Morgunblaðið - 23.05.1937, Side 7
Sunnudagur 23. maí 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók
VeÖrið (laugardagskvöld kl. 5):
Pyrir sunnan land helst víðáttu-
mikil lffigð, en hæð yfir Græn-
iandi. NA-átt unx alt land, veður-
hæð mest á V-landi, 8—9 vindstig.
Á A-landi hefir rignt dálítið í dag,
en veður annars verið þurt um alt
land. Sunnanlands er hlýtt í veðri,
7—14 stig, en aðeins 2 st. hiti um
NA-hluta landsins.
Veðurútlit í Rvík í dag: NA-
kaldi. Úrkomulaust.
Gunnar Thoroddsen alþingismað-
ur var meðal farþega á Esju í gær
að vestan.
Borgamesför Heimdallar. Kl. 10
f. h. í dag leggur Laxfoss af stað
í skemtiferð með fjelag ungra
Sjálfstæðismanna, Heimdall. Að-
•ókn er mikil að ferðinni, sem án
efa verður skemtileg ef gott verð-
ttr veður. í Borgarnesi verður
haldinn fundur og síðar um dag-
inn verður dansað í samkomuhús-
ínu. Hin vinsæla sumarhljómsveit,
sehi spilaði að Eiði í fyrra, verður
méð í förinni. Lagt verður af stað
stundvíslega klukkan 10.
Danskennaraprófi lauk Ellý,
íjördóttir Jóns heit. Þorlákssonar
mrgarstjóra, fyrir skemstu í
Aaupmannahöfn. Tók hún próf í
balett, plastik, steppdansi og
ikrobatik. Námið stundaði hún í
íkóla frú Johnnu Beitzel undir
iandleiðslu Hans Beck ballett-
neistara. Þykir þetta vel af sjer
rikið þegar þess er gætt að Ellý
ir aðeins 16 ára að aldri. Hún var
meðal farþega á Brúarfossi frá
Kaupmannahöfn í fyrrakvöld.
Guðspekifjelagar. Fundur í
Septímu þriðjudaginn 25. þ. m. kl.
8y2. Erindi: Wesak-hátíðin. Upp-
lestur.
Breiðholtsgirðingin verður smöl-
uð í dag, þeir fjáreigendur, sem
eiga fje sitt í girðingunni, eiga að
mæta um hádegi.
Sundnámskeið byrja að nýju í
Sundhöllinni á morgun og þriðju-
daginn. Sundnámskeið síðasta
mánaðar voru vel sótt og líkuðu
vel. Enn munu nokkrir geta kom-
ist að í sundkensluflokka á nám-
skeiðunum, sem eru að byrja.
Lögbergsferðir Strætisvagna. f
dag og framvegis á helgidögum
er fyrsta ferð kl. 8% árd., en ekki
kl. 9 eins og fjelagið auglýsti í
gær.
Kommandör Westergaard flyt-
ur fyrirlestur í þjóðkirkju Hafn-
arfjarðar á þriðjudaginn kl. 8
síðd.
Kommandör og frú Th. Wester-
gaard stjórna samkomum í dag.
Kl. 11 árd. helgunarsamkoma, kl.
4 útisamkoma á Lækjartorgi, kl.
8 síðd. hjálpræðissamkoma. Deild-
arstjórinn, ásamt fleiri foringjum
og liðsmönnum, tekur þátt í sam-
komunum. Lúðra- og strengja-
sveitin aðstoða. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði hefir opnað kosningaskrif-
stofu í Strandgötu 39 (áður útbú
Landsbanka íslands). Skrifstofan
er opin alla daga og þangað ættu
menn að snúa sjer viðvíkjandi Al-
þingiskosningunum. Sími 9228.
Eimskip. (jullfoss kom til Leith
kl. 8 í fyrrakvöld. Goðafoss var á
fsafirði í gær. Brúarfoss kom frá
útlöndum í fyrrinótt um kl. 1.
Dettifoss fór frá Hamborg í gær,
áleiðis til Hull. Lagarfoss fór frá
Kaupmannahöfn í fyrradag.
Farþegar með Brúarfossi frá út-
löndum í fyrrinótt: Magnús Sig-
urðsson bankastj. og frú, Tryggvi
Sveinbjörnsson og frú, Óli ísfeld,
Ragnheiður Lynge, Ellý Þorláks-
son, Valborg Einarsson, Magnús
Matthíasson, Þórður Jasonarson,
Jens Ólafsson, Þorgils ilngvarsson,
Hrefna Karlsdóttir, Hulda Dungal,
Halldór Pálsson, Loftur Júlíusson,
Einar Þorgrímsson, Jón Jónsson,
Sigurður Sigurðsson, Marteinn
Björnsson, Hermann Jónsson, Ey-
muudur Jónsson, Már Ríkarðsson,
Vjesteinn Guðmundsson, Þorbjörg
Þorgrímsdóttir, Jórunn Þorkels-
dóttir, Guðrún Sigurðsson, Jóhann
Jóhannesson.
Útvarpið:
Sunnudagur 23. maí.
9.45 Morguntónleíkar • a) ‘ Baöh:
Passacaglia og fiðíu-konsért í
d-moll; b) Mozarí: Sýmfónía í
Es-dúr.
14:00 Messa í Fríkirkjunni (sjera
Arni Sigurðsson).
I5il5 Miðdégistónleikar (plötur):
á’) Vorsðfiátán, eftir Beethoven ;
b) RÓmofisk tónlist.
18i3öv Babnatíthi.
19.20 ErindiPíanó-tónlistin, VI
(Emil Thoroddsen).
20.30 Erindi: Seljalíf í Notegi
(Jóhann Hannesson cand.
theol.).
20.55 „Mæðradagurinn“: Ávörp
og ræður; upplestur; söngur;
hl j óðf æraleikur.
22.10 Danslög (til kl. 24).
MÆÐRADAGURINN.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
þessa nauðsyn, og verði vel við
því, að kaupa mæðradags-blómið.
Annar liður í starfsemi mæðra-
dagsnefndarinnar er vikudvöl
mæðra að Laugarvatni. Hefir
nefndin í nokkur undanfarin ár
átt þar innhlaup, eina viku, síðla
sumars, er sumargestir aðrir hafa
verið þaðan farnir. Vonar nefnd-
in, að þurfa ekki að leggja þá
starfsemi niður. „Sæluvikan" að
Laugarvatni hefir verið eina til-
breytingin, sem sumarið hefir fært
flestum þeirra, sem þangað hafa
sótt. Við, sem erum fleyg og
frjáls, og getum að sumrinu lyft
okkur upp, vitum hversu indælt
það er, að geta komist eitthvað
burt úr bænum. Hvað mun þá
ekki hinum finnast, sem bundnar
eru þreytandi störfum og daglegu
amstri á barnaheimilum, með enga
eða ónóga hjálp, og oft í ljeleg-
um, sólarlitlum húsakynnum.
Sumarstarfsemi Mæðrastyrks-
nefndarinnar, báðir þessir þættir
hennar, hafá mikla þýðingu fyrir
heilbrigði þreyttra mæðra og
þroska barna, sem aðra tíma árs-
ins búa við umhverfi, sem ekki er
heilsu þeirra heillavænlegt. Því
hið rjetta umhverfi hvers barns,
þess eðlilegi leikvöllur, er ekki
gatan, rykug eða forug, heldur
guðs græn náttúra, hvort heldur
er í sól eða regni. Þangað sækja
þeir, sem þreyttir eru eða þroska-
vana, þrótt til hins dimma og
dapra vetrar; hún hefir besta end
úrnæringuna að bjóða, bæði öldn-
ixm og ungum.
Innilega þakka jeg þeim er glöddu mig með gjöfum og %
i
[• skeytum á áttræðisafmæli mínu.
i
í
Sophus Holm. X
i’
Einasti norski bankinn
með skrlfstofur í
Bergen, Oslo
og Haugesund.
Stofnfje og varasjóðir
27.000.000 norskar kronui.
BERGENS PRIUATBANK
FRANKUN’S
Koladra{inælur,
Ýsudragnæfur,
, ‘yf ]FÍ
Dragnótatóg.
Oiafur Gíslason & Co. h.f.
Sími: 1370.
Þingvallaferðir
bfr jaðar.
Bifrcicfasfðð Sfeindórs.
Sími t*>SO (4 línurj.
7
Kosningar
standa nú fyrir dyrum.
Hin hyggna húsmóðir
kýs:
Að versla með allar sín-
ar nauðsynjar
Tföld
wsí sólskýli.
Fyrirliggjandi fjöldi tegunda. Saumum allar stærðir
og gerðir eftir því sem um er beðið. Ef þjer óskið
að fá yður sjerstaka gerð af tjaldi fyrir sumarið,
þá talið sem fvrst við okkur.
1<V> <•' vh ' -■
Skoðið tjöldin í búðarglugga okkar.
Geysir
Veiðarfæraverslunin.
«
Inga Lárusdóttir.