Morgunblaðið - 20.10.1936, Qupperneq 2
2
MORGtTNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. okt. 1936.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson og
t’. i V.altýr Stefánsson —
ábyrgBarmatSur.
'RlíStjðrn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Slml 1600.
Áuglýsíngastjðri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrif stof a:
A,usturstEæti 17. — Slmi 3700.
, Helmaslmar:
Jðn Kjartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Askriftagjald: kr. 3.00 á mánuiSl.
í lausa,sölu: 15 aura eintakið.
25 aura meB Lesbðk.
„Áminningarbrj6fið“.
Fjöllin tóku jóðsótt og fædd-
ist ofurlítil mús. Vestmanna-
eyjarannsókninni frægu er nú
lokið. Árangurinn er sá, að at-
vinnumálaráðherra hefir skrif-
að bæjarstjóra Eyjanna ,,á-
minningarbrjef“. Saknæmara
var nú málið ekki.
.Það var skömrnu eftir að nú-
verandi ríkisstjórn settist að
völdurh, að kæra barst frá meiri
hluta bæjarstjórnar á ísafirði
út |f framferði þáverandi, bæj-
arstjóra Ingólfs, Jónssonar og
flokksbræðra hans. Ráðherra
tók þessa kæru og stakk henni
tafarláust uridir’ stól.
Ári síðar berst kæra frá
minnihlútanum í bæjarstjórn
Véstmannaeyja yfir framferði
bæjarstjóraus þar og flokks-
bræðra hans.
Ef það var rjett að stinga ís-
firsku kærunni undir stól, þá
var það ekki síður rjett um
kæruna frá Eyjum, því að henni
stóð þó aðeins minni hluti bæj-
arstjórnar.
En sá var munur, að á Isa-
firði voru flokksmenn ráðherr-
ans ákærðir, en í Vestmanna-
eyjum voru þeir ákaerendur.
Þessvegna er ákæran úr Eyjum
tekin til greina. Sendir ráðherra
bróður sinn til Eyja til að rann-
saka málið. Og finnur hann
ekkert saknæmt.
Liggur nú málið niðri um
stund. En svo byrjar samfylk-
ingarmakkið fyrir alvöru milli
rauðu flokkanna. Þá sjá komm-
únistar í Eyjum sjer leik á
borði, að taka upp klögumálin
að nýju. Knýja þeir nú á dyr
Haralds Guðmundssonar, heimta
rannsókn og tilnefna sjálfir
rannsóknarann.
Og Haraldur liggur flatur
fyrir kröfum kommúnistanna,
— þótt bróðir hans hefði ný-
lega sannað að hún var ekki á
rökum reist — fyrirskipar rann-
sóknina og útnefnir þann mann,
sem kommúnistar höfðu bent á.
Svo er bara eftir að nefna
manninn. Og hver mundi það
hafa verið? Jú, það var Ingólf-
ur Jónsson, fyrverandi bæjar-
stjóri, á ísafirði, maðurinn, sem
enn liggur undir ákærunni, sem
stungið var undir stól!
Nú hefir þessi maður lokið
rannsókn sinni og málinu lýkur
með málamynda ,,áminningu“.
Svona er þá í fám orðum saga
þessa máls. Geta menn svosjálfir
dregið ályktanir sínar um rjett-
lætistilfinningu og óhlutdrægni
íslenskra stjórnarvalda af
þeirri frásögn.
KOSXIMGARSAR 1 SÍOKEGl.
w
Ohemju þátHaka: Víða
alt að þvi ÍOO
O
o
Sðsialistar bjóða fram hægfara stefnuskrá til að draga atkvæði.
!f
Talningu Iokið
á hádegi í dag.
Það er ekki búist við að talningu í norsku kosningunum verði
lokið fyr en á hádegi í dag. Um miðnætti var búið að telja í 375
hjeruðum og 20 bæjum, eða 420 þús. atkvæði (362 þús. í kosning-
unum 1933). Atkvæðin skiftust þannig:
1933
Hægri........................ 69.000 49.000
Frjálslyndi fólksfl........... 2.000 3.400
Bændafl...................... 84.000 86.000
Frjálslyndi (vinstri) fl... 68.000 75.000
Sameiginlegir listar borgarafl. 21. þús.
Nazistar...................... 5.400 6.900
Sosialistar................. 161.000 127.000
Umbótafl...................... 9.500 2.300
Kristilegi fólksfl............ 1.500 4.900
VÍGSTAÐAN I GÆRKVÖLDI.
Skotdrunurnar heyrast
í Madrid. MótstaOa
stjórnarhersins linast.
Er uppreisnarmenn tóku borgina Illescas, 25 mílur fyr-
ir sunnan Madrid, gætti ekki neinnar verulegrar
mótspyrnu af hálfu stjórnarliðsins. Þykir sumum sem þetta
muni benda til þess, að mótstaða stjórnarhersins sje að linast.
Sækja uppreisnarmenn fram, bæði að norðan og sunnan. Er
sagt, að í Madrid heyrist nú skotdrunurnar frá vígstöðvunum
sunnan við borgina. Afstaðan á vígstöðvunum var í gærkvöldi
þessi:
SUNNAN VIÐ MADRID: í gegn um Illescas liggur vegur
til norðvesturs, í áttina til Valmajado. Er nú búist við, að
Valmajado verði tekin innan skamms og mun þá uppreisnar-
mönnum veitast auðvelt að komast að baki stjórnarhersveitun-
um. Uppreisnarmenn tilkynna, að þeim miði nú óðum áfram í
áttina til Madrid frá Illescas, og að hersveitir þeirra sjeu nú
innan 24 kílómetra frá höfuðborginni á þessum stöðvum.
NORÐVESTAN VIÐ MADRID: Uppreisnarmenn tilkynna,
að þeir sjeu í þann veginn að taka Escorial, hina miklu höll
Filips II. Er talið ómögulegt að hjá því verði komist að stjórnar-
liðið þar verði umkringt, ef það getur ekki bjargað sjer þaðan
í tæka tíð. Þá tilkynna uppreisnarmenn að þeir sjeu í þann veg-
inn að komast að baki stjórnarhernum í Guadaramafjöllum.
Madridstjórnin hefir látið gera varnarvirki á öllum veg-
um, sem til borgarinnar liggja. Hún hefir komið hersveitum sín-
um vel fyrir, og gert tvöfalda línu af varnarvirkjum umhverfis
borgina.
í borginni hefir hún komið upp öryggisskýlum, þangað,
sem fólki er ætlað að flýja, ef til harðvítugrar loftárásar kem-
ur.
I dögun á laugardagsmorgun fór lögreglan í Madrid hús
úr húsi um alla borgina, í leit að stuðningsmönnum uppreisn-
armanna, og hafa allir, sem grunaðir eru um samhyggð með
málstað uppreisnarmanna, verið læstir inni. Þetta er svar við
þeirri staðhæfingu, er Franco hershöfðingi á að hafa gert, að í
höfuðstaðnum hefði hann nægilegt vinalið til þess að hann gæti
unnið borgina með aðstoð þeirra.
(Samkvæmt einkaskeyti og FÚ.).
Hafa eitt
miljónum í kosn-
ingabaráttunni.
Mikilvægustu kosn-
ingar síðan 1905.
Þátttakan í 'nórsku stórþingskosningun-
um, sem kallaðar ,hafa verið mikil-
vægustu kosningar síðan í sambands-
baráttunni 1905 og sem fram fóru í gær, hefir
verið meiri en dæmi eru til í kosningum áður.
Víða hefir þátttaka orðið 100%.
Þegar búið var að telja 100 þús. atkvæði, höfðu sósíal-
istar bætt við sig 25-—30% að atkvæðamagni og aðrir
flokkar 10%.
Það, sem gerir kosningar þessar mikilvægari en fyrri kosn-
ingar um heilan mannsaldur, er að sósíalistar þurfa ekki að
bæta við sig nema 7 atkvæðum, til þess að fá hreinan meiri-
hluta. Margir spá því, að sósíalistar vinni þessi sjö þingsæti og
jafnvel fleiri.
Sjálfir búast sósíalistar ekki við að vinna nema 5 þing-
sæti, en telja vafasamt að það sjötta náist, þrátt fyrir
æðisgengna kosningabaráttu sem kostað hefir margar
miljónir króna.
5000 manns
fellu I úrsllta-
orustinni
um Oviedo.
Iægilegri orustu fyrir
framan dómkirkj-
una í Oviedo biðu
asturiskir námumenn
lægra hlut fyrir mára-
hersveitum úr liði upp-
reisnarmanna. Þarna
ljetu 5 þús. námamenn
lífið og fjöldi uppreisn-
armanna.
Stjórnin heldur því þó
fram,, að Oviedo sje henni
ekki algeríega glötuð. Hún
segir, að hjálparhersveit,
sem uppreisnarmenn höfðu
sent þangað, hafi verið
hrakin til baka, og að enn
sje barist í borginni. Það er
ekki útilokað, að fregnina
megi skýra á þann hátt,
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Hefir þessum kostnaði verið
jafnað niður á flokksmenn, og
hafa þeir orðið að borga 6 krón-
ur hver í kosningasjóð.
í kosningabaráttunni hafa
sósíalistar reynt að draga sjer
atkvæði með því, að flagga,
með kosninga stefnuskrá, sem
vakið hefir á sjer athygli
fyrir hve lítið róttæk hún er.
Hina róttækari byltdngastefnu-
skrá hafa þeir falið, og kemur
hún ekki, fram fyr en eftir
kosningarnar.
I kosningabaráttunni hefir
hvað eftir annað komið til
óeirða, handalögmáls og
grjótkasts og mikill fjöldi
kosningafunda hefir verið
haldinn.
Skáldjöfurinn Knut Hamsun
hefir skorað á kjósendur að
greiða atkvæði sín nazistanum
Quisling.
Norðmenn gengu síðast til
kosninga í október 1933. At-
kvæðamagn og þingsæti skift-
ust þá þannig:
At- Þing-
kvæði sæti
252.422 30
20.174 1
173.560 23
213.055 24
6.858 1
500.526 69
Hægri
Frjálsl. fólksfl.
Bændaflokkurinn
Frjálslyndi fl.
Róttæki, fólksfl.
Sósíalistar
FRAMH. Á ÁTTUNDU SÍÐU.