Morgunblaðið - 22.09.1937, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Miðvikudagur 22. sept. 1937.
Þessi mynd er tekin á höfninni í Hong Kong, þar sem
austrið og vestrið mætast. Innan um nýtísku herskip Vestur-
landaþjóða liggja kínverskar djúnker.
Trúnaðarmannaráðið
óánægt með gerðir
D agsbrúnarst j órnar.
Fól henni samt að fara
með málið áfram.
Alt stóð við það sama í gærdag í verkfallinu hjá
Kol & Salt, en samningaumleitanir fóru fram
í gærkvöldi.
Kolaskipið „Grana“ liggur hjer ennþá. Skipstjórinn
átti í gær tal við eigendur skipsins, sem sögðu honum að
bíð'a eftir nánari fyrirskipan, þar sem þeir væru að reyna
fyrir sjer í Noregi að selja kolin, sem í skipinu eru.
Heimsækja skfðakappar Norður-
landa SkíOafjelag Reykjavfkur
ð 25 ðra afmæli fjelagsins?
Auka þarf gestarúm skíða-
skálans í Hveradölum.
Stjórn Skíðafjelagsins ætlar ekki að gera það
endaslept að efla skíðaíþrótt Reykvíkinga. For-
maður fjelgasins, L. H. Múller, hefir ýmsar
fyrirætlanir f jelagsskapnum og skíðaíþróttinni til eflingar.
I gær bauð fjelagsstjórnin blaðamönnum og útvarps-
stjóra upp í Skíðaskála til hádegisverðar, og notaðí það
tækifæri, til þess að kynna þeim ýmislegt um fyrirætlanir
fjelagsins.
Kristján Ó. Skagfjörð bauð gestina velkomna. En því næst
flutti L. H. Miiller ræðu, þar sem hann m. a. lýsti hlutverki
skíðaíþróttarinnar meðal þjóðarinnar, hvernig hún hefir m. a.
fært fjöllin nær Reykvíkingum, hvernig fleiri og fleiri eru það
með hverju ári hjer í bæ, sem nota sjer skíðaferðir til þess að
bæta heilsu sína, auka þrótt sinn, líkamlegan sem andlegan.
Hvernig skíðaferðir og fjallalíf eru verulegur þáttur í því, að
móta skapgerð frjálshuga, þróttmikillar æsku.
Trúnaðarmannaráð Dagsbrúnar
Selt fund um þetta verkfallsmál
í fyrrakvöld. Á fundinum mættu
30—40 menn, af um 100, sem í
ráðinu eru. Þrír stjórnendur Dags-
brúnar (af 5) mættu: á fundinum.
Formaður Dagsbrúnar, Guðm.
Ó. Guðmundsson, skýrði málið
fyrir fundinum, en að öðru leyti
ljet stjórn Dagsbrúnar ekki til
sín heyra á fundinum.
Aftur á móti komu fram á fund-
inum margar óánægjuraddir yfir
framkomu stjórnar Dagsbnmar og
frumhlaupi hennar í þessu máli.
Kom fram á fundinum van-
trauststállaga á stjórnina, fyrir af-
skiftin af málinu. En fyrir beiðni
Guðm. R. Oddssonar, sem taldi
nauðsynlegt, fjelagsins vegna, að
reyna að bjarga stjórninni út úr
málinu, var vantrauststillagan
feld. Yar svo stjórninni falið að
leysa deiluna hið fyrsta og henni
vottað fyrirfram traust í því efni.
Stjórn Dagsbrúnar fer því áfram
með þetta mál og, eftir fundinn í
fyrrakvöld verður að telja, að
hún vinni framvegis í umboði
Trúnaðarmannaráðs.
Stjórn Starfsmannafjel. Reykja-
víkurbæjar hafði í gær ekki borist
neitt svar frá kyndurum Gasstöðv-
— Sildveiðin —
Síldveiði í öllu landinu var
samkvæmt heimildum Fiski-
fjelags Islands: 18. sept.
1937 — 206.147 tunnur salt-
síld og 2.165.640 hektolítr-
ar bræöslusíld.
19. sept. 1936 — 242.746
tunnur saltsíld og 1.068.670
hektólítrar bræðslusíld.
21. sept. 1935 — 92.122
tunnur saltsíld og 549.741
hektólítrar bræðslusíld.
arinnar eða stjórn Dagsbrúnar við
þeim tilmælum, að ljetta verkfall-
inu af tafarlaust.
Silfurbrúðkaup áttu í gær hjóp-
in Björn Jósefsson og frú liovísa
Sigurðardóttir í Ilúsavík; Hafti
þau. aflað sjer almennra viusælda
hjeraðsbúa, í þau 19 ár er þau
hafa búið þar. Mintust Húsvíking-
ar heiður.sdags þeirra, með sjóð-
stofnun að fjárhæð 1100 krónur,
er bundinn sje við þeirra nafn.
Sjóðnum á að verja á sínum tíma
til röntgentækjakaupa ‘.‘yrir Húsa-
víkurspítala, en það er hjeraðs-
lækni sjerstakt áliugamál. (FÚ.).
Hraðkepni
í knattspyrnu
í öllum aldurs-
flokkum.
Morgunblaðið og Sig.
Halldórsson kaupm.
gefa verðlaunagripi
Kiiuttspyrnuráð Reykjavíkur
Sainþykti á fundi í fyrra-
dag, að stofna til hraðkepni í
knattspyrnú í öllum aldursflokk-
um, sagði formaður K. R. R., Guð-
jón Einarsson, mjer í gær.
Hraðkepnin fer fram með þeim
hætti, að I. og H. fl. keppa í %
klukkustund hvern leik, eða 15
mínútna hálfleik, en III. flokkur
20 mínútna leik.
Ákveðið er að keppa í III. fl.
fari fram n.k. sunnudag kl. 9%
f. h. og í I. fl. kl. 2 e. h. II. fl.
mun keppa sUnnudaginn 3. októ-
ber. Að sjálfsögðu taka öll Reykja
víkurfjelögin þátt: í þessari kepni.
Kept verður um sjerstaka verð-
launagripi í hverjum flokki og
gefur Morgunblaðið I. flokki bik-
ar, en Sig. Halldórsson kaupm. III.
flokki. Um verðlaun H. flokks er
ekki vitað ennþá. Auk þess fá sig-
urvegararnir í hverjum flokki
sjerstaka heiðurspeninga.
Hraðkepni í knattspyrnu er af-
ar skemtileg og hefir aðeins tvisv-
ar sinnum áður verið kept hjer á
þenna hátt áður.
Mörgum mun finnast gaman að
sjá öll fjelögin keppa hvert við
annað á 3 klukkustundum og sjá
sigurvegurunum afhent verðlaun-
in að leikslokum.
Alþingi kvatt saman
9, oktober.
Þingmenn stjórnar-
ftokkanna kvaddir
hingað viku áður.
ALÞINGI hefir verið kvatt
saman laugardaginn 9.
október næstkomandi.
Dagblað Tímamanna skýrir frá
því, að þingmenn Framsóknar-
flokksins muni verða kvaddir
hingað til bæjarins um mánaða-
mótin og sennilega muni þing-
menn Alþýðuflokksins koma um
líkt Jeyti.
Ástæðan til þess, að þingmenn
stjórilarflokkanna eru kvaddir
hingað áður en þing kemur sam-
an, er sú, að sögn stjórnarblað-
anna, að hefja á nú samninga-
umleitanir um framhaldandi
stjórnarsamvinnu. Hugmyndin er
að láta stjórnarflokkana vera
búna að ganga frá samningmn
þegar þing kemur saman.
Ekki hefir heyrst að þingmenn
Kommúnistaflokksins hafi verið
boðaðir hingað samtímis þing-
mönnum stjórnarflokkanna, en
það er eldti að marka, því að þeir
eru hjer í samningamakki við
Alþýðuflokkinn.
Hann beindi noklirum orðum til
blaða og litvarps fyrir stuðning
þann er Skíðafjelagið og skíða-
íþróttin hefði fengið þaðan.
Þá vakti það mikla athygli, er
hann gaf upplýsingar um það, að
von væri á erlendum skíðagörp-
um liingað á skíðamót, sem haldið
yrði á 25 ára afmæli Skíðafjelags-
ins í febrúar 1939.
L. H. Múller var í Osló í sumar.
Þar hitti hann forseta norslía
skíðasambandsins, Nygaard. Múll-
er talaði um það við liann, Jivort
ekki myndi vera hægt að fá
norska skíðamenn hingað á þetta
afmælismót fjelagsins. Tók hann
því vel.
Síðar komu skíðafrömuðir af
Norðurlönd'um saman á fund í
Helsingfors. Þar var rætt um að
sjá svo um, að hingað kæmu skíða-
menn við þetta tækifæri, einnig
frá Svíþjóð og Finnlandi.
Er ljóst, að með því að fá hing-
að erlenda skíðakappa, myndi það
verða til mikils lærdóms og hvatn-
ingar fyrir íslenska skíðamenn.
En vandi fylgir vegsemd hverri.
Til þess að geta tekið á móti mægi-
lega mörgum gestum í Skíðaskál-
anum í Hveradölum, þarf fje til
þess að útbúa öll gestaherbergin í
kjallara hússins. Áætlaður kostn-
aður við það er um 6000 krónur.
Skýrði Jón Ólafsson lögfræðing-
ur frá þeirri hlið málsins. Hann
er varamaður í stjórn Skíðafje-
lagsins.
Fjelagið hefir orðið fyrir mikl-
um óhöppum við hitalögn skálans,
sem hefir orðið mjög dýr. Enn
þarf að breyta henni gersamlega.
Rís fjelagið ekki undir þeim kostn
aði ef jafnframt á að búa gisti-
herbergi skálans til fulls. Þess
vegna þarf að efna til nýrrar fjár-
söfnunar fyrir fjelagið. Á það svo
almennum vinsældum að fagna
meðal bæjarbúa, að það ætti að
reynast auðvelt.
Dr. Símon Ágústsson flvtur út-
varpserindi í kvöld kl. 8V2 um
barnavernd og uppeldi vandræða-
barna.
Mentaskólaselið
að Reykjarkoti
verður reist
í haust.
g:ær fóru 10 nemendur úr
* 6. bekk Mentaskólans,
ásamt Steinjiór Sigjirðssyni
kennara, austur að Reykja-
koti í Ölfusi til bess að byrja
að g’rafa fyrir grunni skóla-
selsins. í dag fara 40 piltar
í viðbót austur til bess að
taka bátt í starfinu. Þessi
hópur vinnur bar eystra
fram yfir helgi.
Nemendur úr 4 efstu bekkjum
skóla-ns vinna þar eystra. Þeir fá
gistingu í skólanum í Hveragerði.
Eftir því sem Hálmi Hannesson
rektor skýrði - blaðinu frá í gær,
verður reynt að koma húsinu upp
í haust svo að það verði fokhelt.
Húsið verðpr úr timbri. Grunn-
flötur þess verður um 200 fer-
metrar. Það á að standa í túninu
á Reykjakoti, austan við lældnu,
sem rennur um túnið, en vestan
við hverinn í túninu.
Yfirsmiður við bygginguna verð
ur Kristinn Yigfússon.
Mikið vantar enn til þess að
nægilegt fje sje fyrir hendi til að
fullgera húsið. En bestu vonir eru
um, að fjeð fáist jafnóðum og
þess verður þörf.
ÞÚSUND HESTAR AF
HEYI FJÚKA.
IFljótshlíð telst mörmum til að
fokið hafi í ofviðrinu 31.
fyrra mánaðar 1000 hestburðir af
heyi.
Á Sámsstöðum fuku og um 40
tunnum af byggi í stormum á
tímabilinu frá 31. fyrra mánaðar
til 12. þessa mánaðar.
Alt þetta bygg var sexraðað en
af tvíraða byggi og höfrum fauk
ekltert og af rúgi mjög lítið. (FÚ.)