Morgunblaðið - 26.05.1937, Blaðsíða 7
7
Miðvikudagur 26. maí 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Þegar Haraldur lúfa vann þjóð sinni það óheillaverk, að skerða
óðals- og umráðarjett forfeðra vorra yfir jörðum þeirra í Noregi, flúðu
^ -
Samkomuhús Sfálf§tæð>smanna í Ve^fmannaeyjum.
HIÐ glæsilega samkomuhús,
sem Vestmannaeyingar eru
að reisa sjer fyrir forgöngu Sjálf
stæðismanna í Eyjum, kemst und
ir þak núna um mánaðamótin, en
fullgert mun húsið verða á þessu
ári.
Unnið hefir verið við byggingu
hússins síðan í októbermánuði í
fyrrahaust og verður allri steypu-
vinnu við það lokið í þessari viku.
Þessi bygging skapaði töluverða
vinnu í Eyjum í vetur.
Grísli \Víum, frjettaritari Morg-
unblaðsins í Vestmannaeyjum, er
staddur hjer í bærmm þessa viku
í erindum fyrir samkomuhúsið.
þeir land og settust að hjer.
Vilji bænda til frjálsrar eignar á jörðum sínum, er upphaf Is-
landshygðar. Þenna þjóðvilja íslendinga ætla rauðu flokkarnir nú að
hrjóta á bak aftur, með hinni svívirðilegu 17. grein Jarðræktarlag-
anna, sem lögfestir ítök ríkisvaldsins í öllum jörðum, er njóta styrks
vegna unninna jarðabóta.
Lærisveinn sósíalismans, Hermann Jónasson, er framkvæmdastjóri
jarðránsins, er fylgja á eftir hverri jarðabót, sem unnin verð-
ur meðan rauðliðar ráða. (Skv. 17. gr. jarðræktarlaganna).
Kirkjubygging á Skólavörðuhæð
og kirkjulíf bæjarbúa.
Frá aðalsafnaðarfundi.
Aðalsafnaðarfundir hjer í bæ
vekja oft fremur litla eftir-
tekt, og eru sjaldan fjölmennir,
meðfram líklega af því að þeir
eiga samkvæmt gömluin lögum að
háldast á vorin þegar kaupstaðar-
búar kjósa fremur útivist en
fundahöld.
Safnaðarfundurinn, sem lialdinn'
var í dómkirkjunni á sunnudaginn
var, var þó sæmilega sóttur, og
umræður urðu þar svo fjörugar,
að afráðið var eftir 3 stundir að
fresta fundi, og verður framhalds-
fundur haldinn eftir fáa daga.
Umræður snerust aðallega um
byggingu nýrrar dómkirkju á
Skólavörðuhæð og kirkjulegt starf
í úthverfum bæjarins.
í kirkjubyggingarsjóði eru nú
taldar um 65.500 kr., en þá eru
veðdeildarbrjef sjóðsins, um 49
þús. kr., talin með fullu nafn-
verði.
Samþykt var þessi tillaga:
„Þar sem landsstjórnin hefir nú
falið húsameistara ríkisins að gera
uppdrátt af hinni væntanlegu
kirkju á Skólavörðuhseðinni vill
aðalsafnaðarfundur dómkirkju-
safnaðarins leyfa sjer að beiðast
þess hjer með, að bæjarstjórnin
ákveði fyrir þessa kirkju hið allra
fyrsta nægilega stórt svæðið efst á
hæðinni, þar sem henni jafnan
hefir verið ætlað að standa. —
Fundurinn væntir þess, að staður-
inn verði nánar ákveðinn í sam-
ráði við ráðuneyti og sóknar-
nefnd“.
I vetur sem leið hefir sóknar-
nefnd sjeð um talsverð kirkjuleg
sforf í úthverfum bæjarins. Cand.
theol. Gísli Brynjólfsson hefir
flutt guðsþjónustu í Mýrarhúsa-
skóla. Þeir eand. theOl. Jóhann
Hannesson og Helgi Tryggvason
kennari o. fl. hafa haklið barna-
guðsþjónustur í barnaskólaliúsi
við Skerjafjörð, og síra Garðar
Svavarsson hefir bæði flutt guðs-
þjónustur í Laugarnesskóla og
húsvitjað í því skólahverfi. Við
barnaguðsþjónustur hefir eand.
theol. Magnús Runólfsson starfað
með honum.
Er vakinn talsverður áhugi hjá
fólki þar inn frá, um að fá síra
Garðar að starfa þgr áfram, og
til að verða sjerstakur og sjálf-
stæður söfnuður.
Sóknarnefnd hefir þegar varið
því fje, sem hún má, til þessa
starfs, en nýlega hefir henni bor-
ist nokkur styrkur til starfsins
frá kirkjuráði, og fyrirheiti um
styrk til prestslauna frá kirkju-
málaráðherra.
Aðalerfiðleikarnir sem stendur
eru húsnæðisleysi, því ýmsra hluta
vegna er skólastofan, sem notuð
hefir verið, óheppileg þegar að-
sókn fer sívaxandi að guðsþjón-
ustunum. %
Vóru skoðanir nokkuð skiftar á
fundinum um hvort sóknarnefnd
dómkirkjusafnaðar skyldi reyna
að koma þar upp bráðabirgða-
kirkju í sumar eða hitt, að fyrst
skyldi hin nýja Laugarnessókn
viðurkend af kirkjustjórn og sókn
arnefnd hennar, svo gangast fyrir
kirkjubyggingu með góðri aðstoð
dómkirkjunefndarinnar. Komu
fram einar 4 tillögur í því máli,
en atkvæðagreiðslu um þær allar
var frestað og óskað eftir að for-
göngumenn gætu komið sjer sam-
an um sameiginlegar tillögur fyrir
framhaldsfundinn.
S. Á. Gíslason.
Fánaliðsfundur verður haldinn
í' Varðarhúsinu kl. 81/2 í kvöld.
Allir fánaliðsmenn eiga að mæta
á fundinum. Nokkur mál, sem
þurfa skjótrar iirlausnar, verða
tekin fyrir á fundinum. Þá verða
sýndar myndir frá Borgarnesför-
inni og úr ferðinni til Eyrarbakka
og Stokkseyrar.
E-Iistinn er listi Siálfstæð-
isflokksins.
Qagbók
Veðrið í gær (þriðjud. kl. 17):
Vindstaða er víðast milli N og A
hjer á landi og vindur yfirleitt
hægur. Á SA-landi og Austfjörð-
um er skýjað loft, en annarsstað-
ar bjartviðri. Hiti er 5 stig á NA-
og A-lándi, annars 8—12 st. Fyr-
ir sunnan land ög vestan við Bret
landseyjar helst allstór lægð, en
mjög hægfara.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Stilt og bjart veður.
E-listinn er listi Siálfstæð-
isflokksins.
Hressingarskálagarðurinn við
Austurstræti tekur daglega mikl-
um framförum og er nú orðinn
algrænn. Undanfarna góðviðris-
daga hefir fjÖldi manns komið í
garðinn til að njóta fegurðarinn-
ar ‘og fá „sjér Tíressingu.
Hj’úskapur. S.l. laugardag voru
géfiiV samái) í hjónaband af síra
O. J. Olsen ungfrú Ragnheiður P.
Þórólfsdóiúr og Guðmundur A.
Bjarnason. Heimili ungu hjónanna
er á Bergstaðastræti 9. *
Farþegar með „Brúarfossi“
vestur og norður í gærkvöldi:
Richard Thors forstjóri, Tryggvi
Sveinbjörnsson m. frú, Jakob
Hafstein, Jóhann Hafstein, Jón
Kristinn Hafstein, Davíð Stefáns-
son skáld, Bára Ólafsdóttir, Pjet-
ur Magnússon og frú, Ólafur
Þórðarson, Markús ívarsson,
Petrína Jónsdóttir, frú S. Christ-
ensen, Sig. Kristinsson, Helgi
Guðmundsson, Ásgeir Matthías-
son, Bjarnfr. Bjarnadóttir, Málfr.
Árnadóttir, Ásg. Ásgeirsson, Þórð
ur Þorbjarnarson, Sig. Thorodd-
sen, Ingólfur Espholin o. m. fl.
Delfinus kom hingað í gær
morgun og fór í nótt til Borgar-
ness.
Ferðafjelag íslands biður þá
fjelagsmenn, sem ef til vill hafa
ekki fengið árbók fjelagsins 1936,
að gjöra svo vel og gjöra aðvart
gjaldkera fjelagsins Kr. Ó. Skag-
fjörð, Túngötu 5. Þá eru nýir fje-
lagar beðnir að snúa sjer til hans.
Eimskip. Gullfoss kom til Kaup
mannahafnar í gær. Goðafoss fór
frá Sauðárkróki í gær áleiðis til
ísafjarðar. Brúarfoss fór vestur
óg norður í gærkvöldi kl. 8. Detti
foss fór frá Hull í gær, áleiðis til
Vestmannaeyja. Lagarfoss kom til
Leith í gærmorgun. Selfoss fór
frá Hull í gær áleiðis til Leith.
Sjálfstæðismenn, sem vita af
flokksmönnum er eiga kosningar-
rjett í öðrum kjördæmum en þeir
dvelja í nú eða koma til að dvelja
í fyrir kjördag, eru ámintir um
að láta kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Varðarhúsinu
\ita sem fyrst. Símar 2339 og 2907
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði hefir opna kosningaskrif-
stofu í Strandgötu 39 (áður útbú
Landsbanka íslands). Skrifstöfan
er opin alla daga og þangað ættu
menn að snúa sjer viðvíkjandi Al-
þingiskosningunum. Sími 9228.
Sumarskemtistaður Sjálfstæðis-
manna að Eiði. Nú fer að Hða að
þeim tíma að sumarskemtistaður
Sjálfstæðismanna að Eiði í Gufu-
nesi verði tekinn í notkun. Munu
Sjálfstæðismenn og konur, sem
minnaÁ sólardaganna þar í fyrra
sumar, alment fagna því. En ým-
islegt þarf að lagfæra og bæta áð-
ur en hægt er að halda skemtanir
þar innfrá. í fyrra unnu þar marg
ir sjálfboðaliðar, og nú er þess
vænst, að menn, sem tíma hafa til
að leggja fram sjálfboðavinnu,
gefi sig fram við B.jariia Sigurðs-
son í Varðarhúsinu næstu daga.
Hvöt, Sjálfstæðiskvennafjelag-
ið, heldur fund í Oddfellowhús-
inu í kvöld kl. 8%-
Millisíld veiddist nýlega inni á
Polli á ísafirði, um 100 tunnur í
landnót, Hefir slík veiði ekki feng
ist þar í mörg ár.
Sjálfstæðismexm í Vestmanna-
eyjum hafa opnað þar kosninga-
skrifstofu á Vestmannabraut 30.
Trúlofun sína opinberuðu í gær
ungfrú Helga Egilson og Rögn-
valdur Sigurjónsson.
Fiskbúðin á Leifsgötu 32 hefir
síma 3506. í auglýsingu frá fisk-
búðinni í blaðinu í gær hafði mis
! prentast símanúmerið.
Utvarpið:
Miðvikudagur 26. maí.
19.20 Útvarpshljómsveitin leikur.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Ættgengi og áhrif
lífsskilyrða, II (Ingólfur Davíðs-
son mágister).
20.55 Tónlleikar ; Tórd istarskólans.
21.25 Hljómplötúr: Endurtekin
lög (til kl. 22).
Síldarverksmiðjurnar.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
smiðjanna hafa ekki verið aukin
með nýbyggingum.
Á síðustu stundu nú í vor var
V' . r: ••.!! \ ■ TT- ■
ákveðið að byggja nýja síldarþró
á Siglufirði, sem á að taka aðeins
20 þús. mál. ÞrÓin v.erður miklu
dýrari en hún þyrfti að verða,
vegna þess hve seint var ákveðið
að byggja hana. Byggingarefni
er keypt, hvar sem það fæst, dýr-
utp dómum og. unnið er við bygg-
ingu hennar í eftirvinnu, samt er
óvíst, að þróin verði tilbúin fyrir
síldartíma. — Einnig er talið vafa-
samt, hversu hentugt fyrirkomu-
lag sje á innrjettingu hennar.
Smátt fjell nú úr hendi, þegar
þessi þróarbygging er œesta „af-
rek“ stjórnarflokkanna til aukn-
ingar á síldarverksmiðjum.
Þessi aukning er hverfandi. En
vegna byggingar verksmiðjunnar
á Hjalteyri og viðbótar á Djúpa-
víkurverksmiðjunni, ásamt hækk-
un bræðslusíldarverðsins, fara
fleiri skip á síldveiðar í sumar en
nokkru sinni áður.
Sveinn Benediktsson.
Til brúðargjafa:
POSTULÍNS matar- og kaffisiell. KERAMIK
te-, kaffi-, ávaxtasett, og ótal margt fleira.
KRISTALL handunninn, mikið úrval.
K. Einarssom & Björnsson.
Bankastræíi 11.
rt.öi'
• Timburverslun
• P. W. Jaccbsen & Söu.
2 Stofnuð 1824. gur:
£ Bímnefni: Granfuru - Carl-Lundsgade Köbenhavn C.
W Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
W mannahöfn. - Eik til skipasmíða. — Einnig heila
4) skipsfarma frá Svíþjóð.
Hefi verslað við ísland í meir en 80 ár.