Morgunblaðið - 19.12.1937, Blaðsíða 3
Sunnudagur 19. des. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
giiimiiiiiimmuuuuuuiiummimiiiuiiiiiimiiiiiimiimmji
I Þýskum (
I stúdenl (
1 vísað vlr 1
| landi |
I Fyrir tilmsli þýska \
( ræðismannsins [
Tmmiiiiiiiimiiiim miiiiimimmimm
Þegar Brúarfoss lagði af stað
lijeðan í gærkvöldi, urðu
menn þess varir, að óvenjulega
margir Þjóðverjar voru saman
komnir á hafnarbakkanum. Þar
var og hópur stúdenta.
Aður en skipið lagði frá landi
varð öllum, sem þar voru saman
komnir, ljóst, að mannsöfnuður
þessi var þangað kominn til þess
að kveðja þýskan læknisfræðis-
stúdent, Fritz Walterseid að
nafni, er verið hefir hjer við há-
skólanám í vetur, og kom hingað
í júlí í sumar. Hann hefir verið
til heimilis hjá Sigurjóni Pjeturs-
syni frá Álafossi í skiftum fyrr
3on Sigurjóns, sem er við nám í
Þýskalandi.
Bn eftir því sem blaðið frjetti
í gærkvöldi hefir brottför þessa
þýska námsmanns borið að með
einkennilegum hætti. Hei’ra Waþt-
erseid var sem sje vísað úr landi.
Heimildarmenn blaðsins fullyrtu,
að brottvísun hans hefði átt sjer
stað fyrir tilmæli þýska ræðis-
mannsins hjer, hr. Timmermanns,
útaf alvarlegum árekstri sem hafði
orðið milli hans og ræðismanns-
ins. Bn um nánari atvik að þessu
er blaðinu ekki kunnugt.
Fritz Walterseid stundaði iiám
sitt hjer af kappi, og virtist, eftir
kveðjum þeim er hann fjekk á
hafnarbakkanum í gærkvöldi,
hafa átt vinsældum að fagna hjer,
bæði meðal landa sinna og há-
skólastúdenta.
Reykvíkingar
eru góðir þegar
skattarnir eru
á þá lagðir
Ósamhljéða raddir
sljórnarliða
Þeir Reykvíkingar, sem lesið hafa stjórnarblöðin
undanfarna daga, hafa án efa veitt því eftir-
tekt, að bæði eru þau innilega sammála um,
að Reykjavíkurbær sje í þann veginn að verða gjaldþrota.
En þegar svo þessir sömu Reykvíkingar liafa komið niður á Ai-
þing og hlustað þar á umræður um fjárhag bæjar- og sveitarfjelaga,
hafa þeir vafalaust ekki komist hjá að heyra frá munni stjói'narliða,
að Reykjavíkurbær sje svo vel stæður, að undanskilja megi hann í
hvert skifti, þegar um er að ræða, að rjetta eitthvað hlut bæjar- og
sveitarfjelaganna.
Samskotin til
fólksins í Vík
Kærar þakkir
Keykvíkingar!
Morgunblaðið sendi í gær aust-
ur í Vík í Mýrdal það sem
blaðinu hafði borist til fólksins,
er misti aleiguna í brunanum á
dögunum.
Sendingiu var: Kr. 886.70 í
peningum (og í gær bættust við
kr. 83.80, eða alls safnast kr.
970.50), 5 sekkir rúmfatnaður, tvö
x'ixmstæði, 2 sekkir með \samtals 15
biiggla, senx í var fatnaður o. fl.
Reykvíkingar hafa enn á ný
sýnt, að þeir eru fljótir til hjálp-
ar þegar á liggur. Og þeir gera
■ engan greinarmun á því, hver sá
maður er eða hvar hann er, sem
er hjálparþurfi; þeir eru ætíð
boðnii'' og búxxir til þess að rjetta
hjálparhönd.
Um leið og Morgunblaðið nú
lýkur þessum samskotuxn sendir
það Reykvíkingum bestu þakkir
fyrir hina rausnarlegu jólagjöf til
bágstadda fólksins í Vík.
Hvernig stendur á því, að þess-
ar ósamhljóða raddir koma fram
samtímis frá stjórnarliðum ?
Hvernig stendur á því, að
stjórnarblöðin erh sí o.g æ að
hamra inn í lesendur sína, að
fjárhagur Reykjavíkur sje svo
bágborinn, að algert hrun hljóti
þar að vera yfirvofandi, en á
sama tíma eru svo stjórnarliðar á
Alþingi að xxtmála hinn glæsilega
fjárhag bæjarins, og sníða lög-
gjöfina eftir því?
Borgarar Reykjavíkurbæjar fá
ekki risið undir xxtsvarsbyrðinni,
segja stjórnarblöðin.
Okkur vantar 2—3 milj. króna
auknar tekjur í ríkissjóð, segja
stjórnarliðar á Alþingi. Við verð-
um að koma því þannig fyrir, að
þessi skattauki lendi fyrst og
fremst á Reykvíkiugum; þeir eru
svo ríkir!
Fátækraframfærið er að vaxa
Reykjavíkurbæ yfir höfxið, segja
stjórnarblöðin.
Við þurfuixx að fá 700 þús. króxi-
ur í jöfnunarsjóð, og skal honxxm
varið til þess að jafna fátækra-
bj'rði bæjar- og sveitai’fjelaganixa,
segja stjórnarliðar á Alþingi. Við
látum Reykjavík ekki fá einn eyri
xxr þessuin sjóði; hún er svo vel
stæð!
Skuldir Reykjavíkurbæjar vaxa
hröðum skrefum og bærinn getur
ekki staðið í skilum, segja stjórn-
arblöðin.
Við þurfum að fá kreppulána-
sjóð, til þess að lána skuldugum
bæjai'- og sveitarfjelögum, segja
stjórnarliðar á Alþingi. Bn við
hitxxnx ekki Reykjavík fá einn ein-
asta eyri úr þeim sjóði. Hún
skuldar svo lítið og er svo vel
stæð, að hxxu þarf ekki á kreppu-
hjálp að lialda!
Svona hatramlega stangast á
skrif stjói’narblaðanna og orð og
athafnir stjórnarliða á Alþingi.
Ef nokkurt mark á að taka á
skrifum stjórnarblaðanna, hlýtur
í þeim að felast þung ásökun til
samherjanna á Alþingi. En ein-
kennilegt er, að aldrei heyrist
nein rödd frá stjórnai’blöðunum í
þá átt, að víta framkomu stjórn-
arliða á Alþingi. Þvert á móti;
þau lofsama stjórnarflokkana í
hvert sinn, er þeir gera hlut
Reykjavíkur verri en annara bæj-
ar- og sveitarfjelaga.
Skyldu það ekki vera kosning-
arnar framundan, sem valda þess-
um skrifuxn stjórnarblaðanna?
Eldhúsumræðurnar.
Frammistaða Alþýðu-
flokksmanna áber-
andi Ijeleg
Síðari hluti eldhúsumræðanna
fór fram í gæi’kvöldi og var
xxtvarpað. Fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins talaði Jón Pálmason auk
Ólafs Thors, er talaði tvisvar. Um-
ræðurnar stóðu yfir til kl, 1 eftir
miðnætti.
Það fór á sömu lund hið síðara
kv seni hið fyrra, að atvinnu-
ni:' áðherra átti mjög í vök að
verjast, og gat óvenjulega litlum
vörnum komið fyrir sig. Það vakti
sjerstaka athygli að hvorki for-
maður flokksins, Jón Baldvinsson,
nje Hjeðinn Valdimarsson tóku til
máls til liðsinnis ráðherranum.
Aftur á móti talaði Finnur Jóns-
son um síldarmálin, og munu flest-
ir hafa verið sammála um, að
fyrir Alþýðuflokkinn hefði það
verið betra, ef hann hefði ekki
tekið þátt í umræðunum.
Bændaflokksþingmennirnir báð-
ir, Þorsteinn Briem og Stefán
Stefángson, tóku til máls í gær.
Er Stefán skörulegur ræðumaður.
Yfirleitt voru deilur fremur hóf-
legar í umræðum þessum, að und-
anskildu fali köhimúnista.
Hermann Jónasson talaði í gær-
kvöldi. Um vinnulöggjöfina komst
hann svo að orði í umræðum þess-
um, að rjett væri að reyna að ná
samkomulagi við verkamenn. En
fari svo að Framsóknarflokknum
axxðnist það ekki, verður vitan-
lega að leiða verkamönnum naxið-
syn þessa máls fyrir sjónir á ann-
an liátt.
Er hann var spurðxxr hvaða að-
ferð hann hugsaði sjer, svaraði
hann því engu.
Elín Gísladóttir.
Stulkan á Fróðárheiði fundin
BarOist alein við
hrfö og myrkur
i sðlarhring
Stúlkan er alheil
heilsu eftir volkið
plín Gísladóttir frá Öl-
keldu, sem varð við-
skila við fylffdarmann sinn
í hríðarveðri á Fróðárheiði
aðfaranótt föstudavs, fanst
í fyrrakvöld klukkan 11 heil
heilsu ov furðu lítið eftir
si£.
Var hún flutt að Búðum og
kom þangað klukkan 2 í fyrri
nótt.
Elín lá í rúminu í gær, en bú-
ist var við að hxxn gæti farið á
fætur strax í dag.
EKn er um þrítugt. Hefir
hxxn í þessxxm hrakniixigum sýnt
mikið þrek og festu, því að frá
því hún varð viðskila við fylgd-
armanu sinn og þar til hún fanst
var hún á sama stað með hestun-
um og helt ó sjer hita með því
að ganga um.
Þegar pósturinn, Ágúst Ó.lason
frá Mávahlíð, kom að Búðum t"
fyrradag var safnað saman um 30
ínanxxs ,til að leita. Fundu þeir
Elínu/. og hestana klukkan 11 um
kvöldið. Höfðu þau Elín og Ágúst
vilst rnjög af rjettri leið á heið-
inni.
Áigúst póstur uáði sjer brátt
eftir volkið og helt hann áfram
póstferð sinni x gærmorgun.
EKnu Gísladóttur hefir ekkert
orðið meint af volkinu, en mikið
þrek hefir þurft til þess að hald-
ast við hjá hestunum í myrkri og
kulda hálfa nótt og heilan dag
án þess að æðrast.
Elín helt á sjer hita með því
að ganga kringum hestana. Nesti
hafði hún með sjer og borðaði hxin
nokkuð at' því.
: I farangri hennar var nokkuð
af fötunx og klæddi hxxn sig í þau
til að verjast kulda.
Dálitla stund gat Elín hvílt sig.
Spretti hún reiðtýgjum af hest-
unuin og lagðist á milli þeirra.
Elín gekk á móti leitarmönnum
er hún varð þeirra vör. Sagðist
hxxn hafa verið þess sannfærð, að
sín yrði leitað og því beðið róleg.
Hjxxskapur. I dag verða gef-
in saman í hjónaband uhgfrú
Anna Björnsdóttir og Ári Jó-
hannesson sjómaður. Heimili
þeirra er á Bárugötu 19.
Ylfingablaðið, 10. tbl. 1. árg.
verður selt á götunum á þriðju-
daginn. Að þessu blaði standa
nokkrir 12 ára drengir í ylf-
ingafjelaginu Ernir. Ylfinga-
blaðið flytur: Ylfingajól, eftir
síra Bjarna Jónsson, Minning-
arorð um Axel V. Tulinius
skátahöfðingja, frjettir með
myndum úr skátahreyfingunni,
Kaflar úr Ylfingabókinni o. fl.
o. fl. Blaðið er 28 síður og frá-
gangur ágætur.
Cain og Mabol
f Nýia 8íó
Nýja Bíó sýnir • í fyrsta
skifti í kvöld ameríska
kvikmynd, sem mun falla unga
fólkinu vel í geð, að minsta
kosti. Kvikmyndin heitir Cain
og Mabel og aðalleikendurnir
eru Clark Gable og Marion
Davies. Þetta er skemtimynd,
fyndin og fjörug. Hún segir frá
hnefaleikamanni (Clark Gable)
og frammistöðustúlku (Marion
Davies) sem gerist leikkona.
Kvikmyndin er full af skemti-
legum atvikum, sumum spreng-
hlægilegum, auk þess eru fal-
legar „revy“ sýningar og dans-
músík.
Myndin verður sýnd kl. 7 og
9 í kvöld.
GAMLA BÍÓ:
Kvennagull
í útlegð
I /vennagull í útlegð“ heitir
”1 * gamanmynd ein amerísk,
sem Gamla Bíó sýnir í fyrsta
skifti í kvöld á tveimxir sýning-
um, kl. 7 og 9.
Kvikmynd þessi heitir „Petti-
coat feever‘‘ og lxefir hlotið mikl-
ar vinsældir erlendis, þar sem
liún liefir verið sýnd.
Aukamynd nxeð þessai’i kvik-
mynd er teiknimynd, sem sýnir
Cab Calloway og Mills Brothers o.
fl. þektai’ persónur.
A harnasýningu kl. 5 verður
sýnd „Litla hjartans yndið", þar
sem Shirlev Temple leikur aðal-
hlutverkið.
Eldingin á Brunnastöðum. —
Hinn 10. janúar s.l. sló eldingu
niður í íbúðarhúsið á Brunna-
stöðum á Vatnsleysuströnd, af
svo miklu afli, að hún braut alt
og bramlaði. Voru það mestu
undur að fólkið skyldi komast
lífs af, það er var í húsinu. Ó-
fullkomnar lýsingar komu af
þessum atburði í blöðunum þá,
en nú hefir bóndinn á Brunna-
°töðum gefið út prentaða frá-
sögn um hvað gerðist þessa
skelfingarnótt, og verður bækl-
ingurinn seldur á götunum í
dag. Til merkis um hervirki
eldingarinnar, er gripur til sýn-
is í glugga Morgunblaðsins í
dag.