Morgunblaðið - 19.12.1937, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.12.1937, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 19. des. 1937. Bretar búast til að verja hags muni sína í Hong-Kong Rússar senda 100 þús. manns til Austur-Asíu Óttast ásælni Japana FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖIi’N 1 GÆR. Tvö stórveldi í Evrópu, Bretar og Rússar, gera nú ráðstafanir til þess að vernda hagsmuni sína í Austur-Asíu. Þriðja stórveldið, Bandaríkjamenn, telja sig ekki enn hafa fengið fullkomnar málsbætur af hendi Jap- ana fyrir árásina, sem gerð var á Panay. Bretar keppast nú við að víggirða Hong- Kong, þungamiðju hins breska hagsmunasvæðis í Kína. Hafa fyrirætlanir Japana um að taka Suður-Kína her- skildi valdið miklum kvíða í Hong-Kong og hafa nú ver- ið settar 30 kílómetra gaddavírsgirðingar meðfram landamærum hins breska svæð.is. GASGRÍMUR FYRIR BORGARBÚA. Bresku yfirvöldin 1 Hong-Kong hafa látið íbúana fá gas- grímur og látið gera neðanjarðar hvelfingar, sem öruggar eru fyrir sprengjuárásum. Þess er minst í þessu sambandi, að bresk blöð ljetu svo um mælt fyrir skömmu, að ólíku máli gegndi um Shanghai og Hong-Kong. ,,Hver einasti breskur þegn mun verja Hong-Kong þar til yfir lýkur“, sagði eitt blaðið. UNDIRBÚNINGUR JAPANA Það er búist við, að (Japanir muni hefja sókn sína í Suður- Kína, með því að leggja undir sig borgirnar Amoy, Foochow og Swatow, en útlendingar hafa samningsbundna hagsmuna að gæta í öllum þessum borgum. Þrjátíu japönsk herskip eru komin til Amoy, um 300 mílur frá Hong-Kong og hafa hermenn verið settir á land þar. Loftárásir hafa verið gerðar á Hsai-Chuen eyna fyrir vest- an Hong-Kong og margar smáeyjar á þessum slóðum, hafa ver- ið teknar herskildi. ÞRJÚ BRESK HERSKIP. London í gær. FÚ. Orðrómur hefir gengið um það undanfarið, að breska stjórnin hefði þrjú orustuskip á takteinum við strendur Kína til þess að grípa til ef þurfa þætti. Þetta er nú borið til baka í dag af bresku flotamálastjórn mni. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimniiiiiiiiiiiimiiiiiiiH I 70 þús. voru drepnir | Samkvæmt japanskri tilkynningu frá Shanghai er talið að 70 þnsund Kínverjar hafi fallið í bardögunum um Shanghai. Á mynd- inni sjást kínverskir flóttamenh leita inn í alþjóðahverfið í Shang- ha.i, sem varið er af evrópiskum lögregluþjónum. sHraðskreiöastas AttantshaísskipiO FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í GÆR. Frakkar hafa í undirbún- ingi að byggja hraðskreið- asta skipið, sem verður í för- um um Atlantshaf. Skipið á að vera svipað kafbát í lög- un, í straum-línu-sniði og án reykháfa. Reykinn á að ledða út um pípur, sem liggja lárjett eftir skipinu og opnast í skut, rjett fyrir ofan sjávaryfir- borðið. ALT MEÐ FRIÐI: SVÖRIN SEM DELBOS FLYTUR HEIM. London í gær. FÚ. Itilkynningu, sem gefin hef- ir verið út um viðræður Del- bos, utanríkismálaráðherra Frakka og tjekkneskra ráð- herra segir, að rætt hafi verið um þau mál er varða Frakk- land og Tjekkóslóvakíu sam- eiginlega, með þeim árangri, að fullkomin vinátta og skilning- ur ríki nú í sambúð þessara tveggja ríkja. I tilkynningunni segir enn- fremur, að Delbos hafi átt tal við leiðtoga Sudeten Þjóðverja cg hafi komist að raun um, að þeim sje fjarri skapi að gera neinar ráðstafanir eða kröfur, igimnuiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiuiiiiiimimuiiiiiiiiin. | Roosevelt vill f ihafaóbundnar) i hendur til að | | fara f strfð | iiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii .... FRÁ FRJETTARITARA VORIJM. KHÖFN í GÆR. oosevelt ætlar að berjast gegn frum- varpi því, sem fram er komið á þingi Eanda- ríkjamanna, um að þjóðaratkvæðagreiðsla verði að fara fram, áð- ur en þjóðin sje leidd út í styrjöld. Meðál allra stjetta í Bandaríkjunum verður vart vaxandi andúðar gegn þessu frumvarpi. Washington „Daily Mail“ spyr, hvort óvinirnir eigi að fá að skjóta amerískar borgir í rústir á meðan að verið sje að telja atkvæð- in um, hvort farið skuli út í stríð. Ný rannsókn. London í gær. FÚ. Sendiherra Bandaríkjanna í Tokiö fór í dag á fund japönsku stjórnarinnar og bar enn fram kvartanir wegna árásarinnar á „Panay“ og taldi sannað að Japanar hefðu skotið á skips- höfnina með vjelbyssum, er skipið var að sökkva og skips- menn að reyna að bjarga sjer. Hefir japanska stjórnin nú lýst yfir að hún mundi láta fara fram nýja rannsókn á þess- um atburði. Blöð í Bandaríkjunum eru ákaflega gröm í garð Japana, og telja að ekki komi til mála að líða þeim bótalaust slíkar árásir. Rauðliðar sigra á Spáni London 18. des. F.Ú. panska stjómin tilkynnir síðdegis í dag að her hennar hafi unnið fullnaðar- sigur við Teruel og sje borgin fallin í hendur stjórnarliðsins. De Llano hershöfðingi lýsti jrfir því í útvarpið í gær, að uppreisnarmenn hefðu þá eng- um stöðvum tapað sem neinu máli skifti, en þó viður- kendi hann að stjórnarherinn hefði brotist í gegnum herlínu uppreisnarmanna við Teruel,. Taldi hann þó uppreisnarmenn vera að rjetta fylkingar sínar á ný. Talið er, að þessi atburður muni tefja fyrir BÓkn Franco við Madrid. £.8. Katla fór í gær áleiðis til Ameríku með síldarfarm. Ákveðnari afstaða gegn Bretum. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í GÆR. regnir frá Varsjá herma, að búist sje við að hundrað þúsund rússneskir hermenn verði sendir til Austur-Asíu, auk herskipanna 12 er send verða til Vladivostock, eins og jeg símaði í gær. Rússar óttast að stjórn Kono- yes prins í Japan geti ekki lengur hamið hernaðar ofstæk- isflokka flotans og lendhersins. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. AÐYÖRUN ÞJÓÐVERJA TIL BRETA OG BANDA- RÍKJAMANNA. London í gær. FÚ. ýska blaðið „National Zei- tung“ segir í gær meðal annars, að heimurinn myndi græða mikið á því, ef Bretland og Bandaríkin vildu halda sjer algerlega hlutlaus í Austur-Asíu deilunni, enda sje það sýnt, að hún varð ekki leyst á viðunandi hátt með íhlutun annara þjóða. Blaðið varar stjórnir Bret- lands og Bandaríkjanna við því að fara að blása upp óhapp, sem altaf geti komið fyrir í styrjöld og gera það að ástæðu til vopnaðrar íhlutunar. VELMEGUN í SVÍÞJÓÐ Kalundborg 18. des. F.Ú. Iflestum bæjum og borgum í Svíþjóð er nú lokið niður- jöfnun útsvara. Það vekur athygli að í hjer um bil tveimur þriðju af borg- um og bæjum Svíþjóðar hafa bæjarstjórnirnar sjeð sjer fært að lækka útsvarsstigann vegna aukinna tekna almennings, minkandi fátækraframfæris og yfir höfuð almennrar velmeg- unar. Flutningaskipið Edda fór frá Seyðisfirði til Hull með 32 þús- und 420 pakka af stórfiski og 831 pakka af labra. Fiskurinn hefir verið tekinn í 14 höfnum á 8 dögum á svæðinu frá Ólafs- firði til Stöðvarfjarðar. Edda er á vegum Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda. (FÚ) sem orðið geti til þess að rjúfa einingu ríkisheildarinnar. Delbos lætur einnig í ljósi á- nægju sína yfir því, hve traust samvinna sje milli Litlabanda- lagsríkjanna. Hafa þessi ummæli vakið fögnuð í frönskum blöðum. BÆJ ARSTJÓRNAR- LISTI SJÁLFSTÆÐIS- MANNA Á ÍSAFIRÐI. ísafirði, laugardag. æjarstjórnarlisti Sjálfstæð- isflokksins hjer á ísa- firði hefir nú verið ákveðinn. Fimm efstu menn listans eru: Jón Auðunn Jónsson, Jón Fannberg, Arngrímur Fr. Bjarnason, Matthías Ásgeirsson og Torfi Hjartarson. Munið Vetrarhjálpina. Sími 4546.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.