Morgunblaðið - 15.04.1937, Síða 7
Fimtudagur 15. apríl 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Dansskemtun
og Bíósýning
fyrir 50 aura.
Skemtifundur
sósíalista
í Keflavík.
i lerklýðs- og sjómannafje-
V iag Keflavíkur boðaði
til skemtifundar í Keflavík
í fyrrakvöld, og var meðlim-
um verklýðs- og sjómanna-
fjelaga Grindavíkur og Sand
gerðis boðið á skemtunina.
Til skemtunar var auglýst
kvikmyndasýningar og dans
i eftir. Aðgangur kostaði 50
aura.
Landlega var þetta kvöld á
Suðurnesjuiu og þóttust margir
fá góða skemtun fyrir litla pen-
ipgft, enda sóttu rúml. 300 manns
fkeintunina, en flestir komu þó
ekki fyr en undir miðnætti, er
dansinn hófst. Stóð hann til kl.
3 , um nóttina.
Kvikmyndirnar voru norskar
anglýsingakvikmyndir fyrir sósíal
ispiann, sem sósíalistar í Noregi
tjetu gera fyrir kosningarnar í
fyrraiiaust og bafa nú lánað
flokksbræðrum sínum hjer.
, jÁ skemtuninni voru mættir Jón
Sigurðsson erindreki og Sigfús
Sigurhjartarson gnðfræðingur.
í>eir „útskýrðu“ kvikmyndirnar.
, þiaust fvrir klukkan 11 voru
bprnar upp tvær tillögur, í sam:
þandi við niðurdrepsfrumvarp
súsíalista á stórútgerðinni, en hin
yar um vinnulöggjöfina.
Á skemtuninni voru þá rúmlega
200 manns, og flestum farið að
lengja eftir að dansinn byrjaði.
Voru tillögurnar samþyktar
með langt innan við 100 atkv.,
því að miusta kosti 2/3 fundar-
inanna vildi ekkert sinna þeim.
Alþýðublaðið í gær er ákaflega
glatt yfir þessari skemtun í
Keflavík ög lætur skína í gegn
að 400 sjómenn og verkamenn
hafi samþykt traustsyfirlýsingu á
stefnu sósíalista. En eins og sjá
má af framanrituðu er hjer um
tómt grobb að ræða, eins og yfir-
leitt allar frjettir af fundum
sósíalista í verklýðsfjelögunum
dti á íandi undanfarið, og er
skemst að minnast fölsuðu frjett-
anna úr l!,%rðastrandarsýs]u.
Qagbófc.
|X| „Helgafell" 59374157 —
IY./V. — 2.
I.Q.O.F. 5 = 11841581/2 = E. S. 9.1.
Veðrið í gær (miðv.d. kl. 17):
Hæg V-átt og víða rigning vestan
lands, en S- eða SA-gola á N og
A-landi. Hiti 1—4 stig vestan
lands, en annars staðar 6—8 st.
Grunn lægð uin ísland og Græn-
landshafið. Önnur lægð að nálg-
ast suðvestan af hafi og útlit fyr-
ir að hún muni bráðlegö valda
vaxandi SA-átt hjer á landi.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri fram eftir deginum, en
síðan vaxandi A-átt. Urkomulaust
að raestu.
Háskólafyrirlestur á ensku.
í kvöld kl. 8 flytur Mr. Turville-
Petre fyrirlestur í háskólanum:
Some remarks on modern English
pronaunciation.
Hjónaefni. Trúlofun sína hafa
opinberað frk. Þorbjörg Sigurjóns
dóttir Jónssonar bóksala, Þórsg.
4, og Friðrik Vigfússon bókh.
Vigf. Guðbrandssonar klæðsk.,
Brávallag. 20.
Agnar E. Kofoed-Hansen, flug-
málaráðunautur ríkisstjórnarinn-
ar, hefir lagt fram erindi til hafn
arstjórnar, þar sem farið er fram
á endurbætur á flughöfninni í
Vatnagörðum. Hafnarstjóra var
falið að ræða þetta mál við rík-
isstjórnina.
Bókamenn!
Þessa dagana hverfa af bóka-
markaðinum margar ágætar bæk-
ur og koma aldrei í bókaverslanir
aftur.
Slysið á Snorra goða. Til að
fyrirbyggja misskilning skal þess
getið, að Snorri goði var ekki á
ferð, er manninn tók út af skip-
iínu. Var verið að innbyrða vörp-
'úha, en skipið rak nndan.
Dóftskeytamaðurinn og há-
seti fleygðu sjer út til að ná
manninum, og tókst loftskeyta-
manninum að ná honum.
Myndi ekki kunningja yðar,
sem ekki er viðstaddur þessa
daga, langa til að eignast ein-
bverja þeirra. f dag eru þær seld-
ar fyrir brot úr sannvirði — á
morgun eru þær ef til vill ófáan-
legar. — Til dæmis þessar bækur:
Ofurefli, eftir E. H. Kvaran.
Ólöf í Ási, eftir Guðm. Friðjóns-
son.
Sjóferðasöguraar, eftir Sveinbjöm
Egilson.
Mannætnr, Eftir Árna Friðriksson.
Grand Hotel, eftir Vicki Baum.
Mataræði og þjóðþrif, eftir dr.
Björgn C. Þorlákson.
Daglegar máltíðir.
Scotland Yard. ,
Saga nnga mannsins fátæka.
Húsið í skóginnm.
Geislar, eftir Signrbj. Sveinsson.
Krónn-útgáfan (öll 4 heftin fyrir
eina krónu. í þeim er óhemju
mikið lesmál og margar ágæt-
ar sögur).
Útsalan er í Bókaversltin Sig-
fúsar Eymnndssonar. Gerið kanp-
in í dag. Á morgnn er það ef til
vill of 8eint.
Verður Hauksbryggja rifin?
Hafnarstjórn hefir á síðasta fundi
sínum samþykt að fela hafnar-
stjóra að annast um, að eigendur
Hanksbryggju framkvæmi nauð-
synlegar viðgerðir á bryggjunni,
eða rífi bana að öðrum kosti.
Gísli Guðmundsson skipstjóri
hefir verið ráðinn til þess að
gegna hafnsögumannsstörfum
hjer í Reykjavík, í stað Jóns Ax-
els Pjeturssonar, sem nú hefir frí
frá störfum.
Selfoss var í Keflavík í gær og
tók til útflutnings 702 tunnur áf
lýsi frá Bræðslufjelagi Keflavík-
ur og Haraldi Böðvarssyni & Co.
1<’1 utningaskipið.,,»Eílda kom til
Keflavíkur í gær tiþ að lesta fisk
til útflutnings,
KristniboðsfjeÍag kvenna beld-
ur fund í dag kl. 5.
Franskur togari kom í gær til
að taka olíu.
B.v. Þorfinnur var tekinn úr
Slippnum í gærmorgun og línu-
veiðarinn Venus var dreginn í
Slipp til viðgerðar.
E.s. Hekla kom í gær með sem-
entsfarm.
Boyne, enskt eftirlitsskip, kom
hingað í gær.
Margrjet Þórðardóttir, systir
Jóns heitins Þórðarsonar kaup-
manns, er 87 ára í dag. Hún dvel-
ur á Elliheimilinu Grund hjer
bæ, blindur einstæðingur, en að
öðru leyti allvel hress.
Sýslufundur Vestur-ísafjarðar-
hófst s.l. mánudag á Flateyri.
Eimskip. Gullfoss er í Stykk-
ishólmi. Goðafoss er á Djúpuvík.
Brúarfoss er í Gautaborg. Detti-
foss er í Hamborg. Lagarfoss var
á Stöðvarfirði í gærmorgun. Sel-
foss er á leið til Vestmannaeyja
frá Keflavík.
17. ársþing umdæmisstúkunnar
nr. 6 var sett á ísafirði s.l. mánn-
dag. Mættir voru 20 fulltrúar frá
ll undirstúkum.
M.-A.-kvartettinn hjelt „al-
iýðu“-söngskemtun í Gamla Gíó
gærkveldi fyrir troðfullu húsi.
Var aðsókn svo mikil, að að-
göngumiðarnir seldust upp á
tæpri hálfri klukkustund í gær-
morgun. Söngmönnunum var að
vanda tekið með afbrigðum vel
af áheyrendum. Sökum þess hve
margir urðu frá að hverfa í þetta
skifti, munu söngmennimir hafa
í hyggju að endurtaka „alþýðu“-
söngskemtun sína á föstudags-
kvöldið.
Útvarpið:
Fimtudagur 15. apríl.
20.00 Frjettir.
20.30 Bjarni Sæmundsson dr.
phil. sjötugur: a) Erindi
(Vilhjálmur Þ. Gíslason); b)
Upplestur.
21.15 Einleikur á celló (Quiqerez)
21.40 Frá útlöndum.
21.55 Útvarpshljómsveitin leikur
(til kl. 22.30).
Allskonar ritfong.
Sem aðalumboðsmenn hins heimskunna firma
John Dickinson & Co., Ltd., London, útvegum við
ritföng hverju nafni sem nefnast frá þeim. M. a.:
Lausblaðabækur, Allskonar vasabækur,
Skrifpappír, Prentpappír,
Venjulegar verslunarbækur,
Allskonar flösku- og dósamiða, litprentaða,
Lámpappír og vjelar,
„Cellophan“ pappír,
og yfirleitt alt þessari iðn viðvíkjandi
íssT
Það er alkunnugt, að betri vörur en Dickinsons
fást ekki í víðri veröld.
H. BENEDIKTSSON & CO.
Húsei^nin Framnesveg 3Í
er til sölu. Upplýsingar gefur
GUNNAR ÞORSTEINSSON, Hrm.
Sími 1535.
Fyriffliggjandi:
ov
Til leinf ii
við Laugaveg 58 14. maí n. k. 2 stofur samliggjandi á móti
sól, fyrir kr. 50.00 á mánuði.
5ig. (?. 5kjalöberg.
3 -JHUS
fiit&Iq
Vðrnvagnar.
Sekk}atrill«ir.
Lausasmið)ur.
Vjelsmiðjan Hjeðinn.
Sími 1365 (þrjár línur).
.0 i
Morgunblaðið með morgunkaffjnu
É
NORSKA HERSKIPIÐ.
Oslo í gær.
Utanríkismálanefnd norska
Stórþingsins hjelt fund í
dag til þess að ræða hinn fyrir-
hugaða leiðangur herskipsins
„Olav Trygvason“ til Spánar-
stranda. Mowinckel er fram-
sögumaður í málinu.
Að því er blöðin segja munu
nokkrir nefndarmenn — eink-
ui$ Bændaflokksmenn og
Vinstriflokksmenn — draga í
efa, hvort halda skuli áfram
með áformið, einkanlega vegna
hinnar breyttu afstöðu bresku
ríkisstjómarinnar gagnvart
hafnbanni Francos. (NRP-FB)
Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum, að mað-
urinn minn og faðir okkar,
Þórarinn Jónsson,
Hverfisgötu 98, druknaði hinn 13. þ. mán. af togaranum Snorra
goða. Jarðarförin ákveðin síðar. ......
Sigríður Gísladóttir og böra.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
Einars Bjarnasonar,
fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 17. þ. m. og hefst með
húskveðjn á heimili hins látna, Laugaveg 142, kl. 1 e. hád.
María Gísladóttir og böra.
Jarðarför mannsins mins,
Valdimars Jónssonar,
fer fram frá dómkirkjnnni föstud. þ. 16. þ. m. og hefst kl. 1
með húskveðju að heimili hins látna, Njálsgötu 77. Athöfninni
í dómkirkjnnni verðnr útvarpað.
Magðalena Jósefsdóttjr.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför konu minnar, móður, dóttur og systur,
Kristínar Jónsdóttur.
Guðmundur Kr. Guðjónsson og böm.
Sigríður Guðmundsdóttir. Jón Símonarson og systkini.