Morgunblaðið - 09.06.1935, Síða 4

Morgunblaðið - 09.06.1935, Síða 4
MO RGUN BLAÐIÐ Sunnudaginn 9. júní 1935». Reykjavikurbrjef. O • r 0 8. juru. Aflinn. Aflaskýrslur frá síðustu mán aðamótum sýna svipaða út- komu og áður. Aflinn verð- ur mun minni í ár en í fyrra. Munurinn nú 10 þús. tonn frá því sem aflinn var á sama tíma 1 fyrra. Og mismunurinn hvað mestur á Norðurlandi. En á Norðurlandi var óvenjulega rýrt aflaár 1934. En ennþá verra í ár það sem af er. Svo þar eru horfurnar slæmar við sjávarsíðuna. Markaðurinn. En menn geta hugsað sem svo. Til hvers að bera afla á land, sem fyrirsjáanlegt er að markaðir eru takmarkaðir. Spánverjar hafa lokað fyrir 12 þúsunda tonna innflutn- ingi af saltfiski, er við höfðum þar áður, eða jafnvel meiri. Því samningar við Spán hljóða upp á 16 þús. tonna innflutn- ing. En 22 tonn fengust til landsins 1934, og er það 12 þús. tonnum minna en áður en innflutningur á saltfiski var takmarkaður þangað. Nú nýlega er samningum lok ið við ítali. Þar var saltfisk- innflutningur minkaður um helming. Þar mistum við mark- að fyrir 10 þús. tonn. Svo alls hafa saltfiskmarkaðirnir á Spáni og Ítalíu rýrnað um 22 þús. tonn, en það er Yi af árs- aflanum þegar aflinn er hjer vfir meðallag. Verslunin við útlönd. Samkvæmt skýrslu gengis- nefndar frá síðustu mánaða- mótum hefir útflutningurinn fyrstu 5 mánuði ársins verið nokkru meiri en í fyrra, kr. 14.673.000.00, en var í fyrra nákvæmlega 2 milj. kr. minni, eða kr. 12.673.000.00. Innflutn ingurinn hefir aftur á móti ver ið mjög svipaður og í fyrra, kr. 17.852.00, en var í fyrra kr. 17.879, eða 27 þús. kr. meiri þá en nú. 100 ára afmæli Matthíasar Jochumssonar. Þ. 11. nóv. næstk. eru 100 ár liðin frá fæðingu Matthíasar Jochumssonar. Er þegar hafinn undirbúningur hjer og á Akur- eyri undir hátíðahöld þann dag. Eigi er blaðinu kunnugt um hvernig þeim verður hagað. En hinn nýi leikflokkur Haraldar Björnssonar og Soffíu Guð- laugsdóttur hefir gert samning við erfingja Matthíasar um að mega leika Skugga-Svein í til- efni 100 ára afmælisins. Á að vanda sem best til sýn- ingar á þessu vinsælasta leik- riti skáldsins, hvað snertir leik endaval og allan útbúnað. svo sýningin hæfi sem best minning skáldsins. Nýr græðireitur. Einar E. Sæmundsen skóg- fræðingur er nýkominn til bæj arins austan úr Fljótshlíð. Hann hefir starfað að því, með Árna bónda Einarssyni í Múla- koti, að koma upp nýjum græðireit fyrir trjáplöntur þar austur í túninu í gömlum kartöflugarði. Þar hafa verið gróðursettar 3000 birkiplöntur, sem fluttar hafa verið úr Þórsmörk í vor, svo og 2000 reyniplöntur, en þær eru allar teknar úr garði Árna í Múlakoti, nýgræðing- ur frá trjám þar. Fram til þessa heíir farið meira orð af hinum Múlakots- garðinum, garði þeirra hjón- anna Túbals og Guðbjargar. En eftir því sem Einar skógfræð- ingur segir, hafa trjen í garði Árna náð fult eins miklum þroska. Mun það stafa af því, að hverju einstöku þeirra, sem nú eru þar, hefir verið veitt meira vaxtarrými, með grisjun í garðinum, jafnóðum og trjá- gróður hefir þar vaxið og dafn að. •— Hæsta trje í garði Árna er birkitrje, ættað af Þórsmörk, er var þar gróðursett árið 1911, þá 5—10 sentimetrar á- hæð, en er nú rúmlega 8 metrar. Svo telur Hákon Bjarnason, að það trje muni á næstu árum verða fegurst birkitrje á land- inu. — Hákon hefir hug á því að fjölga græðireitum í landinu, svo hægt verði að fullnægja vaxandi eftirspurn eftir inn- lendum plöntum til gróðursetn- ingar við hús og bæi. ,,Engin æfintýri væntanleg". Tíminn skýrir frá því nýlega, að kjósendur í landinu megi ekki búast við neinum æfin- týrum í afurðasölumálum, nje í umbótum á hag almennings í landinu. Öðruvísi þaut í tálknum þeirra Tímamanna í fyrrasum- ar. Þá var alt þeirra tal æfin- týratal um umbætur til sjávar og sveita, ef þeir kæmust til valda. Og „æfintýrið" byrjaði með því, að Hermann Jónasson varð forsætisráðherra, með Harald Guðmundsson og Eystein Jóns- son sjer við hlið. — En — ,,þar með var draumurinn búinn“. Því af bættum kjörum al- mennings hefir síðan ekki frjest. Heldur hafa „staðreynd ir“ komið í stað gulls og grænna skóga; hæstu fjárlög, vaxandi álögur, skattar, tollar, og höft, sem halda uppi háu vöruverði, vaxandi atvinnu" leysi, minkandi sölumöguleikar á afurðum og sívaxandi hat- ursfullar ofsóknir af hendi rauðliða gegn frjálsu atvinnu- lífi landsmanna. Engin von um „æfintýri“ segir Tíminn. Á fundum Um síðustu helgi voru stjórn- málafundir haldnir í Árnes- og Rangárvallasýslum. Þar varð stjórnarliðið að við- urkenna, að- fjármál landsins væru í hinu mesta öngþveiti. Fjárhagurinn á heljarþröm, síðan Framsóknarflokkurinn eyddi 78 miljónum á 4 árum, — og hældi sjer af „framför- um í eyðslu“. En hvernig hafa þessir menn mætt erfiðleikunum? Hamrað gegnum þingið út- gjaldamestu fjárlög, sem enn hafa sjest á Alþingi Is- lendinga. Og í þingbyrjun í vet ur voru þeir komnir með landið út í það skuldafen, að þeir urðu að hlaupa fyrir þing- ið, eins og maður með víxil á 3. degi og heimta að þingið „skrifaði uppá“ 11 miljón króna lán í Englandi þá sam- dægurs. Síðan fá þeir þau skilaboð fráBretanum, að nú megi þessi íslenska stjórn ekki taka meiri lán, eða ganga í ábyrgðir. Og Eysteinn Jónsson, mað- urinn sem samið hefir útgjalda- hæstu fjárlög hinnar skuldugu þjóðar, lofar öllu fögru til að klófesta þetta síðasta lán. Þetta eru staðreyndir sem tala, og stjórnarliðið felur ekki. Hvað á að gera? En á fundunum um helgina var birtist nýr kafli í þessari hörmungasögu hinnar ráða- lausu ríkisstjórnar. Málpípur hennar, sem viður- kenna eyðsluna, skuldasúpuna og hin útgjaldahæstu fjárlög, koma fram fyrir andstæðing- ana, og spyrja þá, með bænar- kvak í rómnum: „Kennið okkur ráð til að lækka útgjöld ríkissjóðs. Segið okkur, sem með völdin förum, hvernig við eigum að fara að? Við eygjum engin ráð; eða vilj um ekki beita þeim“. En svar stjórnarandstæðinga verður fyrst og fremst þetta: Úr því þið viðurkennið fjár- hagsvandræðin, og viðurkennið vanmátt ykkar til þess að leysa úr þeim, lækka útgjöldin, þá væri ykkur sæmst að hverfa frá vandanum og leggja niður völd. Annars mun mega benda hinni rauðu landsstjórn á, að fyrir hana væru hæg heima- tökin að lækka ríkisútgjöldin með því að fækka í bitlinga- hjörðinni við ríkissjóðsjötuna. En til þess skortir ríkis- stjórnina viljann — og því fer sem fer. Framsókn og Reykjavík. Blöð Framsóknarflokksins hafa lagt út í skoplegan sam- anburð á fjárhag ríkisins og fjárhags Reykjavíkurbæjar. — Ætla þeir með þeim skrifum að efna til nýs kapítula í hin- um ósleitilega rógi um Reykja- vík. En þau vopn, sem önnur snú- ast í höndum þeirra gegn þeim sjálfum. Frá sjónarmiði hinna skamm sýnu smámenna, sem mest láta til sín taka í Framsóknar- flokknum, ei; óvildin til Reykja víkur skiljanleg. Framsóknarflokkurinn hefir talið sig höfuðmálsvara sveit- anna. „Þungamiðja þjóðlífsins er í sveitum“, hafa Framsókn- armenn sagt. En þessi „þungamiðja“ þeirra er með hverju ári að færast til. Fólkið flýr sveitirn- ar, flýr undan yfirráðum og „regimenti“ Framsóknarflokks- ins. Aftur á móti fjölgar fólki í Reykjavík með ári hverju. „Ráðið“, sem Framsóknar- menn hafa nú tekið til að halda fólkinu í sveitunum, er það, að koma atvinnuvegum höfuðstaðarbúa í kalda kol, svo hingað til Reykjavíkur sje ekkerl lengur að sækja. í skammsýni sinni koma þessir menn aldrei auga á, að jafnóðum og þrengist í búi við sjóinn, minka möguleikar fyrir lífvænlegum atvinnurekstri í sveitum. A!t skal það niður á við!, er kjörorð Framsóknarmanna, síðan þeir sáu, að eyðibýlum fjölgar í sveitum, vandræði aukast þar og fólkið flýr fi*á jörðum og búskaparbasli — undan skuldaklöfum kaupfje- laganna. Hverjum að kenna. í Reykjavík fjölgar fólkinu. Þar er nú nál. V;i landsmanna. Fólksf jölgunin útheimtir auk- in útgjöld, nýja skól, auknar götutlagningar, rafmagn, vatns veitur o. fl. o. fl. Þau lífsþæg- indi, sem Reykvíkingar hafa nú, hafa flestöll komið upp á síðustu 20—30 árum. Alt hefir þetta lcostað fje. — Og Reykvíkingar hafa sótt lítinn styrk í ríkissjóðinn. Þeir hafa þurft að koma upp byggingum, veitum og skólum, að mestu fyrir eigið fje, meðan ríkisfje hefir verið notað t. d. til að teygja vega- og símakerfi upp um afdali, þangað -sem fáir vilja vera og engir sækja sæmi legt viðurværi. Samt eru skuld- ir bæjarsjóðs Reykjavíkur að eins kr. 3% miljón, eða helm- ingi minni að tiltölu við fólks- fjölda en ríkisskuldirnar. Vaxandi erfiðleikar. En það skal fúslega játað, enda öllum lýðum ljóst, að erf- iðleikar Reykjavíkurbæjar fara vaxandi. En hverjum er um að kenna? Skattabyrði hefir hin rauða ríkisstjórn lagt tvöfalda á herðar bæjarbúa. Útgerð bæjarmanna er slig- uð af of háum sköttum og skyldum fyrir atbeina rauð- liða. Svo t. d. útsvör þau, sem þessi aðalatvinnuvegur hæjar- manna áður bar, er nú kom- inn á herðar almennings að miklu leyti. En aukin dýrtíð og erfiðleik- ar fyrir frjálst atvinnulíf í bænum varpar sífelt fleirum og fleirum á kaldan klaka at- vinnuleysisins, svo útgjöld bæj- arsjóðs til atvinnubótaframlaga og fátækrastyrks eru nú svip- uð því, sem voru öll útgjöld fyrir fáum árum. Svo ætla rauðliðar með Framsóknarfíflin í broddi fylkingar að klína því á meiri- hluta bæjarstjórnar, sem hefir engin tök, hvorki á skattamál- um, kaupgjaldsmálum eða öðru því, sem mestu varðar fyrir hag bæjarins, að það sje hans sök, hvernig horfir við hjer á sviði atvinnu- og fjár- mála. Mikilsverð viðurkenning. Á bæjarstjórnarfundi nú í vikunni lentu þeir í karpi Ól- afur Friðriksson og Björn Bjarnason kommúnisti, um kaupgjald til bílstjóra fyrir flutninga austur að Sogi. Gat Ólafur ekki fallist á það, að rjettmætt væri að nefna það kauplækkun, þó bílstjórar tækju að sjer flutn- inga á nokkur þúsund tonn- um fyrir 28 kr. tonnið, enda þótt þeir fengju greiddar kr. 31,50 þegar um væri að ræða flutning á einu einasta tonni eða svo. Því sagði Ólafur: Það er eðlilegt að kaupið sje nokkuð lægra, þegar mikil vinna er í aðra hönd. Hjer hreyfði Ólafur Frið- riksson við máli, sem mjög er mikilsvert fyrir allan almenn- ing, og einkum vei-kamenn. Tvær stefnur. í atvinnumálum er það að- allega þetta, sem skilur stefnu Morgunblaðsins og stefnu verkalýðsfjelaganna. Morgunblaðið segir: Þeim mun tryggari atvinna, hærri árslaun, sem verkamenn fá, þeim mun betra. En verkalýðsf jelögin hafa aftur á móti einblínt á tíma- kaupið, þeim mun hærra sem það væri, þeim mun betra, án nokkurs tillits til þess, hvert atvinna fengist um lengri eða skemri tíma. Þessi stefnumunur er svo augljós, að eigi verður um vilst. Annar vill sem hæst árskaup manna. Hinn vill sem hæst tímakaup, vitandi það, að þeim mun ótryggari og styttri verður atvinna hvei*s einstaks. En nú hefir fyrverandi rit- stjóri Alþýðublaðsins, ólafur Friðriksson viðurkent opinber- lega, að hann hafi skilið, að stefna Morgunblaðsins í þessu máli er hin rjetta. Það borgi sig að slá af tíma- eða dag- kaupinu — þegar löng og trygg atvinna er í boði. t'onandi að samherjar Ól- afs beri smátt og smátt gæfu til þess að átta sig á þessu máli eins og hann. „Það var barn í dalnum“. Margir kannast við „Ókind- arkvæði“ úr íslenskum þulum, er byrjar svona: Það var barn í dalnum, sem datt on’í gat. En þar fyrir neðan ókindin sat.......o. s. frv. Þetta dettur manni í hug í sambandi við hinn horfna upp- bótarþingmann Bændaflokks- ins, Magnús Torfason, sem, eftir frásögn hans við Ölfusá, datt ofan um ausugatið á Fram sóknarflokknum og síðan on’í gat á Bændaflokknum, en „ó- kindin“ í líki rauðu lands- stjórnarinnar náði í skankana á uppbótarþingmanni þessum og hefir hann nú í hendi sjer. En alt er þegar þrent er. Og því mun engan furða, þó Magnús Torfason eigi eftir að lenda ofan um þriðja gatið. — Ef t. d. hann skyldi hugsa sjer að koma á Alþing, sem aftur- genginn uppbótarþingmaður Bændaflakksins, þá opnaðist þar gat í gólfinu fyrir þetta „orðuprýdda gamalmenni“, — mátulega stórt handa honum til þess að hverfa ofan í. Æskulýðssamkoma verður hald- ín í Betaníu, Laufásveg 13, annað kvöld kl. 8y2. Steinn Sigurðsson rithöfundur talar um bænina og Magnús Runólfsson cand. theol. um trúna á heilagan anda. Enn- fremur verður upplestur, Zionskór inn syngur og ungmeyjakór K. F. U. K. syngur og spilar. Alt ungt fólk er velkomið og aðrir meðan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.