Morgunblaðið - 18.03.1936, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 18. mars 1936
MORGVNBLAÐIÐ
bh
Evrópu
Friðurinn í
í hættu.
Óttinn við Þjóðverja.
FRAKKAR eiga um tvent að
velja: að fara í stríð við Þjóð-
verja strax, og reyna þannig
að stöðva framrás Hitlers í Ev-
rópu. Eða að semja við Hitler
ng treysta því að takast megi
á næstu áratugum að vinna bug
á erfðadeilu Frakka og Þjóð-
verja.
Hitler býður Frökkum 25 ára
öryggi. Hann býðst til að á-
byrgjast Belgum og Frökkum
að Þjóðverjar skuli ekki fara
með ófriði á hendur þeim, í
næstu 25 ár. Bretar og Italir
eiga að vera ábyrgðaraðilar, að
samning þeim, sem gerður kann
að verða. Rjúfi Þjóðverjar
þenna samning, þá eru Bretar
og Italir skuldbundnir til að
veita Frökkum og Belgum hem-
aðarlegan stuðning.
*
FRAKKAR eru tregir til að
taka þessu boði. Fyrst og fremst
vegna þess, að þeir treysta ekki
Þjóðverjum. Þjóðverjar hafa
sýnt það oftar en einu sinni á
síðastliðnum árum, að þeir,
virða alþjóðasamninga einskis.
Og hversvegna skyldum við
fremur treysta þeim nú, segja
Frakkar, þó að þeir bjóði nýja
öryggissamninga.
*
EN Frakkar eru einnig tor-
tryggnir, vegna þess, að her-
veldi Þjóðverja er að aukast
og mun aukast á næstu árum
og áratugum. Þjóðverjar eru
þriðjungi fleiri en Frakkar,
íólksfjölgunin í Þýskalandi er
hlutfallslega örari en í Frakk-
landi og Þjóðverjar eru her-
skárri þjóð en Frakkar.
Frakkar segja að Hitler bjóði
friðarsamninga til þess að geta
aukið þýska herveldið óáreittur
í góðu tómi. Takmark Þjóð-
vérja sje landvinningar á
kostnað Frakka. Og hversvegna
býður Hitler aðeins 25 ár?
*
FRAKKAR geta gert sjer
góðar vonir um að vinna stríð
við Þjóðverja, ef stríðið hefst
árið 1936. En verða sömu skil-
yrði fyrir hendi árið 1960?
Hitler hefir ekki haft nema
þrjú ár til að vígbúast. Þessum
þrem árum hefir hann að vísu
varið vel. Flugvjelaher hans er
öflugur. Hergögn hafa verið
framleidd í stórum stíl. Og lög-
regluliðið, SA, SS og Hitler-
æskan hafa verið alin upp í
ströngum hernaðaraga. Sumir
telja að Þjóðverjar geti hvenær
sem er boðið út 2 miljónum af
þaulvönu herliði. En landa-
mæravíggirðingarÞjóðverja eru
litlar.
— Frakkar hafa hinsvegar
' öflugar landamæravíggirðingar.
Frakkar hafa ágætan land-,
sjó- og flugher. Og Frakkar
• eiga bandamenn en Hitler enga
" (nema Pólverja?) — og það
skiftir miklu máli.
*
BANDIÐ, er bindur Frakka
og bandamenn þeirra, er sam-
eiginlegur ótti þeirra við Þjóð-
verja. Vjer höfum sjeð undan-
fama daga, hverjir eru banda-
menn Frakka. Þegar Þjóðverjar
sendu herinn inn í Rínarhjer-
uðin lýsti „Litla bandalagið“,
(Rúmenar, Tjekkar og Júgó-
slafar), Rússar og jafnvel
Tyrkir, Grikkir og ítalir yfir
stuðningi sínum við Frakka.
1 Tjekkóslóvakíu er þing-
flokkur þýska minni hlutans
jafnstór og flokkur stærsta
tjekkneska flokksins, bænda-
flokksins. Bráðum líður að því,
segja Tjekkar að Hitler fari að
heimta að þýski hlutinn í
Tjekkóslóvakíu verði sameinað-
ur föðurlandinu. Til þess að
hindra það, styðja Tjekkar
Frakka.
Rúmenína fekk vænan skika
af austurrísk-ungverska keisara
dæminu eftir styrjöldina. — Ef
Þjóðverjar og Austurríkismenn
sameinast — og stefnir ekki að
því? — þá mun áð því líða að
Þjóðverjar taki aftur það, sem
þeir segja vera sitt og e. t. v.
meira. Þessvegna eru Rúmenar
með Frökkum.
Og Júgóslafía er að miklu
leytiausturrískt-ungverskt land.
Öll þessi þrjú lönd eru auk þess
tengd innbyrðis böndum í Litla
bandalaginu og fylgja hvert
öðru.
ítalir, Grikkir og Tyrkir ótt-
ast að Þjóðverjar geti orðið ná-
búar þeirra — og hættulegir
nábúar síðar. Þeir óttast að
„jafnvægið raskist“ og að Þjóð-
verjar muni geta boðið þeim
afarkosti.
*
ÞANNIG er það óttinn við
Þjóðverja, sem bindur Frakka
og fylgdarlið þeirra. Aðstaða
þeirra í hernaði er góð. Þeir
geta sótt að Þjóðverjum úr
tveim áttum. Að vestan við
landamæri Frakklands og Belg-
íu, að sunnan og suðaustan frá
Tjekkóslóvakíu og Rúmeníu.
Undanfarið hefir verið rætt
mikið um leynisamninga sem
sagt er að Rúmenar og Rússar
(og Frakkar að baki), hafi gert
með sjer um það, að rússnesk-
ur her megi fara yfir Rúmeníu,
ef til þess kemur, að Rússar
verði að styðja Frakka í hem-
aði við Þjóðverja.Þá er og full-
yrt að Rússar hafi gert samn-
ing við Tjekka, þar sem Rúss-
um er trygt að þeir geti haft
flugvjelabækistöð í Tjekkósló-
vakíu. Hernaðaraðstaða banda-
manna er því góð — í bili —
þegar þess er líka gætt, að Þjóð
verjar standa einir. Þess er a.
m. k. tæplega að vænta að Pól
verjar styðji þá í ófriði og ef
ekki Pólverjar þá engir. Þjóð
verjar myndu því verða að
standa einir gegn óvígum óvin-
um.
*
ÞANNIG er ásatt árið 1936.
En hvernig verður aðstaðan
1961?
Yerða Þjóðverjar ekki búnir
að koma sjer upp öflugum víg-
girðingum á vesturlandmærum
sínum árið 1961, og geta því
varist að vestan meðan þeir
sækja fram að austan? Verða
Þjóðverjar ekki búnir að koma
sjer upp öflugum og velútbún-
um her, eftir 25 ár og verða
þeir ekki búnir að fá sjer banda
menn? Vjer vitum, að flestir
vilja fylgja þeim sterka.
Þessar eru röksemdir Frakka.
Vegna þessarar afstöðu Frakka,
er friðurinn í Evrópu í hættu.
Pr.
• ••*———•••
Landhelgisgæsl-
an á Faxaflóa.
Þingsályktnna r f il-
laga frá Pjelri Otte-
sen og Ólafi Ihors.
Ð jetur Ottesen og Ólafur
A Thors flytja hing-sálykt-
unartillögu um landhelgis-
gæslu á Faxaflóa.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora
á ríkisstjórnina:
a. Að láta nú þegar smíða
nægilega stóran, traustan
og ganghraðan, vopnaðan
vjelbát til þess að annast
landhelgis- og veiðarfæra-
gæslu á Faxaflóa.
b. Að leigja til gæslunnar,
meðan á smíðinni stendur,
þar til hæfan vjelbát, er
búinn sje nauðsynlegum
tækjum.“
I greinargerð segir:
Landhelgisgæslu og gæslu veið-
arfæra utan landhelgi er mjög
ábótavant á Faxaflóa. Hlýst af
þessu hvorutveggja stórtjón ár-
lega.
Nú hefir hallað undan fæti með
landhelgisgæsluna við það, að Óð-
inn,. annað aðalvarðskip ríkisins,
hefir verið seldur til útlanda. Má
nú ekki við svo búið standa stundu
lengur, að það skarð sje ekki
fylt, enda var heimild sú, sem
ríkisstjórnin fjekk til þess að leita
tilbocja í Óðinn og selja hann, ef
viðunanlegt boð fengist, bundin
því skilyrði, að landhelgisgæslan
biði ekki hnekki við söluna. Til-
lagan miðar að því, að nú þegar
verði hafist handa að ráða bót á
þessu að því er Faxaflóa snertir,
me'ð þeim hætti, er í tillögunni
fels,t.
SJÁLFVIRKT
bVOTTAEFNI
'Oskaðlegt. Klórlaust
Gjörir þvottinn
mjallhvítann á n
þess að hann sje
nuddaður eða
b I e i k j a ð u r.
Besta
hjálp
húsmóð-
urinnar.
Timburverslnn
P. W. Jacnbsen & SSa.
StofnuÖ 1824.
Símnefai: Granfiini — C&rl-Lcuulsgmde, Köbeahmvn C
Selur timbur f stasrri og nuerrl tendmgam frá Kaap-
mMmahifn. — Eik til skipasmíSa. — Efnnig h«fl«
skipsfarma frá Svíþjóð.
Hefl verslað við Island í meir en 80 ár.
Rúðugler.
Utvegum allar tegundir af glerl
frá Belgiu eða Þýskalandi.
Eggert Rrisljánsson & Co.
Hornbúð sú,
sem hárgreiðslustofan Ondula hefir nú í húsinu Aust-
urstræti 14, er til leigu frá 14. maí n. k.
Einnig til leigu frá sama tíma salur og nokkur
herbergi á efstu hæð hússins.
Uppl. hjá umsjónarmanni hússins.
Jáhanni Ásmundssyni,
Sími 3740.
I(f
’ötj
i\