Morgunblaðið - 27.06.1935, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.06.1935, Qupperneq 4
4 Nýfð bringu- snndsmet. Síðastliðinn sunnudag- setti Þor- steinn Hjálmarsson (Á.) nýtt met á 500 m. bringusundi. Tíminn var 8 mín. 37,4 sék. Hann setti metið í Sundlaugunum við Reykjavík. Gamla metið var 9 mín. 1 sek., sett af Jóni Inga Guðmundssyni í sjónum árið 1928. Þetta er þriðja bringusundsmet- ið, sem Þorsteinn setur á þessu vori, því að um daginn setti hann met bæði á 200 m. og 400 m. Þorsteinn Hjálmarsson. bringusundi. Þorsteinn byrjaði að æfa sund árið 1929, og þótti strax efnilegur og árið 1931 var hann talinn með bestu bringusunds- mönnum landsins. En þá varð hann að hætta æfingum í tvö ár vegna heilsubilunar, en í fyrra, árið 1934, byrjaði hann aftur að æfa af fullum krafti og með ágæt- um árangri. í vetur var hann, á trjesmíðanámskeiði í Kaupmanna- höfn frá nýári og fram í apríl, og æfði hann jafnframt sund af miklum krafti hjá hinum þekta bringusundskennara Dana, Daniel- sen og ungfrú Elsu Jakobsen, fyr- verandi heimsmeistara í 200 m. bringusundi kvenna, og fekk þar^ ágæta tilsögn. En þó munu hin ágætu skilyrði í dönskum sund- höllum hafa ráðið mestu um fram- för hans. Þó segir Þorsteinn, að vatnið í þeim sje tæplega eins gott að synda í, og vatnið í okkar gömlu og hrörlegu laug. Þess vegna má búast við, þegar sundhöllin hjer er komin upp, að okkar sundmenn nái fljótlega að standa nágrannaþjóðum vorum jafnfætis í sundíþróttinni og einn- ig mjög líklegt, að erlendir sund- menn komi hingað til að setja met í hinu ágæta vatni okkar, ekki síður en þeir nú streyma til Árósa til þess að bæta met sín, vegna þessr að þar er vatnið betra en annars staðar. Aðalfundur íþróttasambands ís- laiids verður haldinn í Kaup- þingssalnum í kvöld og hefst ld. 81/2. íþróttaskólinn á Álafossi. Sund- og leikfimissýning núverandi nem- anda fer fram n. k. laugardag, 29. þ. m., kl. 4 síðd. stundvíslega. Foreldrar velkomnir. MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 27. júní 1935. I D R Ó T T I R Carnera tapar í hnefaleik. Svertinginn Joe Louis slær hann í rot í sjöttu uinfcrð, og er það talinn glæsilegasti sigurinn í sogu hnefaleikanna. New York, 26. júní. FB. | Áður en hnefaleikakepni þessi Hnefaleikakeppni fór fram hjer fór fram hafði Carnera kept 82 í gær, sem íþróttavinir um allan sinrium í hnefaleik, þar af unnið heim biðu fregna af með óþreyju. algeran sigur í 62, og ekki tapað Keppendurnir voru Joe Louis, nema 6 sinnum. Louis, sem að eins blökkumaður, og ítalski kappinn hefir kept eitt ár, hefir 22 sinnum Carnera. Joe Louis vann algeran tekið þátt í hnefaleik, þar af sigur á Carnera og sló hann til unnið algeran sigur 18 sinnum jarðar (téchnieal knockout) í og ekki beðið ósigur í hnefaleiks- sjöttu umferð. Joe Louis er talinn keppni enn þá. Menn greindi mjög hafa unnið glæsilegasta sigurinn, á um það, fyrir hnefaleikskeppn- sem unninn hefir verið í allri sögu ina í gærkvöldi, hvor mundi bera hnefaleiks-íþróttarinnar. — Joe sigur úr býtum, og flestir höll- Louis er 21 árs að aldri og er frá 'uðust að því, að Carnera mundi Detroit. Hnefaleikurinn fór fram vinna, ekki vegna þess að þeim í Yankee Stadium. Áhorfendur væri ekki ljóst, að Louis hefði voru fjölda margir, enda er Carn- mikla framtíð fyrir sjer í þessari era fyrverandi heimsmeistari (Max grein, svo mikla, að sumir þeirra Baer vann sigur á honum í júní álíta hann langbesta hnefaleiks-i í fyrra), en það dró menn ekki mann, sem uppi hefir verið, held- síður, að Joe Louis hafði vakið á ur végna þess, að hann hefði ekki sjer mikla eftirtekt sem efnilegur enn sem komið er nóga reynslu. hnefaleikskappi, þrátt fyrir það En fáeinir hugðu Louis mundu hversu ungur hann ér. Áformað vinna og þeirra spár ræltust í hafði verið að keppa í 15 umferð- gærkveldi. (UP.). um. íþ róttayf i rI it. Grindahlaup. Hjer sjest methafi Þjóð- verja í grindahlaupi, Tross- tigninni og fluttist upp í næsta þyngdarflokk, weltervigt. — í fyrra barðist hann við heims- meistarann í þeim flokki, Jimmy Mc Lamin og sigraði hann. En nokkrum mánuðum síðar tapaði Ross fynr sama manni. Fyrir skömmu börðusl þeir svo í þriðja sinn og sigr- aði Ross nú eftir 15 lotur. Er Ross því heimsmeistari í þess- um þyngdarflokki nú. bach, vera að reyna nýar grindur, er gerðar eru úr stál- pípum, og þykja ágætar. Marcel Thil heimsmeistari í miðþunga- flokki varði tign sína aftur á móti fyrir Spánverjanum Ign- acio Ara. — Aðrir meistarar eru nú: Bob Olin í ljett-þunga- flokki, Tony Canzonen í ljettri vigt, Freddie Miller í fjaður- vigt og Jackie Brown í flugu- vigt. Fimm meistaranna eru Bandaríkjamenn, en þrír Ev- rópumenn. Heimsmeistaratignin í ljettri- vigt. Barney Ross, sem meistari hefir verið 1 þessum flokki und- anfarið, hefir nú sagt af sjer tigninni, mun vera orðinn of þungur, og ætla að reyna að ná tigninni af Jimmy Mac Lar- nin, sem meistari er í welter- vigt. Tilnefndir til að berjast um tign Barney Ross voru þeir Tony Canzoneri og Louis Am- bers, og börðust þeir fyrir skömmu í New York. T. C. hefir áður verið meistari í þessum flokki og sigraói hann nú aftur. Kom það mörgum á óvart, því flestir töldu Ambers betri. Bardaginn var hinn harðasti frá byrjun til enda, en C. var þó betri í því nær öllum lotum og vann greinilega. Barney Ross, Dempsey kastað út úr „hringn- sem heimsmeistari hefir ver- um“ — ið í ljettri vigt, sagði af sjer Jack Dempsey fyrv. heims- ! meistari í hnefaleik var ný- ! , lega dómari í f jölbragðaglímu I í Boston, og neyddist þann þar til að gera annan glímumann- inn leikrækan fyrir ósæmilega' ; framkomu. Hafði líkt komið áður fyrir þennan mann, svo auðsjeð er að íþróttamenska hans er ekki á háu stigi. En í þetta sinn varð maðurinn svo reiður, að hann rjeðist að Dempsey og kastaði honum niður, tók hann síðan upp og henti honum út úr „hringn- um“. Sama reyndi hann að gera er Dempsey kom aftur inn í ,,hringinn“, en nú hafði Dempsey áttað sig, tók hnefa- leiksaðstöðu og sló hinn óða mótstöðumann sinn „kaldan“ með einu heljar höggi. Þurfti sá ekki meira að sinni. Bauðst Dempsey til að vera dómari endurgjaldslaust framvegis, er þessi náungi kepti. Dempsey er nú 40 ára gam- all. Þykir hann ágætur dóm- ari — rjettlátur og hispurslaus — og enn er hann allra íþrótta- manna vinsælastur í Bandaríkj unum. Bardagar um heimsmeistara- tignirnar hafa verið all-tíðir undan- farið. Max Baer tapaði fyrir Braddock í þyngsta flokki Mac Lamin fyrir Ross í weltervigt Braddock. og A1 Brown fyrir Spánverj- anum Saugchili í bantam-- flokki. Sundmet. Danski sundgarpurinn Finn Jensen, hjelt ekki lengi rneti sínu í 500 m. bringusundi, því nú hefir Ameríkumaðurinn John Higgins sett nýtt heims- met á þessari vegalengd með 7 mín. 27 sek. Er það um 4 sek. betri tími en met Finn Jensens. Hinn frægi franski sundmað- ur Jean Cartonnet, sem oft áð- ur hefir sett heimsmet í sundi, en drógst aftúr úr síðustu 2 árin, er nú byrjaður að nýju að fást við að fella heimsmet- in í bringusundi. Hefir hann þegar sett 2 ný heimsmet. 1 200 m. bringusundi með 2 mín. 39,6 sek. og í 200 yards (en það met átti hann sjálfur) með 2 mín. 25,2 sek. Þjóðverj- Knattspyrnuflokkur þingmanna. „Politiken1 ‘ slcýrir frá því’ að sænska ríkisþingið hafi skipað 11 manna úrvalslið þingmanna til að keppa í knattspyrnu við 11 kenslu konur frá Stokkhólmi. Kappleik- urinn átti að fara fram 2. þ. m. og ágóðinn að renna til templara í Svíþjóð. Um úrslit leiksins hefir ekki frjest, en gera má ráð fyrir að kenslukonurnar hafi orðið und- ir í viðureigninni við þingmenn- ina. Hvenær mætir úrvalsflokkur ísl. þingmanna til leiks til ágóða fyrir templara — eða eitthvað annað þarft málefni ? Á þingi eru þó nokkrir gamlir knattspyrnumenn í flestum þingflokkum. Væri því auðvelt fyrir þingið að mæta með sterkan knattspyrnuflokk. Hvað segja menn t. d. um þessa 11 manna sveit: Framlierjar: Pjetur Halldórs- son, Gunnar Thoroddsen, Ólafur Thors, Thor Thors, P. Ottesen. Framverðir: Bergur (Jónsson, Hermann Jónasson, Bjarni Bjarna son. Bakverðir: Haraldur Guðmunds- son, Hjeðinn Valdimarsson. Markvörður: Magnús Torfason. Er þá tekið tillit til allra flokka. Sjálfstæðismenn eru framherjar og minst 3 þeirra gamlir knatt- spyrnumenn, en Pjetur H. og Pjetur O., eru sjálfsagðir ef á- góðinn á að renna til templara. Framsóknarmennirnir: Bergur var knattspyrnumaður áður fyr en Hermann og Bjami frægir í- þróttamenn. Haraldur er knár vel, og Hjeðinn iðkaði knattspyrnu fyrir fáuln árum, og er þá bak- vörður öruggur. Magnús er full- triii þeirra flokka sem eftir eru (og jafnframt utanflokka manna og þeirra flokka sem ekki eru til enn). Hann fyllir vel út í markið og mun veitast auðvelt að verja „gatið“. Ef forseti sameinaðs þings verður dómari, mun honum veit- ast auðvelt að úrskurða flokknum sigur. — Sjálfsagt er að Eystemn skipi nefnd til að annast það sem inn kemur. Má þá gera ráð fyrir að ríkissjóður fái 30%, 69% fari í kostnað og templarar fái af- ganginn. —!! K. Þ. inn Sietas átti metið í 200 m. bringusundi og var það 2 mín. 42,4 sek. Þessir tveir sundgarpar verða traustir fulltrúar fyrir Evrópu á næstu Olympsleikum gegn hinum ágætu amerísku og japönsku sundmönnum. K. Þ. Sundkensluafmæli. I dag eru liðin 25 ár síðan að Ólafur Magnús son, sundkennari frá Bitru, hóf sundkenslustarf sitt í Eyjafirði, þá aðeins 17 ára að aldri. Fyrstu árin kendi hann sund í sveitunum kringum Akureyri; stundum á tveimur til þremur stöðum á sumrum, en síðan árið 1922, hefir hann kent sund á Akureyri. (FU).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.