Morgunblaðið - 14.04.1938, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Fhntudagur 14. aprfl 1938.
6
Minningarorð um
Björn Blöndal Guðmundsson
F. 6. des. 1906.
Tilkynning!
, Porraenji á bátura þeim lem
*tla að stunda dragnótaveiðar
hjer við Snæfellsnes á þessu ári,
athug'i vel hafnarreglugerð fyrir
Ólafsvíkurhöfn.
Sjá Stjórnartíðindi B 5 14. des.
1936 á bls. 360.
Eins ber þeim bátaformönnum
sem stunduðu hjer veiðar 1937,
Vomu hjer í höfn, og fluttu hing-
flutning, en gerðu misjafnleg
Bfkil, að áthuga líka þessa reglu-
jerð.
Ólafsvík, 12. apríl 1938.
Fyrir hönd hafnarsjóðs.
Davíð Einarsson
(p. t. fjehirðir).
„BrúarfossH
fer á páskadagskvöld 17.
apríl kl. 10 til Breiðafjarð-
ar, Vestfjarða, Siglufjarðar
oe: Akureyrar.
Aukahafnir: Súganda-
fjörður og- Bolungavík í
vesturleið og- Sauðárkrókur
í suðurleið.
, ___ * ? i
Farseðlar óskast sóttir
f.yrir hádesi á lau;rardag.
----------I-------------
M.s, Dronning
Alexandrine
fer mánudag 18. h. m. kl. 6
síðd. til Kaupmannahafnar
(um Vestmanríaeyjar og
Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla
fyrir kl. 3 á' laugardag.
Tekið á móti vörum til kl.
3 á laugardag.
Skipaafgr. Jes Zimsen
TryRRvagötu. — Sími 3025.
Dokfors-
vörn
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
TJm sjálfar viðræður aðilja
(Vappræðurnar) fjölyrði jeg ekfci.
Þó skal þessa látið getið: Dokt-
orsefni stóð sig vel, að kalla
mátti; var þó óþarflega firtinn
yfir nokkrum athugasemdum og
jafnvel á pörtum full-unggæðis-
legur eða' hortugur, sem þó var
ekki með öllu tilefnislaust. Prum-
andmælandi heimspekideildar var
míklu dauf^ri en menn b.juggust
við, svo skeleggur maður sem hann
ella er, og lítið nákvæmur í gagn-
rýni sinni, enda heyrðu vart aðr-
ir áheyrendur til lians að fullu en
þeir, er næstir sátu (sem verður
að metast óþarfa kurteisi af svo
vel rómuðum manni). Gleggri var
annar andmælandi deildarinnar,
og tók hann efni það, er hann
gerði athugasemdir við, föstum
tökum og beitti góðum rökum. —;
En mesta eftirtekt vakti þó and-
mælandinn úr áheyrendahóp, vel
undirbúinn og til í alt, en hafði
þó ekki takmarkað umræðuefni
sitt. nægilega, var einnig að
nokkru Ieyti um of hótfyndinn og
í sumu ekki nógu heflaður. Ekki
leyndi sjer þó mikill lærdómur
ljans í þessum efhum. Má og vera,
að honunr hafi runnið nokkuð
blóðið til skyldunnar, því að fað-
ir hans hafði verið á sinni tíð
alira manria fróðastur í .Jörund-
arsögu og ritað um það ágæta
bók (én ekki ,(minni háttar rit-
gerð“, eins og einhver, sem lang-
ar til að nart.a, héfir slegið fram
í Nýja Dagbl.). G. Sv.
FERÐIR
FUGLANNA.
FRAMH. AF FIMTU SÓ>U.
fugl sem úr vörpunum flæmist
fyrir truflanir 'þar eða vanhirðu,
eða afrækir þau af einhverjum ör-
sökum, komi ekki fram í öðrum
varplöndum, heldur verpi á víð
og dreif. T. d. eru æðarhi'eiður á
Strjálingi alla leið frá Keykjanesi
og austur í Skaftafellssýslur, þó
eigi sje um veruleg varplönd að
ræða.
En æðarfuglinn er vissulega svo
merkilegur nytjafugl fv'i'ii' okkur
Isleridmga, atð vísindalegar rann-
sóknir á lífi hans ættu ekki léng-
ur að vera bannaðar með lögum,
segir Magiu^ uln loið 'og liann
kyéðtir mig fil þéss að fl'ýta sjer
að athuga JA'astabóp í reynitrje,
sem syngja eins og þeiin sje borg-
að fyrir, glaðið og reifir, nýkomnir
suri'nán úr sólarlöndum.
Neitun bresku
stjórnarinnar
VAAMM. AF SÍWS.
Þá er heldur ekkert hægt um
það að segja, hvort hægt er að
gera sjer vonir um, að heimild
verði bráðlega gefin til þess-
arar lánveitingar sjerstaklega.
En eftir þessu getum við ekki
beðið í óvissunni. Og því fór jeg
að athuga aðrar leiðir til lausn-
ar þessu málj.
Jeg get sagt það sem mína
skoðun, að jeg tel ýmsar leiðir
færar til fjárútvegunar, að at-
huguðu máli, og jeg geri mjer
vonir um, að verkið komist á
rekspöl á næstu tímum.
Jeg átti í ferð minni tal við
ýmsa áhrifamenn og mikils-
megandi í Danmörku og Sví-
þjóð, og sýndu þessir menn
fulla velvild til íslands og
Reykjavíkur sjerstaklega,
skildu erfiðleika okkar og
fanst þeir að vissu leyti eðli-
legir eins og viðskiftum okkar
væri nú háttað.
En á þessu stigi málsins vil
jeg ekki vera djarfmæltur um
það, hvers er að vænta um lán-
tökur, en vænti þess að þeim
málum þoki áfram nú á næst-
unni, a. m. k. á næstu vikum.
Erfiðleikar eru þó á því, að
fá lánið að öllu leyti í Dan-
mörku, því ekkert af efninu
sem þarf til virkjunarinnar er
framleitt þar. Og sennilegt er,
að verði lánið tekið á Norður-
löndum, fáist það ekki til jafns
langs tíma eins og talað var
um í London (35 ár). Yerði
lánið tekið í Svíþjóð, verður
það að sjálfsögðu þeim skilyrð-
um bundið, að efnið verði keypt
þar.
Að endingu sagðist borgar-
stjóri vilja taka það fram, að
hann telji á því engan vafa,
að enda þótt bann hefði verið
lagt á lánveitingu hins enska
firma, þá muni Reykjavíkur-
bæ bráðlega standa aðrar
leiðir til boða til þess að hrinda
þessu fyrirtæki í framkvæmd
til gagns og gleði fyrir alla
bæjarbúa.
Ríkisskip. Esja var á Akureyri
í gær. Súðin fór frá Reykjavík í
gærkvötdi áleiðis til Tsafjarðar.
liiifUrnffKSSKUFSTWl
Pjetur M»fÐtuuon
Eiaar B. GtaðmiuidMon
Qnðlmgur Þorl&kMon
fftmar 3602, 3202, 2002
Amtnritmtl 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—6.
Veistu að hann Bjössi Blön-
dal er dáinn?“ Þessari
spurningu var varpað að mjer,
daginn sem Björn Blöndal Ijest.
Mjer hnykti við, er jeg heyrði
þessa frjett, því þótt hann hefði
átt við vanheilsu að stríða undan-
farið, bjóst jeg ekki við að dauð-
inn væri á næStu grösum. Eins
hefir verið um fleiri, sem hann
þektu, því nokkuru áður en hann
dó, kom hann til bæjarins austan
frá Reykjahæli, þar sem hann
hafði verið til heilsubótar í meira
en eitt ár, og var þá, að því er
virtist, með hressara móti, enda
vongóður um framtíðina, eftir því
sem á honuni skildist. Okkur kunn
ingja hans grunaði þá ekki, að
hann mundi hverfa úr hópi okkar
svo skjótlega. Hann hafði aldrei
látið á sjer sjá hve mikið veikur
hann var; enda var það ekki í
samræmi við skaplyndi Björns
heitins að láta aðra taka þátt *
raunttm sínum, heldur þvert á
móti, kom hann öllum í sólskins-
skap, sem við hann töluðu eða
áttu samleið með honum.
Við vorum nokkrir kunningjar
ásamt Birni heitnum, sem hjeld-
um hóp, alt frá námsárum hans og
þangað til hann fluttist austur að
Selfossi, til að stunda þar atvinnú
við verslun föður síns. Yið höfðum
oft tækifæri td að hittast á þéim
árum, þar sem við líka störfuðum
með Birni heitrium í Verslunar-
mannafjelagiriu „Merkúr“ og
„Glímufjelaginu Ármann“ og víð-
ar. Hann vav áhugasamur við alt,
sem hann tók sjer fyrir, hvort sem
um var að ræða íþróttir eða dæg-
urrnál stjettar sinnar. Hann var
glíminn vel og leikfimismaður
góður, enda hlotið tnörg heiðurs-
merki fyrir íþróttaafrek. Það sem
sjerstaltlega einkendi Bjöfn heit-
inn, var glaðværðin og fjÖrið, sem
bann hafði ætíð á feiðum höndum
við hvern sem var og jafnvel þótt
honutn vaíri ei sjálfum altaf hlát-
ur í hug, breytti það engii í fram-
komu hans við aðra. Hann var
þannig gerður, svo Ijettur og lip-
ur, jafnframt því að yera trygg-
lyndur og hjálpfús við alla. —
Þessir maunkostir hans fóru ekki
í manngreinarálit, og þó munu
hans nánustu og við vinir hans
eiga inest að þakka honum, bjarg-
fasta trygð og vináttu. — Þegar
hann kavddi mig í seinasta sinni,
nokkuru áður en hann ljest, muri
hann, eftir því sem jeg síðar
frjetti, þá hafa vitað hver't stefndi.
Þrátt, fyrir það, var lundin hin
D. 3. apríl 1938.
Björn Blöndal Guðmundsson.
sama, hann var hressilegur og
glaðvær að vanda og lýsir það-
óvenju mikilli karlmensku og
vilja að geta dulið slíkt, með sverÖ
dauðans yfir höfði sjer.
Björn heitinn dó of ungur, bann
var á besta skeiði æfi sinnar og
átti mikið eftir ógert; en að því
er ekk spurt, og enginn veit hver
annan grefur. — Ef jeg ætti að
lýsa þessifm látna yini rnínum eins
og hann var, þá er það hægt í fá~
um orðum: Hann var glaðlyndjir,
karlmenni og drengur góður. —
Þannig mun minningin um hann
lifa í hugum þeirra, sem þektu
hann best og þannig hefir hann
reist sjer glæsilegan minnisvarða,,
sem hvorki mölur nje ryð fá.
grandað. Vinur.
„FRIÐARFJELAG".
etta fjelag fjekk „kvöld“ í
útvarpinu í gær. Sumir, sem
töluðu þar, þóttust vilja alhliða
frið, hlutlausan án flokkadrátta,
án ofsa og hatursfullra árása —
en sýndui það með því t. d. að fá
hirin æðisgengna bolsaprjedikara
Jóharmes úr Kötlum til þess vís-
vitandi að brjóta, öll þessi boð-
orð, eins og þeir sýndu það á AI-
þingi þessa daga, með því að láta
kommúnistana hera fram tillögu
um styrk úr ríkissjóði til Spán-
arbarna!
Með þessu og þvílíku fordæmir
þetta fjelag sjálft sig, hrindir frá
sjer þeim sönnu friðarvinum, öll-
um; en heldur hinum hatursfulla.
Rússaskríl í þessu landi.
Pullgóð byrjun það.
Mr. Thomas verkfræðingur frá
Marconifjelaginu kom hingað á
Brúarfossi í fyrradag til þess að
líta eftir framkvæmdum við stækk
un útvarpsstöðvarinnar.
Skðviðgerðir.
Sækjum.
Sendum.
Fljót afgreiðsla.
Gerum við allskonar gúmmískó.
Skóvinnustofa
Jens Svelnssonar
Njálsgötu 23. Sími 3814.
Beðt að auglýsa í
Morgunblaðinu.
jy a'