Morgunblaðið - 14.04.1938, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 14. apríl 1938.
Kaupmcnn!
Munið eftir að hafa
Gold Medal hveiti
í 5 kg. pokum
fyrir páskana.
Heildsölubirgðir
H. Benediktsson & Co.
Gfié’tvk-
Vátryggingarhlutafjelagið
NYE DANSKE AF 1864
Liftryggingar
allar tegundir. Lægst iðgjöld. Best kjör.
Aðalumboð:
Y átryggingarskrif stof a
Sigfúss Sighvatssonar,
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Sími 1380. LITLA BILSTOÐIN Er nokknQ etór.
Opin allan sólarhringinn.
Einasti norski bankinn
með skrlfstofur í
Bergen, Oslo
og Haugesund.
m
r ~
•'•L-
Stoínfje og varasjóðir
27.000.000 norskar kronur.
BERGENS PRIVATBANK
Þrír aðilar þurfa að vinna
saman: Heimilin, skólarnir
og kirkj an
Frá fyrirlestrarstarfi
Pjeturs Sigurðssonar
Allir landsmenn kannast við
Pjetur Sigurðsson erindreka.
I 8 ár hefir hann ferðast um land-
ið til þess að vekja áhuga almenn-
ings fyrir kristindómi, kirkju- og
trúarlífi, fyrir bindindi, hættum
uppeldisháttum og auknu menn-
ingarstarfi meðal almennings í
kaupstöðum, kauptúnnm og sveit-
um landsins.
Hann kom vestan frá Ameríku
með Alþingishátíðargestunum
1930, ásamt fjölskyldu sinni, til
að setjast hjer að. Hann er Skag-
firðingur að ætt, fæddur að Hofi
á Höfðaströnd. Fór til Ameríku
árið 1920, og starfaði mikið þar
vestra á sviði trúmála. Fyrstu ár-
in eftir 1930 ferðaðist hann um
landið og lijelt fyrirlestra, án
þess að hann kæmi fram sem full-
trúi neins fjelagsskapar. Erindi
lians hingað heim var að vekja
almenning til umhugsunar um and
leg mál. Og svo vel var honum
tekið og málefnum þeim er hann
flutti, að hann þurfti eigi stuðn-
ing til þessarar starfsemi sinnar,
er horin var nppi af stakri góð-
vild til allra manna og hrennandi
áhuga á því að vera þjóðinni gagn-
legur maður.
En þar eð bindindismálið er eitt
af hjartfólgnum áhugamálum Pjet
urs, fór Stórstúkan þess á leit við
hann, að hann gerðist að nokkru
leyti starfsmaður hennar. Og svo
hefir verið hin síðari ár. Ferðast
l’jetur um iandið á vegum Stór-
stúkunnar, heldur fyrirlestra og
vinnnr að því að efla starfsemi
stúknanna og stofna nýjar.
Á þessum sífeldu ferðalögum
sínum hefir Pjetur fengið alveg
sjerstaklega mikinn kunníeik á
hugsunarhætti og högum almenn-
ings víðsvegar um land, en þó
einkum í kaupstöðum og kaup-
túnum. Er fróðlegt mjög að heyra
Pjetnr segja frá þessum kunnleik
sínum. En um eitt og annað, sem
þer fyrir augu hans og eyru, og
að uppeldismálum lýtur, er hann
fremur fáorður. Stafar það þó
ekki af því, að honum sje það ekki
ijóst, að miklar umbætur eru nauð-
synlegar víða í þeim efnum.
Nýlega hitti tíðindamaður blaðs
ins Pjetur að máli. Hann var þá
nýkominn úr 2 mánaða ferðalagi
um Austurland, Norðurland og
Vestfirði.
— Yfirleitt er að lifna yfir
bindindisstarfseminni, segir Pjet-
ur, og bindindisáhugi almennings
að vaxa. En altaf er dáufast yfir
kaupstöðtumm og þorpunum aust-
anlands. Þar er armæðan mest og
iirræðaleysið. Þar er einna erfið-
ast. að fá fólk til fjelagslegra
samtaka. Á Akureyri hefir fje-
lagsmönnum fjölgað í stúkunum á
þessu ári, á Sígjufirði eru fjelags-
menn orðnir 170, á Sauðárkróki
hefir meðlimatalan tvöfaldast á
þessu ári, á Húsavík er líka góð
framför í bindindisstarfinu, sama
er að segja á ísafirði, Flateyri,
Súgandafirði og víðar.
Nýlega hjelt 'umdæmisstúka
Vestfjarða þing á Flateyri. Stúk-
urnar á Vestfjörðum eru nú orðn-
ar 25 að tölu. Á umdæmisstúku-
þingi þessu var samstarf ágætt og
þingið hið ánægjulegasta.
Hjer sunnanlands hafa verið
stofnaðar 6 stúkur á þessu ári, eða
endurreistar. Tvær í Reykjavík,
en sín hvor á þessum stöðum,
Keflavík, Sandgerði, Grindavík og
austur í Biskupstungum.
Getið þjer í stuttu máli nefnt
mjer nokkur atriði sem þjer legg-
ið megináherslu á, er þjer flytjið
hvatningarerindi yðar í bindind-
isfjelögunum?
— Jeg bendi m. a. á það, hve
mikið gildi fjelagslífið hefir fyrir
menn, þar sem það eflir samhng
fólks og viðkynningu. Jeg læt ekki
hjá líða að vekja athygli á því,
að við Islendingar erum yfirleitt
eftirbátar anpara þjóða í almennri
kurteisi og siðfágun. En einn þátt-
nrinn og hann mestur í hættri
siðfágun er bindindið, og bind-
indisstarfið í stúkunnm, elur menn
upp til þesá að starfa með öðrum
að menningar- og umbótamálum.
Mjer er það alveg ljóst, að ár-
angur sá sem þjóðin fær nú af
uppeldisstarfsemi skólanna er ekki
fullnægjandi, og sumsstaðar all-
langt frá því. Jeg legg áherslu
á, að hið kirkjulega starf hlýtur
að vera undirstaða uppeldismál-
anna. Til þess að uppeldismálum
þjóðarinnar verðið komið í gott
horf,þurfa allir þrír aðilar að vinna
saman í einlægu samstarfi, og það
eru heimilin, skólarnir og kirkjan.
Því eins og jeg nýlega hefi lesið
í bók eftir biskupinn í Birming-
ham um uppeldismál• til þess að
kennarar og uppfræðarar æsku-
lýðsins verði vel vanir starfi sínu,
þurfa þeir að vera kirkjulega
mentaðir og hafa fengið vísinda-
lega uppfræðslu í kristindómi.
K. R.-ingar. Knattspyrnuæfing
í dag kl. 2 fyrir 1. og 2. flokk.
Veggíóður
fjölbreytt úrval, nýar gerðir.
Guðm. Ásbjörnsson.
Laugaveg 1. Sími 4700.
HYEITI
í smápokum og lausrí vigt. Succat.
Flórsykur. Möndlur. Hjartarsalt.
Dropar allar teg. Sultutau og ný-
orpin EGG. — Bæjarins besta
GERDUFT aðeins 1.25 Vz kg.
HRinflnnsBUÐ
Týsgötu 1 — Sími 3586.
Krossgáfa Morgunhlaðsins 29
H!
*
Lárjett.
1. efnafræðislegt einkenni. 6. persóna í leikriti. 12.
virða. 14. árið. 15. tónskáld. 17. fjarstaða. 20. kín-
verskt nafn. 21. svað. 23. yfirgefnar. 24. bágt. 25.
á fati. 27. fljót. 28. út. 30. sá. 31. fugls. 33. höfði.
34. tittur. 35. sterkt. 36. eldsneyti. 37. hljóðstafir.
39. iíffæri. 41. bitur. 43. drungi. 45. ratvís. 47. rjett-
indi 49. farartækis. 51. brotleg. 52. dónaskap. 53.
hreyfast. 54. sjávardýr. 47. fall. 58. efnafræðis-
skammstöfun. 59. eiginmenn. 61. rithöfundur. 62.
vegnr. 63. þekkist. 65. víddin. 66. fuglar.
Lóðrjett.
1. Rússi. 2. tónn. 3. sjá. 4. rúmsjór. 5. söngur. 7.
æða. 8. veiðiskip. 9. mannsnafn. 10. gras. 11. lífs-
þægindi. 13. hæstur. 16. kvæði. 18. skiki. 19. ekki
þessi. 20. óðagot. 22. hörmulega. 24. gróði. 26. sæl-
una. 29. makleg málagjöld. 31. heill. 32. biblíunafn.
08. biræfni (þolf.). 40. fall. 41. hneigja sig. 42.
myndir. 44. seiða. 46. tilskorin. 48. —stöðin. 50.
kantalaus. 52. óráðinu. 55. forn valdamaður. 56.
annars. 59. ölstofa. 60. í stiga. 62. teiknari. 64. erl.
inynt.