Morgunblaðið - 17.09.1936, Blaðsíða 3
Fimtudagur 17. sept. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Fárviðrið.
Stórkostlegir heyskaðar
á Norðurlandi.
Vatnavextir valda
vegaspjöllum og
brúaskemdum.
Bryggja stórskemmist
á Skagaströnd.
OFSAROKIÐ skall yfir Norðurland á
miðvikudagsnótt, og olli tilfinnanlegu
tjóni í öllum sýslum.
Er ógemingur að gera sjer grein fyrir því, hve
tjónið hafi verið mikið, því frjettir hafa ekki borist
úr öllum sveitum. En mest kveður að því tjóni,
sem orðið hefir á heyjum manna. Af þeim fregn-
um, sem blaðinu bámst í gær, er aðeins hægt að
ráða af dæmum, hve tjónið hafi verið mikið.
Frá Blönduósi var
blaðinu símað:
í ofsarokinu, sem hjer geis-
aði aðfaranótt miðvikudags
urðu miklir heyskaðar víðsveg-
ar um Húnavatnssýslu. — Eru
engin tók á að afla sjer yfirlits
um það enn, hve víða menn
hafa mist heý, eða hve miklu
tjónið hefir numið. En telja má
víst, að það nemi þúsundum
heyhesta, sem menn hafa mist.
Sumstaðar þar, sem til hefir
frjest, hefir rokið skafið burtu
heyflekki, og þeytt föngum, svo
ekki sjest urmull af þeim.
Hefir frjest, að tjó,nið á einum
bæ t. d., Stóru-Giljá, nemi 300
hestumj og víða er talað um, að
menn hafi mist 100 hesta, eða
sem því svarar á bæ.
Af bólstrum, sem úti stóðn
verjulausir, er víða ekki annað
eftir en botnarnir.
Veðurofsinn stóð yfir frá kl.
1-—4 um nóttina.
í SKAGAFIRÐI
Tíðindamaður blaðsins á Sauð-
árkróki hefir svipaða sögu að
segja.
Úr Blönduhlíð, Hólmi, Seilu-
hreppi, Skagafjarðardölum berast
fregnir af miklum heysköðmp.
Þaðan er og sagt hið sama, að
rokið hafi jafnvel rifið hurtu flatt
hey.
Á Mælifelli er talið, að tapast
hafi á 3. hundrað hestar. Og til-
finnanlegt tjón er sagt að orðið
hafi t. d. á Silfrastöðum, Úlfs-
stöðum og Miklabæ í Blönduhlíð.
Sama sagan er úr Viðvíkur-
sveit á Vatnsleysu t. d. Og af
Sjávarborgarengjum tapaðist mik
ið hey.
Úr hvorngri sýslunni hefir blað
ið frjett að orðið hafi tilfinnan-
legt tjón á húsum — nema hvað
húsaþök löskuðust víða og járn-
þök fuku af hlöðum hjer og þar.
í EYJAFIRÐI.
Tíðindamaður blaðsins á Alcur-
eyri segir og frá, að þar í sýslu
hafi fokið talsvert af heyi. En
eftir því sem hann hafði frjett
í gærkvöldi, hefir heytjón vart
orðið eins víða þar í sýslu eins
og vestar.
Á Litla-Eyrarlandi var talið að
tapast hefðu um 200 hestar í veðr
inu, á Möðruvöllum í Hörgárdal
annað eins og á Grund í Eyja-
firði um 300.
Bryggjutjón.
Frá Blönduósi var blaðinu
símað í gærkvöldi, að önnur
timburbryggjan, sem bygð hef-
ir verið á Skagaströnd, hafi
stórskemst í rokinu, og getur
svo farið, að mikill hluti henn-
ar ónýtist með öllu.
Er þetta ytri bryggjan, sem
liggur til austurs frá hafnar-
garðinum.
Hangir bryggjan uppi á enda
stöplunum, en stólpamir þar á
milli hafa dregist undan bryggj
unni, svó hún er sliguð niður og
líggur undir áföllum af sjáv-
argangi.
Á bryggjuhausnum var fall-
hamar 7 tonn að þyngd. En við
rask það, sem á bryggjunni
varð, fjell fallhamar þessi í
sjóinn.
----------Bátar--------------
sem vantaOi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavamafjelagi fslands var
ekki ástæða til að óttast um
neina háta í gærkvöldi, nema
e. t. v. einn bát frá Siglufirði.
Þar hafði þó ekki spurst til
fjögra báta.
Báturinn Kristbjörg frá
Vestm.eyjum fór í fyrradag
frá Patreksfirði áleiðis til
Reykjavíkur. Spurðist ekkert
til hans í gær, en kunnugir
töldu, að hann myndi senni-
lega hafa komist nndir Sand.
Frá Vestm.eyjum vantaði
nokkra háta, sem eru að drag-
nótaveiðum á Breiðafirði og
Vestfjörðum, en ekki var tal-
ið, að bátar þessir myndu vera
í hættu.
í gærmorgun var vjelbátur-
inn Garðar hætt kominn út af
Kalmanstjörn. Var Belgaum,
sem var staddur skamt undan
Garðskaga, fenginn til að fara
bátnum til hjálpar. Um hádegi
var sjór tekinn að lægja og
gat Garðar þá siglt til hafs.
Hann kom til Keflavíkur í
gær.
Veðurhæð
var 12 vindstig.
Frá Véðurstofunni fekk blaðið svohljóðandi veðurlýsingu
í gærkvöldi:
Aðfaranótt mánudagsins gekk SA stormur og stór-
rigning yfir Vesturland, en gerði mjög lítið vart
við sig á austanverðu landinu. Snemma á mánudagsmorgun
gekk vindur til SV-áttar og lygndi fljótt.
Eftir veðurfregnum á þriðjudagsmorgun var hæg SV-átt
á stóru svæði fyrir suðvestan landið, en óljós merki þess, að ný
lægð væri að byrja að myndast yfir hafinu um 1600 km. SSV
af Reykjanesi, en vandsjeð hve sterk hún yrði eða hver áhrif
hún myndi hafa á veður hjer við land.
Um hádegið var það ljóst, að lægðin mundi verða hættuleg,
og var því gert ráð fyrir í veðurspánni kl. 15, að S-stormur j
mundi skella á vestanlands með nóttunni. í gærkvöldi kl. 17
\ar stormsveipurinn um 700 km. SSV af Reykjanesi og hafði
færst mjög í aukana. Var þá spáð S-hvassviðri eða stormi um
alt land.
Um miðnættið var stormsveipurinn kominn norður á móts
við Reykjanes og hafði þannig færst 1400 km. á 12 klst., eða
h. u. b. 120 km. á klst., sem er alveg óvenjulegur hraði á
stormsveipum.
Veðurhæð var mest um miðnættið í Rvík 12 vindstig (ca.
25 m. á sek.). Upp úr því gekk meira til SV-áttar og lygndi
heldur.
í morgun var stormsveipurinn norður af Vestfjörðum og
var þá ofsaveður af suðvestri víða norðvestan lands.
Tveir meiin drukna
frá Siglufírði.
Óttast um bátinn Þorkel mána.
Mifclð nelatfón.
Bátum hlekkist á.
ÞEGAR sunnanrokið skall á á Norður-
landi um sexleytið í gærmorgun, voru
flestir bátar í róðri. I gærkvöldi voru
18 bátar ókomnir til Sigluf jarðar, og hafði spurst
til þeárra allra nema Þorkels mána, Kristinns Er-
lings, og óttast var ennfremur um Draupnir.
f nótt var þó talið, að ekki væri ástæða til að óttast um
þessa báta (skv. upplýsingum frá Slysavarnaf jelaginu)
nema e. t. v. Þorkels mána. Áhöfn 5—8 manns.
Um sexleytið í gær drukn-
uðu tveir menn af vjel-
bátnum Brúna. Mennirnir
voru Eðvarð Solnæs vjel-
stjóri (kvæntur, barnlaus)
og Ingvar Sigurðsson frá
Dalvík (ókvæntur).
Togarinn Garðar var með
Brúna, sem var með bilað stýri
og vjelbátinn Einar í eftirdragi.
Hafði komið leki að Einari og
maraði hann í kafi. Skipshöfn-
in var um borð í Garðari, en
7 manna skipshöfn var kyr í
Brúna.
Um 3 sjómílur fyrir utan
Siglunes hitti Garðar Dr. Al-
exandrine, sem var á leið frá
Akureyri til Siglufjarðar.
Ætlaði „Drotningin“ að
hjálpa Garðari að koma
Einari, sem óttast var um
að sökkva myndi þá og
þegar, til Sigluf jarðar. En
svo slysalega vildi til að
Drotningin rakst á Brúna
og sökk hann samstundis.
Fimm mönnum af áhöfninni
tókst að bjarga um borð í
Drotninguna en tveir druknuðu.
Drotningin og Garðar komu til
Siglufjarðar um 9 leytið í gær-
kvöldi. Var vjelbáturinn Einar
þá sokkinn.
FRAMH. Á SJÖTTU S©U.
Mikið tjón i
V.-Skaftafells-
sýslu.
Brúin á Jökulsá
í hættu.
Ofært er á bílum aust-
an úr Mýrdal vegna
vatnavaxta í ám í Vest-
ur-Skaftafells- og Rang-
árvallasýslu. Varð í gær
að selflytja þá, sem
komu að austan.
Brúin á Jökulsá á Sólheima-
sandi er í hæítu. Hefir áin graf-
ið sig fram í öldu fyrir austan
brúna og er óvíst hvort tekst
að afstýra stóru áfalli, ef að-
gerð verður ekki framkvæmt
fljótt (símar frjettaritari Mbl.)
Hafa undanfarið gengið mikl-
ar rigningar og hlýindi fyrir
austan og hefir mikill Vöxtur
hlaupið í ár, bæði jökulsár og
bergvötn.
Á Kálfafelli í Fljötshverfi
hefir ofvöxtur hlauþið í Laxá,
sem er bergvatn og rehnur vest-
an Kálfafells og Kálfafells-
kots. Var hlaupið með fádæm-
um mikið (símar frjfettaritari
Mbl.) og eyðilagði rafstöðina
við Kálfafell, en þaðan fá raf-
magn þrír bæir. Tók rafstöðin
húsið, sem var úr steingteypu,
burtu, og grulinurinn brotnaði.
Vjelar stöðvarinnar standa eft-
ir í rústunum, en eru undir
möl og sandi.
Flóðið eyðilagði stórt
stykki í. tuni í Kálfafells-
koti og ennfremur talsvert
af nýrækt. Langri girðingu
sópaði burtu, svo ekki sást
urmull eftir.
Árnar bera fram mikið af
urð og grjóti. Búendur í Kálfa-
felli, sem orðið hafa fyrir tjóni
eru Stefán Þorvarðsson og son-
ur hans Björn og Helgi Bergs-
son.
í Skaftártungu hefir Eld-
vatnið við Stórahvammsbrú
hlaupið á vegargarð og brotið
hann.
í Hólmsá hefir vöxtur ekki
verið eins mikill síðan í
Kötluhlaupunum. Hólmsá
er jökulsá.
Brúin yfir Hólmsá liggur yfir
hátt gljúfur en áin flóði yfir
brúna og braut skarð í kamp-
ana báðum megin brúarinnar.
Áin flæddi inn í svokallað
Kötlugil og tók brú yfir gil-
inu og komst inn í rafstöð, sem
bóndinn í Hrífunesi á. — Um
skemdir í rafstöðinni er óvíst.
I Mýrdal hefir brúin á Klif-
anda skekst. Hljóp Klifandi
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.