Morgunblaðið - 20.08.1938, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 20. ágúst 1938.
Franco undirbýr|Uppskera|Tjekkar láta undan
allsherjarsókn
til úrslita!
Bretar óþolinmóðir vegna
íhlutunar Itala á Spáni
Frá frjettwritara vorum.
Khöfn í gær.
FRANCO er nú að undirbúa stórfelda sókn á öll-
um vígstöðvum á Spáni, eg er búist við að
hann hafi í hyggju að gera bráðan enda á
styrjöldinni með aðstoð ítala. Sagt er að Franco íætli sjálf-
ur að taka að sjer stjórn hersins á norðurvígstöðvunum.
Ástæðan fyrir því, að Franco herðir nú sókn sína af
öllu afli til að knýja fram fullnaðarsigur, er sú, að Bret-
ar eru orðnir óþolinmóðir vegna afskifta ítala af Spánar-
styrjöldinni.
Fyrir 11 dögum síðan fór sendiherra Breta í Róm á fund
Ciano greifa, utanríkismálaráðherra ítala og bað um yfirlýsingu
útaf ásökunum, sem fram höfðu komið í garð ítala um stuðning
við Franco upp á síðkastið. ítalska stjórnin er ekki farin ,að
svara þessu ennþá.
Sir Noel Charles, sem nú
gegnir sendiherrastörfum í Róm
fór í gær aftur á fund Ciano
greifa til þess á ný, að spyrja
um hvað hæft væri í því, að
Italir hefðu nýlega sent herlið
og hergögn til Spánar.
Mussolini er milli tveggja elda
útaf Spánarmálunum. Hann vill
auka hjálp sína til handa Fran-
co, til þess að flýta fyrir úr-
slitasigri hans, en á hinn bóg-
inn vill hann ekki styggja Breta
vegna bresk-ítalska sáttmálans.
ítölum er nauðsynlegt að
halda vinfengi Breta og að sátt-
málinn sem kendur er við Róm
gangi í gildi sem fyrst.
Búist er við að Mussolini taki
þann kostinn að halda áfram
hjálp.sinni við Franco og leggi
alt inn á að flýta fyrir úi'slita-
sigri hans.
SVAR FRANCOS
UM BROTTFLUTN
ING SJÁLFBOÐLIÐ.
Þýsk «blöð gera orðsendingu
Franco til bresku stjórnarinnar
mjög að umræðuefni í dag (seg-
ir í Oslofrjett skv. FÚ)., og
segja fullum fetum, að afstaða
Englands til tillagna Francos
muni ráða úrslitum í Spánar-
málunum. Telja þýsk blöð yfir
höfuð mjög mikilsvert að sam-
komuiag takist um tillögumar,
því ella muni Spánarmálin
verða ennþá örðugri viðfangs,
en þau hafa verið hingað til.
Stutt greinargerð er komin
í hendur bresku stjómarinnar
um svar Francos við tillögum
um brottflutning sjálfboðaliða,
en svarið í heild er væntanlegt
til London í kvöld eða á morg-
un.
BRETAR
KREFJA FRANCO
UM
SKAÐABÆTUR
London í gær. FÚ.
Sir Robert Hodgson, fulltrúi
bresku stjórnarinnar í Burgos,
hefir verið falið að spyrjast fyr-
ir um það hvort Burgos-stjórnin
vilji fallast á að greiða skaða-
bætur fyrir skemdir á breskum
skipum, sem flugmenn hennar
sannanlega hafa gert loftárásir
á að yfirlögðu ráði.
Fyrirspurn þessi er gerð
vegna afstöðu þeirrar, sem
breskir skipaeigendur hafa
tekið, en þeir hafa tjáð Cham-
berlain forsætisráðherra, að þeir
álíti það höfuðatriði, að skaða-
bóta sje krafist.
I.ÖFTÁRÁSA-
NEFNDIN
BRESKA STARFAR.
Bresku nefndarmennirnir, er
hafa aðsetur í Toulose í Frakk-
landi, og eru á leið til Alicante
til þess að rannsaka afleiðingar
íoftárásarinnar, sem þar var
gerð nýlega, komu til Barcelona
í dag.Þrjár loftárásir voru gerð-
ar á borgina meðan þeir voru
þar, og biðu 18 menn bana, en
17 særðust.
Sudetum
TJppskeran stendur nú sem hœst í nágrannalöndunmu. Hjer er
mynd, sem nýlega var tekin við uppskeruvinnu í Þýskalandi.
Hörgull á verkamönnum
í Þýskalandi
Hlutabrjef hækka aftur í verði
i Berlínarkauphöllinni
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
SVO mikill hörgull er nú á vinnuafli í Þýskalandi, að hætta
er á að framkvæmdir þær, sem Hitler hefir ákveðið að
gerðar ýrðu til að endurbyggja og fegra Berlínarborg, stöðvist
að miklu leyti í bili.
Bardagar
í Palestinu
London í gær. FÚ.
Undangenginn sólarhring
hefir verið mjög óeirða-
samt í Palestínu og hefir herlið
Breta, stutt af flugvjelum, hald-
ið uppi sókn á hendur óaldar-
flokkum.
Nokkrir breskir hermenn
hafa fallið og margt manna af
liði Araba.
Mestur bardagi var háður í
nánd við Acre. Var þar mest
mannfall í liði Araba, en þrír
breskir hermenn fjellu. Ein af
flugvjelum Breta hrapaði til
jarðar og fórust tveir flugmenn.
Arabiskur lögregluþjþnn særð-
ist alvarlega í óspektunum í
dag.
Háflóð er í dag kl. 12.15 e. h.
Atvinnuleysi er nú alveg ó-
þekt í Þýskalandi og vantar
verkamenn* í mörgum atvinnu-
greinum.
Endurreisn
iðnaðarins.
Þý3kir iðnaðarleiðtogar ræddu
í gær við Göring flugmarskálk,
en hann er formaður fjögra ára
áætlunarinnar og því í rauninni
mest ráðandi um atvinnumál
Þjóðverja.
Iðnaðarleiðtogarnir ræddu við
Göring, um ástandið í iðnað-
armálum og fjárhagsvandræð-
in, sem nú steðja að.
Var ákveðið að skifta iðnaði
Þýskalands í tuttugu og sjö
greinar, éftir því hverja þýð-
ingu hver ein^tök 1 grein hefir
fyrir þjóðarheildina.
Fimm fyrstu greinar iðnaðar-
ins, þar á meðal hergagnaiðn-
aðúrinn fá nægilegt hráefni til
að uppfylla samninga um fram
leiðslu sem fyrir eru.
Aðrar iðngreinar verða að
takmarka framleiðslu sính
vegna hráefnaskorts.
Illræðisverk
í Noregi
Oslo í gær.
Við eftirlitsskoðun á járn-
brautinni miili Kragerö
og Neslandsvatns fundust í
gær tvær dynamit-patrónur á
teinunum. Hafði lest nýlega
farið þar um og höfðu þær
lagst saman.
Er talið, að stórslys hefði
orðið, ef patrónurnar hefði
verið nýrri en þær voru.
Tilraun var gerð til þess
að Iáta þær springa og tókst
það. Lest með fjölda skóla-
harna fór um brautina
skömmu síðar.
Rannsókn hefir verið fyrir-
skipuð. NRP—FB.
Ríkisskip. Esja fór frá Rvík
í gærkvöldi áleiðis til Vestmanna
eyja og Glasgow. Siiðin var á
Hörnafirði kl. 5 í gær.
Sudetar fá loforð
fyrir embættum
Tillögur Runcimans
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gser.
Dr. Hodza, forsætisráðherra
f jekkóslóvakíu skýrði Run-
ciman lávarði frá því í dag,
tjekkneska stjómin hefði ákveð-
ið að veita Sudeten-Þjóðverjum
ýms embætti í þeim hjeruðum,
sem þeir búa í. Hafa Sudetar
sem kunnugt er, verið afar oa-
nægðir með það, að tjekkneskir
embættismenn hafa setið í öll-
um opinberum embættum.
Meðal þeirra embætta, seffl *
ráði er að veita Sudeten-Þjóð-
verjum, eru póstmálaembeettJ
og embætti í stjóm hjeraðs-
mála.
Þessar ákvarðanir hafa mætt
fögnuði meðal Sudeten-Þjóð-
verja, sem telja að þessar ráð-
stafanir sjeu upphaf að frek-
ari tilslökunum af hendi
Tjekka.
TILLÖGUR
RUNCIMANS
LÁVARÐAR
Runciman lávarður og Kon-
rad Heinlein, foringi Sudeten-
Þjóðverja hittust í gær í höll
þýsks fursta Hohenloes. Rædd-
ust þeir við í höll furstans, Rot-
enhaus í Bæheimi.
Talið er, að Henlein hafi
skýrt Runciman frá því, að væg
ustu kröfur Sudeten-Þjóðverja
væri, að þeir fengi sjálfstjórn
í sínum eigin málefnum.
,,Daily Telegi’aph" býst við
því, að Runciman lávarður muni
leggja það til, ef samningarnir
milli Tjekka og Sudeta fara
út um þúfur, að Tjekkóslóvakíu
verði skift í 23 smá kantónur
með víðtækri sjálfstjóm, líkt
og er í Svisslandi.
Líkar tillögur voru ræddai'
eftir heimstyrjöldina, en náðu
þá ekki fram að ganga.
Alvarlegar horfur voru fyrir-
sjáanlegar í deilumálum Tjekka
og Sudeta í fyrradag, þegar
Sudetar neituðu að ganga inn
á tillögur Tjekka, en búist er
við að viðræður Runcimans og
Henleins í Rotenhaushöll, hafi
lægt öldurnar í bili.
Búist er við að Runciman
'muni bráðlega koma fram opin-
berlega með málamiðlunartil-
lögur sínar.
BENES FORSETI
VONGÓÐUR
London í gær. FÚ.
Benes ríkisforseti í Tjekkó-
slóvakíu hitti blaðamenn í dag
og ljet í ljósi við þá, að það
væri trú sín að takast mundi
að bjarga friðnum með samn-
ingum þeim er yfirstanda. Enda
mundi hann gera alt sem í hans
valdi stæði til þess.