Morgunblaðið - 05.06.1938, Side 7

Morgunblaðið - 05.06.1938, Side 7
Suimudagur 5. júní 1938. 7 „Boðaloss11 fer á miðvikudagskvöld 8. ;júní, um Vestmannaeyjar til ÍHull og' Hamborgar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi siama. dag;. 2500 kr. lán óskast með 5% ársvöxtum gegn góðri tryggingú. Lánið greið- ist að fullu á þremur árum með Jöfnum mánaðaxlegum afborgun- nm. Tilboð sendist afgreiðslunni fyrir 10 júní, merkt „2500“. Ölafsvikurferðir byrjaðar, upplýsing:ar á af- greiðslu Laxfoss. HELGI PJETURSSON, Gröf. Síldar- & Kjðttunnur IflL, 1/2 og 1/4 tn. úr besta efni með lœgsta verði. O. Storheim. Símnefni „Heimstor“. Tunnuverkvsmiðja. Bergen. DagbóN. Veðurútlit í Rvík í dag: N-kaldi. Bjartviðri. Veðrið (laugardagskvöld kl. 5): Gruun lægð er fyrir sunnan land og önnur við V-strÖnd Noregs. Yindur er liægub lijer á landi, víð- ast milli A og N. Norðan lands er sumstaðar þoka og liiti 4—6 st. L öðrum landshlutum er veður þurt og víða bjart og hiti víðast 8—10 stig. Sænski aðalræðismaðurinn hefir beðið Morgunhlaðið að geta þess að engin opinber móttaka verði í ræðismannshústaðnum á morgun, 6. júní, á þjóðliátíðardegi Svía. í þess stað tekur ræðismaðurinn á móti heimsókn 16. júní á 80 ára afmælisdegi Gústafs konungs. Helgidagslæknir er í dag Ólaf- ur Þ. Þorsteinsson, Landspítalan- um, sími 1774, og á morgun Daníel Fjeldstecl, Hverfisgötu 46, sími 3272. Nætuxlæknir er í nótt Kristján Grímsson. Hverfisgötu 39, sími 2845, og aðra nótt er Halldór Stef- ánsson, Ránargötu J.2, sími 2234. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Fimtugsafmæli á í dag (hvíta- sunnudag) Páll Oddgeii*sson, kaup maður í Vestmannaeyjum. Hjúskápur. Nýlega voru gefin 1 saman í hjónahand af síra Bjarna MORGUNBLAÐIÐ Jónssyni ungfrú Guðrún Jóhanns- dóttir, Bræðraborgarstíg 55, og Jón Ólafssoh, Brekkustíg 6B. lleimili þeirra er á Vesturgötu 38, Trúlofiun sína hafa opinberað ungfrú Guðrún Einarsdóttir frá , Hemru og Ólafur Guðmundsson lögreglnþjónn, Laugaveg 132. 75 ára afmæli á á morgun Ól- afui* Halldórsson fyrrum bóndi á Arnarfelli í Þingvallasveit, nú bú- settur að Sindra á Seltjarnarnesi. 65 ára er í dag Þórólfur Þórð- arson, Elliheimilinu. Hann vinnur enn að því, að aka út þvotti fyrir heimilið og er fyrirmynd annara að dugnaði og’ áreiðanleik. Gullbrúðkaup eiga í dag sæmd- arhjónin frú Jólianná Guðmunds- dóttir og Ögmundur Sveinhjarn- arson, sem nú eru búsett á Soga- mýrarbletti 20 hjer í Reykjavík. Þau bjuggu lengst af eða um 25 ára skeið á Þórarinsstöðuni í' Hrunamannahreppi, en fluttust liingað til bæjarins árið 1924. Þau hjónin eru bæði ern þrátt fyrir Liáan aldur. MunQ vafalaust marg- ir verða til þess að senda þeim hlýjar kveðjur á þessum merkis- degi í lífi þeirra. S. Hjónaband. í gær voru gefin saman af lögmanni ungfrú Jó- hanna Kristjánsdóttir frá Syðra- Langholti og Sigurjón Guojónsson bílstjóri, Hvammi, Hrunamanna- hreppi. Dánarfregn. í gærmorgun and- aðist hjer í bænum Sigurður Jóns- son rafvirki. Banamein hans var lungnabólga. Af veiðum kom í gær til Hafn- arfjarðar Venu.s með 167 föt lifr- ar. Alls hefir togarinn aflað á þessari vertíð 701 fat lifrar. Hjónaband. í gær voru gefin saman í lijónaband Magnea Jó- hannesdóttir og Magnús Agústs-. son læknir á Kleppjárnsreykjum. Hjúskapur. í gær voru gefin saman í hjónaband af síra Arna Sigurðssyni ungfrú Margrjet Bjarnadóttir, Vesturgötu 46 A, og Gústav E. Pálsson verkfræðingur. Sundhöllin verður lokuð allan daginn í dag. Á morgun verður hún opin frá kl. 8 f. h. til 4 e. h. Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Magnhildur U. Lyngdal, Frakkastíg 16, og Ásbjörn Þor- kelsson, 1. vjelstjóri á togaranum Agli Skallagrímssyni. Sjómannadagsblaðið nefnist blað, sem kemur út á mórgun og er helgað Sjómannadeginum. Blað- ið er 32 síður í stóru broti og á forsíðujmi liin fagra mynd: Lend- ing í Vík í Mýrdal. Margar grein- ar eru í blaðinu, svo sem: Sjó- mannadagur, eftir Ásg. Sigurðs- son, „Húshaldsfólkið", eftir Sig. Gröndal, Loftskeytamennirnir og lífið á sjónum, eftir Henry Hálf- dánarson, Vjelstjórastjettin, eftir Þ. Á., Gamli og nýi tíminn, eftir Sveinbjörn Egilson, Formenskan og fornar dygðir, eftir Jón Axel Pjetursson, Minningardagpr sjó- manna, eftir Tómas Sigvaldason o. m. fl. Útvarpið: Sunnudag-ur 5. júní. (Hvítasumiudagur). 9.45 Morguntónleikar: Sjötta symfónían (pastorale) eftir Beethoven (plötur). 11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera . *v ■'.* ‘ V,. B.iarm Jonssöfi). 14.00 Messa í Fríkirkjunni (sjéra. Ární Sigurðsson). 17.40 Útvarp til útlanda (24.52m). 20.00 Orgelleikur úr Dómkirkj- unni (Páll ísólfsson). 20.35 Hátíðamessan (Missa soljmu nis) eftir Beethoven (plerf>$§|. Alríkisstefnan. Eftir INGVAR SIGURÐSSON. Sii voðalega ákvörðun dönsku stjórnarinnar, að gefa al- veg orustulaust ;upp frelsi þjóðar sinnar fyrir þýska nasism- anum, undir eins og hann skipar það, er ekki aðeins svik við frelsi og æru hins norræna kynstofns, hún er einnig- hlutleys- isbrot gegn sjálfum verndara smáþjóðanna, Bretum. Því að nái hxín fram að ganga, verða allir Danir, eftir innHmuuina í þýska ríkið, að berjast, sem einn maður, í næsta lieimsstríði gegn Bretum og drepa þá og myrða, jafnt. börn sem konur og' karlmenn, undir eins og þeim er skipað það. Aðalfunöur Bókmentafjelagsins verðuK haldinn laugardaginn 11. júní næstkomandi, kl. 9 síðdegis, í lestrarsal Landsbókasafnsins. Af óhjákvæmilegum ástæðum getur fundurinn ekki orðið haldinn lögmæltan dag, 17. júní. DAGSKRÁ: 1. Skýrt frá hag fjelagsins, og lagðir fram til úrskurðar og samþyktar reikningar þess fyrir 1937. 2. Skýrt frá úrslitum kosninga. 3. Kosnir tveir endurskoðunarmenn. 4. Rætt og ályktað um önnur mál, er upp kunna að verða borin. Daginn fyrir aðalfund, kl. 4 síðdegis, heldur stjórn fje- lagsins kjörfund í lestrarsal Þjóðskjalasafnsins, samkvæmt 17. gr. fjelagslaganna. Að þeim fundi eiga allir fjelags- menn aðgang sem áheyrendur. GIJÐM. FINNBOGASON p. t. forseti. Tilkynning um girðingar Bæjarstjórnin hefir ákveðið að þeir, sem girða lóðir við götur bæjarins, skuli sækja um leyfi byggingarnefnd- ar skv. 5. gr. byggingarsamþyktarinnar, og fylgi beiðn- inni útlitsmynd girðingarinnar með afstöðumynd, svo og lýsing á þeim girðingum, sem fyrir eru á næstu lóðúm. Reykjavík, 4. júní 1938. Byggingarftinfrúinxi. Reykjavfk -- Akureyri Hefjum ferðir þriðjudag n.k. og úr því alla mánudaga, þriðjudaga og fimtudaga. Afgreiðsla á Akureyri Bifreiðastöð Oddeyrar. Bifreiðastöð Sfeindórs. Móðursystir okkar, Ólafía M. Jónsdóttir, andaðist í dag . Reykjavík, 4. júní 1938. Fyrir hönd okkar systkinanna. L. Andersen. ^ v -vfí Frú Sigríðiur Þórðardóttir, prófastsekkja frá Stafholti, andaðist í dag- að heimili sínu, Stað- arstað, hjer í bænum. Reykjavík, 4. júní. Aðstandendtur. Það tilkynnist vinum og ættingjum, að Sigurður Jónsson rafvirki andaðist hjer í bænum þann 4. þ. m. Vandamenn Elsku litli drengurinn okkar Valur Guðni andaðist í gær, 4. júní. Ásta og Einar Etnarsson, Bergþórngötn 0. Það tilkynnist, að Sigurbjörn H. Ágústsson, Alviðru, Dýrafirði, andaðist á Vífilsstaðahælinu 1. júní b.1. Aðstandendnr. —— ...................... ........... .......— Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir ólafur Þórðarson verður jarðsunginn frá fríkirkjunni þriðjudaginn 7. þ. mán., og hefst jarðarförin með húskveðju kl, 1, að heimili hins látna, Grundarstíg 5 B. Sigborg Halldórsdóttir, börn og tengdaböm. Guð launi öllum þeim, er auðsýndu okkur hluttekningu og sanna vináttu við andlát og jarðarför okkar hjartkæra sonar og bróður Bjarna Sigurðar. « Árf Ragnheiður og Einar Jónsson og systkini, Þórsgötu 15. K'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.