Morgunblaðið - 13.04.1937, Síða 4
4
MoRGUNi LAÐIÐ,
Þriðjudagur 13. apríl 1937.
KVENÞJOÐIN 00 HEIMILIN
—--- ‘
Sonja segir frá búningi
tískukvenna í París.
Símanúmenð á hattborðanum —
Lily Damita í Casanova.
A\ána bán
Frá frjettaritara vorum
í París.
Seinast í mars.
Á MAXIM.
Maxim er eitt helsta veit-
ingahús Parísarborgar
og þar er jafnan fullskipað á
hverju kvöldi. Eitt kvöld, ekki
alls fyrir löngu, var þar sjer-
staklega margt um manninn og
mörg þekt andlit að sjá.
*
Aðaltískuflíkin: Laus jakki
og treyja.
Klæðnaður kvenfólksins var
með skrautlegasta móti og
skartaði það í ,,model“-kjólum
frá stærstu tískuhúsunum. Þar
gat að líta kvöldkjóla, síðdeg-
siklæðnaði — og kjóla, cocktail
kjóla, alt hvað innan um annað.
En eitt var nær öllum sarneig-
inlegt; jakkarnir.
Kjóll án jakka, hvort heldur
sem er dagkjóll eða kvöldkjóll,
1 þykir hjer jafnóhugsandi og
París án Eifellturnsins!
*
Sá jakkinn, sem vakti einna.
mesta eftirtekt, var úr bleiku
silkiflaueli, saumaður perlum.'
Fór hann sjerlega vel við svart-
an öklasíðan ,,chiffon“-kjól. —
Höfuðfat úr strútsf jöðrum
setti sinn svip á búninginn.
*
Parísardama ein, sem kunn
er fyrir dirfsku sína í klæða-1
burði, var í svörtum jakka úr
klæði, og voru festir á hann
gyltir peningar frá ýmsum lönd-
um. Skórnir hennar voru einnig
prýddir peningum.
*
Röíidóttir jakkar, þröngir
við víð pils.
Víð pils við þrönga jakka.
Mörg tískuhúsin hafa á boð-
stólum jakka úr allskonar rönd-
óttum efnum, og á Maxim var
ein stúlka í ieJ.nkeinnilegum
svart- og hvitröndóttum jakka,
sem minti mann helst á sebra-
dýr. Þá var annar jakki, svart-
ur, með gyltum leðurröndum.
Við þannig jakka eru notuð
einlit pils.
Við víða jakka eru pilsin
höfð mjög þröng, en við þrönga
jakka, frekar víð.
*
Frá Maxim til „Bal Tabarin“.
Bal Tabarin hefir í hálfa öld
verið heimsfrægur skemti-
staður almennings í París.Þang-
að kemur nú mikið hið svokall-
aða ,,elité“ Parísarborgar.
Allskonar dans- og sjónleikir
fara fram, meðan fólk situr
þar að mat og drykkju, ,,café-
<"on«ert“, eins og það er kallað
í París, og í tilefni heimssýn-
ingarinnar í vor, er sjerstaklega
vandað til sýningarinnar. núna.
*
M. a. eru stúlkur látnar sýna
alls konar draumórakendar
myndir af öfgum tískunnar. —
Glæsilegar á að líta, trítla þær
niður háar tröppur, út á pall,
sem stendur á miðju gólfi, og er
upplýstur með allavega litum
ljósum.
*
Af hinum fjórum .sýningar-
stúlkum, vakti sú síðasta mesta
eftirtekt. Hún var í hvítum
þykksilkikjól, sem var svo
þröngur að telja mátti hvert rif
í stúlkunni. Stærðar strúts-
fjaðrir, hvítar á lit, voru festar
á ermarnar og pilsið, og frá
hárinu hengu fjaðrir niður á
bak.
*
Lily Damita á Casanova.
Casanova er þektur nætur-
klúbbur í París, með rúss-
neskum svip, og er þar ávalt
troðfult af fólki, þó veitingar
sjeu þar dýrar mjög. Það er
erfitt að sjá klæðnað kven-
fólksins í þeirri þröng, svo vel,
? ð hægt sje að lýsa honum.
*
Kvikmyndaleikkonan Lily
Damita, sem nýlega er kom-
in frá Hollywood, vakti mikla
eftirtekt, er hún kom inn í sal-
inn í Casanova, um daginn. —
Hún var með skósítt slá úr hvít-
um refum, en kjóllinn var úr
hvítu ullar- og silkikögri. Á
vinstri hönd bar hún hring með
stórri svartri perlu, en á hægri
hendi sást stærðar perla, hvít
á lit.
*
Símanúmerið í hattbandinu.
Ein stúlka var þar í einföld-
um svörtum kjól, með þykka
gullkeðju um hálsinn ög eins
belti um mittið. Við kjólinn
hafði 'hún svartan hatt, og var
símanúmer hennar saumað í
hattbandið, með gyltum stöfum.
*
Auglýsingar á hattkolllnum.
Susanne Talbot hefir alls-
konar skemtilegar ,,aug-
lýsingar“ um heimssýninguna í
París ofan á kollinum á nýjustu
höttunum.
*
Manni dettur í hug, að í.s-
lenskar stúlkur í útlöndum gætu
mint á ísland, sem ferðamanna-
land á svipaðan ihátt, t. d. haft
áletrun um Geysir á hattinum
sínum, eða eitthvað á þá leið.
S.
Nokkrir nýtísku hattar
með slöri.
Nýju battarnir
koma fram da.'fleoa.
Hattabúðin
Austurstræti 14 uppi.
Gunnlaug Briem.
Geíur
hinn
rjetta
fagra
gljda.
Myndin sýnir hvernig hægt
er að koma slörinu fyrir á ýms-
an hátt, frábrugðið því, sem
áður hefir verið. T. d. er það
alveg nýtt að slörið sje bundið
aftur á hnakka eða undir höku,
en til þess að það fari vel, verð-
ur slörið að vera nokkuð stíft.
Dagheimili fyrir börn hefir
I.arnavinafjélagið ,,Sumargjöf“ í
sumar bæði í Grænuborg og í
Vesturbænum. Munu þau taka til
starfa um líkt leyti og á undan-
fórnum árum.
«r bfuxtt -
hún. wctar
SlMILLON
5 N YRTI V0í? U R
Sf^OVI 4 O AMM • • O M • 09.
Kennarinn: Hvað er
E-moll?
Nemandinn: Emol er
nafnið á handsápu, sem
mjer líkar best.
toilet sonp
Heildsölubirgðir:
Heiidverslunm HEKLA
Fix er frægasta íslenska
þvottaduftið. Það skilar
þvottinum mjallhvítum
ojí ilmandi næstum fyr-
irhafnarlaust.
Aðeins 50 aura í búð-
unum.