Morgunblaðið - 17.09.1936, Qupperneq 6
Fimtudagur 17. sept. 1936.
•6 MORGUNBLAÐIÐ
Barátta Búnaðarþings
fyrir sjálfstæði
r
Búnaðarfjelags Islands.
Tillögur meirihluta laganefndar
samþyktar með 9 atkv. gegn 5.
Tjún annarsstaöar
á landinu.
Búnaðarþingið hjelt fundi í
gær frá kl. 10—12, 1%—4 og 5—
6. Umræður um nefndarálit meiri
•g minni hluta nefndarinnar
hjeldu áfram og urðu með köfl-
um all snarpar. Var hörð
sókn af hálfu meiri hlutans, en
rök málsins komu flest fram í
fyrradag. Allir Búnaðarþingsfull-
trúarnir tóku til máls við þessar
♦
umræ'ður, sumir 3—4 sinnum, og
voru 33 ræður alls haldnar í mál-
inu. Auk Búnaðarþingsfulltrú-
anna tóku til máls í gær Steingr.
Steinþórsson búnaðarmálastjóri,
Bjarni Ásgeirsson alþm. og Her-
mann forsætisráðherra. Kom þar
ukki annað nýtt fram en það, að
búnaðarmálastjóri kvaðst hafa að
engu það ráðningarskilyrði sitt,
að hann mætti ekki taka öpinber-
an þátt í stjórnmálum.
Porsætisráðh. lýsti því yfir, að
hann mundi á Búnaðarþingi í
vetur bjóða Búnaðarfjel. íslands
á ný að hafa á hendi framkvæmd
Jarðræktarlaganna, en enginn
skilur, til hvers hann ætlar að
gera það, nema ef ætlun hans er
að fá brgytt skiiyrðum Jarðrækt-
arlaganna á þingi í vetur.
Hið eftirtektaverðasta í öllum
þessum ’umræðum um Jarðrækt-
arlögin var það, að þeir Búnað-
arþingsfulltrúar, sem voru því
meðmæltir að lúta valdboði rík-
isstjórnar og meiri hluta Alþing-
is gagnvart Búnaðarfjel. íslands,
klifuðu hvað eftir annað á því,
að Jarðræktarlögunuraí nýju
mundi bráðlega verða hreytt og
sumir þeirra viðurkendu galla á
þeim. Var harðlega undir þetta
tekið og það. heitptað, að gallarn-
ir yrðu lagaðir áður en Búnaðar-
fjel. Isl. tæki að sjer framkvæmd
ina.
í umræðunuin í gær bar mest á
ræðum nefndarmannanna Ólafs
Jónssonar, Jóns á Reynistað og
Jakobs Líndal. Magnús á Blika-
st.öðum hjelt og snjalla og skarpa
ræðu. Þeir öuðin. á Hofi, Magn-
ús í Reynisdal, Magnús Prikriks-
son og Páll á Ásólfsstöðum hjeldu
allir ræður og gerðu grein fyrir
hversvegna þeir gætu ekki beygt
sig fyrir árásinni á Bánaðarfjel.
íslands.
Um kl. 6 e. h. var umr. lokið
og var þá gengið til atkvæða
með nafnakalli. Voru tillögur
meiri hl. nefndarinnar bornar
upp í einu lagi og samþyktar með
9:5 atkv. Já sögðu: Guðm. á Hofi,
Jakob Líndal, Jón á Reynistað,
Magnús í Reynisdal, Magnús Prið
riksson, Ólafur Jónsson, Páll
Stefánsson, Sveinn Jónsson á Bg-
ilsstöðum og Magnús á Blikastöð-
um. Nei sögðu: Björn Hallsson,
Jón Pjalldal, Jón Hannesson,
Kristinn Guðlaugsson og Sigurð-
,ur á Arnarvatni.
Till. Jóns í Deildartungu, sem
var einn í minni hl. nefndarinn-
ar, komu því ekki til atkvæða.
Búnaðarþingið hafnaði því með
mjög miklum meiri hluta að
beygja sig fyrir valdboðinu.
Að lokinni þessari atkvæða-
greiðslu var þinginu slitið með
nokkrum orðum forseta, Magnús-
ar Guðmundssonar. Þingfulltrúar
þökkuðu honum fundarstjórnina,
eftir till. Magnúsar Priðriksson-
ar, með því að rísa úr sætum sín-
um.
Var síðan af þingi gengið.
Mlkftð tjón í
Þingeyjariýsln.
Frh. af 3. síðu.
Húsavík miðvikud. Einkask.
I nótt var ofsaveður hjer um
slóðir af suðri og suðaustri, er
gerði mikið tjón á heyjum.
Fauk jafnvel torf ofan af
uppbornum heyjum, og skóf
veðrið upp flata flekki svo þeir
fuku út í veður og vind.
í Húsavík töpuðust nokkur
hundruð hestar af heyi, sem úti
var.
Ekki hafa enn komið ná-
ikvæmar fregnir úr sveitunum.
En búast má við, eftir því
hvernig veðrið var hjer, að
tjónið hafi orðið mikið.
Egill.
*
HLAÐA BRENNUR
Húsavík, miðvikudag.
Að Norðurhlið í Aðaldal
brann í nótt hlaða með 30 hest-
um af heyi, og 100 hest hey,
sem var við hlöðuna.
Var hlaðan gömul, með
Ijelegu þaki. Er talið að þakið
hafi lekið, og síðan hitnað í
votu heyinu, í úrkomum nú
undanfarið.
Bóndinn var ekki heima, far-
inn í göngur. Egill.
*
Af VEIÐISKIPAFLOTANUM
er símað:
Þegar fárviðrið skall á í nótt
lágu margir karfaveiðitogararnir
við affermingu í höfn. Þeir tog-
arar, sem voru á Halamiðum,
leituðu hafnar, nema 2 eru enn á
miðunum og sögðu í dag veður
fara heldur batnandi. (PÚ)
*
Úr DÖLUM er símað:
Á Ballará í Klofningshreppi
fauk tyrfð járnvarin lilaða niður
að torfveggjum og talsvert af
heyi. Öll önnur útihús eru meira
eða minna skemd, jafnvel torf-
veggirnir tættust sundur og grjót
úr þeim kastaðist langar leiðir.
Túngirðing er mikið skemd.
Skv. PÚ.
*
í LAXÁRDALSHREPPI
urðu þessir skaðar: í Búðardal
fauk verkfæraskúr ríkisins. Á
Leiðólfsstöðum fauk járnþak af
íbúðarhúsi. Á Gillastöðum fauk
járnþak af fjárhúshíöðu. Á
Hrappsstöðum fauk járn af fjár-
húsi og húsin eru mikið skemd.
f Hjarðarholti fuku um 100 hest-
ar heys. Víða annarsstaðar er
mikið heytjón.
Þrír bílar teptust í Miðá í gær.
Tveir hafa náðst, en eru ekki
komnir í lag. Átján jnanna áætl-
unarbíll frá Bifreiðastöð íslands
er enn fastur næstum á kafi í
kvísl vestan árinnar nálægt Gröf.
Tilraunir til þess að ná bílnum
standa yfir. (Skv. PU)
*
Frá PATREKSFIRÐI er símað:
Aftaka sunnan stormur geisaði
hjer síðastliðna nótt. Alla báta,
er lágu hjer á höfninni, að und-
anteknum einum, rak á land eða
þeir sukku. Sumir ónýttust alveg,
en aðrir skemdust mikið. Vjel-
bátnum Þresti var bjargað ó-
skemdum.
-Járnplötur fuku af nokkrum
húsþökum, auk annara smærri
skemda. — í Tálknafirði fauk
meginið af því heyi, sem úti var,
og þak tók af hlöðu í Botni.
Vjelbáturinn Alpha á Suður-
eyri rak þar á land og hvalveiða-
skipið Bstella, sem lá við Suður-
eyrarbryggju, skemdist eitthvað,
auk þess urðu skemdir á húsum
á hvalveiðistöðinni.
í Sauðlauksdal fauk þak af
hlöðu og allmikið af heyi. — Á
Hvallátrum urðu einnig skemd-
ir á húsum. (Skv. PÚ.)
*
Á SNÆFELLSNESI
urðu allmiklir skaðar. Prjettarit-
ari útvarpsins í Stykkishólmi sím-
ar í dag: Ofsaveður var hjer síð-
astliðna nótt og var veðurhæðin
mest milli kl. 24—2.
Silfurrefabú Ólafs Jónssonar
frá Elliðaey, með 10 silfurrefum,
fauk í óveðrinu. Náðust 4 dýrin
í búrunum ómeidd, en 6 sluppu
út. Þau náðust þó aftur í dag.
Búrin gereyðilögðust. Br tjónið á-
ætlað á annað þúsund krónur.
Þak fauk af hlöðu lijá Sumar-
liða Einarssyni og víða urðu
skemdir á skúrum og girðingum.
Óveðrið olli miklu tjóni á heyjum,
sem óhirt voru. — Á nýræktinni
í Stykkishólmi var mestöll seinni
slægjan í göltum og fuku þeir í
nótt. — Margir áttu óflutt hey
úr Eyjum, og eru þau talin ónýt.
(Skv. PÚ)
*
í EYRARSVEIT
var sama ofviðri og urðu þar
miklir heyskaðar. í Gröf fauk
hjallur og þvottahús og þak af
hlöðu. Þak fauk af fjósi á Pornu-
Grund og fjárhús skemdust á Set-
bergi. (Skv. FÚ)
Ný mynd er sýnd í Nýja Bíó í
kvöld, „Feigðarýlfrið“, amerísk
leynilÓgreglumynd, samin eftir
skáldsögunni „The Case of the
Ho'wling Dog“, eftir Stanley
Gardner. Mary Astor, Warren
William og Helen Trentholme
leika aðalhlutverkin.
Framh. aí 3. síðn.
Bryggjur storskemm-
ast í Siglufirði.
Drotningin lagði af stað frá
Akureyri kl. 12 á hádegi í gær,
og var bátum á Eyjafirði til að-
stoðar.
BÁTARNIR
KOMA AÐ.
Bátarnir voru að smákoma til
Siglufjarðar í allan gærdag. —
Sjómenn sögðu veður öllu verra
úti fyrir en inni á firðinum
(segir í FÚ fregn). Var rok um
allan sjó og krappar öldur, en
ekki stórsjór.
Togararnir Garðar, Gulltopp-
ur, Þórólfur og Fáfnir sem voru
á Siglufirði, fóru út fyrir há-
degi í gær til að vera til að-
stoðar bátum er kynnu að vera
í hættu.
Margir bátar töpuðu net-
um og öðrum hlekkist á
eða biluðu. Netatjónið er
talið nema mörgum tugum
þúsunda.
Stormur, 5 smálesta bátur,
komst undir Siglunes með vjel
í ólagi, en var sóttur þangað.
Netatrossur þeirra Draupnis
og Snorra rak saman. — Hjó
Snorri frá sjer netin en Draunir
hangir í þeim úti. Afturmastrið
brotnaði af Snorra. Bára misti
öll netin og fleiri bátar öll eða
flestöll.
Vjelbátinn Hvíting, sem lá
austur af Eyrinni, rak út undir
Siglunes mannlausan og var
sóttur þangað af bv. Þórólfi.
Flutningaskipið Bro sleit
frá hafnarbryggjunni á
Siglufirði og rakst aftur-
endi þess á næstu bryggju
norðanvið og braut hana
mikið.
Nótahjallar við börkunarstöð
Siglufjarðar fauk og annar lask
aðist. Hey hafa fokið víða hjer
í firðinum.
Skúr fauk af bryggju Hafliða
Halldórssonar og lenti hann á
manni, sem slasaðist allmikið.
Varð að flytja hann þegar á
sjúkrahúsið.
Kl. 6 voru þessir bátar komn-
ir til Siglufjarðar: Arthur,
Fanney, Bjarni, Brynjar, Einar
Hjaltason, Esther, Frigg,
Fylkir, Geir goði, Gunnar An-
tons, Hannes Hafstein, Harald-
ur, Harpa, Kári, Kári Sölmund-
arson, Kolbeinn ungi, Magni,
Skarphjeðinn, Skíði, Snorri,
Stathav, Sæbjörn, Víkingur,
Lagarfoss, Ásbjörn, Hansína,.
VATNSFLÓÐIÐ
í Vestur-SkaftafelIssýsluL
FRAMHALD AF 3. SÍÐU..
með Hafursá með svo miklum
fallhraða á brúna að eitt okið
skemdist. Klifandi hljóp einnig
fram fyrir vestan brúna.
Undir Eyjafjöllum var ófært
bílum alveg vestan Hrútafells
(bær), því að Kaldaklifsá, sem
þar rennur fram, hafði brotið
varnargarða í fleiri stöðum.
Holtsá undir Eyjafjöllum
hljóp á gamlan, öflugan varn-
argarð og braut garðinn. Flóði
hún yfir túnið.
Húsmæðra§kólinn
á Hverabökkum í Ölfusi tekur til starfa 1. okt. n. k.
Námsgreinar: Matreiðsia, fatasaumur og fleiri húsmóð-
urstörf. (Saumað úr nýju og gömlu efni). Einnig útsaum-
ur, teikning, leikfimi, íslenska og danska.
Gufuböð eru í skólanum. — Dvalarkostnaður og
kenslugjald er ca. kr. 50,00 á mánuði. — Námstími er frá
6 vikum til fleiri mánaða. — Umsóknir sendist brjeflega
eða í símtali undirritaðri forstöðukonu skólans. Símstöð
og póstafgreiðsla: Hveragerði.
ÁRNÝ FILIPPUSDÓTTIR.
Vfdalfnsklaustur að Gðrðum,
hugleiðingar um menningarmál eftir Jens Bjamason.
---Verð kr. 1,00.-
Fæst í
Bóbaverislun Slti'fówar Eymundssonar
og BÓKABÚÐ AUSTURBÆJAR BSE.
Laugavegi 34.
GÆRUR.
%
Kaupi gærur hæsta verði.
Síg^Þ. Skjalöberg.
i