Morgunblaðið - 04.01.1936, Síða 3
3
Laugardaginn 4. jan. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
OveSur og ísing veldur
miklum símabilunum
á Norð-Austuriandi.
Þing Bandarfkjanna ræðir útflutn-
ingsbann til ófriðarþjóða.
Við^erð lorveld
sakir fllwlðra.
Á Norð-Austurlandi hefir
geysað óveður undanfarna
daga og hefir ísing og storm-
ar víða' eyðilagt símalínur.
Morgunblaðið hefir fengið
upplýsingar hjá póst- og
símamálastjóra, Guðmundi
Hlíðdal og fer hjer á eftir
frásögn af því, hvar helstu
bilanir hafa orðið, tekið eft-
ir skeytum sem honum liafa
borist utan af landi.
Á Hofshálsi, milli Hofs og
Hauksstaða í Vopnafjarðarhjer-
aði hafa símalínur fallið niður af
100 staurum. Línumenn voru send-
ir frá Vopnafirði og Hauksstöð-
um til þess að gera við skemd-
irnar.
Á austurh'luta Fjárðarheiðar
fellu allar símalínur níður á eins
kílómetra langri leið. ísing var
mjög mikil þar um slóðir.
Á Króárdaisskarði, Seyðisfjarð-
armegin, fellu niður línur af 6
staurum. Viðgerð er þar lokið.
Seúmiegt þykir að víðar um
norðanverða Austfirði hafi línur
fallið niður.
Viðgerðir eru torveldar sakir
illviðra og ófærðar.
í Króardal fell snjóflóð og
braut 4 staura.
Aitstan Sæluhúss á Fjarðar-
heiði fellu þræðir af 40 staurum
alls.
Milli Fjarðar og Brekku hafa
nokkrir staurar farið í snjóflóði.
Ki. 1 e. h. í gær var samband
komið á frá Seyðisfirði til Norð-
fjarðar um Eskifjörð.
Samhand er nú einnig milli
Seyðisfjarðar, Mjóafjarðar og
Norðfjarðar.
Póst- og símamálastjóra barst
í gær fregn frá Seyðisfirði þess
efnis: að milli Hámundarstaða og
Bakkafjarðar hafi símaþræðir fall-
ið af 105 staurum og 12 staurar
brotnað í óveðrunum er gengið
hafa um Norðausturland undan-
farið.
Á BrekknaJheiði milli Þórshafn-
ar og Finnafjarðar fellu síma-
þræðir niður af 40 staurum.
Mannskæð influensa
geysarí Angmagssalik
Mannskæð inflúensu-
pest geysar í Angmagsa-
likhjeraðinu, eftir því
sem segir í tilkynningu
frá Grænlandsstjórn-
inni.
26 manns hafa þegar látist
úr veikinni, og þar á meðal eru
margir heimilisfeður.
Búið er að senda símleiðis til-
kynningu um að hjálpa skuli
hinum nauðstöddu með fram-
lögum úr Grælandssjóði dönsku
konungshjónanna.
(Sendiherrafrjett).
Deilan um hlutleysislögin.
London, 3. jan. FÚ.
ClÐASTA þing 74.
^ Congress Banda-
ríkjanna hófst í dag, í
Washington, og er kjör-
tímabilinu lokið þegar
þetta þing er úti.
Hlutleysislögin eru tal
in verða eitt af helstu
málunum á þessu þingi.
Er ráðgert að Roose-
velt Bandaríkjaforseti
tali um hlutleysislögin
og verkefni komandi
þings, í ameríska út-
varpið kl. 1.30 e. m. í
nótt (ísl. tími). Verður
ræðu hans útvarpað um
öll Bandaríkin.
Miklar getgátur og bollalegg-
ingar eru í blöðum um innihald
hlutleysislaganna.
Washington Post telur, að
ráðunautar Roosevelts sjeu bún-
ir að gefa upp alla von um það,
að forsetanum verði veitt vald
til að skera úr hvað teljast skuli
árásarþjóð og hvað ekki.
Hinsvegar gerir blaðið
ráð fyrir, aS lögin verði
samþykt, og að forsetanum
verði veitt vald til að tak-
marka allan flutning her-
gagna og efna sem nauð-
synleg eru til ófriðar, til
þjóða sem eiga í ófriði, nið-
ur í venjulegt viðskifta-
magn, en að þessar ráð-
stafanir múni verða látnar
ná til allra ófriðarþjóða,
hvort sem málstaður þeirra
verði að teljast rjettur eða
rangur.
Þá telur New York Times lík-
ur til, að Bandaríkjastjórn verði
heimilað, og ef til vill falið, að
leggja bann við öllum lánum til
þjóða sem eiga í ófriði.
Þýskunámskeið Germaniu Eins
óg að undánfömú, gengst Oer-
mania fyrir þýskukenslu í vetur.
Svo sem venja er til, annast þýski
seudikennarinn við Háskólann
kensluna. Námskeiðið hefst föstu-
daginn 10. þ. m. kl. 8 e. h. í Há-
skólanum. Öllum er heimil þátt-
taka.
Tveim piltum var mút-
að til að kveikja i veit-
ingahúsinu ,Dettiíoss‘
í Siglufirði.
Tveir piltar hafa játað að
hafa kveikt í veitineahúsmu
„Dettifoss“ í Siglufirði, sem
brann í ofviðrinu 15. desem-
ber s.l- Hafði veitingakonan
fengið þá til að kveikja í
húsinu og lofað þeim 1000
krónum fyrir. Sjálf ætlaði
hún að svíkja út vátrygg-
ingarfje innbúsins, sem hún
nýlega var búin að hækka
úr 2,000 krónum upp í 11,000
krónur.
Hinn 23. nóv. í haust sem leið
kom upp e'ldur í þessu sama húsi.
Eldurinn varð ekki mikill og var
hann . slöktur áður en skemdir
hlutust af.
; í rjettárránnsokn þótti sannað,
að kviknað hefði í út frá raf-
magnsleiðslu, þar sem hún lá inn
í húsið. Enginn grunur lá á, í þetta
skifti, að kveikt hefði verið í hús-
inu.
Óveðursnóttina, þann 15. des.,
kom svo aftur upp eldur í húsinn
og brann það þá að me'stu niður,
en innbú alt brann inni.
Rjettarhöld hófust strax í mál-
inu og kom í fyrstu ekkert grun-
samlegt fram er bent gæti til þess
að nm íkveikju væri að ræða.
Um jólaleytið fór samt að berast
út sá orðrómur að ekki myndi alt
með feldu og fór þá að kvisast að
um vátryggingasvik væri að ræða.
Milli jóla og nýárs var svo
rannsókn haldið áfram í málinu
og var veitingakonan á „Detti-
fossi“, Ingibjörg Jósefsdóttir og
piltarnir Leo Maronsson og Sölvi
Marteinsson settir í gæsluvarð-
hald.
Svo að segja rjett strax með-
gekk annar pilturinn að þeir fje-
lagar hefðu kveikt í húsinn og
rjett á eftir játaði hinn piltul'iiln
einnig.
Veitingakonan sjálf neitaði
lengi vel að hún vissi nieð hverj-
um hætti eldurinn hefði komið
upp. En þegar það upplýstist að
hún hefði skotið undan nokkuð
af innanstokksmnnum úr húsinn,
rjett áður en það hraun, játaði
hún einnig.
Sakborningarnir bíða nú dóms,
sem bxiist e*r við að verði mjög
þungur.
(Eftir símtali við frjettaritara
Morgunhláðsins á Siglufirði).
Keflavíkur-slysið.
Drengileg og karl-
mannleg framkoma
sr. Eiríks Brynjólfs-
sonar.
Eftir að menn höfðu lesið í
gær hina ítarlegu frásögn blaðs
ins um brunann í Keflavík,
fengu lesendumir glögga hug-
mynd um aðdragandann að
þessu ægilega slysi, og það
helsta, sem þarna gerðist.
En eins manns var í þessari
síðustu frásögn ekki getið, sem
er síra Eiríkur Brynjólfsson.
Hann liggur, sem kunnugt er, á
Landakotsspitala, vegna bruna-
sára sinna. Hann hefir færst
undan því, að "skýra frá atburð-
um þessum.
En Keflvíkingar vita sem er,
að síra Eiríkur Brynjólfsson
sýndi hvað ípesta karlmensku
og fórafýsi við slys þetta. Hann
mun hafa vérið sá, sem seinastur
allra fór út úr samkomusalnum.
En þar vá‘r hann við björgun
meðan nokkrum varð bjargað,
án þess að sjceyta því nokkuð í
hve mikilli hættu hann sjálfur
var staddur.
Og þegar síra Eiríkur kom til
læknisins, ásamt mörgum öðr-
um, til þess að fá gert við
brunasár sín, þá sagði hann
lækni og aðstoðarfólki hans, að
gera að sárum annara, áður en
hans sár voru snert, og var
hann þó allmikið brendur.
Keflvíkingar gleyma seint
hinni drengiíegu framgöngu
síra Eiríks við slys þetta.
—x—
Til afgreiðslu Morgunblaðsins
bárust í gær peningagjafir til
hins sorgmædda og bágstadda
fólks í Keflavík.
Samskotafje veitt móttaka í
dag.
Súðavíkurdeilan
leyst.
ÍSAFIRÐI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Súðavíkurdeilan var leyst í gær.
Skifti hækka á bátunum þann-
ig:
Hjá „Val“ um hálfan hlut,
„BoíIa“ einn 'og hálfan og ,,Óla“
eihn hhit. t :
í tgerðarmenn huðu þessi skifti
30: desemher, en skiftin voru há-
selxmt hagstiéðari áður.
Fhndur lTiSjómannafjelagsins á
gamlársdag samþykti boð xxtgerð-
armanna með öllum greiddum at-
kvæðum gegn 6 og samninganefnd
sjómanna ndirritaði samninga við
útgerðarmenn í gær.
Útgerðarmannafjelag ísfirðinga,
sém flestir útgerðarmenn hjer eru
fjelagar % hefir samræmt hluta-
skiffi vjelbáta í nærliggjandi
veiðistöðvum. ;
Tíðarfár hjer vestra er gott en
aflalaust.
Amgr.
Dr. Hiels Nielsen fer
rannsóknarför til
Vatnajökuls í sumar.
Ilann sagði (rá þessu
í danska útvarpinu
í gær og var frá-
sögninni endur-
varpað h|er.
Fyrir nokkru síðan fór dr.
Niels Nielsen fram á það við
Jóhannes Áskelsson jarðfræð-
ing a*ð hann færi með sjer í
langan Vatnajökulsleiðangur á
vori komanda, en þeir fóru sam
an til eldstöðvanna í Vatna-
jökli, sem kunnugt ér, vorið
1934. r
I gær flutti danska útvarpið
viðtal við dr. Nielsen um þessar
fyrirhuguðu rannsóknir, og var
viðtalinu endurvarpað hjer.
Dr. Nielsen lýsti Vatnajökli
nokkuð í viðtali þess«; #n sagði
síðan, að það sem m. a. ivekti
fyrir sjer með rannsóknum, &
jöklinum væri, að leggja að því
grundvöll að vísindamenn gæti
fylgst með öllum breyjtihguni,
sem ýrðu á eldstöðvum jökuls-
ins á milli gosa. En eldgos erif.
tíð í Yatnajökli, eí svo er, se,m
menn hallast að nú, að Skei^jj^
árhlaup sjeu afleiðingafR é.ldg^
umbrota. ; V
Sennilegt er að Jóhannes As-
kelsson fari í för þessa. 1i;,.
Dr. Nielsen sagði í útvarpinu
að hann ætlaðist til að þeir f je-
lagar leggi á jökulinn um miðj-
an apríl og Verði þar e. t. v. alt
þangað til í júlílok.
Svíar heimta að hinum
seku verði refsað.
Italski sendiherrann
biðst afsökunar.
SENDIHERRA ítala
í Stokkhólmi hefir
borið fram afsökun
ítölsku stjórnarinnar
vegna árásarinnar á
Rauðakrossvagninn.
Svíar krefjast þó
fullra skaðabóta og
heimta að hinum seku
verði refsað.
Karl prinS, yfirmaður Rauða-
krossins, hefir sagt opinbérlega
að hræðileg ábyrgð hvíli á árás-
armönnunum.
Hann gat þess um leið að
störfum Rauðakrossins í Abyss-
iníu yrði haldið áfram eftir sem
áður.
Svíar hafa vakiS^át-
hygli á því, að enda' þótt
ítalski sendiherránn í
Stokkhólmi hafi beðist af-
sökunar fyrir hönd stjóm-
ar sinnar, þá láti ítölsk
blöð enga iðrun í ljósi, en
virðist hinsvegar ætla að
nota þetta tækifæri til
stríðsæ&inga í Italíu. ,,,
PáB.. .