Morgunblaðið - 27.02.1936, Side 4

Morgunblaðið - 27.02.1936, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 27. febr. 193b. WH— lill—.. i WTniMilliÉaaMMagBBMMWBfc Þing- og hjeraðsmálafundir. Eftir Jón Auðunn Jónsson Þingmálafundir. Við sem höfum búið við tvens- konar fyrirkomulag að því er snertir undirbúningsfundi í hjer- uðunum undir alþingishaldið, sem sje þingmálafundi í flestum eða öllum hreppum kjördæmisins og þing og hjeraðsmálafundi, þar se'm fulltrúar kjörnir í öllum hrepp; um kjördæmisins mæta á einum stað, erum undantekningarlaust þeirrar skoðunar að fulltrúafund- irnir sjeu að öllu heppilegri og að þing og stjórn geti og eigi að taka mun meira tillit til ályktana sem gerðar eru á slíkum fundum en hinum oft fámennu dreifi- fundum sem haldnir eru ennþá í allmörgum kjördæmum, þó þeim fækki nú óðum. Það er varla hægt að átta sig á aðstöðu kjóseúda þegar svo er, sem ósjaldan ber við, að þrenns- konar mismunandi ályktanir eru gerðar í sama málinu í einu og sama kjördæmi. Á dreififundun- um e,r enginn tínii til þess að rök- ræða ágreiningsmálin. Funda- menn fá máske nokkrar mínútur til þeás að skýra flókin og erfið mál pg kjósenclur eru oftast jafn nær því að fá nauðsynlegar skýr- ingar á þjóðmálunum þegar fundi er lokið og þá er þeir komu á fundinn. Þessir fundir eru oftast mjög fámennir meðfram vegna þess að kjóstndum finnast þeir fá svo litla fræl5slu um stjórn- málin óg að fundartíminn, sem sjaldnast er nema fáar klukku- stundir, fari meira í persónulegt nagg. Á þing og hjeraðsmálafundum, þar sem kjörnir fulltrviar úr öll- um hreppum kjördæmisins mæta og sitja að fundarstörfum 3—5 daga eða lengur, er þetta á annan veg. Fyrst er það, að með því fyrirkomulagi ltemur aðeins ein ályktun um hvert mál úr sama kjördæmi. Annað að málin eru rædd frá sjónarmiði allra þeirra flokka sem hafa fulltríia á fund- unum. Áheyrendur sem jafnan eru margir á slíkum fundum, kynnast skoðunum hinna ýmsu flokka á þjóðmálum. Meðferð málanna ýt- arlegri og ályktanir allar betur undirbúnar. Aulc þess verður kynning hjer- aðsbúa meiri og betri til sam- vinnu um nytjamál hjeraðanna. Fundirnir eru haldnir sitt árið í hverjum hreppi, eftir því sem á- stæður leyfa, svo að sem flestir hjeraðsbúa geti átt þess kost að fylgjast með í rökræðum um stjórnmálin enda mun það hafa hjálpað mörgum til skilnings á ýmsum málum. Eina mótbáran sem jeg hefi orð- ið var við ge'gn þing og hjeraðs- málafunda fyrirkomulaginu er sú að í mörgum sveitakjördæmum sje ekki kostur fundahúss og gisti- staða fyrir fulltrúana og þá af kjósendum sem óska að hlýða á umræður. Því er ekki að leyna að þessi ástæða er í nokkrum hjer- uðum, en víðast hagar svo til að kostur er húsnæðis á fleiri stöðum í kjördæmi til fundahaldsins og að þar sem vera kann skortur nauðsynlegs húsnæðis mætti halda fundina að vori eða sumii til og notast við tjöld eins og t. d. Vest- mannaeyjingar gera árlega á hinni niyndarlegu þjóðhátíð í Herjólfs- dal. í mörgum hjeruðum eru stór skólahús með heimavistum, sem þá eru ákjósanlegir fundastaðir og þessum húsum fjölgar með hverju ári. Þar sem menn sjá nauðsyn sjíkra fundahalda tel jeg ekki að húsnæðisskorturinn getí staðið í vegi, ef viljinn eT góður. Við Norður-ísfirðingar höfum haldið þessa fundi í þrem landbúnaðar- hreppnum. Auðvitað hafa hrepps- búar haft meiri fyrirhöfn við und- Happdrætti r , \ Háskóla Islands. 5000 vinningar -1 miljðn og 50 jiúsund krónur. Fimti hver hlutur fær vinning. Vinningarnir eru útsvars -og tekjuskattsfrjálsir. Leitið upplýsinga hjá umboðsmönnum happdrættisins: Anna Ásmundsdóttir og Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3, sími 4380. Dagbjartur Sigurðsson, Vesturgötu 45, sími 2414. Einar Eyjólfsson, Týsgötu 1, sími 3586. Elís Jónsson, Reykjavíkurveg 5, sími 4970. Helgi Sívertsen, Austurstræti 12, sími 3582. Jörgen Hansen, Laufásveg 61, sími 3484. Maren Pjetursdóttir, Laugaveg 66, sími 4010. Stefán A. Pálsson & Sigbjörn Ármann, Varðarhúsinu, sími 3244. í Hafnarflrði: Valdimar Long, sími 9288. Verslun Þorvaldar Bjarnasonar, sími 9310. Kaupið miða I dag. - Sjaldan hlýtur hikandi happ. irbúning fundahaldsins þar, en í sjóþorpunum, en að öðru hafa fundahöldin farið ákjósanlega fram og jafnan verið margt á- heyrenda og eT þó strjálbýlt í þessum hreppum. Ögurfundurinn. Ut af hinu sjerstaka tilefni, sem grein Vilm. Jónssonar, landlæknis í Alþýðublaðinu, 23. þ. mán. gefur um þing og hjeraðsmálafundinn að Ögri árið 1934 vil jeg taka þetta fram. V. J. vissi þega.r í fundarbyrj- un að hann var í minnihluta á þeim fundi, jafnframt mátti hon- um vera kunnugt um að hann komst á þing með 11 atkvæða meirihluta, ,bæði vegna þess að hann naut stuðnings kommúnista. Frambjóðandi þeirra fe'kk eitt eða tvö atkvæði og brugðust honum þannig 12 meðmælendur lians, ennfremur að Framsóknarmetan veittu Vilmundi brautargengi og loks að nokkrir tugir minna kjós- enda mættu ekki á kjörfundi vegna þess að þeir trúðu því að jeg hefði svo rífan meirihluta að þeir ])yrftu ekki að leggja á sig mikla erfiðleika við kjörsókn. — Mjer var þegar ljóst að skipulags- breytingartillögur V. J. voru af honum frambomar þegar í fund- arbyrjun til þess að draga úr öðrum störfum fundarins. En með- fram til þess að fundarhaldið færi í handaskolum og einnig áf því jeg hálfvorkendi V. J. að vera svo greinilega ofurliði borinn sem fyrirsjáanlegt var að verða mundi bar jeg fram tillögu til að víkja þessu máli svo við að önnur á- hugamál fundarins fengju af- greiðslu. Var síðar á fundinum kosin nefnd til að starfa milli funda að breytingu á fundasköp- um fundarins. Við fundarskapabreytingartill. V. J., sem hann birtir nú í Al- þýðublaðinu, nokkuð breyttar, hafði jeg sjerstaklega þetta að athuga: Ef aðeins þeir stjórnmálaflokk- ar sem höfðu haft menn í kjöri við alþingiskosningu í hjeraðinu fengju að tilne'fna fulltrúa, á þing- og hje'raðsmálafund gæti svo far- ið að stórum stjórnmálaflokki, sem hefði verið í kosningasambandi við annan flokk, við síðustu al- þingiskosningar, væri meinað að taka sjálfstæðan þátt í ltjöri eða tilnefningu á fulltrúum, og það eins þótt þessir kosningabanda- lagsflokkar hefðu slitið allri sam- vinnu á kjörtímabilinu, og kom- ist í andstöðu. Engar breytingar sem verða kynnu á afstöðu kjósenda í hjeT- aðinu til þingmannsins eða floklrs hans gætu komið fram. Skoðaniv og vilji kjósenda.nna um fulltrúa- val væri því algerlega fyrir borð borinn. Benti jeg V. J. á sem dæmi að hann hefði við síðustu kosningu til alþingis fengið kjör- fylgi á annað hundrað Fram- sóknarmanna, auk Kommiinista. Þessir kjósendur töpuðu rjetti sín- um til fulltrúavals ef tilk hans inæðu fram að ganga. Þegar af þessum ástæðum gátum við Sjálf- stæðismenn ekki fylgt till. V. J. Þetta er líka skýlaust brot á öll- um lýðræðisreglum. Ymsa aðra agnúa benti jeg á, en sleppi að minnast þeirra hjer. Hinsve'gar hefi jeg jafnan hald- ið því fram að rjettast væri að hafa hlutfallskosningu í þessu falli sem öðru, þar sem vilji kj.ós- enda á að koma sem skýrast í ljós, en það er ekki heimtað í funda- sköpum þessara funda, en mun við- haft ef kjósendur óska. Hinsveg- ar er mjer ekki annað kunnugt n að ávalt sje kosið skriflega til fulltrúafundannna. Rjettum hlut- föllum, svo engu skeiki, verður vart náð við kosningu fulltrúanna, fremur en við kosningu alþingis- manna. Jeg veit ekki betur en V. J. og flokksmenn hans taki feg- inshendi við og haldi fast utanum þann meirihluta sem nú stendur að ríkisstjórninni, jafnvel brjóti lýðræðisreglur til þess að halda fylginu* er honum og þeim þó vitanlegt að minnihluti kjósenda þeirra, sem þátt tóku í síðustu al- þingiskosningum, standa að baki stjórnarflokkunum. Liðsbón á næturþeli. Hafi jeg verið harðhentur á Ögurfundinum, sem jeg nú ekki man eftir, þá er hitt víst að V. J. virtist þar ef ekki hræddur þá beygður, enda varð það mörgum til gamans að hann læddist að næt urþeli á sokkaleistum milli her- bergja til liðsbónar hjá þeim Sjálf stæðismönnum sem voru persónu- legir ltunningjar hans og ltvört- uðu margir um svefnleysi af þessu rölti hans. Jeg vænti þess að Norður-fs- firðingar telji ekki til skulda hjá mje'r þó jeg ekki beri fram frum- vörp um skipuiagningu hjeraðs- funda meðan svo er ástatt í þing- inu að lýðræði er að litlu virt. Hinsvegar vænti jeg að V. J. og samherjar hans á fsafirði skili bæjarfje'laginu því fje sem þfeir hafa reynt að ná af því vegna að- stöðu þeirra í bæjaratjórn ísa- fjarðar. Hefi jeg með kæru minni til atvinnumálaráðherra reynt, að fá þá ósvinnu leiðrjetta. Jafn- framt væri máske rjett að minna hann á þá fullyrðingu hans að hann skyldi aldrei bregðast því ,að greiða að sínum hluta, skuldir Samvinnufjelags ísfirðinga. Þar reynir fyrst á kappann þegar á hólminn er komið. Rakuðir i þú þig í morg- * > t un vinur? ðhöldin færðu hjá okkur. Reyhjnvílýur ftpóteh lijúhrunardcildin. < ■ < > < * * ► I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.