Morgunblaðið - 16.05.1937, Side 7
Stinnudagur 16. mai 1937.
MORGUNfeLAÐIÐ
7
Orengjakór Reykjavík-
ur heldur samsöng
n. k. miðvikudag.
Miðvikudaginn 19. þ. m. ætlar
Drengjakór Reykjavíkur að halda
sameöng hjer í bænum. Kórinn
söng hjer í fyrra og hiaut ein-
róma lof þeirra sem á söng hans
hlýddu, en þeir voru of fáir —
því rniður. Síðan hefir kórinn æft
af kappi og tekið mjög rniklum
framförum. Þessi kór er fyrsti
drtngjakórinn, sem heídur opin-
bera sainsöngva hjer á landi og
*stti hverjum söngvini að vera
ljúft að greiða götu hans raeð
því, fyrst og fremst, að hlusta á
hann.
8á, sem þessar línur skrifar,
getur ekki dæmt kórinn og söng
hans út frá neinni söngfræðilegri
þekkingu — þar skulu aðrir koma
til. En eitt er víst, hver sem átt
hefir kost á að kynnast starfsemi
drengjanna, fjelagssamtökum
þeirra, hinni miklu bjartsýni og
hinum dæmafáa áhuga, er þeir
hafa sýnt í þessu starfi sínu, hver
■á, hlýtur að fyllast aðdáun yfir
mehningu þessara æskumanna.
Þó að við, sem lieima eigum í
þesgúhi bæ, getum um fátt verið
•ammála, þá ér þó eitt sem við
ó#kum öll, en það er, að líf okkar
hjer geti verið sem bjartast og
fegurst — geti verið menningarlíf.
Starfsemi æskumannanna í
Drengjakór Reykjavíkur keppir
að því marki. Þeir gera sitt. —
Það er okkar hinna að kunna að
méta það og sýna þar ekki tóm-
iæti og lítilsvirðingu.
ÞaC er siðferðilég skylda Reyk-
vfkinga að gefa gaum að starf-
aemi þessara æskumanpa og sækja
■amaöng þeirra. Þáð væti ófyrir-
gefanlegt tómlæti hiirha eldri, ef
þeir Ijetu áhuga og fórnfýsi þess-
ara drengja aðeins mæta skiln-
ingaleysi og óbilgirni lokaðra
dfTa. —
Drengjakór Reykjavíkur á skil-
i# að fá fult hús áheyrenda á mið-
vikudaginn kemur.
Stefán Jónson.
AÐKOMUMAÐUR
RÆNDUR.
FRAMH. AF SJÖTTU SÍÐU.
bað hann að útvega sjer lög-
regluaðstoð.
Þegar þetta var að gerast tók
lögregluþjónn, sem var á gangi
á Vitatorgi eftir tveim mönn-
um, sem lögreglunni eru kunn-
ir af illu einu. Voru þeir að
pukrast inni í porti við hús á
Óðinsgötunni. Lögreglan fór að
athuga framferði þeirra og gaf
sig á tal við þá.
Bar þá að mann þann, sem
hitt hafði Stefán á Bergstaða-
stíg og sagði lögregluþjóninum
frá að maður væri þarna skamt
frá, sem kvartaði undan því, að
hafa tapað stórri peningaupp-
hæð.
Var nú náð í manninn en
hann þekti þá ekki aftur menn-
ina tvo sem hefðu verið með
honum um nóttina!
Lögregluþjónninn slepti samt
ekki mönnunum, enda játuðu
þeir skömmu síðar, að hafa
rænt Stefán. Mennirnir, sem
lögreglan tók voyu þeir Jón
Vídalín Markússon og Erlend-
ur J. Erlendsson. Á Öðrum
þeirra fanst 100 króna seðilí,
en hinn hafði fleygt frá sjer
100 króna seðli, sem hann hafði
á sjer, er hann varð lögreglu-
þjónsins var. Peningaveskið
höfðu þeir falið bak við ösku-
kassa í porti einu við Óðíns-
götu. í veskinu voru pehinga-
umslögin óhreyfð með samtals
2132.00 krónum, auk þess háfa
komið til skila þær 200 krónur,
sem fundust á þeim Jóni og
Erlendi, en enn vantár ca. 200
—300 krónur.
Málið er ekki að fullu rann-
sakað og sitja ránsmennirnir í
fangahúsinu.
Síra, Gelcff flytur erindi á ann-
an í hvítasnnnu kl. 8y2 í dóm-
kirkjumii um: „Sýrland óg' Sýr-
lendinga“. -f
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði hefir opnað kosningaskrif-
stofu í Strandgötu 39 ýáður út-
bú Landsbanka íslands). Skrif-
stofan er opin alla daga og þang-
að ættu menn að snúa sjer við-
víkjandi Alþingiskosningunum.
Sjálfstæðismenn, sem vita af
Rannsókn fiskimiðavið
strendur landsins.
Samkfœmt
þingsályktun Sig.
Kristjánssonar.
Alþýðublaðið skýrir frá því
í gær, að Fiskimálanefnd
hafi „lagt til“ við atvinnumála-
ráðherra að „Þór“ verði gerð-
ur út í rannsóknarleiðangur, og
að ríkisstjórnin hafi „samþykt“
þetta og að helmingur kostnað-
ar verði greiddur úr ríkissjóði
en „helminginn greiði Fiski-
málanefnd“, segir blaðið.
Þannig er frásögn Alþýðubl.
En hvað er hið sanna í málinu?
Á þinginu í vetur flutti Sig-
urður Kristjánsson svohljóðandi
þingsályktunartillögu:
„Alþingi felur ríkisstjórninni
að láta halda áfram sjómæl-
ingum og rannsóknum fiskimiða
í nánd við Island á næsta sumri.
Heimilast ríkisstjórninni að
nota varðskipið Þór við rann-
sóknir þessar. Einnig heimilast
ríkissttjórninni að greiða af
tekjum ríkissjóðs þann kostn-
að, sem af rannsóknunum leið-
ir“.
Fjárveitinganefnd fekk til-
lögu S. Kr. til athugunar, og
mælti einróma með því að hún
yrði samþykt, með þeirri einu
breytingu, að helmingur kostn-
aðar yrði greiddur úr ríkissjóði
og hclmingur úr Fiskimálasjóði.
iÞannig samþykti Alþingi til-
i..' ,wk 'öiJ<á8JDTl iu s 't ■ H' ’-i' -
loguna.
Af þessu er ljóst, að Fiski-
málaneimd óg ríkisstjórn hefir
ekki haft önnur afskifti af
þessu máli en að gera eins og
Alþingi lagði fyrir nokkru, og
að frásögn Alþýðublaðsins er
eín endileysa.
Þessi rannsóknarleiðángur
naun nú brátt hefjast.
Fyrst mun verða leitað karfa-
miða hjer 1 hánd við Faxaflóa
og síðan fyrir Austurlandi. Að
því loknu verður leitað miða
fyrir Norður- og Vesturlandi.
Árni Friðriksson fiskifræð-
ingur mun stjórna þessum rann-
sóknum.
FRIÐARBOÐSKAPUR
MUSSOLINI.
London í gær. FÚ.
ussolini flutti í dag ræðu,
þar sem hann lagði mikla
áherslu á það, hversu mjög riði
á því, að hin ítalska þjóð yrði
sjálfri sjer nóg. Það væri hin
besta trygging þess friðar, sem
hin ítalska þjóð þráði svo mjög,
sagði hann.
„Þeir, sem hafa átt það á hættu
að bíða tjón á framtíð sinni, í
viðskiftalegu stríði, vita hvað þeir
eiga að hugsa og hvernig þeir
eiga að haga sjer“.
Framboðin. Alþýðuflokkuriiin
hefir tilkynt þessi framboð: í
Snæfellsnessýslu Kristján Guð-
mundsson Stykkishólmi, Dala-
sýslu Alexander Guðmundsson,
Vestur-Skaftafellssýslu Ármann
Halldórsson og Norður-Múlasýslu
Pjetur Halldórsson.
flokksmönnum er dvelja erlendis,
Hjálpræðisherinn. Á Hvíta- eru beðnir að gefa upplýsingar
annnudag stjórna, kaptein og frú um það á kosningaskrifstofu Sjálf
överby samkomuin kl. 1] árd. og stæðisflokksins í Varðarhúsinu.
8yt eíðd., í sal Hersins. Útisam- Símar 2339 og 2907.
koma á Lækjartorgi kl. 4. — 2. í; Af veiðiun komu í gærmorgun
Hvitasunnu verður haldin Seytj- togararnir Max Pemberton og
inda-maí hátíð kl. 8y2 síðd. Sam- Kári. Reykjaborg kom með 70
band norskra kvenna veítir há- föt lifrar og Skallagrímur með
tíðahaldinu forstöðu. Flokkstjór- rúml. 60 föt.
inn kapt. Henriksen o. fl. taka L.v. Eldborg kom í gær að vest-
þátt í Bamkomunni. an.
Sjúkrasamlag Reykjavikur
(Eldra samlagið)
keldur iokafund í Oddfellowhúsinu miðvikudaginn 19.
maí næstkomandi kl. 8l/2 síðd.
Fundarefni:
Stjórnin leggur fram lokareikning fyrir síðast-
liðið ár, og skýrir frá starfsemi samlagsins og
viðskiftum þess við nýja samlagið.
Fundurinn er aðeins -fyrir þá, sem voru í eldra samlag-
inu við síðustu áramót.
STJORNIN.
Qagbófc
I.O.O.F. sObl - 1195188l/4 =
XX.
Hádegismessa í dómkirkjunni
á annan í hvítasunnu kl. 11. Síra
Garðar Svavarsson prjedikar í
stað síra Friðriks Hallgrímssonar.
Sigfús Signrhjartarson, fram-
bjóðanui sósíalista í Gullbringu-
og Kjósarsýslu, treystir sjer sýni
lega ekki lengur til að mæta Ól-
afi Thors á opinberum fundum í
lijeraðinu. Þessvegna læðist hann
nú um hjeraðið, boðar skemtisam
komur, með bumbuslætti og tal-
kór, en á milli þátta ætlar hann
og kommúnistinn við Alþýðublað-
ið að lýsa stefnuskrá sósíalista.
Aumur er veslings Sigfús.
Olympíukvikmynd (Smallfilm)
liefir íþróttafjelag Reykjavíkur
fengið hingað og verður hún sýnd
fyrir almenning á annan í hvíta-
sunnu kl. 8y2 e. h. í Varðarhús-
inu. Áður en kvikmyndasýningin
hefst ætlar Jón Kaldal, form. í.
R., að skýra frá gangi Olympíu-
leikanna.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Birna
Hjaltested og stud. jur. Geir
Stefánsson. Faðir brúðurinnar, sr.
Bjarni Hjaltested, giftir.
Sundhöllin verður lokuð allan
daginn í dag, en opin frá 7—4 á
morgun.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í lijónaband Sigríður Hans
dóttir og Björn Guðmundsson.
Heimili þeirra er á Hripgbraut
30.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Árna
Sigurðssyni ungfrú Sigurborg
Karlsdóttir verksmiðjustúlka og
Hákon Jónasson sölumaður. Heim
ili þeirra verður á Grettisgötu 64.
Skátar, Væringjar og Ernír.
Allir skátar og ylfingar, sem eru
í bænum, mætið við prentsmiðju
Ágústs Sigurðssonar, Austurstr.
12, kl. IO14 í fviramálið.
Hjúskapur. 1 gær voru gefi*
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Guðríður Bjarna
dóttir og Nikulás Jónsson frá
Vorsabæ í Ölfusi. Heimili ungo
hjóuanna verður á Reykjavíkur-
veg 1, Hafnarfirði.
Hjúskapur. Síðastliðinn föatn-
dag voru gefin saman í hjóna-
hand af lögmanni Valgerður Eyj-
ólfsdóttir og Jón Guðmundsson.
Heimili ungu hjónanna verður 4
Oldugötu 55.
Útvarpið:
Suunudagur 16. maí.
9.45 Morguntónleikar: a) Sym-
fónía nr. 6, eftir Beethoven; b)
Ur ,,Meistarasöngvurunum“, eft-
ir Wagner.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Bjarni Jónsson).
14.00 Messa í Fríkirkjunni (sjera
Árni Sigurðsson).
17.40 Útvarp til útianda (24.52 m).
20.00 Erindi: Hvítasunna (Guð-
mundur Friðjónsson, skáld).
20.25 Tónleikar: Tónverk eftir
Mendelsshon og Schubert (til
kl. 21.45).
Mánudagur 17. maí.
9.45 Morguntónleikar: Tónverk
eftir Schuhert, Brahms, Weber,
Berlioz og Wagner.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Garðar Svavarsson).
13.30 Útvarp frá 2. fimleikamóti
íslands: a) Lúðrasveit leikur á
Austurvelli; b) 14.15 Lýst
skrúðgöngu fimleikaflokkanna;
e) 14.30 Ræða forsætisráðherra;
ÓO Forseti í. S. í. setur mótið;
e) Lýst fimleikasýningum á
íþróttavellinum.
18.30 Barnatími: Upplestur, söng-
ur, gítar-samleikur (Ungmeyja-
kór K.F.U.M.). .
19,20 Hljómplötur: Norsk tónlist.
20.30 Upplestur og tónleikar.
21.15 Um daginn og veginn.
21.30 Útvarpshljómsveitin leikur.
22-00 Danslög (til kl. 24).
tannpasta
heldur tönnum yðar heil-
brigðum og hvítum. Hefir
hressandi bragð.
Jöd/Kaliklwa
tnnnpa«t«n
— fæwt allsfaðar. —
GoldMedal
r 5 kit. pokum.
er bestu kaupin tfyr-
ir heiinabrtkstur.
æaf í fleatum verilunum
hæjarin.B.