Morgunblaðið - 06.03.1937, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. mars 1937.
Afstaða SjálfstæOisflokksins í sjálf
stæðis- og utanríkismálunum.
SkfOafólk!
Varðveitið húð
yðar frá
Nkemdum.
Munið
Nautakjöt
í buff og steik.
Guílasch.
Ilakkað kjöt.
Hangikjöt.
Saltkjöí
SV IÐ.
Kjótbúð Reykjavfkur
Vesturgötu 16.
Sími 4769.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Afstaða
Sjálfstæðis-
flokksins.
Þá talaði Ólafur Thors f.h.
Sjálfstæðisflokksins.
Hann sagði m. a.:
Það verður að játa, að frem-
ur hljótt hefir verið um sjálf-
stæðismál þjóðarinnar síðan
1918. Þögnin hefir þó stundum
verið rofin. Blöð Sjálfstæðis-
flokksins hafa oft minst á mál-
in, einnig þingmenn flokksins
á fundum. Annars staðar hefir
ríkt þögn um þessi mál.
Þögnin var þó eftirminnilega
rofin 1928, þegar Sig. Eggerz
bar fram fyrirspurnina á Ai-
þingi, sem fyrri ræðumenn hafa
minst á.
Svar Tryggva Þórhallssonar
f.h. þáverandi stjórnar og Fram
sóknarflokksins var skýrt og
greinilegt. — Sömuleiðis svar
Magnúsar Guðmundssonar f.h.
íhaldsflokksins þáverandi. Og
þó að nokkuð kunni að orka
tvímælis um svar Hjeðins Valdi-
marssonar f.h. Alþýðuflokksins,
vil jeg þó ekki vefengja vilja
þess flokks.
Nú er því haldið fram í grein
argerðinni fyrir tillögu stjóm-
arflokkanna, og sama kom fram
í ræðu B. Ásg., að vegna þess
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
ekki verið stofnaður 1928, geti
vafi leikið á um vilja þess
flokks. Þetta er nú ekki sagt
vegna þess að stjórnarliðar viti
ekki betur.
■ En þessi ummæli gefa mjer
tilefni að segja, að enda þófct
yfirlýsing Tr. Þ. 1928 sje skýr
og ákveðin, sje með henni ekki
fengin fullgild og óyggjandi
sönnun fyrir því, að núverandi
Framsóknarflokkur sje sömu
skoðunar, þar sem flokkurinn
er nú að miklu Ieyti .skipaður
alt öðrum mönnum. Sama má
segja um Alþýðuflokkinn, sem
telur nú a. m. k. helmingi fleiri
þingmenn en 1928.
Jeg vil í þessu sambandi leiða ;
athygli að því, að ummæli hafa |
oft komið fram á erlendum vett |
vangi og höfð cftir foringjum ■
stjórxiarflokkanna, sem að
vissu leyti draga úr yfirlýsing-
unum 1928, þar sem því hefir
m. a. verið haldið fram, a<5
enginn áhugi sje fyrir þessum
málum hjer, oi8 yfirlýsingin
1928 hafi aðeins þýtt endur-
skoðun sambandslaganna o., fl. |
Jeg tel ekki rjett að farið
sje í launkofa með þessi mál,
tel eðlilegra og rjettara að við
segjum hreint út hvað við ætl-
um okkur að gera.
Þessvegna taldi Sjálfstæðis-
flokkurinn ástæðu til að bera
fram sína breytingartillögu, þar
sem hún tekur af skarið í þessu
efni.
Að vísu sagði B. Á. að í að-
altillögunni ætti að felast þetta
sama. En ef sá hefir verið til-
gangurinn, tel jeg a.m.k. hæpið
að það hafi tekist; því að í aðal-
tillögunni segir í raun rjettri
ekkert annað en það, að Islend-
ingar ætli að taka utamríkis-
málin í sínar hendur, sbr. orðin
„þeirra mála“ í tillögunni. Ef
tilgangurinn hefir verið sá, að
marka stefnuna skýrar, þá
hefði verið rjettara að setja
„sinna mála“ í stað „þeirra
mála“.
Tillaga stjórnarflokkanna er
því ekki eins víðtæk og tillaga
okkar Sjálfstæðismanna. Og
þar sem framsögumennirnir
ljetu báðir í Ijósi þá skoðun, að
þeir væru efnislega samrnála
okkar tillögu, þá gj..ur ekki
verið neitt við það að athuga
að samþykkja tillöguna.
Tillaga okkasr SjálfstæSss-
manna tekur af öll tvímæli um
það, hvað íslendingar ætla sjer
að gera. Það sem Alþingi lýsir
yfir, ef það samþykkir tillög-
una, er þetta:
1. Að Islendmgar eru stað-
ráðnir í því, að kref jast þess,
strax og 18. gr’. sambandslag-
anna heimilar, að byrjað verði
á samningum um endurskoðun
laganna.
2. Að íslendingar ætla að
hagnýta ákvæði sömu greinar
til bess að fella samba.ndslaga-
s.amninginn með öllu úr gildi,
og engan nýjan samning að
gera í hans stað.
Þetta er stefna Sjálfstæðis-
flokksins, og ef stjórnarflokk-
arnir eru sömu skoðunar, eiga
þeir að samþykkja okkar til-
lögu.
Ef okkar tillaga yrði feld,
mætti e. t. v. af einhverjum
skýra það þannig, að Alþingi
vildi ekki segja meira og því
óvíst hvað það ætlaði sjer.
Fyrir mjer vakir engin til-
hneiging til þess, að helga Sjálf-
stæðisflokknum sjerstaklega
þessi mál, heldur hitt að Sjálf-
stæðisflokkurinn og stjórnar-
flokkamir megi eiga samleið í
því, að kveða skýrt á um það
að við ætlum okkur að nota
okkur allan rjett til þess að
losna að öllu leyti við sam-
bandslögin.
í þessu felst engin ámæli til
Dana, og engin kali til dönsku
þjóðarinnar. Þetta er metnaðar-
og hagsmunamál íslensku þjóð-
a: in "ar, og er tillagan eingöngu
flutt frá því sjónarmiði.
Þessu næst drap ræðumaður
á ýms ákvæði sambandslag-
anna. Hann mintist á landhelg-
isgæsluna; taldi sjálfsagt að Is-
lendingar önnuðust einir gæslu
landhelginnar nú þegar. Það
væri ekki samboðið metnaði ís-
lendinga að erlend lögregla
gætti landhelginnar.
Þá rakti ræðumaður allítar-
lega sögu utanríkismálanna, og
sýndi fram á, að það væri jafnt
hagsmuna sem metnaðarmál Is-
lendinga, að taka þau mál að
öllu leyti í sínar hendur.
Hann mintist á jafnrjettis-
ákvæði 6. gr., og þótti ekki
koma nægilega skýrt fram í
ræðum framsögumanna stjórn-
arflokkanna afstaða þeirra til
þessa ákvæðis sambandslag-
anna.En þess yrði að krefjast
að allir flokkar kvæðu skýrt á
um það, að jafnrjettisákvæðið
væri óviðunandi, og kvaðst
ræðumaður vænta yfirlýsingar
stjórnarflokkanna í þessu efni.
Jeg get lokið minni ræðu,
sagði Ólafur Thors að síðustu
með því að taka undir þessi
ummæli Sig. Eggers á Alþingi
1928:
„En hve langt erum vjer frá
markinu, ef sambandslögin
væru skoðuð sem seinasta spor-
ið? Og hve stutt er ekki að
markinu, ef vjer gerum skyldu
vora og notunl fyrirheit sam-
bandslaganna?“
Jeg vona, að við berum gæfu
til að vinna einhuga og í bróð-
erni að þessum málum, og að
sundrungin þurfi ekki að verða
oss að falli.
Afsíaða
Bænda-
flokksins.
Þorsteinn Briem talaði f. h.
Bændaflokksins. Hann kvað
Bændaflokkinn sammála yfir-
lýsingu þeirri, er Tr. Þ. gaf
1928.Hann kvaðst einnig vænta
þess, að þar sem B. Á. hefði
talið að allir flokkar ættu að
vinna saman að þessum málum,
mætti skoða þetta sem vott þess,
að stj órnarf lokkarnir leyfðu
Bændaflokknum hjer eftir að
hafa fulltrúa í utanríkismála-
nefnd.
Þá sagði Þ. Br. að hann teldi
breytingartillögu Sjálfstæðis-
flokksihs aðgengilegri. Fyrri
liður tillögunnar væri skýrari en
tilsvarandi liður í tillögu stjórn-
arflokkanna, og síðari liður
hefði þann kost að tryggja öll-
um flokkum rjett til þátttöku í
undirbúningi um þessi mál.
*
Þegar framsögumenn flokk-
anna höfðu lokið sínum ræðum,
tóku ýmsir til máls, þ. á. m.
Haraldur Guðmundsson utan-
ríkismálaráðherra og Hermann
Jónasson forsætisráðherra. —
Mátti skilja á ræðum beggja
ráðherranna, að þeir myndu
ekkert sjerstakt hafa við það að
athuga, að kveða eins skýrt á
og aðaltillaga Sjálfstæðis-
flokksins fer fram á. Hinsvegar
voru ráðherrarnir því andvígir,
að skipuð yrði sjerstök nefnd
til þess að fjalla um þessi mál,
töldu að utanríkismálanefnd
og ríkisstjómin ætti að annast
þenna undirbúning.
Aðalframsögumenn stjórnar-
flokkanna gáfu báðir tilefni til
ísunnudags-
matinn:
Frosin diíkasvið
á 1 kr.
Buffkjöt,
GuIIaschkjöt,
Yænt dilkakjöt,
Kindabjúgu,
HÓLSFJALLA-
hangikjötið góða
o. m. fl.
Laufásvegi 58. Sími 4911.
HúsnæOi.
Sólrík þrifTgja herbergja
íbúð með öllum þægindum
til leii?u 14. maí. Einnij? til
leigu á sama stað tvö her-
bergi ojí eldhús í kjallara.
Tilboð merkt „Eiríksú’ata
15“ sendist á afgr. Morgun-
blaðsins.
F
af fuhorðnu á 50 aura
í frampörtum og 60
aura í lærum pr. Vz kg.
lóhannes Jóhannsson,
Grundarstíg 2. Sími 4131.
FRAMH. & SJÖTTU SfÐU
T rð i of unar hringa
fáið þið hjá
Sigurþóri, Hafnfirstæti 4.
Sendir gegn póstkröfa hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mdl.
Úr og kiukkur í miklu úrvali.
Agætar íslentskur
kartöflur.
1 ■
Vorsl. Víslr.
Sími 3555.