Morgunblaðið - 29.08.1936, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.08.1936, Blaðsíða 3
Laugardagur 29. ágúst 1936. MORGUNBLAÐIÐ 3 trrrjr Liðhlaupar teknir fastir af stjórnarhernum Lokið hýskalandSmarkaðinum og opnið þann rússneska! Myndin er tekin af liðhlaupum úr liði uppreisnarmanna í gæslu hermanna úr stjórnarliðinu. Frá Olympiuskákmótinu: Islendingar hlutu 5 vinninga í gær. 4 af Svisslendingum einn af Tjekkum. Tslendingar tefldu tvær umferðir í gær (15. og 16. umferð) við Tjekka og Svisslend- inga. Þeir unnu fjórar skákir, töpuðu sex, tvær gerðu þeir jafntefli og fjórar urðu biðtefli. Fyrir hádegi tefldu þeir við Tjekka: Leikar fóru þannig: Baldur vann Zinner, Foltys vann Gilfer, Hromadke vann' Snævarr, Gilg vann Steingrím og Pokorny vann Sigurð; 3 skákir urðu biðtefli (einn vinn- ingur og 4 töpuð). Síðari hluta dags tefldu ís- lendingar við Svisslendinga og fóru leikar þannig: Gilfer vann Naegli, Einar vann Voellny, Guðmundur vann Pluess, Dikemann vann Sigurð og Gygli vann Snævarr. Jafntefli gerðu: Ásmundur og Grob, Ari og Strehle; ein skák varð biðtefli. (4:3). Á erlendum blöðum sem hingað eru komin sjest að Aust- urríkismenn hafa vinning gegn 21/4 vinning íslendinga. Af því verður ráðið að biðskák sú, sem eftir var hafi tapast biðskákina átti Einar Þorvalds- son. Kunnur íslenskur taflmaður hefir skrifað eftirfarandi fyrir Morgunblaðið um árangurinn af þátttöku íslendinganna á O'ympíuskákmótinu fram til þessa. Það hefir vakið sjerstaka at- hygli á Olympíuskákmótinu í Miinchen að íslendingar sigr- uðu Frakka í 4. umferð með 41/4 gegn 31/4- í þýska blaðinu Völkiseher Beobachter frá 20. þ. m., sem hingað hefir bor- ist, er þess sjerstaklega getið að ,,hið litla Island“ skyldi sigra Frakka með 41/4 gegn 3l/2. í fyrstu fjórum umferðunum gerði Eggert Gilfer jafntefli við Erik Andersen skáKmeistara Danmerkur og Eliskases skák- meistara Austurríkis, en sigr- aði Doesburg á efsta borði Hol- lendinga og Betbeder á efsta borði Frakka. Það hefði ver- ið gaman fyrir fslendinga, ef Eggert hefði haldið áfram á þennan hátt alt skákþingið, en svo er að sjá, sem hann hafi ofreynt sig á þessum fyrstu fjórum skákum, því í næstu tíu skákum nær hann aðeins fjór- um jafnteflum. í gær vann hann Svisslendinginn Naegli. Þess ber vitanlega að geta, að Eggert teflir ávalt við sterk- ustu mennina frá hverju landi, Þetta er boðorð kommúniita. Á þessu byggist sienTJií- . síldarsalan til Rússa. Það er staðreynd, að nú er hægt að selja fyrsta flokks sjerverkaða Faxa-síld fyrir alt að 40 kr. tunnuna fob. og gegn stað- greiðslu. Það er einnig' staðreynd, al Síldarútvegs- nefnd bannar að selja sáldina þessu verði, því að hún hefir gert samning við Rússa um §ölu síldar- innar fyrir 22 kr. fob., en greiðsla fari fyrst fram 30 dögum eftir sýningu pappíra 1 Khöfn. Loks er það staðreynd, að Síldarútvegsnefnd bannar mönnum hjer syðra að veiða síld til, sölu erlendis, ef þeir ekki vilja hlýta hennar boði. >A, jl FRAMH. Á SJÖTTU SSÐU. * Morgunblaðið hefir leyft sjer að finna að þessu fram- ferði Síldarútvegsnefndar, en Alþýðublaðið lofar og veg- samar nefndina fyrir hennar verk og á ekki orð til yfir ó- svífni Morgunblaðsins! Alþýðublaðið þarf ekki að halda, að það kæfi þetta mál með stóryrðum og skömmum. Málið er miklu alvarlegra en svo. Hjer er sem sje að endurtaka sig nákvæmlega samá sagan og í fyrra. Þá hafði Síldarútvegs- nefnd gert fyrirfram samninga um sölu matjes-síldar fyrir lágt verð. En hið marglofaða „skipu- lag“ hagaði því þannig, að lít-T ið sem ekkert var farið að salta upp í fyrirframsamning- ana þegar síldin hvarf fyrir Norðurlandi. Síldarskorturinn varð til þess, að verðið á matjes-síld hækk- aði mjög erlendis. Samt stóð verðið í stað hjá nefniinni. En þá kemur Faxa-síldin til sög- unnar og sá hluti hennar, sem verkaður er á rjettan hátt, selst fyrir ágætt verð, þegar nefnd- in hafði neyðst til að gefa síld- ina frjálsa á markaðnum. * Svipuð saga er að endurtaka sig nú. Síldarskortur verður fyr- ir Norðurlandi eins og í fyrra. Verðið stórhækkar. En Síldar- útvegsnefnd hafði- einnig nú gert fyrirframsamninga um sölu á allmikilli matjes-síld, en verðið er miklu lægra en nú er fáanlegt á frjálsum markaði. Nefndin hafði lagt ýmsar tálmanir á síldarsöltun með- an næg veiði var í sumar og svo lendir hún í ógöngum og vandræðum. Menn vilja ó- gjarnan láta síldina af hendi ti! nefndarinnar upp í fyrir- framsamningana, þegar þeir g_eta fengið miklu hærra verð á frjálsum markaði. V4tanlega er það engu öðru en glópsku Síldarútvegsnefnd- ar að kenna, að eigi var fyrir löngu búið að salta í fyrir- fram samningana. En útgerðarmenn og sjó' menn hjer syðra skilja ekki þann þankagang Síldarútvegs- nefndar, að þeim skuli vera al- gerlega varnað að njóta hins háa verðs, sem nú er fáanlegt fyrir síldina. I þess stað kem- ur Síldarútvegsnefnd og skip ar með valdboði, að þeir skuli selja síldina til Rússlands fyr- ir alt að því helmingi lægra verð, en annars staðar er fáan- legt. Ella fái þeir ekki að veiða síld! Alþýðublaðið er að gaspra um það, að matjes-verkuð Faxa síld muni eyðileggja markað- inn, því að hún sje miklu verri vara en I. fl. norðlensk síld, verkuð á sama hátt. Veit ekki Alþýðublaðið, að Faxa-síldin hefir verið og verður seld á erlendum mark aði undir sínu sjermerki? Það getur því á engan hátt spilt fyrir sölu norðlenskrar síldar, að Faxa-síldin sje matjes- verkuð, ef hún er seld undir sínu sjermerki. Og þe^ar norð lensk matjes-síld er ófáanleg, hví mega kaupendur þá ekki fá Faxa-matjes, ef þeir óska? Nei, Alþýðublaðið finnur mjög vel, að málstaður sá sem það hefir tekið að sjer að verja er óverjandi. Það er óverjandi með öllu að valdhafarnir skuli með vald- boði banna mönnum að nota besta fáanlega markaðinn, ti að selja sína vöru. 10 togarar stunda karfa- 'j-- S veiðar á Hafamiðum. Fleiri herpinótaskip hætta veiðum. Stöðug síldveiði í Faxaflóa. OEKNETAAFLI var með * “ Biinrwa r«óti norðan lands í fyrrinótt, enda vsfer veður stilt og því lítið drif hjá reknetabátum. í fyrri- nótt komu nokkrir bátar með herpinótaafla frá Þist- iifirði, en þar veiddist ekk- ert í gær. Seint í gærkvöldi kom frjett frá vjelbátnum Val- birni um að hann væri á leið til Siglufjarðar með 150 tunnur af herpinótasíld, sem veiddist vestan við Mánar- eyjar í gærdag. Höfðu nokk- ur herpinótaskip verið þar að veiðum, en ókunnugt var í gærkvöldi hvort þau hefðu aflað nokkuð. Fleiri skip bætast mí í þann hóp, sem hættir herpinótaveiðum. Línuveiðarinn Ólafur Bjarnason fór lieimleiðis í gær. En ætlaði á heimleið að Ieita síldar á Húna- flóa. Huginn, Hafnarfirði, fór heimleiðis í gær x>g tók tómar síldartunnur til Hafnarfjarðar. Einnig ern mörg skip, sem hætta kerpinótaveiðum, að búa sig út á reknetaveiðar. í fyrradag var alls saltað á Siglufirði 3211 tunnur rekneta- síld og 1073 tunnur herpinótasíld. Eftir verkunaraðferðum skiftist síldin þannig: Matjessaltað 1179 tn. Grófsaltað 1566 — Stórsíld grófsöltuð 59 — Magadregin saltsíld 334 — Kverkuð og krydduð 1 — Hausskorin og magadregin 392 — Venjuleg saltsíld 341 — Sykursaltað 410 — Uppgripa karfaveiði á Halamiðum. Góð veðrátta hefir verið undan- farna daga á Halamiðnm og hafa togararnir, sem stunda þar karfa- veiðar, aflað ágætlega. Alls stunda þar nú 10 togarár karfaveiðar. í fyrrinótt kom Snorri goði til Siglufjarðar með rúmlega 200 smálestir af karfa. Skallagrímur fór aftur út á karfáveiðar kl. 3 í gærdag, eftir að hafá Isnidað 200 mál í S.R.N. á Siglufirði. 1 nótt komu af karfaveiðum til Djúpa- víkur Tryggvi gamli og Kári báð- ir með fullfermi. Brimir kom til Norðfjarðar í gær'að hinúm nýju FRAMH. Á SJÖTTU SIÐU. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.