Morgunblaðið - 20.10.1936, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
ÞrijSjudagur 20. okt. 1936.
Starfsemi fyrir at-:
vinnulausa unglinga
er að heíjast.
142 anglingar gáfu
sig fram.
Starfsemi fyrir atvinnulausa
unglinga er nú að hefjast
hjer í bænum.
Morgunblaðið hefir^- snúið
sjer til Björns Snæbjörnssonar,
en hann og Vilhjálmur S. Vil-
hjálmsson skipa nefnd, sem sjer
um starfsemi fyrir atvinnu-
lausa unglinga.
Nefnd atvinnulausra unglinga
bárust umsóknir frá 142 ung-
lingum. Af þeim eru 22 ung-
lingar komnir yfir 18 ára ald-
ur, en 120 unglingar eru á aldr-
inum 14—18 ára, sem áskilinn
var af nefndinni.
Af umsækjendum hafa fjórir
verið styrktir til búnaðarnáms
á Hólum í Hjaltadal, þar af þrír
til framhaldsnáms, en einn til
byrjunarnáms.
í vetur verður starfsemin hjer
í bænum með svipuðu sniði og í
fyrra, nefnilega leikfimiskensla,
kensla í trjesmíðum, kensla í ís-
lensku og reikningi, og svo úti-
vinna.
Leikfimiskenslan fer fram í
húsi Jóns Þorsteinssonar og
undir hans stjórn. Trjesmíða-
nám fer fram í Miðbæjar- og
Austurbæjarbarnaskólum, und-
ir hahdleiðslú smíðakennaranna
þar, og fá nemendur að eiga
smí&amunina. Bóklega námið
fer fram í skólastofum Vjel-
skólans í húsi Stýrimannaskól-
ans. Og vinnan verður væntan-
lega skurðgröftur í sambandi
við undirbúning nýrra íþrótta-
valla hjer í bænum.
Ahersla verður lögð á það,
að allir þátttakendur í námi og
vinnu, stundi hvrottveggja með
alúð og sámviskusemi. Til
greina við vínnu koma nær ein-
göngu nemendur á aldrinum
16—18 ára.
Kenslan mun hefjast í næstu
viku. Umsækjendur eiga að
mæta á fundi í kvöld kl. 8í
Kau pþingssálnum.
Misferlum sósíalista
stungið undir stól.
Sextuitur:
Rammalistar,
nýjustu gerðir, nýkomnir.
Guðm. Ásbjðrnsson,
Laugaveg 1. Sími 4700.
EG4JERI CLAESSEN,
hæstarjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonarstræti 10.
(IrmgangHr um austurdyr).
Nýtt dllkakjöt
Láfur, hjörtu svið og mör.
Kjotbúðin Herðubreið.
Hafnarstjr. 18. Sími 1575.
PRAMHALD AF 3. SÍÐO
Aðfinslur Ingólfs.
Ingólfur Jónsson fór til Vest-
mannaeyja á þessu sumri og sat
þar í nokkra daga.
Að rannsókninni lokinni ljet
hann ótvírætt á sjer skilja, að
ekkert væri athugavert.
En kommúnistar undu þeim
málalokum illa, og þeir munu hafa
krafist þess, að Ingóifur gerði
kæru þeirra betri skil.
Ingólfur hefir sýnilega látið
undan þessari kröfu, því að fyrir
fáum dögum birtir Alþýðublaðið
eitt heljarmikið vandlætingarbrjef
frá atvinnuiixÁlaráðherra til bæj-
arstjórans í Vestmannaeyjum.
Við lestur brjefsins kemur það
reyndar í ljós, að aðfinslurnar eru
meira gerðar til að þóknast og
sýnast, heldur en að þau atriði,
sem um er vandað, sjeu eins víta-
verð og ráðherranp vill vera láta.
Aðalsakarefnin eru þrjú, og
skulu þau jafnóðum tekin til at-
hugunar.
1. Bæjarstjórn er vítt fyrir að
hafa ekki haldið fundi eins oft og
fundarsköp hennar mæla fyrir um.
í Hafnarfirði gilda sömu reglur
um fundahöld bæjarstjórnar sem
í Vestmannaeyjum, þannig að
reglulegan fund skal halda einu
sinni í hálfum mánuði.
En hvernig hefir þetta gengið
til í Hafnarfirði?
SíSan 1. júlí í sumar og fram á
þenna dag hafa aðeins 2 (tveir)
reglulegir fundir verið haldnir í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar. En
fundasköp mæla svo fyrir, að
reglulegan fund skuli halda ann-
an hvern þriðjudág og átti því að
halda 8 fundi á þessu tímabili.
Haraldi Guðmundssyni hefir
ekki fundist ástæða til að víta
þetta atferli bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar, enda eiga hjer í hlut
flokksbræður ráðherrans.
2. „Lögum samkvæmt her hæj-
arsjóði að greiða starfsmönnum
sínum og öðrum laun öll í pening-
um‘ ‘, segir ráðherrann, og er hann
þá að víta bæjarstjórn Vestmanna
eyja fyrir að hafa greitt slík laun
með vöruávísunum.
Einsdæmin eru verst, segir mál-
tækið.
„Gulu seðlarnir" í Hafnarfirði
eru landskunnir. í mörg ár hafa
laun starfsmanna kaupstaðarins,
annara en bæjarstjóra sjálfs, ekki
verið greidd í peningum, heldur
með „gulu seðlunum“, sem hæjar-
stjóri gefur út og eru ávísanir á
bæjarsjóð, en fást sjaldan eða
aldrei greiddar þar í peningum.
Aðferðin er sú, að starfsfólkið fer
með launaávísun sína til þeirra
borgara, sem skulda bæjarsjóði
útsvar eða annað, og á hver starfs-
maður í því efni að jafnaði fastan
viðskiftamann, sem svarar lionum
út kaupinu á gjalddaga og greiðir
síðan hæjarsjóði með „gulu seðl-
unum“.
Þannig gengur þetta til í Hafn-
arfirði. Þetta hefir hvað eftir ann-
að verið gert að blaðamáli og er
alþjóð kunnugt. En Haraldi Guð-
mundssyni hefir aldrgi' þótt á-
stæða til að víta þetta, enda eru
það flokksmenn ráðherrans sem
ráða í Hafnarfirði, og þeir munu
vera hinir fyrstu, sem brotið hafa
lög með því að greiða ekki starfs-
fólki í peningum.
3. Ráðherra vítir það, að ávís-
anir bæjarsjóðs hafi eigi verið
bókfærðar hjá gjaldkera við út-
gáfu.
Við lútgáfu „guiu seðianna" í
Hafnarfirði, sem svara til vöru-
ávísana þeirra í Vestmannaeyjum
sem ráðherrann er að víta, hefir
þess aldrei verið gætt að bóka
þær hjá gjaldkera. Hvað eftir
annað hafa endurskoðendur fund-
ið að þessu, en flokksbróðir ráð-
herrans, bæjarstjórinn í Hafnar-
firði, skelt skolleyrum við.
*
Það er ljóst af því, sem nú hefir
sagt verið, að Haraldur Guðmunds
son hefir hjer gerst verkfæri í
hendi kommúnista. Hann hefir
látið kommúnista í Vestmannaeyj-
um hafa sig til þess, að víta bæj-
arstjórn Vestmannaeyja, sem skip
u? er andstæðingum ráðherrans,
fyrir verknað, sem samherjarhansí
Hafnarfirði hafa gert sjer að reglu
að þverbrjóta, en áður stungið
undir stól kæru um glæpsamlega
meðferð samherja sinna í stjórn
ísafjarðar á fjármálum þess bæj-
arf jelags.
Hvert það þjóðfjelag, sem ekki
getur treyst því, að æðstu valds-
menn hennar skeri rjettlátlega úr
málum þegnanna, er í alvarlegri
hættu statt og ofurselt harðstjórn
og einræði.
OVIEDO Á VALDI
UPPREISNARMANNA.
FRAMH. AF ANNARl SfÐU.
aS stjórnarliðar hafi gert
gagnárás á borgina.
Uppreisnarmenn halda því
aftur á mótí fram, að þeir hafi
borgina algerlega á sínu valdi
og að hjálparhersveitirnar sem
komu til liðs við uppreisnar-
mennina, sem varist hafa þrjá
mánuði í þorginni, hafi hrakið
leifarnar af stjórnarhernum á
flótta.
Varð þarna eitthvert ægi-
legasta blóðbað borgara-
styrjaldarinnar.
Uppreisnarmenn segjast hafa
náð þarna miklu af hergögnum.
Aranda, herforingi, sem stjórn-
að hefir her uppreisnarmanna
í borginni, hefir hlotið hið
mesta hrós fyrir frammistöðu
sína. Til marks um það, hve
grimmilega hefir verið barist
(segir í Lundúnafregn F.Ú.), er
þess getið að liði uppreisnar-
manna, sem í upphafi voru 3000
menn, sje nú ekki nema 300
eftir á lífi.
Mikið af Jýrmætum lista-
verkum hafa , orðið hinni lát-
lausu skothríð á Oviedo, sem
staðið hefir í nær þrjá mánuði
að bráð.
Frá hernaðarlegu sjónar-
miði, hefir Oviedo mikla þýð-
ingu. Þaðan er talið líklegt, að
uppreisnarmenn hefji nú sókn í
áttina til Gijon og Santander,
og ða þeir muni nota borgina
sem bækistöð sína í Asturiu-
hjeraði.
Jón Ásbjörnsson,
verslunarmaður.
Jón Ásbjörnsson verslunarmað-
ur, ISijálsgötu 43 A, er sextugur í
dag.
Vinir Jóns hugsa blýlega tii
hans og senda góðum dreng hjart-
anlegar afmælisóskir. Jón er Eyr-
bekkingxir að ætt og hefir alla æfi
unnið með þeirri trúmensku, sem
fyrir honum var hrýnd á æsku-
dögunuin. Er hann tápmikill og
harðger dugnaðarmaður, eins og
hann á ætt til, og má með sanni
segja, að hann hefir ekki hlíft
sjálfum sjer, en í öllu lagt fram
krafta sína í látlausu starfi.
Fyrir nokkrum árum flutti Jón
ásamt fjölskyldu sinni hingað til
hæjarins og hefir stundað verslun-
arstörf með einstakri skyldurækni,
og hefir ávalt í starfi og um-
gengni sýnt, að hann metur hag
annara ekki minna en sinn eigin.
Á síðustu árum hefír Jón átt
við vanheiisu að búa, en hefir
þrátt fyrir erfiðar sjúkdómslegur
ekki mist kjarkinn.
Margir eru þeir, sem á þessum
afmælisdegi árna trvggum vini
allra heiila. Vinur.
NORSKU
KOSNINGARNAR.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
At- Þing-
kvæði sæti
Kommúnistar 22.762
Umbótaflokkurinn 18.768 1
Kristilegi fólksfl. 10.283 1
150
Helstu foringjar flokkanna
eru Hambro og Lykke (hægri),
Hundseid og Aadahl (bænda-
I.), Mowinckel (frjálslyndi f 1.),
Nygaardsvold, Magnus Nilsson,
Hornsrud ó. fl. (sosíalistar).
1 kosningunum 1930 fjekk
hægri 44 þingsæti, bændaflokk-
urinn 25, frjálslyndu flokkarn-
ir 34 og só^íalistar 47.
Allir koslir
sameinaðir í eitt.
Hreinsar, mýkir, gljáir.
Fást í öllum litum.
BúnaðarsambandHún-
vetninga mótmælir
nýju jarðræktar-
iögunum.
Frái aðalfundi
sambandsins.
Búuaðarsamband Ilúnavatns-
sýslu hjelt aðalfund sinn að Stóru-
Giljá sunnudaginn 18. okt. Mættir
voru fulitrúar frá 15 búnaðarfje-
lögum.
Á fundinum var auk venjulegra
aðalfundarmála rætt um hin nýju
Jarðræktarlög.
Svohljóðandi fundarálvktun var
gerð:
„Fundurinn lýsir megri óá-
nægju sinni yfir afgreiðslu Jarð-
ræktarlaganna nýju og þeim aðal-
breytingum, sem í þeim felast.
Telur fundurinn óhæfilegt að slík-
ar breytingar sjeu gerðar að Bún-
aðarsamböndum forspurðum, og-
krefst þess, að næsta Búnaðarþing
leiti ítrustu ráða til þess að fá
lögunum breytt, einkum ákvæðum
2., 3., 7. og 17. greinar þeirra“.
Tillaga þessi var samþykt með
11 atkv. gegn 2.
Tveir fnlltrúar greiddu ekki at-
kvæði.
Formaður hú n að a rsarnb an dsin s
hefir verið Jón alþm. Pálmason á
Akri. Var hann endurkosinn.
hefftr hlotfið g 1
bestn meðmæli
Hár.
Hefi altaf fyrirliggjandi hár við’
íslenskan búning. Verð við allra.
hæfi.
Versl. Goðafoss
Laugaveg 5.
Sími 3436..
Ný llfur 09 svið,
Kjötfars, Súr Hvalur, Harðfiskur
og Ný Tólg.
Búrfell
Laugaveg 48. Sími 1505.
Bankabyggsmjöl
fæst i