Morgunblaðið - 24.12.1937, Page 7
Föstudagur 24. des. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
GLEÐILEG JÓL!
Rúsgagnaverslun
Kristjáns 8iggeirssov,ar
GLEÐILEG JÓL!
Gteir Konráðsson.
GLEÐILEG JÓL!
Verslunm Áfram.
GLEÐILEG JÓL!
Kolaverslun
Ólafs Ólafssonar.
Óskar öllum viSskiftavinum
sínum
GLEÐILEGRA JÓLA
Blórn & Ávextir.
GLEÐILEG JÖL!
Hafliði Báldvvnsson.
GLEÐILEG JÓL!
Jón Sigurpálsson
{verslunin).
GLEÐILEG JÓL!
Nordislc Brandforsikring.
Guðtn. Frið)ónsson:
Karlar i krapinu
Hallgrímur hjet maður, bjó í
Vík á Flateyjardal, Þor-
steinsson, Grrímssonar. Hallgrím-
ur var fóstri Guðmundar föður
Vilhjálms föður Guðmundar, sem
nú er forkólfur Eimskipafjelags-
ins. Hallgrímur var kallaður hinn
sterki. Það nafn fekk hann eitt
sinn á Akureyri, þar var hann
staddur og hafði lýsi að selja. Svo
stóð á, að hann þurfti að flytja
lýsiskjagga til verslunarbúðar, þó
nokkurn spöl, tók ílátið í fang
sjer og bar áleiðis. Þá mœtti hann
manni og áttu þeir tal saman um
stund. Hallgrímur hjelt á kjagg-
anum og ljet eigi niður falla, gekk
svo áleiðis og náði takmarki. Svo
er sagt um Hallgrím, að hann
bæri lýsistunnur úr bát sínum og
gengi með þær á þóftum.
Afi Hallgríms hjet Grímur,
manna mestur og sterkastur. Þeg-
ar hann var áttræður að aldri, en
Hallgrímur 18 vetra, vildi gamli
• maðurinn reyna þolrifin í Hall-
grími; hafði nautshaus meðferðis
og skoraði á Hallgrím að reyna
aflið. Þeir gerðu það með því móti,
að annar tók um efri skolt en hinn
J um þann neðri, og svo urðu átök-
in mikil og jöfn, að þeir rifu
kjálkahlutann frá hausbeinshlut-
anum, upp úr munnvikjunum.
Þessa sögu: segir mjer Vilhjálm-
ur faðir Guðmundar framkvæmda
stjóra Eimskipafjelagsins, skilrík-
ur maður og orðvar. Hann hefir
líka sagt. mjer sögu þá, er hjer
fer á eftir.
*
hefir numið sögurnar um aflraun-
ir Hallgríms og Gríms af vör-1
um frænda sinna, sem voru svo
rjettorðir og skilríkir sem úrvals-
menn eru.
Jeg hefi skjalfest þessar sagnir
þeim til ánægju, sem svo eru!
gerðir, að þeir líta hýru auga til
afreksmanna, þeirra sem tóku I
undir það, sem haft er eftir Ragn-
ari konungi loðbrók:
Móðernis fjekk mínum
mögum, svo hjörtu dugðu.
Þarna er bent á hugrekki, sjer-
staklega.
En allir afburðamenn hljóta að
vera hugumstórir.
Guðmundur Friðjónsson.
GLEÐILEG JÓL!
Rattaversl. Margrjetar Leví.
Grímur lifði í Vík á Plateyjar-
dal, sem er næsti bær við Brett-
ingsstaði. Þegar hann var á ní-
ræðisaldri gekk hann eitt sinn að
Brettingsstöðum. Þar var boii einn
• mannýgur, fullorðinn. Grímur var
beðinn að víkja úr vegi fyrir tarf-
inum, fara krók fram hjá naut-
hyskinu og Ijest hann mundi gera
það. En karl brá á eitt ráð og
fór beina leið. Hann kom að
• Brettingsstöðum og kvaddi sjer
þar hljóðs. Hann mælti:
Það væri rjett að gæta að hon-
um bola hjerna úti í mýrinni,
piltar mínir. Þeir gerðu svo. Þeg-
ar þangað kom lá tarfurinn stein-
dauður — snúinn úr hálsliðnum
og stóð annað hornið fast á kafi
í mýrinni.
Þegar þetta gerðist, var amma
mín, Guðrún, vinnukona á Brett-
ingsstöðum, merkileg kona til
orða og verka. Jónas á Sílalæk,
• móðurbróðir minn, sagði Vilhjálmi
áðurnefndum, söguna og Vil-
hjálmur mjer. Heimildirnar verða
varla vjefengdar.
120 ÞÚS. FLÚIÐ LAND.
Síðan Hitlersstjórnin komst til ]
valda árið 1938 hafa al
um 120.000 Gyðingar farið frá
Þýskalandi. Um 40.000 hafa farið
til Palestínu. 35.000 hafa lagt leið
sína til Astralíu, Ameríku og
Asíu. 25.000 er talið að hafi flust |
til ýmsra landa í Vestur-Evrópu
og 20.000 til Austur-Evrópu — og
þeim Gyðingum, sem koma til ís-
lands virðist vera að fjölga.
*
„FORINGINN“.
Einn af ráðherrum Hitlers, dr.
Ley, sem er yfirmaður verk-
lýðsmála, hefir nýlega birt trúar-
játningu sína opinberlega. Hún er
á þessa leið:
, „Jeg trúi hjer á jörðunni ein-
göngu á Adolf Hitler. Jeg trúi
því að þjóðernisjafnaðarmanna-
stefnan sje einasta stefnan sem
hjálpað getur Þýskalandi. Jeg
trúi því, að Adolf Hitler, foringi
vor, hafi verið oss sendur af
drotni. Jeg'trúi því að til sje einn
guð, sem vakir yfir oss, elskar
oss og verndar. Jeg trúi því, að
þessi guð hjálpi foringja okkar,
Adolf Hitler, til að gera þýsku
þjóðina að voldugri og frjálsri
Þjóð“.
*
MARKAÐSVON?
Sögur af aflraunamönnum, sem
gengnir eru fyrir ætternisstapann,
• þykja oft ótrúlegar. Þegar sögur
af Hallgrími sterka og Grími afa
hans, um nautshausinn og um
nautsdrápið, eru nálega svo furðu
legar, sem sögnin um Þorstein
uxafót, er Saga Ólafs konungs
Tryggvasonar segir, að slitið hafi
lærið úr lifandi blótneyti.
En þessar sögur verður að telja
vottfestar.
Vilhjálmur Guðmundsson er al-
inn upp á Flateyjardalnum og |nýja loðfeldi!
Frú Mae Muff í Skotlandi var
veik og maður hennar, hr. Mac
Muff, neyddist til að sækja lækni.
„Kouan yðar þarfnast loftslags-
breytingar“, sagði læknirinn.
„Best væri ef hún gæti komist!
þangað sem- salt loft er, þá mundi
liún brátt hressast“.
Mac Muff hugsaði sig vandlega
um. Daginn eftir tóku nábúar
Mac Muffs eftir því að hann helt
stórri saltsíld fyrir vitum konu
sinnar!
*
— Jeg heyri sagt að Ameríku-
menn hafi fundið upp vjel sem
segir til hvort menn segja satt
eða ósatt.
— Iss, finst þjer £að vera um-
talsvert,. Jeg hefi verið giftur
einni slíkri í 20 ár.
*
— Jeg er að hugsa um, hvort
það verði erfiður vetur í ár.
— Ekki nokkur vafi, góði. Bæði
konan mín og dætur tvær heimta
B. Cohen,
Woollen Merchant,
11 & 15 Trinity-House Lane,
HULL, ENGLAND,
óskar öllum vinum sínum
og viðskiftamönnum gleði-
legra jóla og góðs nýárs.
ATH. Þrátt fyrir verðhækkun á fataefnum,
er verðið óbreytt hjá mjer, og mun
lækka á sumu í janúar og febrúar n.k.
GLEÐILEG JÖL!
Aðalstöðin
Sími 1383.
GLEÐILEG JÓL!
Soffíubúð.
GLEÐILEG JÓL!
VMamdí