Morgunblaðið - 22.08.1935, Síða 2
MOEGUNBLAÐIÐ
Fimtndagiim 22. ágúst 1935,
s a:
Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritatjórar: J6n Kjartansson,
Yaltyr Stefánason.
Rltstjðrn og afgrelBala:
Austurstrætt 8. — Sfml 1890.
AuglýsingastjSrl: E. Hafberg.
Anglýsingaskrif stof a:
Austurstrætl 17. — SJmi 8700.
Heimasimar:
J6n Kjartansson, nr. 8742.
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áakriftagjald:
Innanlands kr. 2.08 á mánuBl.
Utanlands kr. 3.00 i mánuBl.
I lausasölu: 10 aura elntakiB,
20 aura meB Lesbök.
Þýskalandsför
Knattspyrnumannanna
Á öðrum stað hjer í blaðinu er
skýrt frá kappleik þeim, er ís-
lensku knattspyrnumennimir háðu
í 'Berlíh í gær við þýskan knatt-
spyrnuflokk.
Var síðari hálfleiknum endur-
varpað hingað, og tókst endur
Varpið vei..
En fyrir íslenska knattspyrnu
Kðinu tókst leíkurinn jafn hörmu-
lega, eins-. og í Dresden á sunnudag
inn.
Eftir slíka útreið getur mönn-
um hrotið af munni: „Þeim hefði
verið nær að sitja heima og fara
hvergi“.
Leiðsqgumenn knattspyrnu-
^þn.at|þa, sem sögðu frá leikn-
um í útvarpinu í gær, komust að
orði á þá leið, að það væri ekki
gaman að standa þarna frammi
fyrir þúsundum áhorfenda og sjá
ófarjr landa sinna.
,Það rná vera, að þeim hafi þau
augnablikin flogið hið sama í
hug, að förin hefði verið betur
áfarin,;;þrátt fyrir það, hve ágætar
viðtökur hinn íslenski knattspyrnu
ftokkur hefir fengið í Þýskalandi.
Því eftir því, sem þeir fjelagar
skýrðu frá í útvarpinu, hafa við-
tökurnár verið þar alveg fram-
úrskarandi að öllu leyti. Þjóð-
verjar hafa bókstaflega horið
hina íslensku knattspyrnnmenn á
höndum sjer. Þeir hafa því áreið-
anlega mikía ánægju af ferð þess-
ári — bæði ánægj.u — og gagn.
Því þeir drógu ekki dnl á það
fjelagár þeirra, sem töluðu í út-
varpið í gær, að hinir íslensku
knattspyrnumenn og ísl. knatt-
spyrnuíþrótt yfirleitt hefði gagn
af för þessari.
íslenska knattspyrnnmenn vant-
ar leikni og kunnáttu, samanbor-
íð við erlenda íþróttamenn.
Og þá vantar grásvöll hjer
heima til knattspyrnuiðkana.
Það er tvent ólíkt, að iðka
knattspyrnu á grasvelli og malar-
vélli, eins og hjer er.
Meðan íslenskir knattspyrnu-
menn- hafa hjer ekki grasvöll til
æfinga og kappleikja, geta þeir
ekki ajtlað sjer, að fara utan og
keppa á grasvöllum við sjer æfð-
íiri men:, er hafa alt önnur og
betiú; 'Skilyrði-
Þötta hafa íslenskir íþrótta-
menn og íþróttavinir nú lært.
Þetta er lærdómúrinn, gajnið af
Þýskalandsförinni, lærdómur, sem
mann verða að færa sjer í nyt.
Aunað hvort er fyrir íslenska
knattspyrnumenn að hætta við
Ráf$hei*i'af«iii€lfir i London
i dag um Abysslniudeiluna.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Allar þjóðir bíða ná með óþreyju eftir því, hvað ger-
ast kunni á ráðherrafundi breska ráðuneytisins, er haldinn
verður á fimtudaginn.
Lausafregnir hafa borist um það, að meirihluti ráð-
herranna sjeu því mótfallnir, að komið verði fram þving-
unarráðstöfunum í hefndarskyni gagnvart ítölum út af
framkomu þeirra í Abyssiníudeilunni. Mælt er, að þeir
líti svo á, að ef til þeirra ráða verði gripið, muni það geta
leitt til ófriðar milli Breta og ítala.
Ráðherrar nýlendanna vara Bretastjórn við því, aS
gera nokkuð það, er til ófriðar geti leitt.
Páll.
Viðræður breskra
stjórmálamanna.
London 21. ág'úst. FÚ.
Flestir bresku ráðherranna
eru þegar komnir til London:
Chamberlain og Baldwin frá
útlöndum, og MacDonald frá
Skotlandi.
I morgun áttu utanríkisráð-
herrann, Sir Samuel Hoare og
Anthony Eden fund með
nokkrum stjórnmáíaleiðtogum
í utanríkisráðuneytinu. Meðal
annara voru þar komnir Ge-
orge Lansbury og David Lloyd
George.
Leiðtogi frjálslynda flokks-
ins á þingi, Herbert Samuel,
var meðal þeirra, sem síðar
heimsóttu utanríkisráðuneytið,
og átti hann tal, ásamt þeim
Sir Samuel og Eden, við full-
trúa Nýja Sjálandg, Ástralíu,
Suður-Afríku, Canada og Irska
fríríkisins.
Síðdegis í dag fóru Viscount
Cecil, formáðúi' Þjóðabanda-
lagsfjelagsins í Bretlandi, og
Winston Churchijil, á fund ut-
anríkisráðherra, en litlu síðar
gengu þeir Sir Samuel Hoare
og. Anthony Eden yfir í nr. 10
Downing Street, til Baldwins
forsætisráðherra.
Sanatilræði við
Dimitroíf í Moskva.
Stanley Baldvin.
Bandaríkin ælla að
silja lijá. ef fil stya’f-
aldar kemur.
London 20. ágúst F. Ú.
Ákafar umræður urðu í sam-
einuðu þingi Bandaríkjanna í dag,
um yfirvofandi stríðshættu í
Abyssiniu.
Voru allir á eitt sáttir um það,
að Bandaríkin skyldu halda sjer
að öllu leyti utan við slíka styrj-
öld, og ekki hefja neinar umræð-
ur út af Kellogg-samningunum,
er gætu flækt Bandaríkin inn í
málið.
að hugsa sjer til að taka upp
kepni við erleuda flokka á er-
lendum vettvangi, ellega.- auka
við kunnáttu sína, bæta þjálfun
sína, taka íþrótt þessa fastari tök-
um en gert hefir verið, og fá hjer
bætt hin ytri skilyrði, grasvöll, til
knattspyrnuiðkana sinna.
Þetta er hin nokkuð dýrkeyita
reynsla, sem flokkurinn er fór til
Þýskalands kemur heim með.
1 Tillögur komu fram um það, að
se! ja bann gegn öllum vopnafiutn-!
ingi frá Bandaríkjunum til ítalíu
og Abyssiniu, og að afgreiða ekki •
skip, sem kæmu til amerískra
hafna, ef þau flyttu hergögn til
þessara landa. i
i I
Efamál að Banda-
ríkjamenn gef 1 verlð
hluflau^ir.
Þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýs-
ingar Bandaríkjastjórnarinnar
1 og pólitískra leiðtoga í Banda-,
ríkjunum um það, að Bandarík-’
| in muni vera algerlega hlut-
1 laus, ef til i styrjaldar komi
milli Abyssiníu og Ítalíu, þá ef-
ast New York Times í dag um
að slíkt sje mögulegt, og bein-
ir nokkrum spurningum til
stjórnarinnar í því sambandi. j
„Hverju ætlar stjórnin að
svara“, spyr blaðið, ,,ef Bretar
krefjast þess, að bún geri ræki-
lega grein fyrir afstöðu sinni?“
Og ennfremur:
„Myndu Bandaríkin standa
utan við alment vopnaflutnings
bann gegn ítalíu, ef Þjóða-
bandalagið ákvæði slíkt
bann?“ .
Og loks:
,,Ef Bretar tækju fyrir kola-
útflutning til ítalíu, myndu
Bandaríkin einnig neita ítöl-
um um kol, eða nota tækifær-
ið til þess að koma vöru sinni
á þann markað?“ ;
l
„Það er gott og blessað“,
segir New York Times, „að,
segjast ætla að vera algerlegaí
Satnuel Hoare.
hlutlaus, en kann að reynast
örðugra að framkvæma það,
og Evrópa mun krefjast þess,
að fá að vita, hvort Bandarík-
in ætla að hjálpa henni til þess
að leiða þetta mál til eins
happasælla lykta og unt er,
eða ekki“.
Þeir, sem ötullegast hafa
beitt sjer fyrir „Hlutleysis-
frumvarpinu“, hafa ekki svar-
að þessari grein New York
Times neinu.
Kemur Þjóðabanda-
lagsráðið saman
í næsfu viku ?
London 20. ágúst F- Ú.
Frá Genf kemur tillaga um
það, að ekki verði látíð bíða til 4.
september að kalla saman fund í
Þjóðabandalaginu, eins og áður
hafði verið gert ráð fyrir, heldur
verði fundur kallaður saman þeg-
ar í næstu viku. Ástæðan er sú, að
regntíminn í Abyssiniu er að
verða búinn, og má búast við því,
að Italir hefji árás þá og þegar
á Abyssiniu, ef ekkert er að gert.
Herllufningur Kfala
licldur áíram.
Tvö skip, hlaðin flugvjelum, og
með 2000 svartliða, lögðu af stað
frá ítalíu í gær til nýlendanna.
ÍO—15 ára sfyrjðld.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Times skrifar í dag um Abyss-
iníudeiluna:
Engum kemur það á óvart,
nema ítölum, þó styrjöld milli
ítala og Abyssinínmanna standi
yfír í 10—15 ár, ef til vopnavið-
skifta kemur á annað borð.
Blaðið spyr:
Treystir Mussolini sjer til þess
að hafa núljón hermanna undir
vopnum ár eftir ár, og halda
fjárhag ríkisins í því horfi, að
ríkið geti staðið við skuldbind-
ingar sínar?
Blaðamenn hafa haft tal af
Mae Donald- Hefir hann komist að
orði á þessa leið :
Abyssiníudeilan hefir gert á-
stand og horfur í heiminum í-
skyggilegri en þær nokkru sinni
hafa verið síðan 1914.
PálL
Bimitroff, er hann sat í fangelsi
í Þýskalandi.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EiNKASKEYTi TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Liðsforingi í rússneska hern-
um, Schobolioneff, rjeðst nýlega á
hinn víðkunna búlgarska komm-
únista, Dimitroff, er lengi var
í haldi í Þýskálandí út af Þing-
hallarbruhanum og særði’ hánn með
skambyssuskoti.
Páli.
Norsk útvarpsfrjett í gærkvöldi
hermdi, að Dimitroff hafi beðið
bana af skotsárinu.
Dansk-íslenska
ráðgjafarnefndin.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Danska stjórnin hefSír boðið
dönsk-íslensku nefndinni í ferða-
lag þann 26.—31. ágúst um Dan-
mörku.
Eiga nefndarmenn að fá að
kynnast ýmsum fyrirtækjum og
mannvirkjum í Danmörku.
Páll.
Miklir hitar í Englandi.
London 21. ágúst. FÚ.
I dag er mikill hiti um alt
England, en einna mestur í
Lundúnaborg. Vegna langvar-
andi þurka eru skógar og gras-
lendi mjög eldfim, enda hafa
borist fregnir af skógareldum
víðsvegar að, og í dag kvikn-
aði í skrælnuðu grasi í Hyde
Park í Lundúnum.
Farþegar með Dettífossi í gær
til útlanda voru m. a.: María
Markan, söngltona og Páll Hall-
dórsson.
t