Morgunblaðið - 24.01.1936, Side 7
Föstudaginn 24. jan. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
f7
I
Dagbók.
Veðrið í gær: Hæg N- og NA-átt
Tim alt land. Dálítil snjókoma
norðaustanlands en bjartviðri á
S- og V-landi. Frost víðast 1—5
st. Allstór lægð er yfir Norðurlönd
um og önnur skamt vestur af
Bretlandseyjum á hreyfingu A-
■eftir, en hæð helst yfir Grænlandi.
Lítur út fyrir, að NA-læg átt muni
haldast hjer á landi næstu dægur.
Veðurútlit í Rvík í dag: NA-
gola. Bjartviðri.
Þorrinn byrjar í dag.
Fjelagið Germanía hjelt hátíð-
legt 65 ára ríkisafmæli Þýskalands
s. 1. laugardag. Formaður fjelags-
ins, Þórður Þórðarson læknir bauð
fjelagsmenn og ge'sti þeirra vel-
komna og þá sjerstaklega Matt-
hías Þórðarson forminjavörð og
frú hans, en Matthías er heiðurs-
fjelagi Germaníu. Þá flutti Matt-
hías Þórðarson ræðu í tilefni dags
ins og rakti vel og ítarle'ga helstu
viðburði á s. 1. 65 árum, síðan
þýska ríkið var sameinað. Dr.
Timmermann, konsúll Þjóðverja í
Reykjavík þakkaði ræðu Matthí-
asar með nokkrum velvöldum orð-
um og bað menn síðan að standa
upp og hrópa ferfalt húrra fyrir
auknri vináttu og samstarfi á
milli íslands og Þýskalands. Binar
Markan söngvari söng þá nokkur
þýsk lög, varð hann að endurtaka
mörg lög. Gunnar Sigurgeirsson
var við hljóðfærið. Þá gaf Pjetur
Jónsson óperusöngvari noklcur lög
og aðstoðaði Haubold fulltrúi í
þýska konsúlatinu. Var þeim þakk
að með dynjandi lófataki og
fagnaðarlátum. Þar næst var
stíginn dans fram eftir nóttu.
Gjafir til Kvennadeildar Slysa-
varnafjelags Hafnarfjarðar 1935.
Frá skipverjum á s.s. Venus 300
kr., Gjöf frá E. B. 8 kr., frá Konu
5 kr., frá Konu 5 kr., Áheit H. Þ.
10 kr. Kærar þakkir. Gjaldkerinn.
M.s. Dronning Alexandrine kom
til Leith kl. 10% í gærmorgun.
Dýraverndunarfjelag barna í
Sk.ildinganesi heldur aðalfund sinn
í skólahúsinu, Baugsveg 30, næst-
komandi mánudag, kl. 8 síðd.
Hjálpræðisherinn. í kvöd kl.
Helgunarsakoma, Adj. Molin
stjórnar, Kapt. Nærvik aðstoðar.
Allir velkomnir.
Guðspekifjelagar. Aðalfundur
Septínu í kvöld kl. 8%- Kaffi.
ísfisksala. Tryggvi gamli seldi
afla sinn í Hull í fyrradag, 1187
vættir, fyrir 914 stpd. Sindri seldi
í Grimsby í gær 913 vættir, fyrir
530 stpd. Otur seldi í Grimsby í
gær.
50 ára afmæli á í dag Einar
Kr. Guðmundsson, múrarameist-
ari, Ljósvallagötu 32.
Til Iíallgrímskirkju í Saurbæ.
Afh. af Sn. Jónssyni: Áheit -frá
N. N. 5 kr. Með þakklæti mót-
.tekið. Guðm. Gunnlaugsson.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Leith frá Kaupmannahöfn. Goða-
foss er í Hamborg. Brúarfoss er í
•Ólafsvík. Dettifoss fer vestur og
morður í kvöld kl. 8. Lagarfoss
var á Vopnarfirði í gær. Selfoss
«r í Leith.
M.-A.-kvartettinn kom til Víf-
ilstaða 2L þ. m. og söng þar fyrir
sjúklinga. Grjetar Ó. Fells kom
einnig til Vífilstaða 22. þ. m. og
flutti þar erindi. Hafa sjúklingar
heðið Mbl. að fytja þessum mönn-
iim kærar þakkir fyrir lromuna
«g skemtunina.
Fákur, hestamannafjelagið held
nr fund í kvöld kl. 8i/2 í Ilóte'l
Heklu. Sýndar verða að fundi lokn
nm kvikmyndir af síðustu kapp-
reiðum á Skeiðvellinum.
Eldur í rafstöð. Laust fyrir mið-
nætti á miðvikudagskvöld varð
Lárus Salómonsson lögregluþjónn
í Keflavík þess var, að eldur hafði
kviknað í rafstöðinni þar. Stöðvar
stjórinn var ekki við, og var því
brotist inn í stöðina. Útblásturs-
pípa á olíumótor hafði hitnað og
var glóandi, en þaðan hafði hrokk
ið neisti í smurningsolíubrúsa er
stóð á gólfinu, svo kviknað hafði
í olíunni. En brátt tókst að
slökkva eldinn með því að demba
yfir hann gólfábreiðum og þessh.
Skemdir urðu mjög smávægilegar.
Kristján Albertsson, rithöfund-
ur, sem nú starfar sem lektor í
íslensku við Berlínarháskóla, hef-
ir nýlega ritað grein á þýsku í
tilefni af aldarafmæli Matthíasar
Jochumssonar. Grein þessi, sem er
allítarleg liefir birst í fjölda blaða
víðsvegar í Þýskalandi.
Ágætt skautasvell hefir verið á
Austurvelli, og sæmilegt á. Tjörn-
inni, undanfarna daga. Hefir fjöldi
bæjarbúa notfært sjer það, og ver-
ið á skautum fram undir miðnætti.
— Forráðamenn skautasvæðanna
þyrftu að koma þar upp fata-
geymslu, svo menn þurfi ekki að
verða fyrir því oftar að tapa þar
skóm og yfirhöfnum. \
Frá Grundarfirði verða gerðir
út í vetur 2 bátar — vjelbáturinn
Ægir tir Stykkishólmi og Svanur
úr Grundarfirði, en vjelbáturinn
Sæbjörn úr Stykkishólmi verður
gerður út frá Sandgerði og fer
þangað um næstu mánaðamót. FÚ.
Saltskip er væntanlegt til Kefla-
víkur í næstu viku. Er það á veg-
um Ólafs Gíslasonar & Co., en farm
inn eiga ýmsir útgerðarmenn í
Keflavík._
' Breiðfirðingamót verður haldið
í kvöld í Hótel Borg. í því
taka þátt Barðstrendingar, Dala-
menn, Snæfellingar og Hnapp-
dælingar.
Rauða eyðimörkin. Alþýðublað-
ið skýrir frá því í fyrrad., að ýms
ir af bestu mönnum Bolungarvíkur
sjeu sem óðast að flýja þorpið.
Telur blaðið 5 menn, sem sjeu
„flúnir" úr þorpinu. Ástæðan er
sú, að sögn blaðsins, að ekkert
sje að gera í þorpinu, enga atvinnu
að hafa; „hið eina“ sem unnið
liafi verið, hafi verið „fyrir fje
frá hinni rauðu ríkistjórn“, segir
Alþýðublaðið. Þetta eymdarástand
í Bolungarvík, sem Alþýðublaðið
er að lýsa, verður skiljanlegt,
þegar þess er gætt, sem blaðið get-
ur einnig um, að rauðliðar eru nú
einráðir í hreppsnefnd Bolungar-
víkur. Það er m. ö. o. rauða eyði-
mörkin, sem þarna blasir við.
Danski málaf ærslumaðurinn
Ahlefeldt Rönne, sem undanfarið
hefir unnið að því að koma á sætt-
um milli Lauge Kochs og þeirra
11 manna sem á hann hafa ráðist
sem vísindamann, fyrir síðustu
bók hans um Grænland, tilkynnir
í dag að horfur um friðsamlega
lausn þessa deilumáls megi telj-
ast farnar út um þúfur. (FÚ.).
Fyrir 75 árum. Lengi mun minn-
isstæð hin einkar hagstæða veðr-
átta og má segja veðurblíða, er
hefir haldist stöðugt yfir gjörvalt
Suðurland og Vesturland að kalla
má síðan um veturnætur og fram
á þe'nna dag, því áhlaupið, sem
gerði um jólaleytið (hjer með
nálega 11°R. frosti) varð eigi
nema fáa daga. Sama vetrar góð-
veður er sagt að norðan, alt norð-
ur til Öxnadalsheiðar, en að stríð
vetrarharðindi hafi lagst að og
haldist fram í f. m. um Eyja-
fjörð, en einkanlega um Þingeyj-
arsýslu og báðar Múlasýslur.
Afli af sjó var mjög rýr næst-
liðna haustvertíð alstaðar hjer
syðra og eins undir Jökli; þar afl-
aðist nokkur hákarl á jólaföstu,
en enginn afli þar síðan nýár nje'
heldur hjer syðra nema lítill reyt-
ingur af uppflosnings fiski um
Suðurnes; menn segja varð orð-
ið við nýgenginn fisk í Höfnum í
úessari viku. (Þjóðólfur, 9. fe'br.
1861).
Útvarpið:
Föstudagur 24. janúar.
8.00 íslenskukensla.
8.25 Þýskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Ve'ðurfregnir.
19,20 Hljómplötur: Ljett lög.
19.40 Auglýsingar.
19.45 Frjettir.
20.15 Bækur og menn (Vilhj. Þ.
Gíslason).
20.30 Kvöldvaka: a) Valtýr Stef-
ánsson ritstj.: Bernskuminning-
*ar um fráfall Ólafs Davíðssonar
þjóðsagnafræðings.
(Dagskrá lokið um kl. 21,10).
íslenska vikan
í Leeds.
f_T ÁSKÓLINN í Leeds gekst
JL J. fyrir því ; haust, að haldin
■var einskonar íslensk vika við
háskólann. Hefir háskólinn fyrir
nokkru sent Morgunbl. skýrslu
um hvernig henni var háttað og
fe'r hjer á eftir útdráttur úr
skýrslunni:
í stóra sal háskólans var haldin
sýning á málverkum eftir Eggert
Guðmundsson. Við opnun sýning-
arinnar helt Sir Ja,mes Baille
ræðu. Mintist hann á að margir
námsmenn frá Leeds hefðu stund-
að nám á íslandi og einnig að
tveir íslenskir stúdentar hefðu
dvalið lengi við háskólann.
Sir James sagði ennfremur að
það væri vel ráðið að sýning þessi
væri haldin undir vernd háskól-
ans, vegna þess hve margir stúd-
entar í Le'eds stunduðu íslensk
fræði.
Mr. Turville-Petre, lektor í ís-
lensku, helt fyrirlestur um menn-
ingarsögu íslands. Bruce Diojrins,
prófe'ssor í enskri málfræði og
norrænum fræðum, helt stutta
ræðu. Hann sagði að enginn há-
skóli í Bretlandi hefði vakið eins
mikinn áhuga á íslenskum fræð-
um, eins og háskólinn í Leeds.
Mintist hann á að stærsta íslenska
bókasafn sem til væri í Bretlandi
væri í Leeds. I bókasafni þessu
væri nú um 9 þús. bækur á nú-
tíma og eldri íslensku. Væri þetta
mest Islendingum sjálfum að
þakka, bæði fjelögum og einstak-
lingum, sem gefið hefðu safninu
bækur. Sjerstaldega minti&t próf.
Dickins, hve þau lijónin Margrjet
og Eiríkur Benedikz hefðu starfað
fyrir safnið k íslandi.
Yfir þúsund manns sóttu mál-
verkasýninguna og seldust marg-
ar myndir, þar á meðal keypti
háskólinn tvær myndir handa ís-
lenska bókasafninu.
Blöðin gátu þessarar íslensku
„viku“ af miklum hlýleik og
sltilningi.
«
— Jeg hefi reynt alt undir sól-
unni til þess að geta hann skot-
inn í mjer, en ekkert dugir. Hvað
á jeg að gera!
— Reyndu eitthvað undir tungl-
inu.
Kaupmenn!
Aðeins nokkur dúsín af hinu vel þekta
Cerebosalti,
í glösum, óselt.
I
Eins og menn munu minnast frá
blaða- og útvarpsfre'gnum, vildi
það til áhlaupaveðursdaþinn 14.
des. s. 1. að bærinn að Villingadal á
Ingjaldssandi brann til kaldra
kola. Bóndinn, Guðjón Guðmunds-
son var þann dag fjarverandi frá
keimili sínu, en kona hans, Kristín j
Jörundardóttir fekk með’naúmind
um bjargað börnum þeirra út úr
hinum brennandi bæ. í bruna !
þessum mistu þessi efnalitlu hjón
allan matarforða sinn, bæði heima
fenginn og aðkeyptann, einnig
nimfatnað allan og þarin íveru-
fatnað, sem til var á heimilinu,
nema það sem þau og börnin voru
í, er bruninn vildi til.
með morgunkaffinu
Nýir kaupendur
fá hlaðið ókeypis
til næitkomandi
mánaðamóta.
flringið í síma 1600
. Má það augljóst vera, hversu
hörmulegar fjárhagskringumstæð-
ur hjóna þe'ssara urðu við brun-
ann, þar sem hæði bærinn og alt
annað sem brann var óvátrygt, en
þau stóðu uppi allslaus með 5
ungbörn á aldrinum frá 1—10 ára.
Eru það því vinsamleg tilmæli til
bæjarbúa, ekki síst til hjer bú-
settra fyrv. Dýrfirðinga og Ön-
firðinga, að þeir vildu láta eitt-
hvað af hendi rakna til hjálpar
þessum bágstöddu hjónum.
Gjöfum til ne'fndra hjóna verð-
ur veitt móttaka á afg.reiðslu
Morgunblaðsins.
" Þ. G. Ó.
Ull úr mfólk.
Nýjasta uppgötvun ítala.
V egna viðskiftabannsins hafa
ítalir ekki getað flutt neitt út
að undanförnu af sínum nafn-
frægu ostum. En í stað þess hafa
þeir fundið upp á því, að búa til
ull úr þeirri mjólk, sem afgangs
verður, þegar ostasalan bregst.
Eins og menn vita, verður mjólk
þykk og teygjanleg þegar hún er
hleypt, og nú ætla ítalir að
spinna þráð úr hetini og vefa. Það
er mælt, að hin nýja framleiðsla
geti sparað þeim um helming af
ullarkaupum handa verksmiðjum
sínum, og að Italir geti framleitt
svo mikla ull úr mjólk á næstu
árum, að samsvari því, að þeir
spari innkaup á 15.000 smálestum
á ull á ári.
Englendingar trúa ekki á þe'ssa
nýu framleiðslu. Prófessor A.
King, klæðameistari við háskól-
ann í Leeds, hefir rannsakað sýn-
ishorn af hinni nýu ull Itala, og
hann hefir sagt við frjettaritara
og i'gerist
kanpendin
það besta fáanlega.
Þurkaðir og nýir ávextir í fjöl-
breyttu úrvali.
jóhannes Jóhannsson,
Grundarstíg 2. Sími 4131.
„Daily Telegraph“: — Je'g held
að aldrei verði gagn að þessari
ull Itala. En framleiðslan er fal-
leg á að líta, en jeg efast um það
hún standist slit og þvott. — Það
er hægt að búa til lampakveiki úr
mjólkurhleypi og óbrjótandi gler,
en ull af kindum er alt öðruvísi.
Ullarframleiðendur í Yorkshire
og ullarkaupmenn, er hafa, að því
er „News oK the' World“ segir,
athugað sýnishorn af þessari nýu
ítölsku ull, segja að hún sje falleg
álitum, en þoli ekki þvott, og sje
ekki jafn sterk og önnur ull. Og
niðurstaðan er sú, að þessi ull
geti aldrei komið í stað reglu-
legrar ullar, enda þótt ítalir geti
máske bjargast við hana meðan
viðskiftabannið háir þeim sem
mest.