Morgunblaðið - 15.04.1937, Page 3

Morgunblaðið - 15.04.1937, Page 3
Fimtudagur 15. apríl 1937, MORGUNBLA ÐIÐ 3 Morgunblaðið vann málið. Hæstarjettardóm- ur sem hefir þýðingu fyrir blöðin. Hæstirjettur kvað í gær upp dóm, sem hefir al- menna þýðingu fyrir blöðin. Dómurinn var um skyldur blaða til að birta leiðrjett- ingar samkv. 11. gr. tilskip- unar um prentfrelsi frá 9. maí 1855. Það var Morgunblaðið sem fekk Hæstarjett til þess að skera úr um þetta atriði. Mál þetta fór af stað haustið 1935, og spanst út af skrifunum um Spánarsamninginn. Þá birtist í Morgunblaðinu grein um Spán- arsamninginn eftir Ólaf Thors alþm. Helgi Guðmundsson banka- stjóri vildi fá birta stutta at- hugasemd við grein Ólafs, er hann kallaði leiðrjettingu, sem Morg- unblaðið fekst ekki til að birta. Út af þessu spanst málið. Morgunblaðið tapaði málinu fyrir undirrjetti, og var dærnt til að birta „leiðrjettinguna“ að við- lagðri 100 kr. dagsektum. Þessum dómi áfrýjaði Morgun- blaðið til Hæstarjettar, sem kvað upp dóm í málinu í gær. Úrslitin urðu þau, að Hæsti- rjettur sýknaði algerlega Morg- unblaðið, með þeim forsendum, að hjer hefði ekki verið um neina leiðrjettingu að ræða á grein Ólafs Thors. Málskostnaður var látinn falla niður. Pjetur Magnússon hrm. flutti málið fyrir Morgunblaðið. 17 ára piltur játar á sig mörg innbrot. Lögreglan handsamaði 17 ára gamlan pilt í fyrrinótt, sem var búinn að brjótast inn á tveim ur stöðum hjer í bænrnn um nótt- ina. Lögregluþjónn, sem var á verði á Hverfisgötu þessa nótt, mætti piltinum með fult fangið af smíða verkfærum, og þótti framferði hans nokkuð grunsamlegt. Piltur þessi, sem áður í vetur hefir verið handsamaður fyrir ýmsa þjófnaði, meðgekk í gær ýmsa smáþjófnaði, sem framdir hafa verið undanfarið hjer í bæn- um. Hann hafði viðað að sjer miklu af lyklum og var laginn á að komast inn í luis með þeim. Sumir þjófnaðirnir, sem hann hef ir játað á sig, eru smávægilegir, aðallega smíðaverkfæri, og hafa ekki verið tilkyntir lögreglunni. í fyxminótt, þegar pilturinn var handsamaður, hafði hann brotist inn á tveimur stöðum, í fiskbiið Sigurðar Gíslasonar og á smíða- verkstæði á Hverfisgötu 23. Sir ]ohn Simon mótmæiir fullyrðingu um „vanmátt breska flotans". Vantrausttillsgan á bresku stjðrnina feld. Svaraði fyrir hönd sf |é rnarinnar VantrauststiIIagan á bresku stjómina, vegna afstöðu hennar til hafnbanns Francos, var feld í breska þinginu í kvöld með 345 atkvæðum gegn 130 atkv. London í gær. Sir John Simon hjelt því fram í ræðu sem hann flutti í breska þinginu í gær, þegar vantrauststillaga stjórnarand- stæðinga var lögð fram, sem bygð er á því ,,að stjómin hafi, með því að vara bresk skip við að sigla til Bilbao, lýst yfir vanmætti breska flot- ans til þess að vernda breska verslunarflotann og að stjórnin hafi í raun og veru afsalað sjer fyrir hönd breska verslunarflotans þeim rjettindum til frjálsra siglinga, sem honum bæri samkvæmt al- þjóða lögum“. — Sir John Simon hjelt því frain, ,,að um það skyldi enginn efast, að breskum skipum er hægt að ryðja leið inn í hvaða höfn í heimi sem er, en í þessu tilfelli aðeins með tundurduflahreinsurum, og það væri tvímælalaust rof á hlutleysissamningnum, þar sem tundurduflahreins- arar teljast til herskipa“. Mikilvægur ágreiningur. 1 ræðunum kom fram ágreiningur milli Sir John Simons, og Mr. Attlees, foringja stjórnarandstæðinga, í atriði, sem hefir mikilvæga þýðingu. Mr. Attlee sagði: „að sjer hefði borist skeyti frá stjórnarforseta Baskahjer- aðsins á þá leið, að engu erlendu eða spönsku skipi hefði verið sökt, nje á þau skotið, innan landhelgi við strendur Baska-hjer- aðs. Ennfremur hefði hvorki Baskastjórnin nje skip Francos lagt tundurdufl við Bilbao-höfn. Ef bresk skip gætu því ekki siglt með öryggi til Bilbao, þá stafaði það eingöngu af því, að bresk herskip væru ekki þess megnug, eða viljug, að vernda bresk verslunarskip“. Þessu svaraði Sir John Sirnon „að hvað sem öllum yfirlýsingum liði, þá hefðu uppreisnarmenn Iagt tundurdufl við mynni Bilbao-hafnar, og hefðu tveir eða þrír tundurduflahreinsarar Baskastjórn- arinnar orðið fýrir tundurduflum og eyðilagst“. (Sjá yfirlýsingu frá spánska ráðuneytinu í London á öðrum Sir John Simon sagði, að sú stefna, sem breska stjórnin hefði tekið upp um siglingar breskra skipa við Spánar- strendur ætti sjer lengri aldur en Mr. Attlee virtist álíta. Á síðastliðnu hausti hefðu biæsk skip verið vöruð við því að sigla um þau svæði þar sem spánska stjórnin hefði lagt tundurdufl, og væri það hlið- stætt aðvörun þeirri, sem gefin hefði verið út í vikunni sem leið, þar sem sú stjórn sem ætti í innbyrðis ófriði væri frá sjón- armiði alþjóðalaga engu rjett- hærri á siglingaleiðum en þeim sem hún ætti í ófriði við. En í fyrra hefði ekki heyrst eitt orð frá verka- mannaflokknum, í mót- mælaskyni gegn þeim var- uðarráðstöfunum, sem. breska stjórnin hefði þá gert til vemdar breskum skipurn, og þá ekki talað um hlutleysisbrot. (Samkv. FU). rim >A IIITLERS OG PÁFASTÓLS. London í gær. FÚ. ¥-v ýska stjórnin hefir svarað * ásökunum þeim, er páf- inn beindi gegn stjórninni í hirðisbrjefi því, er hann birti kaþólskum mönnum í Þýska- landi nýlega. Stjórnin lætur í ljós undrun sína yfir því, að páfinn skuli hafa, með hirðisbrjefi sínu, mælst til þess, fyrir öllum heim- inum, að mynduð yrðu almenn samtök gegn Þýskalandi. Siglingaleiðin til Bilbao er opin - segja Baskar. London í gær. FÚ. Spánska sendiráðið í London birti í dag yfiirlýs- ingu þess efnis að því hefði borist yfirlýsing frá Baskast jórninni um að skip stjómarinnar hjeldu vörð um innsiglinguna til Bil- bao, og að fjöldi skipa, bæði breskra og annara þjóða, hefðu siglt bæði í höfn og úr, frá 1. apríl til 13. apríl, án þess að nokkuð yrði þeim að meini Magnús Kristjðnsson vinnurlO km. göngu á ísafirði. ísafirði, miðvikudag. Magnús Kristjánsson varð sigurvegari í 10 kiló- metra kappgöngu á skíðum, sem fram fór hjer við ísafjörð s.l. sunnudag. Tími Magnúsar var 48 mín. og 48 sekúndur. Skíðakapp- gangan fór fram í Seljalands- dal. * Magnús Kristjánsson er mesti göngugarpur á skíðum hjer og hefir unnið fjölda kappgöngur á undanförnu. Hann varð ann- ar í skíðakappgöngunni í lands- móti skíðamanna í Hveradölum í vetur. Amgr. Sir John Simon. 120 manns vinna nú viö Sogs- virkjunina. Nýr yfirverkfræð- ingur í slað Schröder-Pefersen. Útvarpið neitarað birta áskorun borgara- fundar á Akureyri. Akureyri miðvikudag'. Almennur borgarafundur hjer á Akureyri, sem haldipn var s.l. sunnudag, samþykti eínróma áskorun til Alþingis um að sam- þykkja ríkisábyrgð fyi •ír iy2 miljón króna til rafvirkjunar Laxár í Þingeyjarsýslu. Utvarpið neitaði frjettarjtara sínum að birta áskorun þessa. Kn. VINNA er nú að hefjast af fullu fjöri við Sogs- virkjunina, en lítið hefir ver ið unnið þar eystra seinni hluta vetrar vegna slæms tíðarfars. Munu nú vera komnir austur alt að 120 manns, verkamenn, smiðir, múrar- ar o. s. frv. Er byrjað að steypa bað, sem hætt var við í haust. Hefir áaætis steypu i veður verið við Sogið undan- farnar tvær vikur. Ottast var, að víniia myndi stöðvast aftur vegíia þess, að Hellisheiði var ófær bílmn og , ekki liægt að fíytja að efni, svo I sem sement, en nú er Hellisheiði , orðin fær bílum aitú'r ög geta því flutningar., faríð’ íraip eftir þörfum. Schröder-Petersen, danski verk- fræðingurinn, sem hafði yfirum- sjón með Sogsvirkjuhinni fyrir I Höjgaard & Sclmltz. befi’r látið fí h] •' < i' . >í M {fí, Q I ' > 1; i ' ' ' af starfi sínu og er.. farinn til J,-l ■iTíOlfOi Daninerkur. í hans sfað kom Langvad verkfræðingpr,, sem nú er yfirverkfræðingur þar evstra. Nokkrir bátaeigendur hafa far- ið þess. á leit við hafnarstjórn að fram verði látin fara lagfæring á .Selsvör. Hafnarstjórn hefir sam- þykt að verða við þeim tilmælum. STJÓRN ÍTALA Á ABYSSINÍU. London í gær. FÚ. Hinir abyssinsjíu flóttamenn, sem komnir eru jtil Breska Somalilands, hafa hinar mestu hörmungarsögur að segja. ,, Allir hafa þeir ferðast fót- gangandi, að mestu leyti, sumir óravegu, eða aílt ^é 1280 kíló- metra, og hefir fj.Öldi fólks ör- magnast og dáið á leiðinni. Fióttamenn segja, að í Gala- hjeraði sje fjöldi manna heim- ilislaus, þar sem lönd þeirra hafi verið tekin eignanámi, og að þar sje alvarlegur matvæla- skortur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.