Morgunblaðið - 28.08.1935, Síða 8

Morgunblaðið - 28.08.1935, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikud. 28. ágúst. 1935- mssm SlŒynnvnyac J&uips/uiftuc Þýskukensla. — Get tekið nokkra nemendur í þýsku. Sjer- stök áhersla lögð á talæfingar. Upplýsingar í síma 1248. Slysavamafjelagið, skrifstofa við hli§ hafnarskrifstofunnar í Hafnarhúsinu við Geirsgötu. Seld minningarkort, tekið móti gjöfum, áheitum, árstillögum m. m. Spírella. Er aðeins við, til að taka mál og pantanir, mánuð- ína júlí og ágúst, á þriðjudög- utn og föstudögum kl. 3—6 síðd. Guðrún Helgadóttir, Bergstaðastræti 14. JC4Í&Tt€&£Í 2 sólrík herbergi til leigu fyrir einhleypt fólk. Aðgangur að eldhúsi og baði getur kom- ið til greina. Laugavatnshiti. Upplýsingar hjá A. S. í., ekki í síma. Regnhlífar teknar til viðgerð- ar. Breiðfjörð, Laufásveg 4. Vetrarkápuefni nýkomin. — Ullarkjólaefni, hlý og falleg. Kjólakragar, fallegt úrval. — Versl. Guðrúnar Þórðardóttur, Vesturgötu 28, Silkisvuntuefni, skotks Og ein- lit. Silkiundirsett. Silkisokkar, barnaföt, alskonar. Verslun Guðrúnar Þórðardóttur. Vest- urgötu 28. Kaupum gamlan kopar. —- Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Sími 3024. Rúgbrauð, franskbrauð og normalbrauð á 40 aura hvert. Súrbrauð 30 aura. Kjarnabrauð 30 aurá. Brauðgerð Kaupfjel. Reykjavíkur. Sími 4562. Barnavagnar og kerrur tekn- ar til viðgerðar. Verksmiðjan Vagninn, Laufásveg 4. Veggmyndir og rammar í fjölbreyttu úrvali á Freyju- götu 11. 20 aura 2 kg. kartöflur (útlendar). Sterkur Rússi. j Rússar vilja halda þyí fram að sterkasti maður í heimi sje Rússi, Grigori Glikin. Hann vinnur um þessar mundir í Stalin-vjelaverk-. smiðjunni, hleður á vagna, flytur til þungar vjelar, lyftir stundum alt að fimm tonna þunga. Rúss- neska Sovjet-stjórnin kann vel að notfæra sjer og meta krafta Glikins. Hann hefir aldrei fengið að sýna sig opinberlega, en hefir verið sendur til erfiðisvinnu úr einum staðnum á annan, þar sem vinna liefir ekki gengið nóg og vel, til þess að vera öðrum verka- mönnum til fyrirmyndar. Sovjet-rússneskir vísindamenn hafa skrifað vissan matseðil fyrir hann, fær hann þrisvar sinnum stærri brauðskamt en hinir verka- mennirnir og má fá 60 pd. af kjöti á mánuði, en það er sami skamtur og venjulegur verkamað- ur fær á ári. Skotasaga. Enskt blað segir frá því — í fullri alvöru, að því er virðist — að Skoti nokkur hafi sótt um það til útvarpsráðs að fá að greiða hálft afnotagjald fyrir útvarps- tæki sitt, þar eð hann sje heyrn- arlaus á öðru eyranu. í Þrír lærðir prófessorar í Melbourne veðjuðu fyrir nokkru við tólf stúdenta um það, að þeir gætu staðist stúdentspróf. Þeir fellu allir, þegar til kom, til mikillar ánægju fyrir stúdent- ana. Til Akureyrar: Alla Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Frá Akureyri AUa Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Afgreiðsla á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar. Bifreiliasiöll Sfeindórs. Sími 1580. Timburverslun j P. W. Jaeobsen & Sðn. Í Stofnuð 1824. Símnefni: Granfuru — Carl-Lundsgade, Köbenhavn C. Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- mannahöfn. — Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð. Hefi verslað við Island í meir en 80 ár. I • Allir Reykvíkingar lesa auglýsingar Morgunblaðsins. FANGIM FRA TOBOLSK. 27. en honum ofbauð að sjá meðbróður sleginn þannig til jarðar fyrirvaralaust. „Það er hryllilegt — hryllilegt“, stamaði hann. „Takið það nú ekki svo nærri yður, drengur minn, þó svona þorpari sje sleginn niður. Sem betur fer, hefi jeg gert út af við marga hans líka. Þjer mynduð enga meðaumkvun hafa með honum, ef þjer hefðuð verið sjónarvottur að því, sem jeg sá hann og samskonar kumpána og hann aðhafast á árunum 1912—1920. Þeim skelfingum verður ekki með orðum lýst. Jeg hefi reynt af fremsta megni að gleyma því. — En komið nú og hjálpið mjer að fela þenna auma skrokk“. Simon setti bakpokana frá sjer og dró andann djúpt. Þetta var nú einu sinni búið og gert, hugs- aði hann, og tjáði ekki að fást um það. Þegar hann var búinn að jafna sig dálítið, tók hann það sem einn lið í því æfintýri, sem hann var kommn út í. — Skúrhurðin var aðeins bundin aftur með kað- alspotta, en inni í skúrnum var fult af verkfær- um. Hægt og hljóðlega ýttu þeir hrúgu af brotn- um skóflum og rekum til hliðar, báru líkið þang- að og þöktu það með verkfærunum. Síðan lok- uðu þeir hurðinni vendilega, afmáðu öll vegsum- merki í snjónum og skunduðu af stað. »Simon var áhyggjufullur út af því, að spor þeirra myndu sjást, en de Richleau brosti. „Lítið til himins“, sagði hann. „Eftir hálfa klukkustund verður snjórinn búinn að þekja alt“. „Aldrei hefði mjer dottið í hug, að jeg gledaist yfir snjókomu“, sagði Simon og hló. „En hvað er nú fyrir höndum?“ De Richleau hagræddi bakpokanum á baki sjer. „Nú eigum við vandasamt verk fyrir höndum. Án þess að vekja grun, verðum við að ’komast að því, hvenær lest fer til Tavda-fljótsins og fá okkur farmiða“. „Hvað er — eh — langt til Tobolsk?“ „Lestin fer um þrjú hundruð kílómetra, og svo eigum við eftir að fara líklega hálft annað hundr- að kílómetra þvert yfir landið. En eitt höfum við að minsta kosti verið hepnir með“. „Og hvað er það?“ „Að við komum hingað svo snemma morguns. Ef lestin skyldi fara í dag, komumst við með henni“. ,,í dag?“ Simon rak upp stór augu. „Fer ekki lest daglega?” „Nei, kæri vin. Á slíkum úthala veraldar fara lestirnar ekki nema tvisvar í viku, þar sem best lætur, þriðja hvern dag“. „Hamingjunni sje lof, að við komum ekki um hánótt!“ „Já, þá hefðum við verið orðnir að ísströnglum fyrir dögun“. Þeir voru nú komnir spölkorn frá vörujárn- brautarstöðinni og beygðu niður stíg, sem lá frá járnbrautarstöðinni. Eftir að hafa gengið sjer til hita um 1 km., sagði hertoginn: „Nú er okkur óhætt að snúa við, lestin átti ,að hafa hjer viðdvöl, tuttugu mínútur, og jeg hugsa að nú sje klukkustund liðin frá því að vinur okk- ar, brytinn, slepti okkur“. „Bara að hann komist ekki í vandræði okkar vegna“. „Við skulum vona það. Ef hann hefir vit á að segja, að hann hafi ekki sjeð okkur eftir mið- degisverð í gærkvöldi, er honum borgið. Auðvitað verður hann yfirheyrður í Irkutsk, en hann kveðst þá ekkert vita um hvarf okkar“. Simon fór að berja sjer. „Hamingjan góða, sá kuldi. Ef maður fengi nú ærlegt morgunkaffi!" „Ekki ætti að þurfa að standa á því. Jeg er illa svikinn, ef engin krá er hjer í grend“. Og hertoginn hafði á rjettu að standa. Því að ekki leið á löngu áður en þeir fundu krá — að vísu þriðja flokks — þar sem einn einasti gestur var, hátíðlegur bóndi, er sat fast við ofninn og svolgr- aði í sig tei, um leið og hann horfði fram fyrir sig; starandi augum. Hertoginn klappaði saman lófunum, og gest- gjafinn, snotrasti náungi, hreinlegur, í hvítri stíf- aðri blússu, kom inn. Eftir nokkrar bollalegging- ar fór hann fram, en kom að vörmu spori aftur með morgunverð: egg, svart og hart rúgbrauð og. te. Og þó eggin væru steikt í floti og teið biturt, smakkaðist þeim maturinn vel, því að þeir höfðu með honum besta kryddið, hungrið. Eftir matinn ræddu þeir við gestgjafann, kváð- ust vera þýskir loðskinnasalar og væru að leita fyrir sjer með innkaup á vöru; spurðu hvernig; markaðurinn væri í Sverdlovsk. „Slæmur“, sagði gestgjafinn, „því að veiði- mennirnir vilja ekki lengur fara á loðdýraveiðar. Og því skyldu þeir gera það? Stjórnin vill ekkert borga fyrir skinnin, og engir auðmenn eru hjer lengur til, sem vilja kaupa þau. Þeir fara á veið- ar nokkrar vikur á ári, svo að þeir, ásamt konum og börnum, geti dregið fram lífið, selja skinnin í skiftum fyrir korn og olíu, aðra daga ársins — sofa þeir!“ Hertoginn kinkaði kolli. „Rjett, segið þjer; en haldið þjer, að betra sje að fara lengra norður á bóginn?“ „Það tel jeg vafasamt, eftir því, sem jeg hefi heyrt. Máske eru ástæðurnar betri a,ustar“. „I Omsk?“ spurði hertoginn. „Þar og annarsstaðar í Siberíu, þar sem minna er um embættismenn. Þar er öll verslun frjálsari“. „En í Tobolsk?“ „Það væri ef til vill allra besti staðurinn, ef þið ■ þá getið komist þangað, því að Tobolsk er í „hinu forboðna landflæmi“. „Hið forboðna landflæmi?“, spurði hertoginn og fetti brýrnar. „Hvað er það?“ Maðurinn ypti öxlum. „Það er eitt af brjálæðis- tiltækjum stjórnarinnar, stórt landflæmi, þar sem:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.