Morgunblaðið - 12.05.1936, Side 7
Þriðjudaginn 12. maí 1936.
MORGbNBLAÐIÐ
7
Dagbók.
! Veðrið í gær; Um 500 km. suð-
ur af Reykjanesi er lægð, sem
hreyfist N-eftir og mun herða á
ÍJA- og A-átt um alt land í nótt, en
liídega gengur vindur til S- og
•JPV á morgun. Vindur er þeg.ar
vaxandi SA við SV-ströndina, en
er annars hægur SA og S. Rignt
hefir dálítið á S- og V-landi í dag.
Hiti er 6—11 st. um land alt.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
kaidi. Skúrir.
Trúlofun sína hafa nýlega opin-
berað ungfrú Dóra Thoroddsen,
clóttir próf. Guðmundar Thorodd-
sen og Bragi Brynjólfsson verslm.
hjá Bókaverslun Sigf. Eymunds-
sonar.
Hjónaefni. Trúlofun sína hafa
■opinberað ungfrú Guðbjörg Vig-
fúsdóttir og Sigurður Benedikts-
són, blaðamaður.
Dánarfregn. Jónas Jónsson fyrr-
um bóndi í Sólheimatungu and-
aðist á sunnudagskvöld að heimili
sínu í Borgarnesi, 84 ára að aldri.
Togararnir. Hafstein kom af ls-
í'iskveiðum í < gær með 35 tunnur
og býst nú til karfaveiða. Þá
hafa komið af veiðum Snorri goði,
einnig með 35 tn., Egill Skalla-
grímsson, með 800 körfur af ís-
fiski og Skallagrímur með 107 tn.
Sindri kom frá Hafnarfirði í gær
og eri að búa sig út á karfaveiðar.
Togarinn Brimir fór til Austfjarða
til þess að losa fisk.
Enska herskipið, Lupine, kom
hingað í gær.
Pornleifafjelagið heldur aðal-
fund á morgun kl. 5 síðd. í kirkju
sal Þjóðminjasafnsins.
Eimskip. Gullfoss kom til Leith
í gær. Goðafoss er í Hamborg.
Brúarfoss fpr frá Vestmannaeyjum
í gærmorgun, áleiðis til Leith.
Dettifoss er í Reykjavík. Lagar-
foss kom til Kaupmannahafnar í
gærmorgun. Selfoss er í Reykja-
vík..
Asæl Blöndal, læknir er nýkom-
ínn til bæjarins eftir tæpra 4 ára
■dvöl erlendis. Hann hefir stundað
framhaldsnám í Wien og Kaup-
mannahöfn og aðallega lagt stund
á kvensjúkdóma og fæðingahjálp.
Bækningastofu opnar hann í dag
í Hafnarstræti 8.
Hjúskapur. Á laugardaginn voru
■gefin saman í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni, ungfrú Gyða
Þórðardóttir, Geirssonar, Vestur-
götu 22 og Hendrik Ágústsson, Sig-
urðssonar prentara. Heimili þeirra
á Blómvallagötu 11.
Hjónaefni. Á laugardag opinber
uðu trúlofun sína Berta Helga
Kristinsdóttir, Urðastíg 3 í Hafnar
firði og Reimar Marteinsson, Vest-
urbrú 1 í Hafnarfirði.
Fimleikasýning K. R. fór fram
kl. 2 e. h. á sunndaginn á Austur-
velli. K.-R.-ingar gengu fylktu liði
undir íslenska fánanum frá K.-R.-
húsinu og inn á Austurvöll. Var
það hin fríðasta og glæsilegasta
fylking ungra manna og kvenna.
Eftir að búið var að heilsa með
fánanum byrjuðu fimleikasýning-
arnar og tók þá við hver flokkur-
inn af öðrum. Yngstu telpurnar
voru fyrst, svo 1. fl. karla, þá 1.
fl. kvenna, síðan drengjaflokkur
og síðast telpnaflokkur, 15—18
ára. Benedikt Jakobssop fimleika-
stjóri K.-R. stjórnaði sýningunum.
Áhorfendur voru margir 0g höfðu
mikla ánægjii :af sýningunni, enda
var heildarsyipui* hennar hinn á-
gætasti.
Golfklúbbur íslands. í dag, kl.
6 e. h. verður sýnd stutt golfmynd
í Gaml'a Bíó. Ókeypis aðgangur og
aðeins fyrir klúbbfjelaga, sem
mega taka með sjer gasti.
Slys. Sex ára gamall drengur,
datt í gær ofan af húsþaki á
Hverfisgötu 32 B og handleggs-
brotnaði. Eallið var syo hátt, að
merkilegt þótti að hann skyldi ekki
méiðást meira,
Sænski sendikennarinn, Áhlmark
heldur fýrirlestur í háskólanum í
kvöld kh 8, um menning og bók-
mentasögu Skánar.
Tilkýnning frá Vetrarhjálpinni í
Reykjavík. Nú um flutninga og
hreingerningardagana, er fólk beð-
ið að muna eftir að Vetrarhjálpin
tekur til starfa á næstkomandi
vetri, og heitir á aha sem styrkja
vilja starf hennar og hafa notuð
föt, sem það vill losna við, að til-
kýnna það í síma 1094. Fötum veitt
móttaka í Franska spítalanum
(uppi) allá þessa' viku frá 10—12
f. h. og frá 4—7 e. li. Sími 1094.
Reykvíkingar munið eftir fátækl-
ingunum, ef þjer eigið gömul föt
sem þjer notið ekki sjálfir.
Verslunin „Málarinn“, Banka-
stræti, sýnir í gluggum sínum í dag
og á morgun nemendateikningar
frá gagnfræðaskóianum á ísafirði.
Flestar þessar teikningar eru gerð-
ar með pastellitum. Ennfremur
nokkrar vatnslitamyndir og kol-
teikningar, Myndir þær, sem þarna
eru sýndar, eru flestar hugmyndir
neinenda, nokkrar eru teiknaðar
eftir landslagi og húshverfum á Isa-
firði; engin þeirra er eftir fyrir-
myndum, teiknuðum eða prentuð-
um. Til þessa 'hafa pastellitir mjög
lítið verið notaðir í skólum hjer,
en árangur sá, er fengis thefir á
0§eyrin
við Hafnarfjörð er til leigu frá 14. maí, n. k.
Upplýsingar í síma 9113.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, 11. maí 1936.
Emil Jón§son,
♦
*
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
Margfaldur hagnaður
Með aukirmi neyslu á MJÖLK, SKYRI og OSTUM
sparið þjer kaup á erlendum vörum og aukið jafn-
framt líkamlega og andlega hreysti yðar og barna
yðar. — ÞESS VEGNA:
Meiri MJÓLK — meira SKYR — meiri OSTA.
ísafirði bendir til þess, að ástæða
sje til að taka þá alment upp, a.
m .k. j unglingaskólum. Teikni-
kennari gagnfræðaskólans er Gunn
ar Klængsson. Kennir hann einnig
málmsmíði og almennar smíðar. —
Hefir hann verið ráðinn kennari í
málmsmíði á kennaranámskeiði
því er haldið verður hjer í bænum
í’júní næstkomandi.
Slysavarnafjelag íslands. Um
150 börn, drengir 0g stúlkur, úr
Slysavarnafjelági íslands seldu
merki fjelagsins á götum bæjarins
í gær. Byrjúðu þau söluna kl. 7
um morguninn, og vom að þar
til kl. 7 síðdegis. Komu þau þá öll
saman niður við Hafnarhús og
gengu í fylktu liði um göturnar í
tvær klukkustundir samfleytt, inn
að Vatnsþró, niður Laugaveg, nið-
ur að Höfn og víðar. Niður við
Höfn heilsuðu þau tveim herskip-
um, dönsku og ensku og fleiri
skipum er þar Hggja, með ísl.
fánanum og var þeim svarað á
móti. Var þessi fjölmenni hópur
unglinga skemtilegur á að líta.
Fyrir fylkingunni fóru 10 nng-
lingar í sjóstökkum og 6 í hvítum
foringjabúningum. Gestur Þor-
grímsson stjórnaði göngunni. —
Ekki var vitað um hvernig merkja-
salan hafði gengið í gærkvöldi, þeg
ar blaðið fór í prentun.
IJtyarpið:
Þriðjudagnr 12. maí.
19,45 Frjettir.
20,15 Erindi: Utn starfræna sjúk-
dóma, II (Jóhann Sæmundsson
læluiir).
20,40. Symfóníu-tónleikar: a)
Mendelssohn: Fingals-forleikur-
inn; b) Tschaikowsky: Píanó-
konsert í b-moll; c) Brahms:
Syinfónía nr. 3.
(Ðagskrá lokið um kl. 22,30).
—
Ný bók: U
Innijurttr
eftir-” óno..
Óskar B. Vilhjálmsson,
garðyrkjufræðing.
i - ,-4
» ,eðu i
rnðé'Votóía prt
mo
Þetta er bókin, sem íslenskar húsmæður hefiiþ
lengi vantað; leiðbeiningar um hirðinffu og meðferð6
glugp:ablóma og innijurta. í bókinni eru 80 falíeéftó'
myndir, eftir ljósmyndum frá konunglega Landbún-
aðarháskólanum í Kaupmannahöfn.
Fæst í öllum bókaverslunum.
|Í
ö.nr® m
rnmrnmm^
'SMTí?
Saumastofa mín
ER FLUTT
frá Laugaveg 34 í Alþýðuhúsið við HverfisgÖtu (4. hæð),
Guðrún Arngrímsdóttir.
Sími 2725.
- ,, , ;
'■) ÍIOU
Tilkynning.
■(Tstíá'Ai.
rtfís ti.
i Htí
Nýreyktur lax.
Reyktar rúllupylsur
á 0,75 Vi kg.
(iötbóðin Herðubrejf
Hafnarstræti 18. Sími 1575.
Laukur
o*j
Kartöflur.
Verslunin Vfsir.
Fermingarúrin
nýjustu gerðir.
Ódýrust og best hjá
Sigurþór.
Hafnarstræti 4.
Reynið pakka af
Araba fjallagrasa-kaffibæti
fæst alstaðar.
14.
Garðyrkjuráðunautur Reykjavíkur verður á ferð í þessuib
hverfum bæjarins, og á þeim dögum, sem hjer segir:
12. maí: Norðurmýrarblettir, og svæðið sunnan
Laugarvegar, vestan Kringlumýrarvegaí
og að Hringbraut.
13. maí: Fossvogsblettir og Bústaðablettir.
-15. maí: Sogamýri, Sogamýrarblettir og
16. maí: Kringlumýrarblettir.
17. maí: Þvottalaugarblettir og Kleppsmýrarfolettir.
Upplýsingar og leiðbeiningár verða veittar öllum þeim,
er þess æskja.
Viðtalstími garðyrkjuráðunautarins er kl. 12,30—14 og
19—21 alla virka daga nema laugardaga, en meðan á leið-
beiningarferðunum stendur, aðeins kl. 19--21 á Iindarg. 1B
Sími 4773.
Garðyrkjuráðunautur Reykjavíkur.
óskar B. Vilhjalmsson.
Trjesmiðafjelag Reykjavlkur.
Að gefnu tilefni tilkynnist, að lágmarkskaup húsa-
og bátasmiða er kr. 1,75 pr. klst. og verkstæðismanna
kr. 1,45 pr. klst.
STJÓRNIN.
J árnsmiðja
HAR. KJARTANSSONAR, Laugaveg 64.
Tekur að sjer járn- og koparsmíði, allskonar logsuðu.
Smíðar hliðgrindur, miðstöðvarkatla í eldavjelar o. m. fl.
Vönduð vinna. — Sanngjarnt verð.
Fyrirli»'jj;andi:
Hrísgrjón frá Spáni í 50 kg. tvöf. pokum.
Hrísgrjón frá Hollandi, W.R.O.L., í 50 kg. pokum.
5ig. Skjalöberg.
(Heildsalan).