Morgunblaðið - 21.01.1937, Page 4

Morgunblaðið - 21.01.1937, Page 4
mORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 21. janúar 1937 Æ5Knn OQ stjórqmRliq 5. Ú. 5. Ráðríki rfkisstjörnarinnar yfir málefnum bæjarins. Bjarni Benediktsson professor, rekur þau mál á Heimdallarfundi. AHEIMDALLARFUNDI í fyrrakvöld flutti Bjarni Benediktsson prófessor fróðlegt og ýt- arlegt erindi um bæjarmál Reykjavíkur. Hóf hann mál sitt með því að minna á það ákvæði stjórnarskrárinnar, sem fjallaði um sjálfstjórn sveitarfje- laga og benti á, hve ákvæði þetta gæfi ríkisvaldinu og Al- þingi mikinn íhlutunarrjett um stjórn sveitarfjelaganna. — Menn yerða að gera sjer það Ijóst, að bæjarstjórn hefir í rauninni ekkert annað vald en það, sem löggjöfin veitir henni í hvert skifti. Löggjöfin ræður, hvaða. mál bæjarstjórn skuli' fara með á hverjum tírna, og einnig hve mikil afskifti fulltrúar horgaranna skuli hafa af máluBum. | Sið.rl iiafcli. | ANDSTÆÐ VIÐHORF. Aðstaða hæjarstjórnar hlýtur því ætíð að verða miklu veikari ■en ríkisstjórnar og Alþingis, og vérður bæjarstjórn að gæta mik- illar varúðar í viðskiftum sínum við þessi stjórnarvöld. Á venjulegum tímum kemur þetta ákvæði um yfirráð ríkis- valdsins yfir sveitarfjelögum ekki að sök. En eins og nú standa sak- ir er öðru máli að gegna, þegar ■ofbeldishugur Alþingís og einræð- isstefna ríkisstjórnarinnar ráða lögum og lofum. Þegár tatað er um stjórn bæj- arins er nauðsynlegt að athuga þessi grundvallaratriði. Meirihluti hæjarstjórnar myndi án efa vilja, að öðruvísi færi um ýms mál, sem hún hefir til meðferðar, en verð- ur um þau að lúta hoði Alþingis og ríkisstjórnar. Skal hjer minst á nokknr mál, sem talið er að hæjarstjórn fari með, en sem hiin í raun og veru ræður engu um, nema að útvega fje, málum þess- um til framdráttar. Lögrefflumálin. Á þessu ári er áætlað, að hæj- arsjóður greiði 273 þúsund krón- ur til lögreglumála bæjarins. En lögreglumálin eru ekki nema að nafninu til bæjarmál. Dómsmála- ráðherra ræður fjölda lögreglu- þjóna. Hefir hann t. d. nýlega ákveðið, að lögregluþjónar hjer í hænum skuli vera 60 talsins, þó meirihluti bæjarstjórnar vildi «kki hafa þá fleiri en 54. En ekki er nóg með þetta, því það er að langmestu leyti í hönd- um lögreglustjóra, hverjir verða valdir í starfið. Bæjarstjórn er samkv. lögum óheimilt að velja lögregluþjóna. Hún hefir einung- is þann rjett að hafna þeim, sem lögreglustjóri hefir valið. Sama er að segja um aðra stjórn og starfstilhögun lögregl- unnar: Bæjarstjórn ræður þar sára litlu um, nema með þeim ó- beinu áhrifum, sem hún getur haft með umráðum yfir einstaka smá fjárveitingum til lögreglunn- ar. Þessi áhrif eru þó hverfandi lítil, því að lögreglustjóri hlýtur að miklu leyti að ráða um dag- legan rekstur þessara mála, en eftir honum fara útgjöldin. Bæj- arstjórnarinnar er einungis að jafna þessari rúmlega miljón króna, sem fer árlega til lögregl- nnnar, á bæjarbúa. Fræðsluraálin. Barnafræðslan er enn talin til bæjarmálefna. Útgjöld bæjarins til þessara mála nema nú krónum 556,160,00. Þetta fje er bæjar- stjórn gert að útvega með útsvör um, eða öðrum tekjuöflunarleið- um. Þrátt fyrir þetta ræður bæjar- stjórn engn um val kennara. Það er endanlega í hendi kenslumála- ráðherra. Ymsar aðrar ákvarðanir varð- andi fræðslumálin eru í höndum skólanefndar, sem er þannig skip- uð, að ráðherra og fylgismenn hans liafa meirihluta í nefndinni. Svokallað fræðsluráð er þó skipað af bæjarstjórn einni með borgarstjóra fyrir oddamann, en ákvæði laganna um vald þess eru mjög óljós og vald þess sýnist vera sáralítið. Bæjarstjórn reyn- ir að vísu að halda umráðum yfir fjárveitingum og ólögbundnum stöðum hjá sjer og fræðsluráði, en þau umráð eru vjefengd af skólanefndum og ráðherra, eins og kunnngt er. Þessi mál eru því að langmestu leyti tekin nndan bæjarstjórn. Tryggingamálin. Eitt mál, sem nýlega er komið á laggirnar, er sjúkratrygging- arnar. Á fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir 210 þús. króna útgjöldum vegna þeirra, en lík- legt er, að upphæðin verði hærri, eða um 250 þús. krónur, þegar alt kemur til alls. Bæjarstjórn er falið' að kjósa stjórn Sjúkrasamlags Reyk.javík- ur, 5 menn og varamenn þeirra. En stjórn þessi hefir afar tak- markaðan verkahring og er óheim ilt að taka mikilsverðar ákvarð- anir upp á eigin spýtur. Allar á- kvarðanir, sem verulegu máli skifta, lúta endanlegum yfirráð- um Tryggingarstofnunar ríkisins og atvinnúmálaráðherra. FRAMH. Á FIMTU SÍÐU. Jeg þarf elrki að taka það fram, eftir þessa lýsingu frá kunn- ingja mínum, að þeta var fátækur verkamaður sem reyndi að hafa ofan af fyrir sjer og sínum án þess að verða þui’falingur og hafði tekist það með sóma á meðan lög- valdið ljet hann í friði með heim- ili hans, án þess að demba á það nýjum drápssköttum, sem ekkert fátækt heimili fær undir risið. * Þetta litla sýnishorn er aðeins örlítið geislabrot af umhyggju sósíalistanna fyrir afkomumögú- leikum fátæklinganna. Svo á liina sveifina, sem veit að bjargálna einstaklingum og sjálfstæðum at- vinnurekendum er ekld að sökum að spyrja. Þar er óvildin og ill- girnin frá hálfu hinna rauðu svo mögnuð, að iir hófi keyrir, og stappar næst ofsóknaræði vitfirtra. manna. Er því aurkasti aðallega beint að einstaklingsframtakinu og frelsi þess í hvaða mynd sem er. Það er reynt að hrjóta það á bak aftur, með lagaþvingun, ríkis- einkasölum og síhækkandi skatta- álagningu. Og seinast en ekki síst veitast hinir rauðu flokkar alveg sjerstak- lega fantalega að stórútgerðinni í landinu. Forvígismenn hennar eru rógbornir og svívirtir á alla lund fyrir þær sakir einar, að þeir hafa hug og vilja á því, að vernda þjóð- ina fyrir skemdáröflum rauðu hættunnar, og einnig að hjarga hemii frá efnahagslegri glötun, sem er hinsvegar endatakmark hinna rauðn að steypa henni sem fyrst í. * Slík villimenska í stærstn at- vinnumálum landsmanna er blátt áfram líkust landráðum í verstu mynd. Enda mun hún óvíða í sið- uðu þjóðfjelagi finna sjer stað, nema hjer. Tií dæmis mætti hendá á það að víða á Norðurlöndum, eins og í Svíþjóð, Noregi og Dan- mörk, sem hafa sósíalistiskar rík- isstjórnir, eru gerðar alveg þver- öfugar ráðstafanir, stórútgerðinni til viðreisnar og meiri eflingar. Þeta er ágreiningslaust talið eðli- legt og sjálfsagt að hlynna sem mest að þessum atvinnuvegi með beinum og óbeinum stuðningi þess opinbera, án þess þó að reynt sje á nokkurn hátt, að draga fram- kvæmdar-möguleikana úr höndum þeirra einstaklinga sem hafa þekk ingu og áhuga á þeim málum. Þvert á móti er þeim mönnum öðrum fremur trúað til þess tor- trygnislaust að beita þannig kröft um sínum í þágu almennings eftir frjálsum leiðum. Þannig er það líka alstaðar þar sem fulllcomið og heilhrigt athafnafrelsi er að ein- liverju virt. * eir meginþræðir hafa aftur á móti virst mest áberandi í viðleytni núverandi stjórnar- flokka til athafnalífsins í landinu, að gera það sem allra ófrjálsast, eða jafnvel að mylja það í smátt undir járnhælum ríkisvaldsins. Er nú líklegt að þetta sje farsælt fyr- ir þjóðina? Er líklegt að sá ein- staklingur leggi betur fram krafta sína, þjóðinni til gagns, sein lagð- ur er nauðugur í fjötra á verk- sviði lífsins, og haldið þar í tjóð- urbandi áþjánar og frelsisskerð- ing, uns kjarkur hans er brotinn, með kaldhæðni þess veruleika, að fyrirsjáanlegt var, að fjörbrot hans öll voru unnin fyrir gýg. Eða sá, sem fær óháður og hlekkja laus að leggja út á djúp mann- legra erfiðleika, brynjaður fram- tíðarvonum hins frjálsa sterka manns, sem finnur möguleikana vaxa við hvern unninn sigur á vettvaugi viðfangsefna sinna. * Þessum spurningum hýst jeg við að allir sannir íslendingar geti svarað á einn og sama veg án þess að leita lengi að heimildum. Til þess er saga þjóðarinnar of ljós og táknræn, frá þeirri fortíð er vjer vorum handingjar illræmdra erlendra kúgara. Vilja menn og konur þeirrar þjóðar, sem þoldi þá áþján — láta hörmungarnar endurtaka sig aftur, aðeins í breyttum gerfibúningi málefna- legra blekliinga? Jeg fullyrði að svo er ekki. * á kem jeg að viðhorfum rauðu flokkanna í tolla- og skattamálum.Þau mál eru svo yfir gripsmikil að ekki er unt að gera þeim, nokkur veruleg skil í stuttu máli. Það skal látið nægja að benda á fjárlög Alþingis nú síð- astliðin 2 ár. Þau eru vissulega þau glannalegustu sem þekst hafa hjer á landi bæði fyr og síðar. Ennfremur hafa allar lífsnauð- synjar fólksins til fæðis og klæðis stórhækkað í verði vegna síhækk- andi tolla síðan að núverandi rík- isstjórn tók við völdum. Svo að varla getur þar verið að ræða um hagsbætur fyrir almenning. Að lokum get jeg ekki stilt mig um að fara nokkrum orðum um síð- ustu árás rauðu flokkanna, gegn sjálfstæði landsmanna. Hún var hafin á samkomu þeirra hjer í Reykjavík, sem þeir neí'na Alþýðu sambandsþing íslands. Maður gæti ætlað eftir nafninu að dæma, að þarna væri um ábyrg verkamanna- samtök að ræða, sem hæru vélferð og hagsmunamál alþýðunnar fyrir hrjósti af heilum hug, og fylgdu því, þeim einum fjelagsmálum fram, sem miðuðu til raunveru- legra hagsbóta fyrir hana sjálfa. Nei, þau undur gerast á þessari samkomu að það er samþykt eftir áeggjan foringjanna að hefja skuli skipulagsbundna árás á út- gerðarstarfsemi einstaklinga og fjelaga, sjerstaklega þó á togara- útgerðina, og leggja á hana, þessa lífæð þjóðfjelagsins blátt áfram á höggstokkinn nmsvifalanst, ef hún kynni að skulda eitthvað bönkum landsins, líkt og stór at- vinnufyrirtæki ávalt gera —, og eiga að gera sem veita mikla at- vinnu. * Til þess eru þjóðbankar stofn- aðir að það á að vera hlutverk þeirra að lyfta undir atvinnulífið, í gegn um þau fyrirtæki sem skil- yrðin hafa best. En engum dylst að þar eru togara fjelögin í fylk- ingarbrjósti, enda halda þau mest og best uppi gjaldeyri þjóðar sinn- ar á hverjum tíma. En pólitískir umskiftingar, líta sjaldnast á hlnt ina með þjóðarheill fyrir augum, Þeir eru ánægðir ef þeir halda sjálfir bitlingunum sem þeir hafa klófest, líkt og kötturinn sem hef- ir náð sjer í feita mús. Það er því síst að furða, þó að sjónarsvið slíkra manna sjeu fá- tæk af samúð og skilningi í þjóð- legum alvörumálum. Hitt gegnir meiri furðu að nokkur íslenskur sjómaður eða verkamaður, sem verður daglega að horfast í augn við atvinnumöguleika — og at- vinnuleysi á þessu sviði — skuli ekki sjá hvar fiskur er falinn und- ir steini hjá þessum rauðu, þegar* þeir eru að reyna að telja sjó- mönnum trú um, að það sje hest að eyðileggja Kveldúlf, þá fái þeir meiri vinnu. — Hvílík regin lygi. Vita ekki sjómenn allra manna best að það er einmitt þetta fje- lag, sem altaf hefir verið hestur atvinnuveitandi hjer á landi síð- an það hóf menningarstarf sitt í útvegsmálum. Ög hvaða sjómanni myndi deta í hug, að hera þá fjar- stæðu fram í heimahúsum, fyrir konu og hörn, að nú vildi hann. helst, að enginn Kveldúlfstogar- inn færi á veiðar í vetur því þá græddi ekki Kveldúlfur á meðan. Nei, þannig hugsar og talar eng- inn skynsamur alþýðumaður þegar hann er sjálfstæður sinna gerða. Hann óskar og þráir alveg hið gagnstæðar Einmitt að Kveldúlfur og öll önnur togarafjelög, geti gert út á öllum tímum öll sín FRAMH. Á SJÖTTU SfflU-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.