Morgunblaðið - 22.09.1937, Qupperneq 7
Miðvikudagur 22. sept. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Daabófc
D lEdda 59379266 — fjárhags-
»t.'. Listi í □ og hjá S.'. M.'. til
föstudagskvölds kl. 6.
Veðurútlit í Rvík í dag: N-gola
og bjartviðri, en þykknar upp með
kvöldinu.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5) :
Djúp lægð yfir hafinu milli ís-
lands og Bretlandseyja á hreyf-
ingu austur eftir. Vindur er A-
eða N-stæður um alt land og er
rigning norðan lands og austan, en
bjartviðri suðvestan lands. Við
Vestfirði og á ’annesjum norðan
lands er veðurhæð 5—6 vindstig.
Næturlæknir er í nótt Sveinn
Pjetursson, Eiríksgötu 19. Sími
1611. Næturvörður í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Haustfermingarböm síra Árna
Sigurðssonar eru heðin að koma
til viðtals í Fríkirkjuna' á morg-
un, íimtudag, kl. 5 síðdegis.
Frá Guðný Vigfúsdóttir, Kefla-
vík, á 55 ára afmæli í dag.
Trúlofun sína opinberuðu ný-
lega Erlendur Björnssón, stud.
jnr.* og ungfrú Katrín Jónsdóttir
frá Seyðisfirði.
Trúlofun sína hafa opinberað
Björn Björnsson, stud. theol., frá
Hnífsdal og ungfrú Emma Han-
sen, Sauðárkróki.
Þýskunámskeið. Um mánaðamót
byrjar dr. Bruno Kress þýsku-
námskeið. Hefir hann kent hjer
þýsku í mörg ár. íslensku talar
hann reiprennandi og er vel að
sjer í henni, eins og sjá má á því,
að hann hefir nýskeð gefið út ís-
lenska hljóðfræði á þýsku, mikið
rit og merkilegt.
Verslunarskólinn. Haustpróf
skólans byrja í dag. Kensla hefst
síðan um 1. október. Skólahúsið
hefir verið málað utan í sumar og
gerðar á því nokkrar breytingar
og bætur, utan liúss og innan.
Utvarpið:
Miðvikudagur 22. september.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Illjómplötur: Ljett lög.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Barnavernd og upp-
eldi vandræðabarna, I. (dr.
Símon Ágúslsson).
20.55 Utvarpshljómsveitin leikur.
21.25 TTljómplötur: Tvíleikur fyr-
ir fiðlu og píanó, eftir Schubert
(til kl. 22)'.
Sigfús Valdemarsson
prentari, fimtugur.
Sigfús Valdimarsson prentari á
fimtugsafmæli í dag.
Sigfús er meðal þeirra prentara,
sem lengst. hafa unnið við Morg-
unblaðið. Þegar jeg kom til blaðs-
ins 1. apríl 1924 hafði hann staðið
lengi í „Morgunblaðskróknum“,
sem kallaður er í „smiðjunni",
ýmist á dagvakt eða á kvöldvakt-
inni. Viðkynning oklrar var ekki
orðin löng, er jeg kyntist þeim
verkmanni vel, er ávalt vinnur
verk sitt umyrðalaust með ljúf-
mensltu og kostgæfni, enda má,
sem betur fer fyrir okkur blaða-
menn, hið sama segja um marga
af stjettarbræðrum hans. Hann
skiftir sjaldan skapi við verk sitt,
hvort heldur er á nótt’u eða degi,
og er slíkt mikilsvirði fyrir alla,
sem eru í starfi með honum. Uppá
síðkastið hefir verkaskifting leiðst
í það horf við blaðið, að Sigfús
hefir jafnan unnið á kvöldin að
handsetningu auglýsinga og setn-
ingu fyrirsagna. En til þeirrar
setningar eru nú gerðar meiri
kröfur en áður tíðkaðist. Verkleg
framkvæmd þeirrar nýbreytni,
sem orðið hefir í setningu fyrir-
sagna blaðsins, hefir fyrst og
fremst hvílt á honum. En til þess
að sú vinna gangi jafnan svo
greiðlega sem óskað er, þarf að
leysa hana af hendi með lip'urð og
hugkvæmni. Er mjer ijúft að nota
þetta tækifæri til að flytja Sig-
fúsi bestu þakkir okkar Morgun-
blaðsmanna fyrir ánægjulegt og
gott samstarf undanfarin ár.
Starfsbræður hans í ísafoldarprent
smiðju efna til afmælisfagnaðar
fyrir hann í dag. Er það að mak-
legleikum, að honum sje sýndur sá
heiður. En jafnframt sýnir þetta
samhug og bræðraþel það, sem
ríkir meðal prentarastjettarinnar
og sem er sómi prentara og styrk-
ur þeirra. V. Stef.
Glímuf jelagið Ármann heldur
sína árlegu hlutaveltu næstkom-
andi sumiudag í K. R.-húsinu, og
mun verða í mörgu vel til hennar
vandað. Eins og ávalt er á hluta-
veltum Ármanns verða þarna
margir góðir og gagnlegir munir,
þó eru margir fjelagar og aðrir
velunnarar fjelagsins sem enn
hafa ekki skilað munum á hluta-
veltuna, og eru þeir beðnir að
koma þeim til Þórarins Magnús-
sonar, Frakkastíg 13.
Póstmálaráðstefnan hefst í
Stokkhólmi í dag. Mætir þar Guð-
mundur Hlíðdal póst- og síma-
málastjóri fyrir hönd Islands.
Verða þar tekin til meðferðar ýms
málefni, er varða póstviðskifti
milli Norðurlandanna innbyrðis.
(FÚ.).
Hvað líður
bálstofunni?
Svo spyrja margir. Svarið er
þetta: Bálfarafjelagið hefir feng-
ið hentuga lóð undir bálstofuna,
á Sunnuhvolstúni. Húsameistari
hefir gert uppdrátt að stofnun-
inn, sem verður ekki eingöngu
bálstofa, heldur jafnframt lík-
geymsla fyrir bæinn. En hún er
nú engin til. Fjelagsstjórnin hefir
gert áform um 3 eða 4 ára fjár-
söfnun. Fyrsta framlag Bæjar-
sjóðs Reykjavíkur ■— tíu þúsund
krónur — er fengið á þessu ári,
en gegn tvöföldu.framlagi annars-
staðar frá. Fj elagsst,jórnin gerir
sjer vonir um að . Alþingi muni
veita íjafn mikið sem bæjarsjóður.
En það sem á yantar — kr. 10
þús. — verður fjelagið að geta
lagt fram fyrirnæstu áramót.
Þess er vænst, að hinir mörgn
fylgjendur þessa máls leggi fram
fje með því:
1. Gerast æfifjælagar gegn 10
kr. gjaldi í eitt skifti fyrir öll.
2. Kaupa bÚlfaraskírteini á kr.
100.0D, sem tryggir ókeypis
brenslu síðar (má greiðast með
afborgunum).
3. Gefa peningaupphæðir til bál-
stofunnar,
Allar upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Bálfarafjelagsins,' Hafn
arstræti 5.
Bygging bálstofu er menning-
armál, og eykst þeirri hreyfingu
mjög fylgi erlendis. Iijer í
Reykjavík mun Bálstofan lækka
útfararkostnað um meira en helm-
ing, (Tilk. frá Bálfarafjelagi fs-
lands. — FB.)
Frú Kristín Bjarna-
dóttir, sextug.
Morgunkveðja frá bömum hennar
á sextugastá afmælisdegi hemiar
13. sept. 1937.
Góðan daginn, mamma mín,
mæla af hjarta börnin þín,
þínar dætur, þínir synir,
þímr ótalmörgu vinir,
blessa þig og þakka þjer
það í dag sem liðið er,
sextíu ára sigurstarf,
sextugfaldan móðurarf!
Því enginn veit um íslands slóðir
átján barna betri móðir.
Engin móðir er sem þú
í ást og kærleik, von og trú!
Hafðu þökk fyrir störfin öll og
stritið,
störfin fyrir barna þinni vitið.
Hafðu þökk fyrir gráts og gleði-
stundir
og gjörvalt það, sem hönd þín
ljetti mndir.
Hjartans þakkir, góða göfga
mamma.
Guð þig blessi í endir sextuganna.
Frá börnum.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Brúarfoss er á Akur-
eyri. Goðafoss fór frá Vestmanna-
eyjum í gær áleiðis til Hull. Dettir
foss kom til Vestmannaeyja um
miðnætti í nótt. Lagarfoss kom til
Leith í gærmorgun. Selfoss er á
leið til landsins frá London.
• TimbHrirerslaii
• P. W. Jacobsen & Sön.
Stofnuð 1824.
(0 Símnefni: Granfuru - Carl-Lundsgade, Köbenhavn C.
0 Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
0 mannahöfn. -------- Sik til skipasmíða. ----- Einnig heila
® skipsfarma frá Svíþjóð.
X Hefi verslað við fsland í meir en 80 ár.
Gærur, Kálfaskinn, Húðir,
kaupir hæsta verði
Sig. Þ. Skjaldberg.
Nasta hraðferð
tll Akureyrar er á fimtudag.
§teindór “80-
Umbúðapappír,
20, 40 og 57 cm.
væntanlegur næstu daga.
Eggert Kristjánsson & Co.
Skólatöskur
nýkomnar. Verð frá kr. 2.75.
Bókanersl. Sigff. Eymundssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34
Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum, að konan
mín og móðir okkar,
Sigrún Sigurðardóttir,
Laugarnesveg 53, Ijest í Landakotsspítala 21. sept.
Egill Guðjónsson og höm.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að hjaxtkær
edginmaður minn og faðir litlu dóttur minnar, Selmu,
Sigmundur Sigurðsson,
bifreiðarstjóri, verður jarðsettur miðvikudaginn 22. sept. At-
höfnin hefst m.eð húskveðju á heimili okkar, Fossagötu 4, kl.
2 e. h. Jarðað verður frá Dómkirkjunni og í gamla kirkju-
garðinum.
Nancy Sigurðsson.
Jarðarför konunnar minnar og dóttur okkar,
Unnar Björnsdóttur,
fer fram frá Dómkirkjunni fimtudaginn 23. sept. og hefst með
húskveðju að heimili okkar, Sellandsstíg 7, kl. iy2 síðd.
Friðþjófur Þorsteinsson.
Anna og Björn Jónsson.