Morgunblaðið - 14.04.1938, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.04.1938, Blaðsíða 5
ílmtudagur 14. apríl 1938, MORGUNBLAÐIÐ Útgef.: H.f. Arvakur, Reykjavlk. Rltstjðrar: Jðn KJartansaon og ValtjT Btel&nuoa (AbyrgBarmaOur). Auglýsingar: Árni ÓXa. Rltstjðrn, auglýsingar og afgrelCsla: Austuratrntl t. — Siml ltðð. Áskriftargjald: kr. 1,00 á mánuCi. í lausasölu: 1E aura elntakiO — It aura aet IAabök. HIIAVEITAN 5 Magn᧠Bjðrnsson: F erðir fuglanna heim og heiman Borg-arstjórinn Pjetur Hall- dórsson er kominn heim úr utanför sinni. Erindi hans utan var alkunnugt. Hann hugði að .greiða fyrir því, að lán það, er lofað var í vetur til hitaveit- unnar fengist sem fyrst. En jjegar til átti að taka, strand- .aði lánveitingin á því, að breska stjórnin hefir enn ekki veitt leyfi sitt til lánveitingarinnar. Hvérnig synjun þessa ber ;að, skýrði borgarstjóri blaða- mönnum frá í gær, og er frá- sögn hans birt á öðrum stað lijer í blaðinu. Er þetta mál bar á góma fyrir jólin í vetur, eftir Eng- landsför borgarstjóra, og lof- orð lá fyrir um lán, frá hinu enska fjármálafirma Power Se- eurities Corporation, var frá :J>ví skýrt, að leyfi ensku stjórn- arinnar lægi ekki fyrir. En þá leit hið enska firma svo á, að það væri ekki annað en forms- atriði, sem eigi gæti skapað aieina fyrirstöðu í málinu. Þegar borgarstjóri kom til iLondon í áliðnum febrúar, var komin synjun frá ráðgjafar- aiefnd ríkisstjórnarinnar í lán- veitingamálum, um að hún anælti með lánveitingu þessari. En hið mikilsvirta enska 'firma vildi ekki enn trúa því, að hjer væri um neina alvar- lega hindrun að ræða. Og svo ;sterk. var trú hinna ensku fjár- málamanna á því, að leyfi þetta hlyti að fást, og þeir fengju að standa við gefin loforð til Reykjavíkurbæjar um lánveit- ing til hitaveitunnar, að þeir fengu borgarstjóra til þess að vera í hálfan mánuð í London á meðan þeir voru að reyna til hlýtar hvort leyfið feng- ist ekki. En leyfið fjekst alls ekki, hvernig sem þess var leitað, og hverjar sem orsakir þessarar synjunar hafa verið. Hvernig stendur á þessari al- gerðu synjun? Menn spyrja. En fullnaðarsvar við þeirri spurningu er ekki fengið. Niðurstaðan er þessi: Það, sem hinir ensku fjármálamenn hjeldu í vetur að gæti ekki komið fyrir, töldu alveg úti- lokað, það er nú komið á dag- inn. Stjórnarleyfið, sem þeir töldu sjer alveg víst, til þess að veita lánið, hefir ekki getað fengist fram á þenna dag. V Eins og gefur að skilja, er ■ekki hægt að láta við svo búið standa. Þó hið enska fjármála- firma hafi tjáð borgarstjóra, að lánið sje til reiðu undir eins og stjórnarbanninu er afljett, þá verður vitaskuld ekki beðið eftir því. Hitaveitan er svo mikið hagsmunamál fyrir bæj- arfjelagið í heild sinni og fyrir hvern einstakan bæjarmann, :að borgarstj. mun eins og hann skýrði blaðamönnum frá í gær, halda áfram að vinna að þessu máli, og hraða því, eftir því sem frekast er unt. En eins og allir geta sjeð, þá eru ekki sex miljónir gripnar upp af götu sinni fyrir Islendinga, eins og fjárhagnum nú er kom- ið, og eins og álit þjóðarinnar út á við hefir spilst vegna við- skiftaóreiðu síðustu árin. En hitaveitan er svo glæsi- legt framtíðarfyrirtæki, verður svo arðberandi og er í alla staði svo sjerkennilega skemtilegt verk, að menn verða að vænta þess, að eigi líði á löngu, uns nægilegt fje fæst til hennar. öllum góðum mönnum hlýt- ur að verða bann ensku stjórn- arinnar hin sárustu vonbrigði. En þó er á það að líta, að það er ótímabundið, og má því vel svo fara, að því verði afljett áður en varir. En hvað sem um það er, þá er hitaveitan svo gott framtíð- arfyrirtæki, svo gróðavænlegt og glæsilegt í alla staði, að öll- um hindrunum gegn fram- kvæmd hennar verður að ryðja úr vegi. Umræðuefnið í dag: Neitun bresku stjórnar- innar. Viðskiftaskrá Reykjavíkur Atvinnu- og kaupsýsluskrá Reykjavíkur er nýkomin. Út- gefandi er Steindórsprent. Útgáf- an hefir dregist lengur en ráð yar fyrir gert upphaflega, og mun það stafa af því, hve erfitt er að safna öllum þeim mörgu upplýsingum, sem nauðsynlegar verða að telj- ast í slíkri hók, einkum þegar um frumútgáfu er að ræða, eins og hjer á sjer stað. Viðskiftaskránni er skift í þrjá flokka. 1 fyrsta flokki er alþingis mannatal,. ríkisstjórn og bæjar- stjórn Reykjavíkur, fjelagsmála- skrá Reykjavíkur, kort af íslandi og nýtt kort af Reykjavík, sem ágætt er að fá, því að önnur kort eru fyrir löngu orðin úrelt. Fje- lagsmálaskráin er mjög merkileg- ur kafli, því 'að hvergi annars stað ar liafa menn aðgang í einu lagi að þeim upplýsingum, sem þar eru. Eru þarna talin flest eða öll fjelög í borginni með upplýsing- um um þau og stjórn þeirra, og ennfremur ýmsar opinberar stofn- anir og fyrirtæki. í öðrum flokki cr nafnaskrá fyrirtækja og at- vinnurekenda og í þriðja flokki varnings og starfsskrá með efnis- yfirliti á fjórum tungum. Ætlun útgefanda er að auka við skiftaskrána frá ári til árs, þang- að til hún nær til flestra eða allra kaupstaða landsins. Þá er og ætl- ast til þess, að hún komi fram- vegis út í janúármánuði ár hvert. ‘ Doktors- vðrn Jeg var viðstaddur doktorsvörn- Helga P. Briem við heimspeki- deild Háskólns, sem fór fram 7. þ. m. í lestrarsal Landsbókasafns- ins. Slíkar athafnir hefi jeg ekki verið við hjer áður, en oft ann- arsstaðar, og þótti mjer því nokk- uru varða, hvernig til tækist. Að ýmsu leyti varð jeg fyrir von- brigðum. — Ekki þannig að skilja, að ritgerð H. P. B. og hann sjálfur sem doktorsefni væri ekki fyllilega frambærilegt. Ilann er greinilega áhugasamur í fræði- rannsóknum og talsvert slingur í ritmensku, þótt liann sje hins vegar ekki nógu þjálfaður í að rita góða íslensku. En af riti hans „Byltingin 1809“ (eða „Sjálfstæði íslands 1809“, eins og það hjet í útgáfu Þjóðvinafjelagsins á síð- astliðnu ári, sem er eins konar ný Jörundar saga hundadagakóngs) er þó greinilegt, ef til vill af því hversn ritið er viðamikið, að hann hefir í niðurskipuir ekki til fulls ráðið við efnið, nje heldur virð- ist hann alveg laus við lilutdrægni á nokkrum stöðum, sem vitaskuld alt getur staðið til bóta. En hitt kom til, í mínum augum, að fyrst og fremst vantaði þessa „dokt- orsvígslu“ (ef svo mætti nefna það) stíl og fast forrr.. — Lestr- arsalur Landsbókasafnsins reynd- ist ekki heppilegt „auditorium“ Bæði hafði verið vanrækt að koma fyrir nægum sætum, með því að rýma burtu hinum stóru borðum, og svo er þar sjerlega illa hljóð- bært. En yfirleitt virtist þar ríkja hirðuleysi frá hálfu Háskólans um snið og fyrirkomulag. Þetta varð eins og ljelegt fundarhald — deildarforseti og andmælendur doktorsefnis voru svo sem alveg inni í eða við' áheyrendaþvöguna, alt ósundurgreint, svo að kom jafnvel fyrir, að menn úr áheyr- endahópi fóru að skeggræða við þá (að vísu í hljóði, en það var þó áberandi formleysi). Tveir þeir æðstu af þessum háu herrum, for- seti heimspekideildar og frumand- mælandi, komu í sínum hversdags fötum, ekki einu sinni með hvítt um hálsinn; en hinn andmæland- inn „ex officio“ og einnig and- mælandi „ex auditorio“ voru þokkalega klæddir, í „svörtu og hítu“, þótt ekki væri kjólbúning- ur. Doktorsefni sjálft var ólast- anlega búinn, í sínum besta skrúða. — Þessi framkomu-ágalli hjá þessum annars virðulegu mönnum á ef til vill að skýrast sem eittlivað „demokratiskt", en slíkt getur orðið „plebejiskt“. PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU á er lóan komin „að kveða burt snjóinn“, segi jeg við Magnús Björns- son fuglafræðing, er jeg mætti honum á götunni í fyrradag:. En Magnús hefir^ haft umsjón með fuglamerk- ing'um hjer á landi undan- farin ár, og er allra manna fróðastur um alt er að ferð- um farfugla lítur. Já, lóan cr komin, segir hann. En það er ekkert merkilegt við það. Jeg veit ekki betur en hún komi hjer oft síðustu vikurnar í mars. Annars er dálítið erfitt að átta sig á því hvort um aðkomu- lóur er að ræða, nema þær sjáist í hópum. Þá eru þær að koma. En hjer er altaf slæðingur af Ió- um á vetrum. Maður veit að vísu ekki hvort það eru íslenskar lóur, sem verða eftir hjer á haustin, ellegar það eru lóur sem koma norðan af Norð-austur-Grænlandi. Þar er ofurlítið af lóum. Mjer þykir trúlegt, að lóum, sem vanar eru liarðbýlinu þar, þyki svo gott hjer að vera að þær flytji sig ekki lengra suður á bóginn. í Annars er það skoðun mín, bætti Magnús við, að strjálingur af þeim eiginlegu farfuglum íslensk- um verði hjer eftir á haustin. Að það sjeu aðallega gamlir fugl- ar sem verða eftir á haustin. Jeg held jeg megi fullyrða, að ferða- tilhneiging fuglanna minki með aldrinum og gömlu fuglarnir eigi beinlínis erfiðara með langflugið en hinir, sem yngri eru. — Hvaða leiðir fara farfugl- arnir, og hver fara þeir aðallega? — Menn heldu lengi vel, að farfuglarnir veldu sjer stystu leið landa á milli, og flygi um Fær- éyjar, til þess að geta hvílt sig þar. En þetta er ekki rjett. Það hafa merkingar okkar þegar sýnt og sannað. Nú er búið að merkja mn 4000 fugla, þessi 7 ár, sem merkingar hafa farið fram. Og við höfum frjett til um á þriðja hundrað. Aðeins einn einasti fugl, sem hjer hefir verið merktur, hefir fundist í Færeyjum. Það var svart bakur, sem er ekki eiginlega far- fugl, en sjófugl er flældst víða. ís- lenskir farfuglar leggja fæstir leið sína um Færeyjar. Aðallega fara farfuglar okkar til Bretlandseyja. Þar munu flest- ir þeirra liafa veturvist, á Skot- landi og Englandi, þegar vetrar eru mildir, en flytja sig um sel til írlands, þegar vetrar eru með harðara móti á Englandi eða á meginlandinu. A suðvesturströnd írlands er enginn vetur á okkar mælikvarða. En nokkuð af hinum íslensku fuglum fer lengra suður á bóginn. En leiðin sem farfuglarnir velja sjer er áreiðanlega hin sama og reyndir siglingamenn myndu gera. Það er hin feeina stefna til ákvörð- unarstaðarins. Það er talað um að skógarþröst- urinn sje nýkominn. En hjer eru áreiðanlega skógarþrestir allan veturinn. Hvorttveggja er rjett, segir Magnús. Talsvert er af þröstum hjer alt árið. En þeir, sem eru að- komnir og nú nýkomnir eru auð- þektir frá hinum, sem hjer hafa verið í vetur. Það eru aðkomu þrestirnir sem syngja öll lifandi ósköp í húsagörðunum á morgn- ana þegar sjer til sólar. En þeir sem hjer hafa kúldrast í vetur eru ekki enn vaknaðir til lífsins, og farnir að syngja. En þjer sem svo mikið vitið um fei’ðalög og líf fuglanna, getið þjer ekki sagt mjer eitthvað um það livernig á því stendur að æðar- fugli fækkar víða á landinu, enda þótt hjer hafi engin ísaár verið lengi og engir áfellisvetrar ? Það er nærri því að segja skömm að því, segir Magnús, hve lítið við vitum um æðarfuglinn, þenna eftirlætisfugl okkar. En það er ekki hægt um vik fyrir okkur, sem eitthvað vildum um þetta hnýsast, því lögum samkvæmt er æðarfuglinn heilagur fugl, sem ekki má snerta, ekki einu sinni til vísindalegra rannsókna. Maður veit t. d. sáralítið enn í dag á hverju æðarfuglinn okkar lifir. Sagt er í fræðibókum, að hann eti aðallega skeldýr og þess- háttar, og við höfum það eftir. Eu rannsóknir hafa ekki verið á því gerðar á hverju, hann lifir inest- megnis hjer á landi. Jeg liefi ekki getað fengið varp- bændur til þess að merkja æðar- fugla, nema þá unga. En það er svo tilgangslítið að merkja ung- ana, því svo mikill urmull drepst af þeim altaf. Menn gera sjer yfir- leitt litla hugmynd um hve mikið fer forgörðum af ungum fnglanna. Sennilegast er, að æðarfuglinn sje hjer við land alt árið, fjar- lægist ströndina er fram á haustið kemur, sje á grunnsævi eigi langt frá landi. Því þegar ís kemur að Norðurlandi á vetrum, kemur fugl- inn upp að landi. Þó getur verið að eitthvað af æðarfugli fari suður á bóginn á vetrum, suður að Englándsströnd- um, og jafnvel suður á Spáni er æðarfugl á vetrum. En livaðan sá fugl kemur veit maður ekki. Hann getur ftomíð frá Noregi. Strjál- ingur af æðarfugli verpir á Eng- landi, þó ekkert sje um hann hirt þar. En hveriiig stendur á því að æðarfugli fækkar hjer við land, er jeg ekki maður til að segja. Jeg heyri að sumstaðar sje ekki eins vel hirt um varplöndin og áður var. Og þá er eðlilegt að fugli fækki þar. Vel má vera að sá FRAJVTH. Á SJÖTTU ÖÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.