Morgunblaðið - 26.09.1935, Síða 6

Morgunblaðið - 26.09.1935, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 26. sept. 1935, Blek og penKÍ ðþarft e», „ERIKA“ betur reynlat rajer. Fegurst — sterkast — bestl Sportvöruhús Reykjavikur. Gott skrifstofulierbergi við höfnina til leigu 1. okt. Upplýsingar í síma 2893. Hár. Hefi altaf fyrirliggjandi hár vi8 íslenskan búning. Verð við allra hæfi. Versl. GoHafoss. tangaveg 5. Simi 3436 Ralvarlvari Lifur, hjörtu og svið. Jóhannes Jóhannsson, Grundarstíg 2. — Sími 4131. Biðfilf um LEITIÐ npplýsinga um brunatryggingar og ÞÁ MUNUÐ ÞJER komast að raun um, að bestu kjörin FINNA menn hjá Nordisk Brandforsikring A.s. á VESTURGÖTU 7. Sími: 3569. Pósthólf- 1013. Lifur og hjörtu, Nýr Mör, Nýtt Dilkakjöt, úr Borgarfirði. Kjötbúðin Herðubreið. Hafnarstræti 18. Sími 1575. iðin í Keflavík. Gullfoss fók 1300 tn. tfil útflutnings. Keflavík, 25. sept. FÚ. í gær kom Gullfoss til Kefla- víkur og ljet á land um 3000 tómar síldartunnur, en tók þar 1300 tunnur af síld til Kaup- mannahafnar. Gullfoss kom beina leið frá Vestfjörðum og sóttu bifreiðar frá Steindóri á annað hundrað farþega, þegar eftir komu skipsins og fluttu þá til Reykjavíkur. Nokkrir reknetabátar voru á veiðum í gær en fengu hvergi síld. I gærkvöldi fóru flestir bát- ar út til síldveiða og var veður hið besta. Bátamir ljetu reka víðsvegar um Faxaflóa og varð rösklega helmingur bátanna ekki var við síld. Þessir bátar komu til Kefla- víkur með síld í dag: Huginn I. með 108 tunnur, Huginn II. með 101 tunnu, Huginn ni. með '107 tunnur, Freyja með 58 tunnur, Glaður frá Vestmanna- eyjum með 35 tunnur, Viggó með 19 tunnur, Stakkur með 37 tunnur, Herjólfur með 18 tunn- ur og Kári með 39 tunnur. 1 Keflavík var að gera suð austan storm kl. 17.30 í dag og fjöldi báta, sem fór út til rek- netaveiða í dag, var þá að koma til hafnar vegna veðurs. Móðurskip Ásgeirs Pjeturs sonar og Óskars Halldórssonar liggja í Keflavík og taka á móti síld. A Akranesi. Akranesi, 25. sept. FÚ. Fr j ettaritari útvarpsins á Akranesi símar í dag að þessir bátar hafi komið með síld til Akraness: Víkingur með 60 tunnur, Ver með 26 tunnur, Val ur með 48 tunnur, Egill með 20 tunnur, Skírnir með 12 tunnur, Höfrungur með 9 tunnur, Ár- mann með 14 tunnur, Hrefna með 35 tunnur, Rjúpa með 30 tunnur og Alda með 48 tunnur. Þegar frjettaritari símaði kl. 18,30 var verið að losa línu- veiðarann Jarlinn fíá Akureyri. Áætlað var að aflinn væri 180 *-200. tunnur. Ný sljórn á Spáni. Lerronx ulanríkis- ráðherra, Gil Robles, fasistaforingi, her- málaráðherra. Madrid, 25. sept. Chapa Prieta hefir myndað stjórn. Hann er sjálfur forsætis- og fjármálaráðherra, Gil Robles hermálaráðherra, Lerroux utan- ríkismálaráðherra, Pablo Banco innanríkismálaráðherra, Pedro Rahola siglingamálaráðherra, Salmon verkalýðsmálaráðherra, Rocha fræðslumálaráðherra, Martinez Velasco landbúnaðar- málaráðherra og Lucia ráð- herra opinberra framkvæmda. (United Press. FB). Landmælingarnar á Islandi I sumar. Nú er ekhi eftir óniælt af hygð nema svæðið frú Berufirði vest- nr að Lónsheiði. Mælingum í óbygð verður lokið eftir fjögur ár. Dönsku landmælingamennirnir, sem hjer hafa verið í sumar, eru nú á förum hjeðan. Þeir fara með Gullfossi í kvöld . Samtai við Kaptein W. Ulrich. Morgunblaðið hitti foringja mælingamannanna, Kaptein W. Ulrich í gær og spurði bann um mælingarnar í sumar. Honum sagð ist svo frá. — Jeg hefi sjálfur verið með mælingamanni í sumar á svæðinu milli jöklanna þriggja, Langjök- uls, Hofsjökuls, eða frá Geysi og norður úr, og norður um Torfa- jökul suður að Kirkjubæjar- klaustri. Við vorum 113 daga í tjöldum, og þar af voru 55 rign- ingadagar. Flokkur mælingamanna var við Hvítárvatn, eins og Morg- unblaðið befir áður getið um. Þeir mældu umhverfis Hvítár- vatn, Kerlingafjöll og þar fyrir austan, alls um 1900 ferkílómetra svæði. Fimm mælingamenn voru á Austfjörðum og með þeim var hinn ágæti aðstoðarmaður okk- ar, Steinþór Siguíðsson. Þessi flokkur Yann að mælingum bæði í bygð og óbygðum og komst með mælingarnar í bygð suður að Berufirði. — Hvað er þá mikið ómælt af bygðum landsins. 1— Það er ekki annað en svæð- ið frá Berufirði vestur að Lóns- heiði, um 2/3 úr einu korti, sem gert er eftir mælikvarðanum 1:100.000. Geta tveir mælinga- menn hæglega lokið við að mæla það að sumri, og þá er öl] straud- lengjan mæld. — En hvað er þá mikið eftir ómælt í óbygðum? — Það er öem svarar fjögra sumra starfi, og er þá Vatnajökull talinn með, en í sumar höfum við mælt fasta punkta víðsvegar á jöklinum, og flýtir það fyrir mæl- ingunni seinna meir. Stórkostlegar skekkjur í korti Björns Gunnlaugssonar — Jeg hefi í sumar gert þrí- hyrnamælingar yfir Fjallabaks- veg nyrðri, og komist að raun um það, að Tungná er um 15—20 km. of norðarlega á korti Björns Gunnlaugssonar, en Arnarfeli hið mikla í Hofsjökli álíka miklu sunnar en það á að vera. Vega- lengdin milli Arnarfells og Tungnár er því um 34 kílómetrum meiri heldur en menn hafa haldið fram að þessu. Hæð nokkurra fjalla. — Þá hefi jeg mælt nokkur fjöll þarna í sumar, sem menn vissu óglögt hvað há eru, og eru hæðir þeirra hjer um bil þessar: Loðmundur 1075 m. Háfarmur í Torfajökli 1200 — Sveinstindur hjá Langásjó 1100 — Þóristindur 860 — Kapt. W. Ulrich. Ógleymanleg náttúrufegurð. — Jeg hefi aldrei á ævi minni sjeð svo dýrlega og ógleymanlega náttúrufegurð, segir Kapt. Ulrich ennfremur, eins og á Fjallabaks- vegi nyrðri. Það er engu líkara en opinberun að horfa yfir land- ið af Torfajökli. Hin glæsilegasta náttúrufegurð íslands er ekki í dölunum, heldur uppi á örævum. Og allir íslendingar, sem það geta, ætti að skoða Fjallabaksveg. Það er líka stórkostleg og hrika- leg náttúrufegurð umhverfis Há- nýpufít og Svartanúpsfjöll fyrir vestan Skaftá. Þar eru stórir og tignarlegir fossar. Minnisstæðast verður mjer þar gljúfur eitt, lóð- rjett standbjörg til beggja handa 200—300 metra há, hið tignarleg- asta hlið, sem hægt er að hugsa sjer og nokkuð inni í gljúfrun- um er fagur foss, en ekki ýkja hár. Er hann í á, sem fellur í Ófæru. Þjer megið hafa það eftir mjer, að jeg fer hjeðan með ógleyman- legar endurminningar um nátt- úrufegurð íslands. Einu vonbrigð- in, sem jeg varð fyrir, voru um Eldgjá. — Hvers vegna? — Jeg hafði hugsað mjer hana miklu hrikalegri og tilkomumeiri heldur en hún er. En hún hefir naumast annað til síns ágætis en Vera lengsta gjá í heimi, 50 km. löng, en lengdina sjer maður ekki alla í einu. Það er danska landmælinga- stofnunin (Geodætisk Institut) sem stendur fyrir landmælingun- um hjer á landi. Formaður henn- ar er prófssor Nörlund. Kapt. Ulrich hefir verið fjögur ár hjer við landmælingar. Ætlaði hann ekki að vera hjer í sumar, því að hann er nú í lífvarðarlið- inu. En hann var fenginn til þess að stjórna landmælingunum vegna þess að Oherstlöjtnant Jensen, sem hefir verið formaðnr landmælingamannanna að undan- förnu, var forfallaður. Alls voru mældir um 6000 fer- kílómetrar í snmar og þríhyrn- ingamæh'ngar gerðar á ca.9000 fer- kílómetra svæði. Eden oj Laval ræða Memeimálin. London, 25. sept. FÚ. Laval og Eden áttu viðræðu í dag og töluðu þá meðal ann- ars um Memel-málin. Eiga kosningar að fara fram í Memel á sunnudaginn kemur og óttast Þjóðverjar, sem eru mjög margir þar í landi, að þeir verði ekki látnir njóta rjettlæt- is í kosningunum. Hafa þeir sent stjórnum þeirra ríkja, sem tekist hafa á hendur að ábyrgj- ast landsrjettindi í Memel, bæn- arskjal um það að Þjóðverjum í Memel verði trygður fullur rjettur í kosningunum. Yngsta skáld íslendinga 17 ára. Yngsti rithöfundur Islend- inga, Ólafur Sigurðsson, verður seytján ára í dag. Tvær bækur liggja eftir þenna unga kappa og þykja báðar góðar. Kristmann Guðmundsson skáld telur ólaf efnilegan „collega". Fer hjer á eftir stutt umsögn Kristmanns um Ólaf: Ól. Jóh. Sigurðsson, Jeg hefi um margra ára skeið lesið handrit að skáldsögum ungra og upprenandi rithöf- unda. Flestir þessara manna hafa verið á líkum aldri og eldri en Ólafur Jóh. Sigurðsson; en jeg verð að segja að jeg hefi enn ekki sjeð einS ákveðna frá- sagnargáfu hjá jafn ungum manní og Ólafi. Hann er auð- sjáanlega fæddur skáld, og mjer líst þannig á rit hans, þau tvö sem þegar hafa verið gefin út, að í honum eigi Island mik- ið rithöfundarefni sem sjálfsagt sje að hlúa að eins vel og hægfc er. Hann er að vísu enn mjög ungur, og framtíð hans að miklu leyti undir dugnaði hans sjálfs komin, en efniviðurinn er mikill og góður. Og það er spá mín, að hann muni efna ríflega öll þau miklu loforð sem bækur hans ,,Við Álftavatn“ og ,,Um sumarkvöld“ gefa: — Mættu landar hans hjálpa hon- úm til þess! Kristmann Guðmundsson. Mislit egg. í París er hænumim víða gefið sjerstakt föður, svo að þær verpi mislitum eggjum, til jilbreytingar og prýði. Eru eggiu allavega lit, jafnvel með silfur- og gull-litum blæ-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.