Morgunblaðið - 26.09.1935, Page 7

Morgunblaðið - 26.09.1935, Page 7
Fimtudagiím 26. scpt. 1935. MORGUNBLAÐIÐ 7 Kvikmyndir. Tvær stérmyndir, sem sýnd- ar verða á næstnnni. Synir Englanús. Orðrómur og erlend blaðaum- mæli um mynd þessa bafa löngu borist til landsins og menn bafa því beðið með eftirvæntingu eftir að sjá, hvort alt það lof sem hún hefir hlotið sje rjettmætt. Bitt er þó víst, að ekkert hefir verið til sparað til að myndin yrði sem best. Paramount fjelagið hefir þarni, skipað fram sínum bestu kröft- um. Carry Cooper er náttúrlega þektasta leikaranafnið- Tllutverk- ið sem hann leikur í þessari mynd er mjög við hans hsefi; ber er- lendum blöðum saman um að þetta sje langbesta hlutverk hans, og er ekki svo lítið sagt með því. Efni myndaríhnar er tekið úr hinni frægu bók eftir P. Yeat- Browni „The lives of a Bengal Lancer“ og lýsir lífi enskra her- manha x Indlandi. Það ,sem einkennir þessa kvik- mynd frá öðrum amerískum mynd- um er að hún sýnir það rjetta landslag og rjetta menn. Lands- lagið er ekki villandi leiksvið, sem flýgur fram hjá leikendunum og jafnvel indversku hermenn- irnir eru , ,ekta“. Þetta gerir myndina eðlilegri og menn njóta hennar betur fyrir bragðið. Jeg skal ekki spilla ánægjunni með því að orðlengja um efni hennar; aðeins þetta: Þetta er sagan um 3 nýtísku fóstbræður úr lxinni frægu ensku Laneer her- sveit í Indlandi. Lýsihgin á þess- um þrem liðsforingjum er prýði- leg. Mc. Gregor (Cary Cooper) er snarráður og hraustur, skotsk- ur Kanadamaður. Hann er ófeim- inn að segja það sem lionum býr í brjósti og leikur sjer að hættun- um ef svo mætti segja. Porsythe og Stone eru vinir hans. Porsythe er dálítið merkilegur með sig, en fullur af gáska og stríðni. Stone er sinur ofurstans, næstum barn að aldri. Ekki þarf að efa að mynd þessi vreður vel sótt, enda mun hún eiga það skilið. — Myndin verður sýnd í Gamla Bíó á næstunni. I One Night of love Kærlighedens Symfony 1 Ast og sönglist. Páum eða engnm kvikmyndum hefir verið hælt eins mikið í út- lendum blöðum og Columbia söngmyndinni „One night of love“ með söng- og leikkonunni Grace Moore í aðalhlutverkinu. Mynd þessi verður sýnd innan skamms í Nýja Bíó og hefir hlot- ið nafnið „Ást og sönglist“. Þegar myndig var sýnd í Winnipeg, auglýsti kvikmynda- húsið í íslensku vikublöðunum að Grace Moore væri af íslenskum settum. Mun það vera rjett, að móðir hennar var íslensk. Grace Moore vill samt ekki viðurkenna þetta sjálf, og er hvarvetna gefið upp að hún sje „100% amerikanP'. Alstaðar, þar sem „Ást og söng- list“ hefir verið sýnd, hefir hún hlotið geysimikla aðsókn. í söngmyndum er erfiðast að samræma myndirnar og sönginn, en þegar þessi mynd var tekin, var notuð ný uppfinding á þessu sviði og er sagt að nákvæmni sje meiri í myndinni en áður hefir þekst. Það verður því gaman að heyra Grace Moore syngja óperu- hlutverkin úr „Carmen“ pg „Ma- dame Butterfly“, en óperusýn- ingarnar em teknar í sjálfri Metropolitan óperunni í New York. Grace Moore. í vor kom Grace Moore til Eng- lands og söng í London. Breta- konungur og drotning hlustuðu á hana syngja 0g eftir ósk lconungs söng hún sjerstaklega fyrir hann aftur. Karlmannshlutverkið í mynd- inni leikur frægur söngvari Tullio Carminati og er til þess tekið hvað honuin ferst það vel úr hendi. Reykvíkingar fá því nú tæki- færi til að sjá og heyra heims- fræga söngkonu og er ekki að efa að það tækifæri verður not- að í ríknm mæli. í. Dagbók. I.O. O.F. 5 = 117926872 = □ Edda 59351017 — atkv. Pjárhagsst.: Listi í □ og hjá S:. M:. til mánudagskvölds. Veðrið (miðvikud. kl. 17): Um 1000 km. suðvestur af íslandi er allstór lægð, sem veldur A- eða SA-strekkingi við SV-strönd landsins með dálítilli rigningu. Annars er liægviðri um alt land, bjartviðri nyrðra, og hiti 6—9 st. Lægðin mun hreyfast NA-eftir og herða nokkuð á A- og SA-átt um alt land næsta sólarhring. Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn- ingsltaldi á A eða SA. Dálítil rigning. Böðvar Bjarkan, lögmaður, kom hingað til bæjarins í gær, og dvelur hjer um tíma. Dráttarvextir. Blaðið hefir ver- ið beðið að vekja athygli útsvars- gjaldenda á auglýsingu bæjar- gjaldkera í blaðinu í dag, um út- svör og dráttarvexti af þeim. — Þeir, sem gf'éitt hafa ' rjettan helming út.svara Jiurfa að greiða nokkurn hluta eftirstöðva fyrir mánaðamót, -svo, að dráttarvextir falli ekki á þær. Þriðji útsvafs- hlutinn verður að greiðast næstu daga. Fjárvieitinganefnd,. Eins og skýrt hefir verið frá hjer í bíað- inu, hafði fjáryeitinganefnd ver- ið kvÖdd saman 25. þ. m. *— éða í gær. Þessir eiga sæti í fjárveit* inganefnd: Magnús Guðmundsson, Jón Sigurðsson, Pjetur Ottesen, Þorsteinn Þorsteinsson (frá Sjálf- stæðisflokknum), Bjami Bjarna- son, Jónas Jónsson, Jónas Guð- mundsson, Sigurður Einarsson, Þorbergur Þorleifsson (frá stjórn- arliðum). Nefndin kom saman í gær, en þá voru þessir utanbæjar- menn ókomnir: Jón á Reynistað, Bjarni Bjarnason og Jón Guð- mundsson. Pormaður nefndarinn- ar, Jónas Jónsson, var ekki mætt- ur, því hann var ekki kominn heim úr luxusflakkinu, en vænt- anlegur í dag. Eftirspum eftir ísaðri síld. Þrjátíu járnbrautarvagnar, hlaðn- ir ísaðri síld, hafa verið sendir frá Narvík til Þýskalands. Pantanir berast frá Þýskalandi um meira af ísaðri síld. (P. Ú.). „Sagaöen“, hin nýja bók Gunn- arsv Gunnarssonar skálds kemur út í byrjun októbermánaðar. Þetta rit er sögulegs efnis, og f jallar um ísland og íslenska menn frá því á landnámsöld og til vorra daga. (F. Ú.). ísfisksala. Júpiter seldi afla sinn í Grimsby í gær, 937 vættir, fyrir 1802 stpd. Einnig seldi Yen- us í Hull í gær, 1423 vættir, fyrir 2417 stpd. Kári seldi afla sinn í Cuxhaven í gær, 78 tonn, fyrir 21,779 ríkismörk að frá- dregnum tolli. Farsóttir og manndauði í Rvík vikuna 1.—7 september (í svigum tölur næstu viku á undan): Háls- bólga 31 (17). Kvefsótt 29 (23). Iðrakvef 18 (13). Taksótt 1 (0). Skarlatssótt 0 (1). Kíghósti 0 (1). Mænusótt 12 (1). Ristill 1 (0.) Mannslát 10 (3). Landlæknisskrif- stofan (PB). Farsóttir og manndauði í Rvík vikuna 8.—14. september (í svigum tölur næstu viku á undan): Háls- bólga 53 (31). Kvefsótt 31 (29). Barnaveiki 1 (0). Iðrakvef 18 (18). Mislingar 1 (0). Taksótt 0 (1). Mænusótt 4 (12). Ristill 0 (1). Mannslát 7 (10). Landlækn- isskrifstofan (PB). Meðal farþega með Goðafossi vestur og norður í gærkvöldi: Helgi Valtýsson og frú, Árni Helgason og frú, Sigurlína Sig- urjónsdóttir, Sigr. Thoroddsen, Einar Guðmundsson, Inga Frí- mannsd-, Einar Blandon, Marsel- ius Bernharðsson, Haukur Helga- son, Ari Arnalds, Petrína Jónas- dóttir, Hannibal Guðmundsson. Alls voru með skipinu um 40 farþegar. 80 ára afmæli síra Ólafs. Pjöldi vina og kunningja síra Ólafs Ól- afssonar heimsóttu hann eða mint- ust hans á annan hátt með skeyt- um og blómum. Fyrsta skeytið sem síra Ólafur fékk um morgun- inn í rúmið var frá Budapest og var á latínu- o. s. frv. i Hjálpræðisheiinn. í kvöld kl. 8y2 halda töðugjöldin áfranl,‘ (Pæreyjakvöldið). Kapt. Kj, Kjærko og fleiri fjelagar frá Færeyjum verða viðstaddir. V*eiÚ ingar. Allir velkomnir. Eimskip. Gullfoss fer í kvöld til Kbh. Goðafoss fór í gærkvöldf kl. 10 vestur um land í hringferð. Brúarfoss kom ffá útlöndum , í morgún. DettifoSs er á leið til Hamborgar frá Hull. Lagarfoss pr á leið til Austfjarða frá Léitþ. Selfoss fór frá London í dag. Heimatrúboð leikmanna, Hverf- isgötu 50. Samkoma í kvöld kl- 8. Allir velkomnir , ! Enginn fundur í Kristniþoð?- fjelagi kvenna í dag Til Hallgrímskirkj u í Saurbæ: Afh. af Sn. Jónssyni: Áheit frá S. M. 3 kr„ frá Þ. J. 10 kr. — Kærar þakkir. Ól. B. Björnsson. Útvarpið: Fimtudagur 26. september. 10,00 Veðurfregnir. 12.10 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. ' 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Ljett lög (plötur). 20,00 Klukkusláttur. 20,00 Frjettir. 20.30 Erindi:, Prá útsöndum (Vil- hjálmur Þ. Gíslason). 21,00 Tónleikar: a) Útvarpshljóm- sveitin; b) Endurtekin lög (plötur); c) Danslög. — Fyrirgefið, herra minn, en þjer eruð aðeins í sokk á öðrum fætinum. — Sparnaðarráðstafanir, góði minn. Skipulögð sparnaðarráð- stöfun. Á morgun verður sokfeur- inn á hinum fætinum. Reglu§amur utanbæjarstúdent, sem les í há- skólanum í vetur, óskar eftir heimiliskenslu fyrir fæði. Upplýsingar hjá SIGURÐI KRISTJÁNSSYNI, Öldugötu 59. Sími 4020. ST Yið nákvæmar teikningar eru Stabilo bestir. Þeir fást í 16 mis- munandi hörðum gerðum. BúkUfa&ÓH Lækjargötu 2. Sími 3736. m Ljón öskra ekki þegar þau fasta. Blaðamaður frá dönsku blaði í Höfn, átti fyrir nokfepu ; tal við forstöðumann dýragarðsins. Gamalt karlljón þar virtist ætla að reka upp öskur, en ekkert varð úr því. — Þráir það enn frelsið og náttúruna, spyr blaðamaðurinn. — Hví skyldi maður ætla að ljónið hefði sálarlíf? Það þgkk- ir ekki þá tilfinningu, að njóta frjálsræðis úti í náttúrunni. — Það hefir fengið sinn skamt, 16 pund af hestakjöti og er ánægt. Ljónin öskra að vísu, en ekki af neinu sjerstöku. Ef þau eru á ferli, er það af því, að þau eru hungruð. Ann- ars vilja þau helst halda kyrru fyrir í bæli sínu, Rándýrin eru flest makráð og fara aðeins á kreik, þegar sulturinn og lífa- baráttan rekur þau af stað. — Svelta þau líka, þegar þau eru lokuð inni í búrinu? Já, þau verða að svelta við og við, ef þau eiga að vera heil- brigð. Stærri rándýrin hjer fá ekkert æti á laugardögum. — Og hvernig taka þau því? — Vel. Þau öskra yfirleitt aldrei á laugardögum. Aðra daga vikunnar öskra þau um það leyti, sem þau eiga von á æti, en þann daginn, sem þau fasta, steinþegja þau. Þau vita að þau eiga ekkert að fá, og mögla ekki. — Það er maður sem vill tula við prófessorinn í síma. — B;ðjið hann að fá ^yur sæti augnablik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.