Morgunblaðið - 22.01.1938, Side 3
Laugardagur 22. jan. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Hú smæ^raskóli i Reykjav»k
Sjálfsfæðismenn hafa (víveg
is fliilt stiáliH
ú Alþingi
I bæði skifflin slrand-
aði það á and»löðu
sfljárnarliða
Atveim síðustu biníjum hafa J>ingmenn
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík flutt
frumvarp ,,um stofnun húsmæðra-
kennaraskóla Islands og húsmæðraskóla í Reykja
vík eða nágrenni hennar“.
1 hvorugt skiftið fekk frumvarpið náð hjá
stjórnarflokkunum og dagaði það því uppi í þing-
inu. En Sjálfstæðismenn munu halda áfram að
flytja fru^mvarpið á Alþingi, uns því er trygður
framgangur.
Þetta frumvarp er samið að tilhlutun kvenfjelagasambands
Islands og stendur öll kvenþjóðin á landinu að baki því. Kven-
fjelagasambandið skipaði árið 1935 þrjár konur í nefnd, til þess
að undirbúa málið, og áttu sætj í nefndinni Jónína Sigurðardótt-
ir, hótelstýra, Akureyri, frú Rjagnhildur Pjetursdóttir, Reykja-
vík og frú Margrjet Friðríksdójtir, Seyðisfirði.
Samkomuhús
Sjálfstæðismanna
í Eyjum
Frumvarpið felur í sjer mörg
og merkileg nýmæli, og þg,r sem
frúin á lista kommúnista við
bæjarstjórnarkosningarnar hjef
í bænum virðist ekkert vita um
þetta merkilega mál, þykir
rjett að fræða hana og aðrar
hennar líka um efni frumvarps-
ins.
SKÓLINN.
I gr. frumvarpsins segir:
,,í Reykjavík eða nágrenni
hennar skal setja á stofn hús-
mæðraskóla og í sambandi við
hann húsmæðrakennaraskóla
íslands.
Húsmæðraskólinn skal veita
konum þá kunnáttu, sem nauð-
synleg er hverri húsmóður og
gerir hana færa um að gegna
vel stöðu sinni.
Húsmæðrakennaraskóli ís-
lands, sem skal vera framhalds
deild húsmæðraskólans, skal
veita konum þá kunnáttu, sem
gerir þær færar um að takast
á hendur kenslu við húsmæðra-
skóla landsins eða við störfum,
þar sem þörf er á svipaðri kunn
áttu“.
FYRIRKOMULAG
Skólinn er þannig hugsaður
að hann geti verið heimangöngu
skóli fyrir stúlkur úr Reykja-
vík. Heimavistir fyrir um 50
nemendur eiga að vera í skól-
anum, svo og íbúð fyrir for-
stöðukonu, fasta kennara og
þjónustufólk.
Námstími húsmæðraskólans
er hugsaður 5 mánuðir, auk
þess tvö námskeið á ári hverju.
Námstími húsmæðrakennara-
skólans verði 2 ár, og ætlast
til að 10—12 nemendur geti
sótt skólann árlega.
Skólanum er ætlað að hafa
alt að 5 ha. land til umráða,
þar sem hafa má garðyrkju, ali
fuglarækt og annan búskap. —i-
Kenslan verður verkleg og bók-
leg. Garðyrkjukensla fer þar
fram, kensla í meðferð mjólk-
urkúa, svína og alifugla o. fl.
Sjeð skal fyrir því, að skól-
inn hafi aðstöðu til rannsókna
'á hagnýtingu ýmsra innlendra
fæðuefna. og njóti aðstoðar
rannsóknastofnana ríkisins í
þeim efnum. Þá er ætlast til að
skólinn njóti aðstoðar Háskól-
ans og Landsspítalans um ýms-
ar námsgreinar, svo sem heilsu
og lífeðlisfræði, meðferð ung-
barna o. fl.
STJÓRN SKÓLANS.
KOSTNAÐUR.
Ráðgert er, að ein forstöðu-
kona stýri báðum deildum skól-
ans og skipi atvinnumálaráðh.
hana, eftir tillögu skólaráðs. —
Henni til aðstoðar verði kenslu-
kona, sem aðallega sjer um hús-
mæðraskólann, svo og aðrir
kenslukraftar, eftir því sem
þörf krefur.
Skólaráð, er skipað sje þrem
konum, skal hafa umsjón með
skólanum og vera í ráðum með
forstöðukonunni um öll vanda-
mál skólans. Skólaráð skal
þannig skipað, að ein konan
verði tilnefnd af kvenfjelaga-
sambandi íslands, ein af bæj-
arstjórn Reykjavíkur og ein af
kenslumálaráðherra, og skal
hún vera formaður skólaráðs.
Ætlast er til, að ríkissjóður
leggi fram % af stofnkostnaði
skólans og Reykjavíkurbær V3.
Ot á þekju.
Þannig hafa konurnar hugs-
að sjer þenna skóla. Þær hafa
samið frumvarp um skólann,
sem Sjálfstæðismenn hafa —
Teikninf
af hinu nýja samkomuhúsi Sjálfstæðisflokksins í Vest mannaeyjum. Gunnlaugur Hall-
dórsson arkitekt teiknaði húsið.
800 manns
á vígsluhátíðinni
í kvöld
Hið nýja og veglega sam-
komuhús Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestmamiaeyjum, sem flokk-
urinn hefir látið byggja, verður
vígt í kvöld, og er búist við að
um 800 manns sæki vígsluhátíð-
ina.
Vígsluliátíðin liefst með sam-
eiginlegu borðhaldi klukkan 6.
Verða þar margar ræður fluttar.
Síðan verður dansað fram eftir
nóttu.
Bins og áður hefir verið get-
ið hjer í blaðinu, er samkomuhús
þetta hið vandaðasta í alla staði
og útbúið eftir nýjustu tísku.
Teikninguna gerði Gunnlaugur
Halldórsson arkitekt. — Kostn-
aður við bygginguna var á-
ætlaður 120—130 þús. kr., en mun
hafa farið eitthvað fram úr á-
ætun, m. a. vegna þess, hve bygg-
ingarefni hefir hækkað í verði.
I húsinu er einn stór salur, sem
tekur um 600 manns, en auk þess
er minni samkomusalur, sem tek
ur um 200 manns.
VÍGSLULJÓÐ, SUNGIN VIÐ VÍGSLU SAMKOMU-
HÚSS VESTMANNAEYJA I KVÖLD.
Þessa traustu, háu hÖll
hefir reist hinn sterki vilji.
Anda og handa. átök snjöll
eyða vanda, ryðja völl.
Samtak margra flytur fjöll,
framtak sjálfstætt brúar hylji.
Þessa traustu, háu höll
hefir reist hinn sterki vilji.
Ileilsar framtíð húsið uýtt,
heiðrar samtíð glæstu minni.
Hefir verki áfram ýtt
öflug dáð og snilli prýtt.
Inni bjart og inni hlýtt,
öllum fagna salakynni.
Heilsar framtíð Imsið nýtt,
heiðrar samtíð glæstu minni.
Hjer er fagurt sjónarsvið,
sólspor hlý til beggja handa.
Hjer skal vorhug leggja Kð,
lyfta menning, efla frið.
Stöndum örugg hlið við hlið,
hiklaust mætum öllum vanda.
Hjer er fagurt sjónarsvið,
sólspor hlý til beggja handa.
Vakið menn og vakið fljóð!
Vinnum heil svo meira birti.
Syngjum glaðvær sigurljóð,
sjálfstæð kyndum andans glóð.
Vinnurn landi, vinnum þjóð,
verjumst því að aftur syrti.
Vakið menn og vakið fljóð!
Vínntim heil svo meira birti.
Hallfreður.
FEtAMH. Á SJÖTTH SÍÐU
islenskur sjö-
maður hverfur
i Hull
Degar togarinn „Sviði“ var
seinast í Hull, síðastlið-
inn miðvikudag, hvarf einn af
skipverjunum, Gísli Ásmunds-
son. Fór togarinn frá Hull án
þess að Gísli kæmi á skip.
Óttast er að Gísli hafi fallið
í höfnina í Hull og druknað.
Gísli var ókvæntur, en læt-
ur eftir sig aldraða móður. —
Hann var 33 ára gamall og bjó
á Hverfisgötu 5, í Hafnarfirði.
H.f. Akurgerði í Hafnarfirði
sem gerir út „Sviða“ barst í
;ær skeyti frá Hull, þar sem
frá því var skýrt að Gísli, eða
iík hans, hefði enn ekki fundist.
Hvað er
Kommúnistaflokkurinn
og hverjirstjórna honum?
ii.
Isamnefndum bæklingi stjórnar Alþýðusambands íslands
segir:
„Eftirlitið og undirróðurinn fyrir alþjóðasamband komm-
únista innan Kommúnistaflokksins hafa fyrst og fremst
menn, sem sendir hafa verið af flokknum til Moskva og þar
verið aldir upp mánnðum og árum saman í blindri trú á al-
þjóðasamband kommúnista og skilyrðislausri hlýðni og undir-
gefni við fyrirskipanir og aga þess. Slíkir menn hjeðan að
heiman eru á hverju ári með meiri eða minni leynd sendir
austur í Moskva, og margir þegar starfandi hjer heima í
flokknuim sem agentar alþjóðasambandsins. — Ef „lína“ eða
fyrirskipanir þess mæta einhverri mótspyrnu eða gagnrýni í
flokknum, er hlutaðeigandi maður tafarlaust kærður í
Moskva og honum stefnt þangað, að viðlögðum brottrekstri,
og haldið þar þangað til hann hefir játað „villur‘‘ sínar,
„hægri“ eða „vinstri“, og beygt sig undir valdboð yfirboðar-
anna þar eystra“.
Skíðaferðir KR-inga um helg-
ina. KR-ingar fara á skíði að
skála sínum í dag kl. 2, í kvöld
kl. 8 og á mtirgun kl. 9 f. h. Þeir,
sem ætla í dag kl. 2, verða að til-
kynna þátttöku sína á bifreiða-
stöð Steindórs. Frekari upplýsing-
ar um ferðirnar í kvöld og á
morgun verða veittar í síma 2130
kl. 5—7 á skrifstofu fjelagsins í
KR-húsinu.
C-listinn er listi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
G-ermanía hjelt skemtifund s.l.
miðvikudgg við góða aðsókn, í
Oddfelhvhiisinu. Erich Schwinn
hjelt fyrirlestur um „Miinchen
und die Bayrischen Alpen“ og
sýndi fjölda af ágætum skugga-
mvndum.' Fyrirlestrinum var vel
tehið. Yið kaffidrykkju og dans
skemtu sjer meðlimir og gestir
þeirra hið besta fram yfir mið-
nætti.
Enskur togari kom í gær vegna
bilunar á ljósavjel.