Morgunblaðið - 14.02.1937, Qupperneq 3
líHS’. .4': nif.’iitóttMitBfl
Imnndagur 14. febr. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Friflar-
boðskapur dr.
Göbbeis.
I*egar vjer höfðum búist
igilegum vopnum, tókum
vjer Versalasamninginn og
rifum hann upp til agna og
köstuðum síðan sneplunum í
andlit fyrri óvina okkar“.
Þessi urnmæíi eru úr ræðu
aem dr. Göbbels flutti í fyrra-
kvöld fyrir 20 þús. nazist-
ím (skv. Lundúnafregn FÚ).
Dr. Göbbels.
Slórviðri skellur á 50
Veslmannaeyjabála
Flestír mlsta meflra og mflnna
af veiðarfœram.
.Þór“ bfargaðl einnm vjelbál.
Ottast una annan.
Tvo vjelbáta vantaði í gærkvöldi frá Vestmanna-
eyjum og var óttast um afdrif þeirra. Bát-
arnir eru „Karl“ og „Þristur“, hvor með 5
aianna áhöfn. „Karl“ kom að kl. 11*4 í gærkvöldi hjálp-
arlaust og var ekkert að hjá honum.
Þriðja bátnum, sem óttast var um, bjargaði eftirlits-
sdcipið „Þór“ í gærdag, en það var vjelbáturinn „Mars“,
»em hafði orðið fyrir vjelarbilun.
Var „Þór“ með „Mar4s<! í eftirdragi, en svo var veður slæmt að
•kipherrann á „Þór“ bjóst eklti við að komast til Vestmannaeyja fyr
• » á miðnætti í nótt, þótt þeir væru aðeins staddir 15 sjómílur vestur
a.f Byjum um klukkan 6 í gærkvöldi.
Bátar úr Vestmannaeyjum reru
kiukkan 4 í gærmorgun og var
veður þá sæmilegt, en er leið
á morguninn gerði hvassviðri af
uorðaustri.
Um 50 bátar reru frá Vest-
»annaeyjum í gærmorgun, en 20
—30 gátu ekki róið vegna þess að
sfómenn lágu í inflúensu.
Skömmu eftir að bátarnir komu
át á mið versnaði veðrið til muna
•jf um 11 leytið í gærmorgun var
komið ofsarok af norðaustri. Urðu
þi margir bátar að hverfa frá
lóðum sínum og leita til lands.
Skömmu síðar lygndi þó aftur,
h kl. 2 e. h. var áttin breytt til
uorðausturs og fór veður stöðugt
v.ersnandi eftir það. Gekk þá á
»eð hríð og dimmviðri.
Leituðu þá bátar sem óðast til
Myja.
Klukkan 8 í gærkvöldi kom
aeinast báturinn „Pip“ inn og
hafði orðiS fyrir vjelarbilun.
En þá vantaði enn þrjá báta,
þá ,Mars‘, ,Karl‘ og ,í»ristur‘.
Um bátana, sem vantaði, var
þetta vitað:
Togarinn Kári, sem var á leið
til Bnglands frá Reykjavík, rakst
á „Mars“ kl. 2 í gærdag. Var
„Mars“ þá ósjálfbjarga með bil-
aða vjel. Hjelt „Kári“ bátnnm við
þangað til samband náðist við
„Þór“, sem strax kom á vettvang
•g tók „Mars“ í eftirdrag.
„Karl“ reri austur um 2—3
tíma siglingu. Togarinn Geir, sem
var á leið til landsins, staddur
nm 30 mílur austur af Portlandi
um kl. 6 í gærkvöldi, var beðinn
að svipast eftir honum. Einnig
voru önnum skip beðin að aðstoða
bátana ef þau yrðu þeirra vör,
þar sem eftirlitsskipið „Þór“ gat
ekki farið frá „Mars“.
„Þristur“ reri vestur um 20—30
mílur.
Plest allir bát.ar, sem reru frá
Vestmannaeyjum í gær, töpuðu
veiðarfærum sífaum frá 2 uppí 8—
10 bjóðum hver.
Blaðið átti tal við Lárus Ár-
sælsson skömmu fyrir miðnætti í
nótt, en hann gegnir nú stöðu
föður síns, Ársfels Sveinssonar,
sem formaður Slysavarnasveitar-
innar í Vestmannaeyjum, í fjar-
veru hans.
Sagði Lárus að menn hefðu ótt-
ast meira um „Karl“ en „Þrist-
ur“, sem reri vestur fyrir Eyjar,
því að þar var veður heldur
skárra. Einnig bauðst togarinn
„Kári“ til að leita að „Þristur“ í
gærkvöldi.
Vjelbáturinn „Þristur“ er um
14 smálestir að stærð, eign Ást-
þórs Matthíassonar og Gísla John-
sen.
GÖRING FER TIL
LONDON.
London 13. febr. F.tJ.
Þýska blaðið ,,West Deutsche
Beobachter“ segir frá því í
dag, að Göring muni fara til
Englands, til þess að vera við-
staddur krýningu Georgs kon-
ungs VI., sem fulltrúi Hitlers,
þegar þar að kemur.
Nauðsynleg stækkun útvarpsstööv
arinnar kostar ’/2 milj. krúna.
Orku útvarpsstfiðvarinnar
þarf að auka stórum.
Útvarpsstarfseminni
annars voði búinn.
Utvarpsstöðin hjerna hefir, sem kunn-
ugt er 16 kílówatta orku. Nægði sú
orka til þess að til hennar heyrðist
um landið, ef erlendar stöðvar með margfaldri
orku trufluðu hana ekki.
Nú er ástandið orðið alveg óviðunandi í þessu
efni. Tvær stórar erlendar stoðvar hafa svo svip-
aða bylgjulengd sem vor, að útvarp hjeðan heyr-
ist mjög stopult um alt Austurland og nokkum
hluta Norðurlands.
Síðan stöðin var hjer bygð,
hefir orka útvarpsstöðvanna á
langbylgjum verið aukin stór-
kostlega. Og altaf fer samkepni
stöðvanna vaxandi.
Kunnugir menn telja því
mjög hætt við því, að ef orka
íslensku stöðvarinnar verður
ekki margfölduð frá því sem
hún er nú, þá munum við á
næstu árum verða algerlega
hraktir með stöð okkar af
langbylgjusviðinu eða yfir-
þyrmdir af hinum erlendu
stöðvum, svo útvarpsstarfsemi
verði hjer ekki rekin, svo í
nokkru lagi sje.
Tvisvar hefir verið breytt um
bylgjulengd útvarpsstöðvarinn-
ar. Samkvæmt samþykt gerðri
í Prag 1929 var okkur úthlut-
að bylgjulengdinni 1200. En á
útvarpsráðstefnu í Luzern ár-
ið 1933 var bylgjulengd hjer
ákveðin 1639 m. Frá þeirri
bylgjulengd vorum við hraktir
síðar, og útvarpinu ráðið til að
senda á 1440 metra bylgju-
lengd. En viðurkenning á því
hefir ekki fengist.
Stöðvarnar sem mestum
truflunum hafa valdið á þessari
bylgjulengd eru, stöðin í Minsk
í Rússlandi, sem sendir á sömu
bylgju, og enska stöðin í Droit-
wich, er sendir á 1500 metrum.
HEIMILD ER TIL
STÆKKUNAR.
Á tveim síðustu þingum hef-
ir verið samþykt heimild til að
stækka stöðina. En úr fram-
kvæmdum hefir ekki orðið
sakir gjaldeyriserfiðleika.
Alþjóðamót útvarpsstjórna
verður haldið í Cairo næsta ár.
Þá þarf að vera byrjað að
stækka stöðina hjer, ef við eig-
um að geta gert okkur nokkra
voi. um að útvarpsstarfsemi
geti orðið í lagi hjer í framtíð-
inni. Því þá fyrst má búast við,
að við verður teknir til greina
með óskir okkar í þessu efni,
ef stöðin verður svo sterk, að
til greina komi truflanir erlend-
is af hennar völdum.
Útvarpsstjóri hefir, í sam-
ráði við ríkisstjórnina leitað
eftir tilboði frá Marconif ja-
laginu um að stækka útvarps-
stöðina hjer svo orka hennar
verði 100—120 kilowött.
Á sú endurbót að kosta
rúmlega % miljón króna.
ásamt aukastöð, endurvarps-
stöð, á Austfjörðum.
Nú er svo háttað rekstri og
hag útvarpsins, og víðtækja-
verslunarinnar, að þegar tekið
er með það innskotsfje, sem
útvarpið á hjá ríkissjóði, má
gera ráð fyrir, að útvarpið geti
lagt fram um 300 þúsund
krónur í þessa nauðsynlegu
endurbót. Svo kostnaðurinn get-
ur engum vaxið í augum. En sá
fjöldi útvarpsnotenda, ^em nú
hefir stopul og takmörkuð af-
not af útvarpinu, eins og það
er, hljóta að gera þá kröfu
sjerstaklega, að þessu verki
verði hraðað sem mest.
En eins og fyr segir, er
stækkun stöðvarinnar fullkom-
in nauðsyn til þess hjer verði
útvarpsrekstur í nokkru lagi
í framtíðinni.
Þingið, sem nú kemur saman,
hlýtur að taka þetta mál upp
tafarlaust.
STRlÐSSKULDIRN AR
IJR SÖGUNNI
»V
LONDON í GÆR. FÚ.
átum herskuldirnar standa
þar sem þær :éru komnar,
sem ævarandi minnisvarða yf-
ir þá heimsku, að le^gja ut í
ófrið. Mig gildir alveg einu, þó
að þær verði aldrei borgaðar“.
Þessi orð talaði einn af þing-
mönnunum í Bandaríkjaþingi
er hernaðarskuldirnar komu til
umræðu í dag. Var þessum um-
mælum tekið með miklum fögn-
uði.
Alþingi verOur
sett á morgun.
Alþingi verður sett á morj:-
un kl. 1 og hefst athöfn-
in með messu í dómkirkjunni.
Síra Árni Sigurðsson fríkirkju-
prestur predikar.
Allir utanbæjarþingmenn eru
nú komnir til bæjarins, e»
Garðar Þorsteinsson er staddur
norður á Siglufirði, þar aem
hann helt fund með kjósendum
sínum í gærkvöldi.
Alþingissetningunni verður út-
varpað eins og venja hefir ver-
ið undanfarin ár.
12 ílöskum aí whisky
stolifl á Hótet Borg,
Flaskan seld á 6 kr.
á Reykjavíkur Bar.
'"pólf flöskum af whisky
* var stolið í vikunni
sem leið í kjallaranum á
Hótel Borg.
Þjófamir voru fjórir unglings
piltar á aldrinum 14, 15 og 16
ára. Nokkuð af áfenginu seldu
þeir mönnum á Reykjavíkur
Bar fyrir 6 krónur hvern
whisky-pela.
Þjófnaður þessi var óvenju
bíræfinn, framinn um hábjart-
an dag, á meðan fólk var á
ferli. Þjófarnir notuðu tæki-
færið á meðan verið var að
flytja kol niður í kjallara hó-
telsins og fóru, án þess að þeim
væri veittur nokkur gaumur
inst inn í kjallarann, þar stóð
áfengi, sem ekki var búið að
læsa inni í sjálfum vínkjallar-
anum, því þannig stóð á, að ein-
mitt á sama tíma var verið að
flytja vínbirgðir frá áfengis-
geymslunni í Nýborg til Hótel
Borg.
Piltarnir stálu 10 flöskum í
kjallaranum og tveimur flösk-
Utti af áfengisflutningsbílnum,
setti Stóð í portinu.
Lögreglan hafði upp á þjóf-
unum, en þá voru þeir búnir að
selja nokkuð af víninu fyrir 6
krónur hvern whisky-pela.
Pehingana notuðu þeir til að
aka í bílum um bæinn.
Mælingar barna í barnaskóla
Akurevrar, heitir fróðlegur fjölrit-
aður bæklingur, sem nýlega er
kominn út. Bæklingurinn er eftir
Snorra Sigfússon skólastjóra. Ern
mælingar barnanna sýndar með
töflum fyrir árin 1931—1932 —
1935—1936 og er gerður saman-
burður við skólabörn í Reykjavík
og Oslo.