Morgunblaðið - 23.03.1937, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. mars 1937»
Blanko Blanko Blanko Blanko
3
pa
Si
1
&
©
i
*
PQ
cö
rrH
QQ
o
3
Blanko
Ain.: íiimðííé ('íUJÍTÍ
GÓÐI FÆGILÖGUR,
er vinur allra vand-
látra húsmseðra.
Notið: ðU > •
BLANKO,
Bestnr og þó ódýr-
astur.
W
&
o
W
»—•
!á
o
w
t—'
p
tá
o
s
p*
ö
?r
o
W
p-
B-
o
W
»—•
B-
o
02|tt13tg Ojpi'Bta Ojpi'BXfl
Sjerdeild
P. V.
Nýkomnar vörur
(EÖINBORG,
dER
Fermingarkjólaefni.
Kjólaefni.
Kápu- og Dragtatau.
Kápufóður.
Borðdúkadreg'ill.
Serviettur og
Sængurveraefni.
Leggið leið yðar um
Hafnarstræti í
EUINBORG.
Llnuspil -- Netaspil
til sölu. Tækifærisverð. Upp-
lýsingar, Smiðjustíg 10. —
Vinnustofan „Dvergasteinn“
Stór og smá
Páskaegg
seljast ódýrt.
Konfektbúðin Uppsölum.
Minning Guðmundar
Sveinbjörnssonar,
Guðmundur Sveinbjörnsson
bóndi frá Hámundarestöðum í
Vopnafirði, verður í dag til mold-
ar borinn.
Hann var gestur hjer í bænum
og dvaldi á heimli bróður síns.
Mánaðartíma hafði hann dvalið
hjer er hann ljest af völdum in-
flóensunnar 16. þ. m.
Guðmundur var fæddur á Há-
mundarstöðum í Vopnafirði 4. jan.
1903 og hafði alið þar allan sinn
aldur. Hann var einn af átján
systkinum, sonur hjónanna Svein-
björns Sveinssonar og Guðbjargar
Gísladóttur, er búa enn á Hámund
arstöðum.
Guðmundur heitinn stóð fyrir
búi þeirra hin síðustu ár og gerði
það með einstökum dugnaði og
fyrirhyggju. Hann átti sæti í
hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps
og var um alt talinn einn af glæsi-
legustu ungum mönnum þar í
sveit.
Hann var fríðleiksmaður, þrek-
mikill, þjettur á vell og þjettur í
lund. Hann var ókvæntur. Var
eini sonurinn, sem eftir var heima
hjá foreldrum sínum. Hans mun
sárt saknað af systkinum hans og
sveitungum og vinum, en sárast
þó af aldurhnignum foreldrum er
þar hafa mist einmitt þann soninn
er virtist kjörinn til þess að verða
þeirra aðal ellistoð.
DEILAN UM HJALT-
EYRARVERK-
SMIÐJUNA.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
bygging verksmiðjunnar. Ráð-
herrann gaf svo sitt leyfi, ef
Kveldúlfur sýndi að hann hefði
fjármagn til þess að reisa verk-
smiðjuna.
Nú er alt í lagi með fjár-
magnið; lánið fengið erlendis
til byggingu verksmiðjunnar.
Mikið af byggingarefni þegar
komið á staðinn, og 100 verka-
menn bíða eftir að vinna geti
hafist.
Þegar svo Hjeðinn fær „kast-
ið“, og krafðist þess, að Kveld-
úlfur verði gerður upp, heimtar
hann að atvinnumálaráðherra
ónýti leyfið til að byggja verk-
smiðjuna.
En meirihluti innflutnings-
nefndar og bankarnir sjá það,
að geti verksmiðjan komist upp
það tímanlega, að hún geti
starfað þegar á næsta sumri,
myndi við það fást 2—3 milj.
kr. gjaldeyri á þessu ári. Meiri-
hluti nefndarinnar ákvað því á
föstudag að endurnýja leyfið
fyrir byggingarefninu, svo að
vinna geti þegar hafist.
Það er þetta, sem Alþýðu-
blaðið kallar „uppreisn gegn
ríkisvaldinu“, og skorar á fjár-
málaráðherra að grípa í taum-
ana!
Ef fjármálaráðherra færi að
ónýta samþykt innflutnings-
nefndar í þessu máli, yrði af-
leiðingin einungis sú, að verk-
smiðjan kæmist ekki upp svo
tímanlega að hún gæti hafið
starfrækslu í sumar. En afleið-
ing þess yrði aftur sú, að ríkið
tapaði 2—3 milj. í gjaldeyri á
þessu ári.
Hver trúir því, að fjármála-
ráðherrann vilji stuðla að
nokkru slíku?
Til fólksins á Vesturgötu 64 frá
K. B. 5 kr., K. 60 kr., ónefndri 10
kr„ í. 10 kr.
Þrá heitir nýtt lag sem Sigvaldi
Kaldalóns tónskáld hefir sent frá
sjer.
:vksrm
Hangikjöt
nýreykt.
Dilkakjöt, frosið.
Saítkjöt.
Nautakjöt af ungu.
Hakkað kjöt.
Rúllupylsur,
og fleira.
Nordalsíshúi,
Sími: 3007.
I-Ijartanlegt þakklæti til allra, sem heiðruðu minningu son-
ar míns,
Magnúsar Lárussonar,
og sýndu okkur samúð og vináttu við andlát hans og jarðarför.
.Fyrir hönd mína og annara vandamanna.
Katrín Eiríksdóttir.
Frú Oliv M. Guðmundsson,
ekkja Guðlaugs heitins Guðmundssonar fyr bæjarfógeta, and-
aðist í dag, að heimili sínu hjer í bæ.
Fyrir hönd aðstandenda.
Magnús Pjetursson hjeraðslæknir.
Hjer með tilkynnist ættingjum og vinum nær og fjær, að
kona mín og móðir okkar,
Jóhanna A. Thorlacius,
ljest að heimili sínu, Ásvallagötu 7, aðfaranótt pálmasunnu-
dags 21. mars.
Einar Thorlacius og börn.
Litli drengurinn okkar,
Hörður,
sem andaðist 17. þ. m., verður jarðsunginn miðvikudaginn 24.
þ. m. kl. 11 f. h. frá heimili okkar, Lokastíg 11.
Hulda Kristmanns. Árni Jóhannsson.
Faðir minn,
Sigurður Sigurðsson,
fyrrum bóndi í Tungu í Grafningi, andaðist laugardaginn 20.
mars á Elliheimilinu.
Eiríkur Sigurðsson.
Elsku maðurinn minn,
Regnar Jensen,
andaðist að Landakotsspítala 21. þ. m.
Aðalheiður J. G. Jensen.
Jarðarför mannsins míns,
Þórðar Magnússonar,
sem andaðist 18. þ. m., fer fram frá dómkirkjunni miðvikudag-
inn 24. þ. m. og hefst að heimili hins látna, Njálsgötu 25, kl.
3. e. h. — Jarðarförinni verður útvarpað.
Gunnhildur Friðriksdóttir.
Jarðarför
Guðmundar Sveinbjörnssonar
frá Hámundarstöðum í Vopnafirði og
Agatha Guðmundsdóttur
fer fram frá dómkirkjunni í Reykjavík kl. 3y2 í dag.
Vandamenn.
Það tilkynnist að jarðarför móður og tengdamóður okkar,
Sigríðar Jóhannsdóttur,
fer fram frá þjóðkirkjunni miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 1 e. m.
og hefst með bæn að heimili okkar, Bárugötu 11.
Jóhanna Gísladóttir. Komelíus Sigmundsson.
Það tilkynist hjer með, að jarðarför konunnar minnar,
móður, tengdamóður og ömmu okkar,
Hallberu Pálsdóttur,
fer fram miðvikudaginn 24. þ. m. og hefst með húskveðju frá
heimili hinnar látnu, að Gimli í Grindavík, kl. iy2 e. h.
Árni Jónsson. Ólafur Ámason.
Gunnhildur Pálsdóttir. P. Garðar Ólafsson.
Kveðjuathöfn
Jóhanns Malmquist,
frá Reyðarfirði, sem andaðist 16. þ. m. fer fram frá dómkirkj-
unni miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 11 fyrir bádegi.
Líkið verður flutt austur með Esju.
Aðstandendur.
Lík
Jakobs Jónssonar
fyrv. ullarmatsmanns frá Seyðisfirði verður sent austur með
Esju 24. þ. m. — Kveðjuathöfn fer fram í dómkirkjunni mið-
vikudaginn 24. þ. m. kl. 5 e. h. — Athöfninni verður útvarpað.
Láms Jóhannesson.