Morgunblaðið - 13.10.1937, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 13. okt. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Stína segir að
Yenus-ræstiduftið
sje best.
Leirtauið
með dönsku
postulínsgerðinni
ER KOMIÐ I
EDINBORG.
oooooooooooooooooo
'Eins og fyrri daginn
fæst margt gott hjá
Hafliða
Baldvinssyni
t. d. Söltuð murta
úr Þingvallavatni.
Nýr hvalur
úr Tálknafirði.
Rafabelti, Höfuðkinn
og Spildingur
af Eldeyjarbanka.
Norðlensk saltsíld.
Auk hess flestar teg-
undir af flökuðum
l frystum fiski frá frysti-
húsinu Snæfell.
I-----Sími 1456.----
oooooooooooooooooc
Dagbók.
!:wa#/
impiPMiPBP 11
Veðurútlit í Eeykjavík í dag:
Allhvass SA. Rignmg öðru hvoru.
Veðrið í gær (þriðjud. kl. 17):
Fyrir suðvestan land og' yfir
Grænlandshafi er allstór lægð,
sem hreyfist til A og mun herða
á S- og SA-átt hjer á landi. Veð-
urhæð er nú 5—6 vindstig við
SV-ströndina. Á N- og A-landi er
veðiur stilt og þurt, en lítið eitt
hefir rignt sumstaðar vestau-
lands. Hiti er frá 6—10 st., minst-
ur á A-landi.
Næturlæknir er í nótt Alfreð
Gíslason, Ljósvallagötu 10. Sími
3894. Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki og Laugavegs Apóteki.
Fyrsta umræða fjárlaganna
hefs,t á föstudag. Flytur þá fjár-
málaráðherra síua fjárlagaræðu
og verður lienni útvarpað.
Slys. Frá Flateyri er símað, að
það slys liafi viljað til í gær á
vjélbátnum Sigurfara, að ungl-
ingspiltur, Friðrik Björgvin Frið-
riksson, festi annan fótinn í drag-
nótaspili bátsins og meiddist hann
svo mjög, að taka varð fótinn af
um hnje. Hjeraðslæknirinn Bjarni
Guðmundsson framkvæmdi lækn-
isaðgerðina. Sjúklingnum líður
nú þolanlega. (FU)
Vetrarstarfsemi íþróttafjelags
Reykjavíkur er nú að hefjast.
Fimleikar verða æfðir í vetur í
9 flokkum. í. R. áminnir fjelaga
sína og aðra þá, sem ætla að æfa
hjá fjelaginu í vetur, um að velja
nú strax flokk við sitt hæfi og
vera með frá byrjun. Kennarar
fjelagsins verða þau ungfni Þor-
björg Jónsdóttir og lir. Baldur
Kristjánsson.
Ríkisskip. Súðin fór frá Akur-
eyri kl. 3 í gær áleiðis til Reykja-
víkur. Esja var væntanleg til
Reykjavíkur kl. iy2 í gærkvöldi.
Gísli Sigurðsson hinn vinsæli
gamanleikari ætlar nú að láta til
sín heyra á ný, en hann hefir
ekki haldið skemtun hjer í bæn-
um síðan í júnímánuði, er hann
fylti fimm sinnum stærsta sam-
komuhús bæjarins. Gísli ætlar að
halda skemtun í Gamla Bíó í
kvöld kl. 7. Hann ætlar að lierma
eftir ýmsum þektmn mönnum og
syngja gamanvísur.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Leith frá Vestmannaeyjum.
Goðafoss fór vestur o.g norður í
gærkvöldi. Brúarfoss fór frá Vest
mannaeyjum í gærmorgun til
Reyðarfjarðar. Dettifoss er á leið
til Hamborgar frá Hull. Lagar-
foss var á Siglufirði í gær. Sel-
foss kom til Antwcrpen í gær.
Hjúskapur. Á laugardaginn
voru gefin saman í hjónaband af
lögmannþ. frk. Margrjet Hjartar-
dóttir og Steingrímur Guðjóns-
son umsjónarmaður við Lands-
spítalann.
Óskar Einarsson, yfirlæknir
Reykjaiiælisins, var meðal far-
þega á Brúarfossi til London í
fyrradag. Ætlar hann sjer að
kynnast meðferð berklasjúklinga
í Englandi.
í happdrætti Kvenfjelags Frí-
kirkjusafnaðarins var dregið hjá
lögmaniii í gær o,g komu upp
þessi númer: 4221 50 kr. í pen-
ingum, 302 % smál. kol, 2871 50
kr. í peningum, 973 ^2 smál. kol,
2536 50 kr. í peningum, 2204
tunna steinolía, 1036 50 kr. í pen-
ingum, 4684 50 kr. í peningum
Vinninganna sje vitjað á Vestur-
götu 16 a.
Útvarpið:
Miðvikudagur 13. október.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 ifáÁegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: íslensk verslun eftir
einokunina, II (Skúli Þórðarson
magister).
20.55 Hljómplötur: Ljett lög.
21.00 Útvarp frá hátíðafundi
stúkunnar ,,Einingin“, nr. 14,
í Reykjavík.
Nýtt dilkakjöt,
lækkað verð.
LIFUR — HJÖRTU
SVIÐ
Blómkál, Gulrófur
o. m. fl.
Jóh. Jóhanns§on
Grundarstíg 2. Sími 4131
Kenslukona,
sem kann allan algengan
fatasaum, óskast til Grinda-
vílcur frá nóvemberbyrjun
til jóla. Uppl. gefur
Guðrún Pjetursdóttir
Skólavörðust. lla. Sími 3345.
5 manna bifreið
(Drossía)
óskast keypt. Tilboð með
verði op: öðrum upplýsing:-
um sendist afg:reiðslu blaðs-
ins fyrir fimtudavskvöld,
merkt „Góður bíll“.
gN HgTao-eoLDwvH-yivg
Til det ærede Biografpublikum!
Verden taler om
DEN GODE JOKD
med
LUISE RAINER og PAUL MUNI
Filmen om den fattige kines-
iske Bonde har Bud til alle Jord-
ens Lande.
En Metro-Goldwin-Mayer Film-
triumf.
GOLWVH Kun et Firma
MflVEB unvfo
kan være för-
ende.
PALMEMOL
er nauðsyn-
legasta
snyrtivaran.
PALMEMO L
inniheldur hreinar
PÁLMA- OG
OLÍVENOLÍUR
og er því mýkjandi
og nærandi fyrir
húðina-
Gærur, Kálfaskinn og HúOir,
kaupir hæsta verði.
Sig. Þ. Skjaldherg.
Mm,
■fWkr W
Það tilkynnist ættingjum og vinum, að konan mín og móð-
ir okkar,
Kristín Kristjánsdóttir,
andaðist að heimili sínu, Hellum í Hafnarfirði 11. þ. mán.
Hannes Jóhannsson.
Anna Hannesdóttir. Kristíana Hannesdóttir.
Það tilkynnist hjer með, að maðurinn minn
Jóhannes M. Bjarnason
fyrv. skipstjóri
andaðist í gær að hedmili sínu, Skólavörðustíg 38. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Þorbjörg Jónsdóttir.
Hjer með tilkynnist, að minn hjartkæri faðir og afi
Pjetur Illugason
andaðist að Elliheimilinu Grund þann 11. október.
María Pjetursdóttir. Pjetur Einarsson.
Bróðir okkar
-Pjetur Emil Júlíus Kolbeins
verður jarðsunginn fimtudaginn 14. október n. k. Athöfnin
hefst á heimili hins látna, Túngötu 31, kl. 1 e. m.
Útvarpað verður frá Dómkirkjunni.
Systkinin.