Morgunblaðið - 18.02.1938, Síða 3
Föstudagur 18. febrúar 1938
MORGUNBLAÐIÐ
Nýi varðbátur-
inn Óðinn
Ðæjarstjórn skipar nefnð
í mjólkurmálið
Mynd af nýja varðbátnum „Óðni“, tekin nýlega á Pollinum
á Akureyri, þar sém báturinn var smíðaður. — Stærð bátsins er
um 70 smálestir og er hann allur smíðaður úr eik. Báturinn hefir
meðal annars útbúnaðar rafmagns dýptarmæli (ekkólóð). Vjelin,
^em er 6 cylindra, er 240 hestafla. og er gert ráð fyrir að bátur-
inn gangi 10 sjómílur. Talstöð er og í bátnum. Áhöfn verður 10
manns. —
Alþingi: Kosning
í fastanefndir
FUNDIR voru í gær í Sameinuðu Alþingi
og báðum deildum. Á dagskrá var
kosning í fastanefndir.
Alþýðuflokkurinn tók Hjeðinn Valdimarsson úr öllum þeim
nefndum, sem hann hafði áður verið í og situr Hjeðinn ekki í
neinni nefnd nú. Nefndarkosningar fóru þannig:
I SAMEINUÐU
ÞINGI.
Fjárveitinganefnd: Pj etur
Ottesen, Jakob Möller, Þor-
steinn Þorsteinsson, Jón Pálma-
son, Helgi Jónasson, Skúli Guð-
mundsson, Ásgeir Ásgeirsson,
Þorbergur Þorleifsson og Bjarni
Bjarnason.
Utanríkismálanefnd: Ólafur
Thors, Jóhann Þ. Jósefsson,
Garðar Þorsteinsson, Bergur
Jónsson, Bjarni Ásgeirsson, Ás-
geir Ásgeirsson og Jónas Jóns-
son. Varamenn: Magnús Jóns-
son, Thor Thors, Bjarni Snæ-
björnsson, Gísli Guðmundsson,
Páll Zóphóníasson, Pálmi Hann-
esson og Emil Jónsson.
Neðri deild:
Fjárhagsnefnd: Ólafur Thors,
Stefán Stefánsson, Skúli Guð-
mundsson, Sveinbjörn Högna-
son og Finnur Jónsson.
Samgöngumálanefnd: Gísli
Sveinsson, Eiríkur Einarsson,
Sveinbjörft Högnason, Þorberg-
ur Þorleifsson og Vilmundur
Jónsson.
Landhúnaðarnefnd: Jón
Pálmason, Pjetur Ottesen,
Bjarni Ásgeirsson, Steingrímur
Steinþórsson og Emil Jónsson.
Sjávarútvegsnefnd: Sigurður
Kristjánsson, Sigurður Hlíðar,
Bergur Jónsson, Gísli Guð-
mundsson og Finnur Jónsson.
ISnaðarnefnd: SiguPður E.
Hlíðar, Sigurður Kristjánsson,
Bjarni Ásgeirsson, Pálmi Hann-
esson og Emil Jónsson.
Mentamálanefnd: Pj etur
Halldórsson, Þorsteinn Briem,
Bjarni Bjarnason, Pálmi Hann-
esson og Ásgeir Ásgeirsson.
Allsherjarnefnd: Thor Thors,
Garðar Þorsteinsson, Bergur
Jónsson, Gísli Guðmundsson og
Vilmundur Jónsson.
Efri deild:
Fjárhagsnefnd: Magnús Jóns-
son, Bernharð Stefánsson og
Jón Baldvinsson.
Samgöngumálanefnd: Árni
Jónsson, Páll Hermannsson og
Páll Zóphóníasson.
Landbúnaðarnefnd: Þorst.
Þorsteinsson, Páll Zóphóníassoh
og Jón Baldvinsson.
S jávarútvegsnefnd: Jóhann
Jósefsson, Ingvar Pálmason og
Sigurjón Á. Ólafsson.
Iðnaðarnefnd: Bjarni Snæ-
björnsson, Jónas Jónsson og Jón
Baldvinsson.
Mentamálanefnd: Guðrún
Lárusdóttir, Jónas Jónsson og
Sigurjón Á. Ólafsson.
Allsherjarnefnd: Árni Jóns-
son, Magnús Jónsson, Sigurjón
Á. Ólafsson, Ingvar Pálmason
og Páll Hermannsson.
Tvft innbrot
í fyrrl nótt
Tvö innbrot voru framin í
fyrrinótt við Skúlagötu. —
Var, brotist inn í Kassagerðina
og í Bifreiðayfirbyggingaverk-
smiðju Tryggva Pjeturssonar &
Co. Eru húá þessi nálægt hvort
öðru.
Ekkert höfðu innbrotsþjóf-
arnir upp úr innbrotunum.
Borgarstjóri fór
utan vegna hita-
veitumálsins
Abæjarstjórnarfundi í gær
spurði Jón A. Pjetursson að
því, hvort. Pjetur Halldórsson
borgarstjóri hefði farið utan
vegna hitaveitumálsins, en hann
tók sjer far utan með Goðafossi
á miðvikudag.
Tontás Jónsson borgarritari
er mætti á fundinum f. h. borg-
arstjóra, skýrði frá, að svo hefði
verið.
Jón Axel kvartaði yfir því, að
liann hefði of lítið fengið um
þetta inál að vita, er liann mætti
á síðasta bæjarráðsfundi, en Jak-
ob Möller benti honum á, að það
væri honum sjálfum að kenna.
Hann liefði ekkert gert til þess
að kynna sjer málið.
Sigurður Jónasson reis þá upp
og þóttist hafa heyrt í Englandi
ýmsar slúðursögur um hitaveitu-
lánið, að það ætti ekki að fást
nema með miklum afföllum, svo
gengi þess yr.ði um. eða neðanvi.ð
90. Stundum nefndi hann gengið
70—80. Og álíka þvætting ann-
an bar hann fram.
Bjarni Benediktsson benti Sig-
urði á, að hann liefði ekki þurft
að fara til Ettglands til þess að
ná í þessar sögur, því þær væru
hinar sömu o:g Sigurður- bar út
hjer ura bæinn áður en hann
sigldi. Sljákkaði þá í Sigurði.
Jakob Möller sýndi Sigurði
fram á, að alveg' væri óþarfi fyr-
ir hann eða aðra að leggja eyrun
við þessh. sögum, því upplýsing-
ar, sem borgarstjóri gaf fyrir jól
afsönnuðu þær. Um erindi borg-
arstjóra til Eniglánds sagði Jak-
ob ennfremur, að liann hefði far-
ið til þess að binda enda á mál-
ið. Þegar hann var í London í
vetur, liefði staðið á leyfi ensku
stjórnarinnar til lántökunnar, og
það leyfi væri ekki enn fengið.
Til að vinna með
mjólkursölunefnd
að aukinni
mjólkurneyslu _
MJÓLKURMÁLIÐ var á dagskrá á bæjar-
stjórnarfundi í gær. Urðu alllangar umræð-
ur um málið, iitaf verðhækkuninni á
mjólkinni, en snerust að miklu leyti um skipulag mjólkur-
sölunnar.
Mjög var það áberandi, að vinstriflokkarnir eiga erf-
itt með, eða treysta sjer ekki til þess að mæla með skipu-
lagi því, sem nú er. Fulltrúi Framsóknar, Sigurður Jónas-
son tók þó ekki til máls.
Sú rakalausa staðhæfiug vittstri blaðaima, að hækkuu mjólkur-
verðsins hafi verið sett á fyrir tilstilli Sjálfstæðismanna, fjell alveg
máttlaus niður á fundinum, þegar það upplýstist, sem alveg ómót-
mælanlegt, að tillaga Guðm. Eiríkssonar um mjólkurverðið miðaði að
því, að draga úr þeirri verðhækkun, er meirihluti mjólkurverolags-
nefndar hafði ákveðið.
Sjálfstæðismenn báru fram álvktun í málinu, er lá fyrir fund-
inum, og var liún samþykt með samhljóða atkvæðum — 9, en and-
stæðingaflokkarnir greiddu ekki atkvæði um liana. Ályktunin var
svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur ályktar að mótmæla þeirri hækk-
un á útsöluverði mjólkur, sem kom til framkvæmda 13. þ. m.
Ennfremur lýsir bæjarstjórnin sig andvíga núverandi skipu-
lagi mjólkursölunnar, þar sem það hljóti að leiða af sjer hækk-
un á útsöluverði, án þess að búrekstur bænda verði lífvættlegri,
sökum minkandi mjólkurneyslu, er af verðhækkuninni stafar.
Bæjarstjórnin telur kinsvegar brýna nauðsyn berá til að bæta
úr ágöllum mjólkurskipulagsins í framkvæmdinni svo sem unt
er, draga sem mest úr dreifingarkostnaði mjólkurinnar og bæta
meðferð hennar og vinna að því, að mjólkurverðið verði lækkað
vegna vaxandi mjólkurneyslu, svo hagsmuna mjólkurframleið-
enda og neytenda sje sem best gætt.
Ályktar bæjarstjórnin því að kjósa þriggja manna nefnd til
að vinna að því, að ráðstafanir verði gerðar í þessu skyni og
skorar á mjólkursölunefnd til samvinnu í því efni“.
Skíðanámsskeiði
frestað vegna hláku
Skíðanámskeið Skíðafjelags
Reykjavíkur, sem átti að
hefjast í dag, hefir verið frest-
að. Ástæðan er hinar sífeldu
rigningar.
Nægur snjór er enn þá við
skíðaskálann á Hellisheiði, og
mjög mikill snjór á fjallinu; en
vegna hlákunnar er skíðafæri
orðið afar slæmt.
Nemendur á fyrsta námskeiði
fjelagsins, sem staðið hefir yfir
síðan um síðustu helgi, hafa
notið góðrar kenslu þrátt fyrir
óhagstætt veður.
Fiskiþingið
Fiskiþingið hjelt fundi í fyrra-
dag og í gær, og fundur verð
ur lialdinn í dag kl. 4.
Á fundinum í fyrradag voru
lagðir fram reikningar Fiskifje-
lagsins árið 1936 og 1937 og enn-
fremur fjárhagsáætlun fjelagsins
fyrir næstu tvö ár.
Málum þessum var vísað til
fjárhagsnefndar. Þá var og lagt
fram brjef frá Farmanna- og
fiskimannasambandi Islands um
kaupa á tímaritinu Ægi. Yar því
vísað til allsherjarnefndar.
Á fundinum í fyrradag voru
rædd þessi mál: Landhelgismál,
hafnarbætur, síldarbræðslumál.
Ollu var vísað til Sjávarútvegs-
nefndar.
Á fundinum í gær voru eftir-
farandi mál tekin til 1. umræðu:
Þátttaka í alþjóða hafrannsókn-
um. Skoðun skipa og eftirlit
þeirra. Talstöðvar í fiskibáta.
Vitamál. Slysatrygging sjómanna.
Á Fiskiþinginu er fundarstjóri
Geir Sigurðsson og varafuudar-
stjóri Benedikt Sveinsson, ritari
er Kristján Jónsson og til vara
Níels Ingvarsson.
Tillögur komu og frá kommún-
istum og frá Alþýðuflokknum.
Tillagan frá kommúnistum fór
í þá átt, að skora á mjólkurverð-
lagsnefnd að breyta mjólkurverð-
laginu í það sama og áður og
skora á nefndina að rannsaka,hvað
liægt sje að 'gera til þess að auka
mjólkurneysluna og bæjarstjórn
aðstoði nefndina í þeim aðgerð-
um, en verðið lækki jafnóðum og
salan eykst.
Tillaga Alþýðnflokksintj var að
mótmæla verðhækkuninni, og
breyta verðinu í það sania og áð-
ur. En verði nefndin við þessu,
þá heiti bæjarstjórn því, að beita
sjer fyrir aukinni mjólkurneyslu,
en varar við hættunni af mink-
andi neýslu.
Þareð tillaga Sjálfstæðismanna
gekk lenigst í málinu, var liún
borin upp fvrst. En í hinum tillög-
unum var þá ekkert, sem máli
skifti umfram tillogu Sjálfstæðis-
manna, og komu þær því ekki til
atkvæða.
Er ályktun Sjálfstæðismanna
hafði verið samþykt, var kosið í
nefndina. Komu fram 2 listar, en
ekki fleiri nöfn en kjósa skyldi.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.