Morgunblaðið - 26.05.1937, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. maí 1937.
Konungur í Edwards-stólnum nieð kórónu á höfði t. h. Umhverfis hann biskupar, sem aðstoðuðu
við krýninguna. Að baki: lávarðar og aðrir tignir gestir. Lengst t. h. Elísabet drotning (situr). Að
baki henni stúka konungsfjölskyldunnar. U-VfJi. V'
FRANCO VILL BERJAST
TIL ÚRSLITA.
Enginn fulltrui frá Haile
Selassie í Genf.
FRÁ FRJETTARITARA YORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Það er nú haft eftir áreiðanlegum heim-
ilcium að Haile Selassie Ahyssiníukeis-
. ari muni ekki senda fulltrúa á þing
Þjóðabandalagsins sem hefst á morgun.
Þingið kemur saman til þess að veita Egyptum
upptöku í Þjóðabandalagið.
Eins og jeg símaði í gær, þá er búist við að Bretar og
Frakkar muni reyna að koma í veg fyrir að kæra Val-
encia stjórnarinnar á hendur ítölum og Þjóðverjum um
hlutleysisbrot á Spáni, verði rædd á Þjóðabandalags-
þinginu.
Er búist við að kærunni verði vísað til hlutleysisnefndar-
innar.
Frjettir í stuttu máli.
Talsamband
við noröur-
heimskautið.
Loftfar Piccards
brennur.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN 1 GÆR.
ngar vistir hefir tekist að
flytja enn tii leiðangurs-
mannanna rússnesku, sem hafa
tekið sjer aðsetur 20 km. frá
Norðurheimskautinu.
» Fjórar rússneskar flugvjelar
bíða ferðbúnar á Rudolfeyju
og eiga þær að flytja vistir til
leiðangursmanna en hafa ekki
komist af stað vegna stórhríðar.
Rússarnir við Norðurheims-
skautið hafa meðferðis talstöð
og mún því bráðlega verða
komið á talsambandi milli Norð-
urheimskautáins og umheimsins.
*
LOFTFAR
PICCARDS
iccard, hinn kunni belgíski
hálofta-flugmaður, komst
ekki upp í háloftin í morgun
eins og hann hafði ráðgert.
Skömmu áður en hann ætl-
aði að leggja af stað, brann loft
far hans.
Þetta var sama loftfarið sem
hann notaði 1932. Ætlaði Picc-
ard að fylla loftbelginn með
upphituðu lofti.
Þegar verið var að hita loft-
ið, kviknaði í klæði Ioftbelgs-
ins, og brann hann án þess
að nokkuð yrði að gert.
Hvorki Piccard, nje aðra sem
þhrna voru, sakaði.
*
Blum getur ekki
skapað vinnufrið.
Frakklandi hefir verið
stofnuð ,,frelsisfylking“, er
hefir að markmiði að steypa
alþýðufylkingarstjórninni. —
Stofnandi og forustumaður
fylkingarinnar er Doriot, fyr-
verandi sósíalisti, sem klauf
flokksbrot með sjer út úr sósí-
alistaflokknum þegar hann
stofnaði nýjan flokk. (Einkask.)
Fundur til stofnunar „frelsis-
fylkingunni" var haldinn í gær-
kvöldi. Ðe la Roque, greifi, leið-
togi fascista, er sagður vera að
hugsa um að taka höndum sam-
an við aðra flokka um myndun
hinnar nýju „frelsisfylkingar“.
Hafnarverkamenn í Mar-
seilles hafa sent nefnd á
fund Blumstjórnarinnar til
þess að kref jast 40 stunda
vinnuviku við hafnarvinnu.
Hafnarverkamennirnir gerðu
verkfall í gær. Verkföll brutust
þá einnig út við hafnirnar í
Havre og víðar. í Havre bíða
nú 50 skip eftir afgreiðslu.
Sikpshöfnin á „Normandie“
gekk í lið með verkfallsmönn-
um, þegar skipið kom þangað
í gærkvöldi. (FÚ)
Bretar virðast ekki enn þá
hafa gefið upp vonina um að
takast megi að koma á vopna-
liljei á Spáni, enda þótt lík-
urnar fyrir því fari stöðugt
minkandi.
Uppreisnarmenn virðast
staðráðnir í að berjast til
þrautar.
„Sáttaumleitanir koma ekki
til greina“, sagði einn af full-
trúum uppreisnarmanna í Sala-
manca í útvarpið í gærkvöldi
(skv. Lundúnafregn FÚ).
Ennþá hafa ítalir og Sovjet-
Rússland ekki sent svör við
málaleitunum bresku stjórnar-
innar viðvíkjandi hugsanlegu
Vopnahljei á Spáni.
MÓTMÆLI
FRANCO
London í gær. FÚ.
Franco hefir sent Þjóða-
bandaiagsráðinu mótmæli
gegn því, að Del Vayo sje
leyft að taka þátt í fundi
þess í Genf, sem fulltrúa
Spánar.
Hann segir, að Del Vayo sje
ekki fulltrúi neinnar stjórnar,
heldur eingöngu erindreki an-
arkista og kommúnista og ann-
ara „rauðra“ flokka.
En sú stjórn er sitji í Valen-
cia og kalli sig stjórn Spánar,
hafi ffyrirgert öllum rjetti til
þess að bera það nafn, þar sem
hún hafi brotið alþjóðalög og
stjórnarskrá hins spánska ríkis.
Frá vígstöðvunum á Spáni
hafa litlar sem engar frjett
ir borist í dag.
Svo virðist sem uppreisnar-
mönnum miði nokkuð áfram í
áttina til Bilbao, að suðaustan.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins er í Varðarhúsinu.
Skrifstofan er opin allan daginn.
Þar geta menn fengið allar upp-
lýsingar kosningunmu viðvíkj-
andi. Símar skrifstofunnar eru
2339 og 2907.
—Jon Lindberoh—
eignast bróður.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM
KHÖFN 1 GÆR.
or», sonur Charles Lind-
berghs, hefir eignast
bróður. Frú Lindbergh fædd-
ist sonur á fæðingarstöð í
London 13. þ. m.
Móðirin og 'barnið eru bæði
við góða heilsu.
Fæðingunni hefir verið
haldið leyndri fram til þessa.
Hafa verið gerðar víðtæk-
ar ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir að aðrir en
þeir, sem brýní erindi eiga,
komist inn á fæðingarstöðina.
Aftökur I landi Stalins
11 manns í gær.
London í gær. FÚ.
Eliefu umsjónarmenn við
rússnesku jámbrautina í
Austur-Síberíu hafa verið
teknir af lífi, samkvæmt
tilkynningu sem birt var í
Moskva í dag.
Voru þeir allir sakaðir
um að hafa unnið að
skemdarstarfsemi við járn-
brautina, og hafa verið í
þjónustu japönsku njósna-
skrifstofunnar.
Karfaveiðar ganga stirðlega
enn, að því er hlaðinu var símað
að vestan í gær. Sífeld hryssings-
tíð á Hala og íshrafl þar á sveiini.
Meiri mðgu-
leikar á þýskum
markaði.
Breski markaðurinn
yfirfyltur,
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
sambandi við heim-
sókn Sandlers (ut-
anríkismálaráðherra
Svía) hjá von Neurath,
utanríkismálaráðherra
Þjóðverja, birtir blað
Görings Essener Nation-
alzeitung harðorða árás
á stefnu Oslóríkjanna í
viðskiftamálum.
Sandler átti tal við von
Neurath í gær.
Einhverntíma á næstunni er
gert ráð fyrir að Munck utan-
ríkisráÓherra Dana fari í heim-
sókn til Berlín og mun hann
einnig ræða við von Neurath.
„Essener Nationalzeitung“
segir að pólitík Oslóríkjanna
sje vinveitt Bretum en fjand-
samleg Þjóðverjum.
Þessi pólitík getur á eng-
an hátt samrýmst hlutleys-
isyfirlýsingu þessara ríkja,
segir biaðið.
Blaðið heldur því fram, að
möguleikarnir sje meiri fyrir
Oslóríkin að reyna að auka út-
flutning sinn á þýskan markað,
þar sem vöruþörfin sje rík,
heldur en á breskan markað,
sem yfirfullur sje af vörum frá
hinum bresku samveldislöndum.
DÓMARARNIR LÁTA
UNDAN ROOSEVELT.
London í gær. FÚ.
æstirjettur Bandaríkjanna
úrskurðaði löglega í
gær löggjöf Roosevelts stjórn-
arinnar um ellistyrki, með sjö
atkvæðum gegn tveimur.
Er þetta tólfti úrskurðurinn
sem hæstirjettur fellir í málum
er höfðuð hafa verið gegn
stjórninni út af viðreisnarlög-
gjöfinni, siðan Roosevelt lagði
fram frumvarp sitt um endur-
skipulagningu dómstólanna, og
hafa allir þessir 12 úrskurðir
verið stjórninni í vii.
Fimleikaflokkur úr Glímufje-
laginu Armann sýndu í gærkvöldi
á íþróttavellinum. Klukkan 8
hófst lúðramúsik á Austurvelli og
safnaðist þar fjöldi manns sam-
an. Klukkan rúmlega 8(4 var
gengið í skrúðgöngu frá Austur-
velli suður á íþróttavöll- Fjórir
flokkar sýndu, teípnaflokkur og
drengjaflokkur undir stjórn Vign-
is Andrjessonar og úrvalsflokk-
ur kvenna og karla undir stjórn
Jóns Þorsteinssonar. Fimleika-
flokkar þessir tóku þátt í Fim-
leikamóti íslands fyrir skemstu.
Fimleikasýningarnar tókust allar
vel og snmar prýðilega. Áhorfend
ur voru margir, en hefðu mátt
vera fleiri.