Morgunblaðið - 22.01.1938, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 22. jau. 1938.
Rússarnir
á isjakanum
skamt frá
Spitzbergen
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Isjaka rússnesku vís-
indamannanna 4,
sem flugu til Norður-
heimskautsins, rekur
hratt suðaustur á bóg-
inn, vegna ofviðris, sem
geisað hefir í Norðurís-
hafi. Staða ísjakans er
í bili á 78. breiddar-
gráðu og 10. gráðu vest-
lægrar lengdar (eða
skamt vestan við Spitz-
bergen).
Murmanesk, rússneski ísbrjót-
urinn, sem sendur var til þess
að sækja vísindamennina, hef-
ir orðið að gefast upp 200 km.
frá jakanum, vegna geisivíð-
áttumikillar ísbreiðu, sem
stendur eins og klettur fyrir
skipinu.
*
(Aths. Rússar eiga tvo leið-
angra í Norðuríshafi, sem báðir
eru í hættu staddir: Rússnesku
vísindamennina fjóra, sem hjer
greinir frá, og verslunarskipin
tta, fyrir norðan Síberíu, norð
austur af Kobelnoieyju, sem
Morgunblaðið sagði frá eitt
allra blaða í Reykjavík í gær).
Kveikti i dyna>
mifspren^fu i
munni sjer
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Konur fjellu í yfirlið, er
maður, sem enginn veit
deili á, rjeði sjer bana á einni
af f jölförnustu götunum í Stokk
hólmi í gærkvöldi.
Maðurinn stakk dynamit-
sprengju í munn sjer og
kveikti í henni. Sprengingin
tætti í sundur höfuð hans.
DANSKIR FISKIMENN
BIÐJA UM STYRK.
Danska fiskimannasamband-
ið hefir farið þess á leit
við stjórnina, að hún láti verja
tveimur miljónum króna til
þess að kaupa fisk og útbýta
meðal gamalmenna og fátæk-
linga, og er beiðnin rökstudd
með því, að þar sje um sam-
bærilegan stuðning að ræða við
fiskimannastjettina, eins og
þann sem bændum hefir verið
veittur með kaupum á kjöti og
mjólk til útbýtingar meðal fá-
tækra manna.
Auk þess sje fiskur þessu
fólki engu síður nauðsyn, en
landbúnaðarafurðir.
C-listinn er listi Sjálfstæðis-
manna í íteykjavík.
Hiller bannar „Sluermer“ blað
Gyðingahafarans Slreiebers
Frá frjettaritara vorum.
Berlín í gær: — Þýsk blöð hafa loksins mist þolinmæð-
ina út af hinum taumlausa antisemitisma Júlíusar Streichers.
I gær var útgáfa blaðs hans, „Der Stúrmer" argasta sorp-
blaðs, sem út hefir komið, bönnuð. Stjórninni ofbauð síð-
asta eintak „Der Stúrmers“, sem var óvenjulega ósvífið,
jafnvel á „Stúrmers“ mælikvarða. M. a. var þess krafist, að
refsað væri með lífláti kynþáttasvívirðu.
í tilskipun stjórnarinnar segir, að blaðið skuli bannað
þar til öðru vísi verður ákveðið.
Alment er álitið að bannið eigi rót sína að rekja til hins
nýja yfirmanns þýskra blaða (Reichspressechef) dr. Diet-
richs, sem tók við embætti af dr. Funk, sem nú er atvinnu-
málaráðherra. Er því talið að bannið sje endanlegt.
Júlíus Streicher, ritstjóri „Stúrmers“ er fylkisstjóri
(Gatileiter) Nazista í Núrnberg. Hann er einn af elstu
stuðningsmönnum Hitlers og tók m. a. þátt í Hitlers-upp- Julius Streicher,
reisninni 1923. Það er því talið, að bannið geti haft víðtæk ritstjóri „Stiirmers“ og einn af
áhrif. elstu samstarfsmönnum Hitlers.
Forsíðufrjettir i öðrum löndum
Stórfeld njósnarastarfsemi
Rússa afhjúpuð í Italiu
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN t GÆR.
Lögreglan í Ítalíu hefir afhjúpað stór-
felda njósnarstarfsemi Rússa í Ítalíu,
sem teygir arma sína um þvert og
endilangt landið. Njósnarstarfsemi þessi hefir
verið rekin undir verndarvæng opinberrar sendi-
sveitar Rússa í Ítalíu..
Njósnararnir greiddu, ef svo bar undir alt að
því 400 þúsund lírur fyrir upplýsingar um ítölsk
hernaðarleyndarmál.
Foringi njósnaranna er verkfræðingur að nafni Gregorieff,
og er sennilega frændi Stalins.
Hann var dæmdur í 30 ára fangelsi.
Portúgal
KOMMÚNISTAR í
PORTÚGAL.
Kalundborg í gær. FÚ
ðalforingi kommúnista í
Portúgal hefir verið tek-
inn höndum og margir flokks-
bræður hans, ásamt honum.
Er búist við að fleiri kom-
múnistar verði teknir höndum
og að stjórnin hyggist nú að
gera ráðstafanir til þess að
ganga milli bols og höfuðs á
kommúnistum og starfsemi
þeirra.
Bretland
ENGAR NÝJAR SAM-
KOMULAGSUMLEIT-
ANIR.
London í gær. FÚ.
resk ráðherranefnd kom
saman á fund í London í
dag.
Því er lýst yfir að Robert
Vansittart, ráðunautur Edens í
utanríkismálum, muni alls ekki
fara til Rómaborgar á næst-
unni, og ennfremur að breska
tjórnin hafi ekki í hyggju að
gera neinar nýjar tilraunir til
þess að bæta samkomulagið
nilli Breta og Itala, eins og
akir standa.
Spánn
ÖRYGGI SJÓMANNA
VIÐ SPÁN.
London í gær. FÚ.
loftárás, sem gerð var á
Tarragona á Spáni í gær,
fjell sprengja ofan á breskt
;kip sem þar lá á höfninni, og
biðu tveir hásetar bana, en sjö
særðust.
Auk þess er fimm manna
af áhöfninni saknað, og síðustu
frjettir herma að þeir muni
hafa farist.
Frakkland
ENGIN GJALDEYRIS-
HÖFT 1 FRAKKLANDI.
London í gær. FÚ.
hautemps og Daladier lásu
upp yfirlýsingu um
stefnu hinnar nýju stjórnar í
Frakklandi, l'éfri Og neðri mál-
stofum þingsins í dag, og var
yfirlýsingunni vel tekið í báð-
um deildum.
Stjórnin telur það miklu máli
skifta, að fjárlögin sjeu tekju-
hallalaus og að þriggjavelda-
sáttmálinn um gjaldeyrismál
sje ekki rofinn. Stjórnin lýsir
yfir, stuðningi sínum við Þjóða-
bandalagið, og vináttu sinni
við Breta.
Gamelin hershöfðingi er nú
frmaður landvarnaráðs.
Noregur
NORSKA STJÓRNIN í
MINNIHLUTA.
Oslo í gær.
instriflokkur Stórþingsins
hefir skrifað Stórþings-
nefnd þeirri, sem hefir til með-
ferðar frumvarp stjórnarinnar
um tryggingasjóð atvinnuveg-
anna. Þingflokkurinn tjáir sig
mótfallinn tillögunum um þving
unartillögu til tryggingarsj óðs
atvinnuveganna, því að bæði
líti flokkurinn svo á, að það
sje miklum vafa bundið hvort
fara skuli út á þessa braut, en
auk þess þurfi málið víðtækari
og nákvæmari athugunar við
áður fullnaðarákvarðanir sjeu
teknar um það.
Flest blöð eru þeirra skoðun-
ar, að ekki mun til þess koma
að ríkisstjórnin geri þetta mál
að fráfararatriði. NRP—FB.
Kína - Japan
ÓTRYGG YFIRRÁÐ
JAPANA í SHANGHAI.
London í gær. FÚ.
íu yfirforingjar úr kín- j
verska hernum hafa ver-
ið teknir af lífi fyrir að gegna
ekki skyldu sinni.
Japanir í Tientsin bera á
'móti því, að þeir hafi bótað að
fara inn í breska borgarhverfi^
og sækja þangað kínverskan
flóttamann, ef hann yrði ekki
látinn af hendi við þá. Segja
þeir, að orðsending Japana hafi
verið skakt þýdd á ensku.
Kínverskur maður, sem átti
sæti .1 borgaranefndinni, sem
hefir það verk með höndum að
afmá stríðsummmerkin í Shang-
hai, var skotinn til bana í dag.
Hann er þriðji meðlimur nefnd-
arinnar sem fallið hefir fyrir
hendi þeirra sem líta á nefnd-
armenn sem svikara við ldn-
verska lýðveldið.
--------Falski------------j
„majórinn"
í Frakklandi
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Þjóðverjar skemta sjer
þessa dagana við bráðskemti-
legt Köpernick-hneyksli, er
gerst hefir handan við landa-
mærin, í Frakklandi.
Franskur stórsvikari, sem
setið hafði í fangelsi, klædd-
ist nýlega major-einkennis-
búningi, og fór til þess að
gera liðskönnun í virkjum
Parísarborgar. — Þar sýndi
hann fölsuð skilríki, og þeir
sem betur áttu að vita, ljetu
glepjast.
Þarna kannaði „majórinn"
lið virkjanna, sæmdi suma
heiðurspeningum og aðra
hækkaði hann í tign.
M. a. skipaði hann svo fyr-
ir, að nokkrar fallbyssur
skyldu sendar til bræðslu!
Svipað hneyksli kom fyrir
í Þýskalandi eigi alls fyrir
löngu í Köpemick, og af því
draga sögur, eins og þessi
nafn sitt.
Fundur Sjálf-
stæðisfjelag-
anna ð morgun
Sálfstæðisfjelögin í Reykja-
vík, Vörður, Hvöt og
Heimdallur, halda fund í Nýja
Bíó á morgun. Þar verður rætt
um hitaveitumálið og önnur1
bæjarmál. Borgarstjórinn verð-
ur málshefjandi. Mun hann
sýna fram á, að fullyrðingar
blaða og smala andstöðuflokk-
anna um hitaveitumálið er
þvættingur og ósannindi. Auk
borgarstjóra taka til máls á
fundinum: Helgi Hermann Ei-
íksson, Guðrún Jónasson, Jak-
ob Möller, Gunnar E. Bene-
diktsson, Guðm. Ásbjörnsson,
Guðrún Guðlaugsdóttir, Bjarni
Benediktsson, og Magnús Jóns-
son.
Fundurinn hefst kl. 1.30.
Af sjerstökum ástæðum varða
þeir, er sækja fundinn, að sýna
í ' göngumiða við innganginn.
Sjálfstæðiskjósendur geta feng-
ið aðgöngumiða í Varðarhús-
inu niðri í dag og til hádegis
á morgun.
Fjárveitinganefnd Alþingis er
nu að koma saman hjer í bænum.
Þessí tilhögun var upp tekin til
þess að flýta fyrir afgreiðslu fjár
laganna og veita nefndinni tæki-
færi til þess að kynna sjer ræki-
lega rekstur ríkisstofnana. Ekki
taka allir nefndarmenn þátt í
þessu starfi áðnr en þing kemur
saman; munu þeir verða 7 sem
vinna í nefndinni fyrst nm sinn.
’íþróttafjelag Reykjavíkur fer í
skíðaferð á morgun að Kolviðar-
hóli, ef veður og færð leyfir. Far-
ið verður frá Söluturninum kl. 9
stundvíslega. Farseðlar sæltist í
Stálhúsgögn, Laugaveg 11 fyrir
kl. 6 í kvöld.