morgnnblaðsfns ern lesnar af Sllnm Reykvikingni Jiuu.jislia.jiuv Regnhlífar, nýkomnar. Yersl- un Kristínar Sigurðardóttur. ódýr tvisttau. Verslun Krist- ínar Sigurðardóttur. Fínir eftirmiðdagskjólar. — Verslun Kristínar Sigurðar- dóttur. Falleg samkvæmis- og sum- arkjólaefni. Verslun Kristínar Sigurðardóttur. Hanskar, nýkomnir. Verslun Kristínar Sigurðardóttur. Fallegar vor- og sumarkápur. Verslun Kristínar Sigurðar- dóttur. Silkisokkar frá kr. 1.75. — Verslun Kristínar Sigurðar- dóttur. Silkislæður, nýjasta tíska. Verslun Kristínar Sigurðar- dóttur. Mjög faliegar töskur, ný- komnar. Verslun Kristínar Sig- urðardóttur. Piano, Hornung & Möller, til sölu, gegn staðgreiðeslu. C. Proppé, Bergstaðastræti 14. Sel allskonar fatasnið (karl- manna og drengja). Sömuleiðis kven-sportsnið (jakka og poka- buxna). Sníð sömuleiðis úr efn- um ef þess er óskað. Guðm. B. Vikar, Laugaveg 10, sími 2838. ódýrt hangikjöt. Kaup- fjelag Borgfirðinga, sími 1511. Ódýr svið. íshúsið breið. Sími 2678. Herðu- Fólks bifreið óskast keypt, helst „Ford“. Skifti geta komið til greina á vörubifreið. Upp- lýsingar í síma 2267. j Við höfum fengið ágætar út- sæðiskartöflur af bestu tegund. Einnig matarkartöflur. Kjöt-1 búðin í Von, sími 4448, Gunnar Sigurðsson. \ 9£u*sru&&L Ágæt forstofustofa til leigu, ódýrt. Sólvallagötu 4. Stofa og lítið svefnherbergi til leigu fyrir einhleypa. Lauga- vatnshiti. Grettisgötu 65. Gulrófur eins og nýjar á 10 aura kg. Blátúni, sími 4644. Steinhús á eignarlóð í Aust- urbænum fæst keypt. 2 góðar íbúðir lausar. Skifti á minni eign .möguleg. Finnið mig að máli í kvöld kl. 8—10 e. h. A. S. í. vísar á. ‘HirmiX' Regnhlífar teknar til viðgerð- ar. Breiðfjörð, Laufásveg 4. 1 Barnavagnar og kerrur tekn- ar til viðgerðar. Verksmiðjan Vagninn, Laufásveg 4. . Veggmyndir og rammar í fjölhreyttu úrvali á Freyju- götu 11. Rúgbrauð, franskbrauð og normalbrauð á 40 aura hvert. Súrbrauð 30 aura. Kjarnabrauð 30 aura. Brauðgerð Kaupfjel. Reykjavíkur. Sími 4562. Það er viðurkent, að maturinn á Café Svanur sje bæði góður og ódýr. Slysavamafjelagið, skrifstofa við hlið hafnarskrifstofunnar í hafnarhúsinu við Geirsgötu, seld minningarkort, tekið móti gjöfum, áheitum, árstillögum m. m. fiarððhöid, allar tegundir, nýkomin. Splkað”k)5t af fullorðnu á 55 og 65 aura % kg. Saltkjöt, hangikjöt af Hólsfjöllum. Svið og rjúpur — og margt fleira. ( Jóhaxmes Jóhannsson, Grundarstíg 2. Sími 4131. . i r ARTÖFLUMJÖL HÝKOMIB MM**4im* •••••••••• ••••••• Timburverslun P. W. Jacobsen & SSn. Stofnuð 1824. Símnefnj: Granfuru — Carl-Lundsgade, Köbenhavn C. Selur tímbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- mannahöfn. — Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð. Hefi verslað við ísland í meir en 80 ár. • • • •> :: • • • • • • • • • • • • • • • • • • •• • • • • • • •• •S' • • í 8NÖRVNNI. 8. var þar ennþá. Hann var þá ekki sloppinn. Þeir ætluðu þrátt fyrir alt að hengja hann í þessu viðbjóðslega skúmaskoti. Nú færist hlerinn- hann fell niður-og fyrir neðan var gínandi gap.------ Síðar kom Parkins að honum, þar sem hann lá í ómegni á gólfinu. Þegar hann opnaði augun kom hjúkrunarkona hægt og hljóðlega að rúminu til hans og brosti vingjarnlega, og kallaði til eldri manns sem sat við borðið og var að skrifa. Þegar hann kom að rúminu, sá Sir Humphrey, að það var húslækn- irinn sinn? — Hvað hefir komið fyrir? Hefi jeg verið veikur? spurði hann. — Já, eitthvað í þá átt, svaraði læknirinn. En þú jafnar þig brátt. Jeg var búinn að segja þjer, áður en þú fórst í þessa veiðiför, að þú ofreyndir þig. Nú verður þú að taka þjer hvíld frá störfum um hríð. Sir Humphrey strauk yfir enni sjer og yfir háls- inn. Snaran! Hvaða lykt var þetta? Af hverju hafði læknirinn eitthvað hvítt yfir andlitinu? Hann sjálfur stóð við gínandi op. Og hver var að tala með þessari hörkulegu röddu? Það var eitt- hvað, sem hann mátti til með að gera, það hvíldi á honum eins og farg? Og alt í einu hljóðaði hann upp yfir sig, svo kvað við í herberginu, reis upp í rúminu og greip krampataki í lækninn. — Hvað er klukkan? spurði hann með ákafa. — Hve lengi hefi jeg legið hjer? Læknirinn reyndi að sefa hann og leggja hann útaf aftur. En hann stundi við. — 1 guðsbænum, segðu mjer hvað er framorðið. — Klukkan er fjögur síðdegis, sagði læknirinn sefandi. — Um miðnætti var kallað í mig. Síðan hefir þú verið meðvitundarlaus. En vertu nú ró- legur. — Hamingjan góða! stundi Rossiter. — Brandt — hvað með Cecil Brandt, sem átti að hengja í morgun? Læknirinn kinkaði kolli alvarlegur. — Jeg las um það í morgunblöðunum í morgun. Cecil Brandt var hengdur í Wandsworth fangelsi í morgun kl. 8. Enn á ný sortnaði sjúklingnum fyrir augum. Nú voru þeir búnir að klófesta hann. Hann sökk dýpra og dýpra. Meðvitundarleysið kom eins og frelsandi engill. 4. KAPlTULI. Lyftudrengurinn í Savoy Court var svo bíræf- inn, að þora að láta í ljós ánægju sína yfir að sjá dómsmálaráðherrann aftur heilan heilsu, og hann kinkaði kolli og brosti í þakkarskyni. Sir Hump- hrey var enn fallegur á að líta, þó væri hann veikindalegur, dálítið kinnfiskasoginn og fölur, Lyftudrengurinn fór með hann upp á 4. hæð, og flýtti sjer inn eftir ganginum og hringdi á dyra- bjöllu. Að vörmu spori voru dyrnar opnaðar. Sir Rossiter þurfti ekki að segja mikið. Stúlkan tók hatt hans og frakka og vísaði honum inn í dag- stofuna. Katherine Brandt, sem var þar fyrir, stóð á fætur og gekk á móti honum með útrjettar hend- ur. Henni hafði lengi verið órótt innanbrjósts, er hún hugsaði til þess, að þau hittust aftur. En nú fanst henni það ósköp einfalt. — Sir Humphrey! sagði hún. — Þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir okkur bæði, en nú verð- um við að herða upp hugann. Jeg ætla að fara til Cannes. Jeg hefi aðeins dregið það, af því að jeg vildi ekki fara fyr en jeg væri búin að tala við yður. — Það var mjög fallega gert af yður, sagði: hann, og hjelt stöðugt í hendur hennar, — mjög; vingjarnlegt. — Það var nú annars ekki af eintómri góð- semi, sagði hún, og honum duldist ekki, að þetta. var alt önnur kona en setið hafði andspænis hon- um kvöldið góða. — Mjer fanst jeg mega til með> að tala út um þetta mál. Tveir menn hafa verið> teknir af lífi — annar saklaus — og við, sem lif- um, höfum gengið í gegnum hræðilegar pynting- ar. Mjer þykir þetta leitt Penham vegna, og jeg aumkva Cecil líka, en þessi heimur tilheyrir ekki hinum dauðu, heldur þeim, sem eftir lifa, — okk- ur. Við erum ekki hreinskilin gagnvart okkur sjálfum, meðan við sveipum okkur eymd og sorg. Jeg var óhamingjusöm í hjónabandinu, — jeg syrgi ekki Cecil, jeg vorkenni honum. Þjer verðið- að hugsa málið með heilbrigðri skynsemi, kæri vinur. Má jeg annars ekki bjóða yður að drekka te með mjer? Hún hringdi og bauð honum sæti í þægileguim stól. — Þjer vitið, hvernig þetta vildi til, byrjaði. hann. — Húslæknir minn hefir sagt yður það? — Jeg sat við símann, var meira að segja bú- inn að biðja um samband við fangavörðinn, hjelt hann áfram. En jeg hafði ekki verið heilbrigður um lengri tíma. Jeg hafði ofreynt mig við vinn- una. Og þetta sama kvöld kom nokkuð hræðilegt fyrir mig og jeg komst í geðshræringu. En mjer datt ekki í hug að jeg væri svo langt leiddur,. annars hefði jeg gert forsætisráðherra boð, og falið honum málið. — Jeg sat með heyrnartólið í hendinni, þegar jeg fekk aðsvif, og eftir það vissi jeg ekki af mjer, fyr en jeg rankaði við mjer í rúminu mínu, kl. 4 næsta dag. —- Já, þetta var mesti sorgarleikur, sagði húa hugsandi, — og að mörgu leyti torskilinn. Jeg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.