Morgunblaðið - 04.08.1938, Side 3
Fimtudagur 4. ágúst 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Tveir danskir
vlsindamenn
rannsaka
ísl. rúnir
Margt af rúnunum
að læra
HJER er á ferð cand. mag
Anders Bæksted og dr.
phil. Inger M. Boberg, í þeim
erindum, að rannsaka íslenskar
rúnir og þvíumlíkt. Var Bæk-
sted magister hjer líka í fyrra
sumar. Hann er meðritstjóri að
hinni miklu rúnaútgáfu Dana,
sem dr. Lis Jacobsen og Erik
Moltke gefa út. — Þar eiga
að koma út allar danskar rún-
ir.
Jeg komst ekki hjá því, sagði
Bæksted magister, við vinnu
mína við útgáfu þessa, að kom-
ast í kynni við íslenskar rúnir.
Er þar miklu að kynnast?
Það er talsvert, og þetta er
merkilegt rannsóknarefni fyrir
okkur Dani, meðal annars
vegna þess að íslenskar rúnir
eru óskyldar hinum dönsku.
Þær eru af hinum norska stofni.
Og þær eru allar frá miðöldum.
Engar íslenskar rúnir eru til úr
heiðni. En svo hafa líka verið
notaðar rúnir hjer á landi sam-
hliða latínuletri alt fram undir
aldamótin 1800.
Hvar hafið þjer kynst ís-
lensku rúnunum?
Talsvert hefi jeg fundið í
handritum í Kaupmannahöfn og
svo er íslandslýsing Kaalunds
og Rúnafræði Finns Jónssonar.
En jeg hefi ekki ennþá kom-
ið því í verk að athuga hand-
ritin í söfnunum hjer. Byrjaði
jeg á rannsóknum mínum hjer
á landi í fyrrasumar, athugaði
rúnasteina Þjóðminjasafnsins og
ferðaðist hjer um Suðurland.
Á Þjóðminjasafninu er merki
legt safn rúnasteina.
En er mikið að sjá af slíku
út um land?
Það er talsvert, meira en
menn eiga von á og mest er
það legsteinar. Jeg skoðaði t. d.
í fyrra einn lítinn, fallegan leg-
stein með rúnum á austur á
Núpstað. Og í sumar hefi jeg
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
FISKURINN SEM
FRANCO TÓK
’E* iskur sá, sem sendur var hjeð
an með norska skipinu
Skuldu er liðsmenn Francos tóku
og fóru með til Ceusta, var seldur
og borgaður. Eftir síðustu frjett-
um liofir hélmingur farmsins verð
ið settur á land í Cuta, en hinn
helminginn á að far'a með til
Cadiz, að því er heyrst hefir.
Farmurinn mun hafa verið vá-
trygður hjá ensku firma fyrir ó-
friðarhættu.
Fjármálastefna Eysteins Jónssonar
- sem leiðir til glötunar hid mikla enska
ISLENSKA þjóðin hefir án efa aldrei verið stödd
á eins alvarlegum tímamótum og nú, og ekki er
ósennilegt, að úr því verði einmitt skorið í nán-
ustu framtíð, hvort þjóðin verði sjálfstæð í framtíðinni,
eða öðrum háð að meira eða minna leyti.
Þessvegna gengur glæpi næst framferði Tímamanna
um þessar mundir, þegar þeir eru að reyna að telja þjóð-
inni trú um, að alt sje í stakasta lagi og ástandið miklu
betra en var á uppgangsárunum, er Jón Þorláksson fór með
stjórn fjármálanna.
Blaðamenska Tímamanna hefir lengst af görótt verið. En þegar
ábyrgðarleysið kemst svo langt, að fólkinu er talin trú um, að stefn-
an í atvinnu- og fjármálum, sem nú er farin, sje hin eina rjetta og
henni heri að fylgja, þá er beinlfnis verið að stuðla til þess, að þjóð-
in glati sjálfstæði sínu.
Tímamenn eru ákaflega ólm-
ir í samanburð á f jármálastjórn
sinni og fjármálastjórn Jóns
Þörlákssonar. Þeir telja, að
fjármálastjórn J. Þ. hafi ver-
ið svo ábyrgðarlaus og glanna-
leg, að framhald hennar hefði
leitt til fullkomins ríkisgjald-
þrots. Aftur á móti sje núver-
andi fjármálastjórn svo gætileg
og hyggindin þar svo mikil á
öllum sviðum ,að frá henni megi
ekki víkja, ef þjóðin eigi að
komast klakklaust út úr erfið-
leikunum.
Þessi skrif Tímamanna eru
svo fáránlega einfeldnisleg, að
furðu gegnir að til skuli vera
leiðandi stjórnmálamenn, sem
þannig skrifa.
Vildu ekki Tímamenn íhuga
eftirfarandi tölur, sem aliar eru
teknar úr landsreikningunum.
Á árunum 1S24—1927, þeg-
ar Jón Þorláksson fór með
fjármálastjórnina, voru heild-
artekjur ríkissjóðs 53.4 milj.
kr. samtals öll árin. Af þessum
tekjum voru greidd öll fjár-
laga-útgjöld og að auki 6.8
milj. kr. af skuldum ríkissjóðs.
Skuldir ríkissjóðs lækkuðu á
þessum árum úr 18.1 milj. nið-
ur í 11.3 milj. kr.
Á þessu tímabili lækkuðu
erlendar skuldir þjóðarinnar
um 23,7 milj. kr.
Á árinu 1934—1937, þegar
Eysteinn Jónsson fór með stjórn
fjármálanna voru samanlagðar
heildartekjur ríkissjóðs 64.2
milj. kr. En á þessum sömu ár-
um voru tekin lán, seldar eign-
ir ríkissjóðs o. fl. sem nam 19.3
milj. kr. Skuldir ríkissjóðs
munu nú vera um eða yfir 30
milj. kr.
Á þessu tímabili hafa er-
lendar skuldir þjóðarinnar
hækkað um a. m. k. 30 milj. kr.
Það má vera mikil trú á fá-
fræði og heimsku fólksins, að
láta sjer koma til hugar, að það
trúi því, að betur hafi verið
stjórnað á síðari kjörtímabil-
inu en hinu fyrra.
Tímamenn hafa löngum hald
ið því fram, að Eysteinn Jóns-
son væri að vinna kraftaverk í
gjaldeyrismálum þjóðarinnar.
Þegar svo óskað hefir verið;
skýringa á því, í hverju kraftá-
verkið væri fólgið, er svarið
jafnan eitt og sama: Innfluth-
ingshöftin.
Enginn ágreiningur hefir ver-
ið um það milli stjórnarflokk-
anna, að ríkisvaldið yrði að
hafa eftirlit með innflutningn-
um. Jafnvel kaupmennirnir,
sem Tímamenn eru altaf að sví-
virða og rógbera, hafa hvað
eftir annað lýst yfir, að þeir
teldu höft í einhverri mynd ó-
hjákvæmileg, eins og verslun-
arástandið er í heiminum. Að-
eins hafa kaupmenn krafist
rjettlætis í framkvæmd haft-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÖ)U
LjiiiiiiiiiiiminiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiHiiimiiiiiiiinfiiiiiiiiiiiiiii
I Úr Eyjum
Tiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii
Frjettaritari Morgunblaðsins
í Vestmannaeyjum símar,
að þar hafi verið frámunalega
góð tíð það sem af sje sumars.
Fiskur sje nú nærri allur þurk-
aður og fyrri sláttur langt
kominn.
ísfjelag Vestmannaeyja hefir
látið stækka mjög íshús sitt
og m. a. komið fyrir í því hrað-
frystivjelum. Er byggingunni
og breytingum nú lokið. Drag-
nótaveiði hefir gengið frekar
stirðlega undanfarið. Leituðu
bátarnir austur með landi, en
veiði brást þar alveg.
Fuglatekja er nýbyrjuð og
virðist ætla að ganga vel.
ÍÞÓTTAMÁL
Bæjakepni hófst í gær í Eyj-
um milli Reykvíkinga og Vest-
mannaeyinga. Komu 14 reyk-
vískir íþróttamenn með Dronn-
ir:g Alexandrine til að taka þátt
í bæjakepninni. Þá eru og vænt-
anlegur handknattleiksflokkur
kvenna frá Hafnarfirði og ætl-
ar hann að keppa á Þjóðhátíð
Vestmannaeyja, sem hefst á
laugardaginn.
ÞJÓÐHÁTlÐIN
Annars er umræðuefni Eyja-
búa lítið annað þessa dagana
en hin væntanlega Þjóðhátíð. —
Komu á annað hundrað Reyk-
víkingar með Dr. Alexandrine
til Eyjá til þess að sækjá Jhá-
tiðíha1 og von er á fleirum.
skátaheimsókn
II. ágúst
Yfirforingi skátanna
Baden Powell kemur
hingað, kona hans og
dóttir, ásamt 430
skátaforingjum
Pann 11. ágúst, á fimtudaginn
kemur, er von á hresku far-
þegaskipi, Orduna, hingað. Með
skipinu em 430 skátaforingjar
enskir og sjálfur: skátahöfðinginn,
Sir Baden Po’Well, kona lians og
dóttir.
Þessi mikli skátaleiðangur stend'
ur hjer við 1% dag, kemur að
morgni þess 11. og fer um iniðjan
dse daginn éftir.
'Skátaforingjarnir sem með skip
mu koma eru allir enskir, flest
kvenskátar.
Með |ski|)iiiu er líka aðal stað-
gengilU 8lr • Baden Powell, Sir
Perey Evereít. Baden Powell hefir
verið svo heilsutæpur upp á síð-
kastið, að hann ætlar ekki að taka
hjer þátt í neinum ferðalögum,
nje hafa nein forystustörf á hendi.
Það' cr jafnvel gert ráð fyrir að
hann komi ekki hjer í land úr
skipinu.
Þetta mun vera 2. eða 3. kynn-
isférð sem enskir skátaforingjar
fará til útlanda.
Er gert ráð fyrir, ef sæmilegt
veður verður, að skátarnir fari
að morgni þess 11. austur að Geysi
óg Gullfossi, en þaðan til baka um
Grafningsveg til Þingvalla. Þar
verða svo varðeldar í Hvannagjá
um kvöldið, og haldið síðan til
Reykjavíkur.
Ferðin austur hefir m. a. verið
undirhúin . þannig, að bílar, sem
ætlaðir eru í ferð þessa, eru núm-
eraðir og veit hver farþegi í
hvaða bíl hann á að vera. En í
hverjum bíl verða tveir íslenskir
skátar, sem verða leiðsögumenn
og túlkar. Auk þess hafa verið
gerðar ráðstafanir til þess, að
allmargir ísl. skátar komist með
ódýru móti hjeðan úr bænum til
þess að vera við varðeldana í
Hvannagjá um kvöldið. Þangað
eru allir velkomnir.
Á föstudaginn verður hinum
ensku skátum fylgt hjer um bæ-
inn, áður en þeir leggja frá landi.
Ferðinni er heitið hjeðan til
Þrándheims.
Fyrir kynning á landi voru út
á við er heimsókn þessi stórmerki-
leg.
50 ára verður í dag, 4. ágúst,
frú Ingibjörg Einarsdóttir frá
Bjarnastöðum á Álftanesi, nú til
heimilis Mesturbraut 20 Hafnar-
firði.
SllllllllllUIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIHIIIIIIIHIIIIllllUlini
| Land- I
| burður |
1 af síld I
Meiri síld barst til Siglu-
fjarðar á miðvikudag
en dæmi eru íil á þessu sumri
Frá því á þriðjudag og til kl.
8 á miðvikudag höfðu komið
60 skip til Siglufjarðar með
samtals yfir 30 þúsund mál,
Hægt er nú að skipa upp
síld á 12 bryggjum á Siglu-
firði, samtals 17000 málum á
sólarhring, en þrærnar taka
60.000 mál.
Síld var að kalla má fyrir
öllu Norðurlandi í gær, en talin
einna mest á Grímseyjarsundj
og við Tjörnes. Nokkur ski|
hafa tvíhlaðið á sama sólanj-
hringnum. Vjelbáturinn ,,Jón
Þorláksson“ fekk t. d. tvisvaif
fullfermi á þriðjudag og einji
sinni á miðvikudag.
Veður var ágætt fyrir Norð-
urlandi í gær og veiðihorfur
taldar góðar í gærkvöldi.
Um 30 skip biðu löndunar
þar í gærkvöldi.
Kunnugir telja að í þessari
veiðihrotu, síðan fyrir helgina
muni hafa komið á land alls á
öllu landinu um 120.000 mál
þangað til í gærkvöldi.
Söltun síðastliðinn sólarhring
var 3649 tunnur hjer á Siglufirði.
Er söltunin tiltölulega lítil,
vegna þess að síldin þykir mis-
jöfn, sem komið hefir á land
í Siglufirði þessa daga.
Síldarútv-gsnefnd hefir ekki
enn leyft au matjessalta síld frá
Plúnaflóá. En ýmsir telja síld-
ina þar vera fult eins góða og
þá, sem austar veiðist nú.
ÍÞRÓTTAFRÖMUÐIR
LÁTA TIL SÍN TAKA.
T Dróttakennarar og íþróttafröm-
uðir sendir á Olympsleikana £
Berlín 1936 og samankomnir 22.
júlí að Hótel Borg samþyktu eftir-
farandi:
1. Að gefa verðlaunagrip til
kepni í sunddýfingum og skal
gripurinn ásamt reglugerð afhent
ur Iþróttasambandi íslands.
2. Að kjósa þriggja manna nefnd
til aðstoðar Olympíunefndinni, í
sambandi við hugsanlega íþrótta-
kennara — ef til kemur — á
næstu Olympíuleika.
3. Að skora á íþróttasamband
íslands að hlutast til um við
f ræðsfum álastj órnina, að kunn-
átta á íslenskri glímu sje gerð að
skilyrði fyrir því að íþróttakenn-
arar fái kensluleyfi við opinbera
skóla, og að nemendum í skólum
landsins verði gefinn kostur á ó-
keypis kenslu í íslenskri glímu.
I nefnd þá, sem að ofan getur,
voru kosnir, . Jón Þorsteinsson,
Konráð Gíslason og Valdimar
Sveinbjörnsson. • (F.B.).
„Norlahd“, enskur togari kom
hingað í gær til að sækja íslensk;
an fiskiskipstjóra.