Morgunblaðið - 06.10.1935, Side 4
4
Reykjavíkurbrjef.
e -i.i'i_
Síldin.
Nú er, síldarafM landsmanna
orðinn «m 105 þúsund tunnur.
En afliníi í fyrra var 216 þús.
tunnur. fíaldi aflimji tijer í Faxa
,flóa áfram nokkra daga enn,
verður heildaraflinn fljótlega
yfir hleming á við aflann í
fyrra, að magni til.
Erfitt er að giska á hve mikið
verð fæst fyrir síldaraflann. En
vafalaust má gera sjer í hugar-
lund að útflutningsverðið verði
% á við verðið í fyrra.
Síðustu daga hafa komið á
land hjer við Faxaflóa um 2000
tunnur á dag.
M!eð því verði sem verið hefir
upp á síðkastið fæst yfir 100
þús. kr. fyrir þann dagsafla.
Kunnugur maður hefir sagt
blaðinu, að 15 tunnur síldar
myndu gefa mönnum sama
hagnað eða betri en góður róð-
ur á þorskvertíð. 2000 tunnur
af síld jafngiltu því fyrir bú-
skap þjóðarinnar 133 góðum
veiðiferðum báta á þorsk.
ísfisksalan.
Flestir togararnir eru nú á
veiðum og veiða í ís. Hefir ís-
fisksala í sumar og haust geng-
ið með greiðara móti, bæði í
Englandi og Þýskalandi.
I ágúst var seldur 21 togara-
farmur, 14 í Englandi, 7 í
Þýskalandi. Meðalverð í Eng-
landi var 1182 stpd., en í Þýska
landi 16.329 ríkismörk. Var
markaðurinn í Englándi þann
mánuð vitund lakari en í fyrya,
1 "Þýskálándi að meðaltali
4000 Rm. hærri.
1 sept. voru seldir 33 farmar,
24 í Englandi, fyrir 1323 stpd.
að meðaltali á hvern farm. Er
það nál. 250 stpd. hærra verð
en þar fekkst í sept. í fyrra
fyrir hvern farm.
En til Þýskalands fóru 9 farm
ar í þeim mánuði, og var með-
alverð þeirra 26.084 ríkismörk,
en 17.508 Rm. fekkst að meðal-
tali fyrir þá farma sem seldir
voru til Þýskalands í sept. í
fyrra.
Gestgjafi.
1 þjóðbrautinni milli hofuð-
staðarins og sýslnanna austan-
fjalls hefir um áratugi búið
gestgjafinn þjóðkunni, Sigurður
Daníelsson á Kolviðarhól. Hann
er nú nýlátinn. Með honum er
fallinn í valinn þjóðlegur en
sjerkennilegur maður.
Ötuíl og djarfur fylgdarmað-
ur var hann og ósjerhlífinn með
afbrigðum, þegar til þurfti að
taka, að koma ferðafólki leiðar
sinnar yfir Hellisheiði, í hvaða
veðri sem var.
Og þegar komið var í kotið
hans á Hólnum, voru veitingar
þar með afbrigðum, og borgun
jafnan við hvers manns hæfi.
En þegar að þeim þætti kom,
mun húsfreyjan vitaskuld eiga
sína góðu hlutdeild.
Fjallakotið, sem var, varð í
hans tíð að reisulegu býli.
Allir, sem gistu Sigurð, munu
á eitt sáttir um, að hann var
um langa starfsæfi sína, rjettur
m^iður á rjettum stað, hjálpfús,
glaðvær, með hlýtt og viðkvæmt
hjartalag. íslepsk gestrisni var
rík í huga hank- Hann hafði
valið sj.er það hlutskifti að
greiða götu þeirra, sem lögðu
leið sína um fjölfarnasta fjall-
veg landsins. Og hann inti það
starf af RepRi með svo mikilli
alúð, að gestgjafinn á Hólnum
líður mönnu.m seint úr minni.
MerkUeg tillaga.
Gunnlaugur Briem símaverk-
fræðingur hefir nýlega þorið
fram tillögu um það, að reynt
yrði að koma á útvarpskafla,
svo sem stundarf jórðung á
hverjum sunnudegi gegn um
stuttbylgjustöðina hjerna, þar
sem sendar yrðu hjeðan frjettir
og annað á erlendum tungu-
málum, um ýmislegt það, er
aukið geti kynningu erlendra
þjóða á Islandi og málefnum
Islands.
Eigi hefir það enn ve.rið rapn
sakað, hve mikið slíkar út-
varpssendingaf myndu kosta.
En augljóst mál er það, að
ef stuttbylgjustöðin reynist það
langdræg, að til þennar heyrð-
ist víða um lönd, þá yrði hjer
farið inn á nfjög áhrifamikla og
hagkvæma leið til að kynna
land vort og þjóð út á við.
Stöður.
Ríkisstjórnin hefir auglýst
lausa þjóðskjalavarðarstöðuna,
og ef umsóknarfrestur útrunn-
inn. Umsækjendur eru allmarg-
ir. En staða þessi var afnumin
með lögum fyrir nokkrum ár-
um, og ákveðið ,að hún skyldi
sameinuð landsbókavarðarstöð-
unni, ef staða þjóðskjalavarðar
losnaði.
Sennilega hefir núverandi rík
isstjórn einhver ráð með, að
veita stöðu, sem ekki er tií, ef
hún með því getur hugnað ein-
hverjum flolfksmanni.
Þegap svo ber undir er sparn-
aðarhugurinn aldrei mikill.
Landsímastjóra- og póstmála-
stjórastöðuna gat stjórnin sam-
einað, og varð ekki mikið fyrir.
En kunnugir telja, að sú sam
eining hefði getað orðið víð-
tækari með því að slengja út-
varpsstjórninni ofaná. A. m. k.
liggur ólíkt nær að sameina
símastjórn og útvarpsstjórn, en
síma og póst.
En máske kemur stjórnin
auga á þessa sparnaðarleið.
Á ísafirði hefir bakari nokk-
ur nýlega fengið gjaldkerastöðu
í Útvegsbankanum þar. Maður-
inn heitir Sigurður — talinn
handlaginn við deig.
Sumir halda að bakari þessi
hafi verið tekinn fram yfir aðra
menn í stöðu þessa vegna ætt-
rækni atvinnumálaráðherra,
Haraldar Guðmundssonar. Bak-
arinn er bróðir hans.
Utvarp Reykjavík!
Þulan okkar er inndæl og
röddin klukkutær. En hún er
stundum svo angurvær, bless-
unin, að maður býst við ein-
hverjum leiðindafrjettum. Og
svo er þetta þá ekki annað en
kvenfjelagsskemtun á Akranesi
eða tombóla í Grindavík.
Það er til kvenfólk, sem alt
af klökknar, ef það nefnir þlá-
ber eða daggardropa. Þessi lýr-
íska viðkvsemni er ósköp sset á
sínum stað. En hún er alveg á-
stæðulaus þegar verið er að
segja frá tombólu í Grindavík,
að maður nú ekki nefni síldar-
MQRGUN BLAÐIÐ
söltun þjá Öskarij í Keflavík
eða ísfiskssölu hjá Grimsby-
lýðnum í Engl,andi.
Sunnudaginn 6. okt 19S5.
r... ——-••.• — nmnr
Tilkyrniing.
Flateyjarklerkurinn.
í gamla Páfi. var sagt ffá því
að Demosthenes hefði gengið
um sjávarströndu með smá-
steina í munninum og þrumað
í köpp við brimgnýinn. Ekki er
grunlaust umaðSigurður klerk-
ur hafi farið að dæmi þessarar
fornu fyrirmyndar, enda er
nóg fjörugrjótið í Flatey.
En munurinn er sá, að Demo-
sthenes skirpti út úr sjer áður
en hann fór að tala fyrir lands-
lýðinn. En Sigurður skirpir
mölinni beint í eyrun á áheyr-
endunum.
Þótt íslenskan sje stundum
hörð viðkomu, þá er hún ekki
slíkt klungur, að maður þurfi
að láta eins og grjótmulnings-
yjel, til að koma henni út úr
sjer.
Það er líka alveg óþarfi að
háma í sig orðin eins og Sig-
urður gerir,rjett eins og svang-
ur smali væri að jeta spaðsúpu.
ViS og við.
Einn af forystumönnum Al-
þýðuflokksins, Ólafur Friðriks-
son ljet svo um mælt á bæjar-
stjórnarfundi á dögunum, að
verkamenn hjer í bænum væru
orðnir því svo vanir, að hafa
enga atvinnu tímunum saman,
að þeir sættu sig við það mögl-
unarlaust, að hafa ekkert að
gera og engar tekjur — nema
við og við.
En þessa atvinnu ,,við og við“
áttu þeir svo að fá í atvinnu-
bótavinnu bæjarins.
Gera má ráð fyrir því, að
meginþorri þeirra manna, sem
Ólafur Friðriksson þar talar
um, myndu telja sjer hag í því
að öðru vísi væri ástatt um
lífsbjargarmöguleika þeirra-
— Að atvinnuvegi lands-
manna yrði hægt að byggja
upp á þá lund, að atvinnu
þeirra yrði stöðug. Að árstekj-
ur þeirra gætu með því aukist
að mun, enda þótt þeir kynnu
að bera minna úr býtum fyrir
hverja þá stund spm þeir
ynnu. Það væri ekki annað, en
sannvirði vinnunnar yrði greitt
á hverjum stað og tíma, og at-
vinnulíf landsmanna fengi
þannig að blómgast að nýju.
En gegn þessu vinna núver-
andi stjórnarvöld með hnúum
og hnefum.
Og þess vegna er stefna
þeirra í atvinnumálum hel-
stefna, jafnt fyrir einstaklinga
sem þjóðfjelagið.
Bjarni Björnsson skemtir í
Gamla Bíó í dag kl. 3.
Hlutaveltu heldur íþróttafjelag
Reykjavíkur í K. R. húsinu í
kvöld. Svo hafa forgöngumenn
hlutaveltunnar tjáð blaðinu, að
þar sem fjelag þetta eigi marga
vini og velunnara innan verslunar
stjettarinnar, þá sje óvenjulegt
safn, góðra muna á hlutaveltu
þessari. En kórónan í öllu sam-
an er það, að fjelagið hefir 1000
krónur í happdrætti, sem dregið
verður um, að hlutaveltunni lok-
inni. Á síðustu hlutaveltu f. R.
var alt uppdregið kl. 814 að
kvöldi. Svo menn mega ekki koma
of semt, ef þeir ætla að ná í
drætti.
Það tilkynnist hjer með, að jeg undirrituð hefi selt
Hr. bryta Guðlaugi Guðmundssyni matsöluhúsið Heitt og1
Kalt.
Um leið og jeg þakka hinum mörgu viðskiftavinum
fyrir viðskiftin undanfarin ár, vona jeg að Heitt og Kalt
megi njóta sömu vinsælda undir stjórn hins nýja eiganda.
Fyrir mína hönd og annara aðila.
Virðingarfylst.
ísta Þorsteinftdóttr.
Samkvæmt ofanskráðu, hefi jeg undirritaður keypt
matsöluhúsið Heitt og Kalt. Mun jeg gera mjer alt far um
að gera viðskiftavinina ánægða og vona að Heitt og Kalt
megi framvegis njóta sömu vinsælda og áður.
Virðingarfylst.
Guðlaugur Ouðmundsson.
Olfrið Sieldur króninnl
meira en minna á Kiluta*
veltu í. R. I K.R.-húsinu.
......
Tilkynning.
Hjer með leyfi jeg mjer að tilkynna að jeg hefi flutt
verslun mína af Hverfisgötu 40 á
Hverfisgötu 34.
Jafnframt hefi jeg í sambandi við verslunina opnað
mafsölu,
þar sem selt er Tast fæði, svo og lausar máltíðir,
á mjög sanngjörnu verði.
Alt á sama stað, matvörur og matur.
Virðingarfylst.
Þorv. Jónsson
Matvöruverslun. — Matsala.
Hverfisgötu 54. Sími 4757.
Appelsinnr.
MURCIA: 240 — 300 — 390 og 504 stk.
VALENCIA: 300 — 390 og 504 stk.
NAVEL: 126 — 150 — 176 og 200 stk.
Allar þessar tegundir koma um mánaðamótin nóvember
og desember.
Verðið hvergi lægra.
Eggert Xristjánsson & Go.