Morgunblaðið - 23.05.1937, Qupperneq 6
6
MoRGUNiLAÐIÐ
Sunnudagur 23. maí 1931
LEIKHUSIÐ ;
GERVIMENN.
Leikrit í þrem þáttum með
Tiðbæti eftir Karel Capek.
eikfjelagiS hefir ráðist í mikið
verk, með því að taka upp
leikrit Karel Capeks, sem í þýð-
ingu Boga Ólafsspn.ar hefir hlotið
nafnið ,,Gerviinennu Eeikrit þetta
er í einu orði sagt mjög efnismik-
ið. Efniviðurinn er, skuggahliðar
vjelamenningaríhDar, eins og hún
nú er í beiminum. Stórfelt' pg
margþætt viðfangsefni, kryddað
með miklu og víðfeðmu hugar-
flugi höfundar.
Erfitt er að gera grein íyrir
efni og þræði leikritsinis í stuttu
máli, svo til nokkurrar hlítar sje.
Viðburðarásin er þessi: Lífeðlis-
fræðingar hafa fundið upp gervi-
.menn, sem eru lifandi sálarlausar
vinnuvjelar.
Gervimennirnir eru • „ódýr viiinu
kraftur“. Framleiðsla þeirra yerð-
ur tröllaukin. Miljónir gervimanna
flæða um löndin. Eftir þvi seni
lengra líður verða þeir ódýrari.
Alt verður ódýrara í heiminum.
Atvinnuleysið eykst að sama
skapi. Mennunum verður ofaukið.
Og afleiðingin af því verður sú,
að þeir hætta með öllu að eignast
börn. AJt verður ódýrt ,og auð-
fengið. En í ofurkappinu um það
að fá öll veraldleg gæði. gleymist
lífið sjálft.
Lífeðlisfræðingurinn, sem stjórn
ar framleiðslu , gervimannanna,
gerði tilraun með það, að veita
nokkrum þeirra sál. Það var imgs-
að sem nran h fi ð ar ver k. En þeir
sem sálina fengu efndu til upp-
reisnar. Blöð rauðu flokkanna
hjer í bænum hafa talað um leik-
rit þetta,, eins og höíundur þess
ætlaðist til, að gervimennirnir,
sem f§S^i' hinn ófullkomna sálar-
píring, væru skoðaðir sem leiðtog-
ar verkamannahreyfingarinnar,
foringjar sósíalistanna. Hjer skal
ekkert um það fullyrt. En sje svo,
þá hefir höfundur leikritsins verið
harðleikinn í þeirri lýsingu, sem
hann gefur af þeim foringjum.
Gervimennirnir höfðu verið
sendir í hernað. Þeim hafði verið
kendur vopnaburður. Imynd „sósí-
alistaforingjanna“. sem á leiksvið-
ið kemur, segir:
„Valdi mannkynsins er lokið.
Nýr heimur er risihn. Veldi gervi-
manna er hafið“.
Þá höfðu gervimenn strádrepið
alt mannkyn á jörðunni, nema einn
gamlan verkstjóra, sem þeir
þyrmdu, af því að hann „vann
með höndunum“, eins og þeir.
*
n svo k’emur eftifleikurínn í
ríki gervimannanna. Þá kem
ur gervimannaforinginn í heim-
■ókn til gamla; Yerlístjórans, Þá
segir hann sína.r farir ekki sljett-
ar: „Víð höfum gráfið miljónir
tonna af kolum upp úr iðrum jarð-
arinnar. Níu miLjónír spunavjela
snúast nótt og dag“. Og þannig
heldur hann áfram. Alt er fult af
vörum. En alt kemur fyrir ekki.
Gervimennirnir þekkja ekki leynd
armál lífsins. Þeir tortímast, verða
aldauða eftir 20 ár. og jörðin verð-'
ur mannlaus eftir.
Þetta er hrikaleg mynd af nið-
urrifi sósíalismans, EF menn vilja
líta svo á, að gervimennirnir eigi
að lýsa verkalýðsleiðtogum nú-
tímans.
Og höfundurinn gerir það ekki
endaslept.
Inn í hvíluherbergi verkstjór-
ans gamla, sem ráðalaus er, og
sjer ekki annað en aldauða mann-
kynsins framundan, læðist karl-
maður og kvenmaður, ný frum-;
tegund mannkyns, sem höfundur
að lokum vísar út í nýjan Edens-
garð, sem tákn þess, að niðurrif
vjelamenningarinnar hafi orðið
svo algert, að mannkynið verði
gersamlega að byrja á nýjan leik.
Fyr má nú rota en dauðrota.
*
tanum þenna meginþráð er
fljettað leikriti með allmörg
um leikpersónum og eru atburð-
irnir á sviðinu í stuttu máli þessir:
Fulltrúi frá mannúðarfjelagi,
Helena Glory, kemUr á skrifstofu
framkvæmdastjóra gervimanna-
verksmiðjunnar til þess að koma
því til leiðar, að gervimennirnir
fái betra atlæti og mannúðlegri
meðferð. En þeir eru vjelar sem
engar óskir hafa. í þessari verk-
smiðju, sem fyllir allan heiminn
af gervimönnum, eru sex yfir-
menn, framkvæmdastjórinn, yfir-
v j elfræðingur, líf eðlisfræðingur,
sálfræðingur, verslunarstjóri og
verkstjóri.
Helena giftist framkvæmdastjór-
anum og varð eftirlæti allra þess-
ara'fjelaga. Eftir 5 ár gerist næsti
þáttur. Þá hefir verksmiðjueyjan
verið sámbandslaus við umheim-
inn í viku. Þá koma uppreisnar-
gervimenn þúsundum saman, ráð-
ast að manneskjunum sem þar eru
og drepa þær, nema verkstjórann.
Meðan uppreisnarmenn eru að
umkringja þá, gerist margt sem
lýsir hugsunum og hugmynda-
flugi höfundar, og varpar kast-
Jjósi yfir ýms þjóðfjelagsleg við-
fangsefni, er yrði of langt upp að
telja.
*
jer verður eigi fjölyrt um
meðferð Leikfjelagsins á
leikrjti þessu. Það sem þarna er
sagt, gefur áhorfanda tilefni til
svo margvíslegra hugsana, að efn-
ið sjálft er nægilega mikilfeng-
legt, til þess að halda athyglinni
sívakandi. En þegar tillit er tekið
til þess hve leikrit þetta er að efni
langt frá því venjulega, og aðbún-
aður allur á leiksviðinu langt frá
því að hann nægi til þess að sýna
nokkuð sem stórfenglegt er að
ytra útliti, er engin furða, þó eigi
hafi tekist eins. vel um meðferð
leikritsins eins og leikritið sjálft
á tfkilið.
Það er varla hægt. að benda á
neinn leikanda, sem þar skaraði
fram úr samleikendum sínum.
Brynjólfur Jóhannesson hefir hið
mikla hlutverk framkvæmdastjór-
ans. Leikur hans er þar sem oftar*
fjörlegur og hressilegur. En svo
vantar hann líka dýptina, alvörn-
þungann. Hann hespar af það sem ;
segja skal og gera. Ilann hefir ;
hæfileika tiJ þess að vanda sig
betur. Emilía Borg leikur Helenu
Glory. Hún fer smekklega með
hlutverk sitt. En áhorfandinn get-
ur óskað eftir að verða var við
meiri innri glóð tilfinninga henn-
ar.
Guðlaugur Guðmundsson leikur
vjelfræðinginn, Þorsteinn 0. Step-
hensen lífeðlisfræðinginn, Jón Að-
ils sálfræðinginn, Indriði Waage
verslunarst j órann.
Leikur þeirra er ekkert. sjer-
lega umtalsverður, þeir skila hver
sínu hlutverki sómasamlega, án
þess að vekja aðdáun, Efí þegáf
þeir eru allir sex verksmiðjuyfir-
mennirnir hvítkJæddir á sviðinu og
henda á niilli sínJuiyttnuin spak-
mæluni, sem snerta meira og
minna þjóðfjelagsmál, og megin-
þráð leikritsins, fer heildarsvjpur
samleiksins stundum út um þúfur.
Hlutverk Ragnars E. Kvaran er
lítið þangað til hann er orðinn
einn eftir í „Eftirleiknum“. Á ður
er hans aðalstarf að hlusta, og
gerir liann það oft með þeim hætti,
að hann segir sitthvað með svip-
brigðum í þögninni.
I „EftirJeik“ tekur hann á, til
að sýna örvænting sína yfir fá-
nýti gervimanna og afdrifum
mannkyns. Þó missir hann stund-
um marks — ,,yfirdrífur“.
KvöJdið :sem jeg sá leik þenna,
kom það fyrir stundum, að leik-
húsgestir hlógu að hinum alvöru-
þrungnustu atburðum leikrits.ins.
Jeg gerði mjer ekki fyllilega Jjóst,
hverju frekar varð kent um, mis-
tökum á sviðinu eða misskilningi
á bekkjunum.
V. Stef.
GJÖLD BÆJARSJÓÐS.
FRAMH. AF FJÓKÐU SÍÐU.
kvæmda í ríkisins þágu. Kostnað-
urinn við þær framkvæmdir nam
165 þús. kr. af atvínnubótafjejiu
1935.
10. Niðurlag. Þeir gjaldaliðir
bæjarsjóðs, sem hækkað hafa
meira en sem svarar íbúafjölgun-
inni í bænum eða vexti bæjarins,
eru: Styrkþegaframfærið, barna-
fræðslan, ýms lýðmál, stofnkostn-
aður gatna og lögreglan. Hlut-
fallslega við íbúatöluna hafa auk-
ist: Viðhald gatna og vaxta-
greiðslur. Kostnaðarliðir, sem auk
ist hafa minna en sem svarar
fjölgun íbúanna, eru: Stjóm bæj-
armálefnanna og slökkviliðið.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónabaud ungfrú Þuríð-
ur Þórarinsdóttir, Gpðmundsson-
ar fiðluleikara, og Guðmundur
Ágústsson bakari. Ileimili ungu
hjónanna er á Tryggvagötu 6.
Hjónaefni. Trúlofun sína hafa
opinberað ungfrú Þórunn Björns-
dóttir í Svíadal í Skaftártungu og
Olafur Pjetursson, Búlandi.
Hitaveitan. Bæjarráð hefir falið
borgarstjóra að láta vinna að jarð-
borun við Reyki dag og nótt, ef
tök eru á.
Hjónaefni. 1 gær opinberuðu
trúJofun sína í Hafnarfirði ungfrú
Gyða Helgadóttir og Guðbjartur
Guðmundsson.
Gísli SiQurðsson
endurtekur enn,
vegna fjölda áskorana,
eftirhermui
í Gamla Bíó í dag kl. 4 ,e. m
Aðgöngumiðar í Gamla Bíó í da
kl. 2—4 e. m.
Hressandi hlátur lengir lífi?
Alríkisifefnan.
EFTIR
INGVAR SIGURÐSSON.
Hvaða vit, og livaða rjettlæti er í því, að tvö smá-kotríki, ein
og Holland og Belgía, skuli eiga geysimiklar og stórauðugar nýlenc
ur, með um 65 miljónum íbúa, en eitt mesta stórveldi heimsim
Þýskaland, skuli ekki eiga svo mikið sem eina smá-nýlendu, og meg
heldur aldrei eignast hana? Hvernig geta menn vænst þess, að heim:
friðurinn sje tryggur, meðan svo svívirðilegu ranglæti er beitt geg
einni sterkustu og mestu framfaraþjóð mannkynsins? Og hversu gíl
urlegan stríðsútbúnað kostar það ekki mannkynið, að viðhalda sv
ógurlegu -ranglæti til lengdar?
Nú er hún ko
I I
ÍKl
hin margeftirspurða Durafoen-permanentvjel.
Hárgrelðslustofa Guggu & Bíb
Aðalstræti 8. Sími 410í
(Inngangur frá Bröttugötu — fyrstu dyr).
*
Það tilkynnist hjer með að bróðir minn,
Þorsteinn Björnsson,
rithöfundur úr Bæ, andaðist þann 19. þessa mánaðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Jón Björnsson frá Bæ.
Jarðarför konunnar minnar, móður og tengdamóður okkar,
Guðrúnar Skaftadóttur,
fpr fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. maí og hefst með
húskveðju að heimili hennar, Vegamótastíg 9, klukkan 3 e. h.
Fyrir mína hönd, barna minna og tengdabarna.
Davíð Jóhannesson.
Jarðarför konunnar minnar,, móður fósturmóður, ömmu og
tengdamóður,
Guðríðar Þórðardóttur,
fer fram þriðjudaginn 25. þ. m. og hefst kl. 1 frá heimili sonar
okkar, Hverfisgötu 112.
Ólafur Kárason,
synir, fóstursonur, tengdadóttir og bamabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför mannsins míns og föður okkar,
Ingimundar Nóvembers Jónssonar.
Ingibjörg Guðmundsdóttir og böm.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför mannsins míns og föður okkar,
Páls Hafliðasonar skipstjóra.
Guðlaug Lúðvígsdóttir og börn.