Morgunblaðið - 20.08.1938, Síða 3
Laugardagur 20. ágúst 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Slormur
hamlar
veiðum
Sjö skip komu til Sigluf jarðar
í gær með samtals um 1400
mál. Fengu þau afgreiðslu í gær-
kvöldi og var þá búið að af-
gredða öll skip, sem biðu.
Saltað var á Siglufirði í gær í
1261 tn.; þar af 361 úr reknetum.
Austanstormur var fyrir Norð-
Urlandi í gær og ekkert veiði-
Veður. Flotinn lá í höfn að mestu
leyti. Svo slæmt var veðrið á
Siglufirði í fyrrinótt, að hætta
varð löndun úr skipum.
DJÚPAVÍK.
Þangað hafa komið þessi skip:
Hannes ráðherra með 855 mál,
Tryggvi gamli 1010, Garðar 1200,
Surprise 1165, Bragi um 1700 og
Kárlsefni um 1600 mál.
50 króniir lyrir
að koma upp
umþjðf!
Aðfaranótt fimtudagsins s.I.
var stolið varahjóli af híl
O. Westlund vjelfræðings, þar
sem bíllinn stóð hjá Klapparstíg
19. Heitir Westlund 50 króna
verðlaunum, þeim sem kemur upp
Um hver valdur er að þjófnaðm-
Um eða finnur hjólið.
Hjólið var teinahjól af Chev-
rolet-bíl, R. 920. Yar hjóHð ný-
málað dökkrautt.
Hjólið var af Ohevrolet-bíl, eins
og fyr segir, mödel 1931, en hjól-
,,kopp\irinn“ var model 1932.
86,000 atvinnuleys-
inpr í Danmörku
Atvinnuleysið er Dönum stöð-
ugt hið mesta áhyggjuefni.
24. júní s.l. voru yfir 85.000
manns skrásettir atvinnulausir og
þar af voru rúmlega 74.000 með-
limir atvinnuleysissjóða og nutu
styrks.
Annars er sumarið að öllum
jafnaði sá t-ími, sem minst kveð-
Ur að atvinnuleysi, en að þessu
sinni kemur það í Ijós, að tala
atvinnuleysingja hefir aðeins
lækkað um 7000 síðan í maímán-
Uði.
Ef að þessar tölur eru bornar
saman við tölurnar frá í fyrra,
á sama tíma, kemur það í ljós, að
atvinnuleysingjum hefir fjölgað
tm rúmar 17.000.
Á verstu kreppuárunum kvað
þó enn meira að atvinnuleysinu
°g varð þá tala atvinnuleysingja
hjer um bil helmingi liærri en
Hún er nú. (FÚ)
Úrslitakappleikur III. fl. móts-
ins fer fram í fyrramálið kl. 9%
milli Fram og Víkings og K. R.
°g Vals.
Hvað vilja Reykvikingar
gera fyrir hitaveifúna?
iiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiii
iiiiiiiiimmiiiiiiiuiiiii
Notið Ijósið
til sparnaðar
— se^tr Ewerlz §
verkfrœðingur |
MHiiiumiiniiiiiiiiinii imiHiimimmiimimi
Fyrirlestur K. Ewertz í gær-
kvöldi var um raftýsingu á
ýmsum vinnustöðvum.
Fyrirlesarinn hóf mál sitt með
því að benda á það, að við skipu
lagningu á vinnustöðvum væri
það algengt, að menn gæfu ekki
nægan gaum að því, hve mikla
þýðingu vinnuljósið hefði. Slæm
lýsing gæti dregið til muna úr
afköstunum, þótt allar vjelar og
áhöld annars værti ágæt.
Það er rangt að skoða kostnað
við raflýsingu sem óþægileg en
nauðsynleg útgjöld. Þetta ber að
skoða alveg á sama hátt og vinnu
sparandi og vinnuaukandi vjelar
— leið til þess að gera vinnuna
betri, Ijettari og hraðari.
Arðvænleg raflýsing á vinnu-
stöðvum er ekki fólgin í því að
fá sem ódýrasta raflögn með sem
fæstum lömpum, heldur í því að
raflýsingin geri vinnuna, sem
framkvæmd er við hana, ódýrari.
Verkfræðingurinn sýndi með
nokkrum myndum hvaða styrk-
leika vinnuljós þyrfti að hafa, og
hvernig þeim yrði komið fjTrir á
rjettan hátt.
Að lokum mintist hann á þá
aðferð. sem nú er mjög að ryðja
sjer til i’úms, að gera loftljósin
svo sterk, að komist verði hjá
því að nota hina mörgu smá-
lampa við yinnuna. Þessi mikil-
væga endurbót hefir fengist með
því að nota hina nýju kvikasilf-
urslampa, sem hafa miklu meiri
ljósnýtni en glólamparnir. Enn-
fremur sýndi hann myndir af
slíkuni nýtísku raflögnum, frá
Danmörku.
Niðurlagsorð fyrirlesarans voru
á þá leið, að menn ættu að not-
færa sjer ljósið til sparnaðar, en
ekki að spara Ijósið, og sú stað-
reynd, að stór fyrirtæki, eins cig
þau, sem hann sýndi myndir af,
telja sig geta gert þetta, bendir
ótvírætt í þá átt, að þetta sje
rjett.
Næsti fyrirlestur er á þriðju-
daginn og fjallar um raflýsingu
í búðargluggum og auglýsinga-
ijós.
Við skrifstofu Rafmagnsveitunn
ar má sjá sýnishorn af auglýs-
ingaljósi.. Hefir verið sett skilti
á þakið. og það lýst upp með Na-
trium-ljósi.
Pósfmannaverkfall
í Nore^i
Líkur eru til að póstmenn í
Noregi geri verkfall og
mun það leiða til þess að brjefa-
burður legst niður í Oslo og
stórum hlutum landsins.
Samlök um fram-
kvæmdir málíins
INNLENDIR og erlendir verkfræðingar og kunn
áttumenn hafa sannprófað það, svo að ekki verð
ur um vilst, að hitaveita frá Reykjum er fram
úrskarandi glæsilegt fyrirtæki, skoðað frá fjárhagslegu
sjónarmiði.
Samkvæmt skýrslu hins sænska sjerfræðings, sem
fenginn var til að athuga og prófa áætlanir verkfræðinga
bæjarins myndi stofnkostnaður hitaveitu, sem nægir til
að hita upp allan bæinn innan Hringbrautar vera ísl. kr. I
6.130.000. Slík hitaveita myndi að áliti sænska verkfræð-i
ingsins gefa á aðra miLión króna árlega umfram reksturs-
kostnað. Fyrirtækið myndi m. ö. o. borga allan stofn-
kostnað á fáum árum.
Hefir Reykjavíkurbær ráð á,
að fresta framkvæmdum á
svona fyrirtæki?
Reynt hefir verið að fá lán
erlendis til allra framkvæmd-
anna, bæði þess hluta, sem svar-
ar til aðkeypts efnis og hins,
sem þarf til að greiða vmnulaur,
og annað hjer heima. En slíkt
ián hefir ekki fengist enn, sem
komið er og óvísi hvort eða
hvenær það myndi íást.
Astæðan til þess, að lánið
íjekst ekki er öllum kunn. Það
er hið bágborna fjármála- og
viðskiftaástand þjóðarinnar, er
lánið strandaði á.
Nú væri í sjálfu sjer í alla
staði æskilegast, að ekki hefði
þurft að leita eftir erlendu láni
til allrar hitaveitunnar. Best
hefði farið á því, að við hefð-
um sjálfir lagt fram það fje,
sem svarar til vinnulaunanna
og annars, sem á fyrirtækið
kemur hjer heima.
En okkur íslendinga vantar
fjármagn. Við höfum þessvegna
orðið að fá erlent fjármagn til
flestra stærri framkvæmda í
landinu. Þetta er okar mesta böl
og við þurfum að gera meira
en gert hefir verið hingað til,
til þess að örfa menn til fjár-
söfnunar og sparnaðar.
★
En eru Reykvíkingar svo
snauðir, að hitaveitan verði skil-
yrðislaust að leggjast á hilluna,
ef ekki fæst erlent fjármagn
til alls fyrirtækisins?
Þetta er með öllu óreynt enn
þá, en það verður að fá úr þessu
skorið án tafar.
Staðreyndirnar eru þessar:
1. Hitaveitan er eitthvert
allra glæsilegasta fyrirtækið,
fjárhagslega sjeð, sem í hefir
v'erið ráðist.
2. Hitaveitan grípur stórkost-
lega inn í fjárhagsafkomu hvers
einasta borgara bæjarins, trygg-
ir hana og gerir örugga í fram-
tíðinni.
3. Hitaveitan færir verka-
mönnum bæjarins atvinnu, sem
nemur miljónum króna.
4. Hitaveitan sparar árlega
erlendan gjaldeyri, sem nemur
a. m. k. 1—114 milj. króna.
Alt þetta og ótal margt fleira
er svo mikils virði, að það er
lífsnauðsyn fyrir bæjarfjelagið
og þjóðina í heild, að koma hita
veitunni í framkvæmd nú þeg-
ar.
★
Morgunblaðið er þeirrar
skoðunar, að það sje hægt að
fá lán hjá bæjarbúum sjálfum
fyrir þeim hluta fyrirtækisins,
sem fer í vinnulaun.
1 Reykjavík eru nú 3600 hús-
eignir og er brunabótavirðing
þeirra um 123 milj. króna. —
Nokkuð af þessum húseignum
er utan þeirra takmarka, sem
hitaveitan nær til, en ekki
munu undir 3000 talsins, þær
húseignir, sem nytu góðs af hita
veitunni.
Hvað myndi ekki allur þessi
skari húseigenda vilja leggja
í sölurnar, til þess að fá hita-
veituna og þar með tryggja sig
í framtíðinni og verða óháðir
öllum verðbreytingum á kolum,
hvað sem fyrir kemur?
Hitaveitan grípur svo inn 1
fjárhag og fjárhagsafkomu
hvers einasta borgara Reykja-
víkurbæjar, að óhugsandi er
með öllu, að þeir myndu ekki
fúsir til að lána bænum það fje,
sem svarar til vinnunnar við
framkvæmdir fyrirtækisins.
Lftndbergh h)á
Stalftn
Khöfn í gær. FÚ.
indbergh og frú hans hafa
verið í heimsókn hjá Stal-
in í Moskva.
Fór Lindbergh þangað til þess
að ræða um rússnesk-ameríska
samvinnu í flugmálum í Norð-
urhöfum.
Þau hjónin voru viðstödd hina
árlegu hersýningu í Moskva í
dag, ásamt sendiherra Banda-
ríkjamja í Moskva.
Eimskip. Gullfoss er í Khöfn.
Goðafoss er á leið til Hull frá
Ilamborg. Brúarfoss fór vestur
og norðirr í gærkvöldi kl. 8. Detti
foss kom að vestan og norðan
um miðnætti í nótt. Lagarfoss er
á leið til Austfjarða frá Leith.
Selfoss er á Dalvík.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiyiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiM
i i
Lfifttnesfttft af
J e n n y
Kepst er urn að sýna dönsku sund-
konunni Jenny Kammersgaard
virðingu á ýmsan hátt, sjersíak
lega . eftir síðasta afrek henriar,
er hún synti milli Gedsei’ og
Warnemunde., — Hje,r á mynd:
inni sjest sundkonau og líkneski
af lienni.
Jaröarfðr próf. Bjarna
Þorsteinssonar
Jarðarför próf. Bjania Þorsteihsson-
ar í Siglufirði, -fór £ram í gæi‘-
dag og hófst með: húskveSju að heinl-
ili hins iátna. Húskveðjuna flutti sókn-
arpresturinn á Siglufirði.
Sjö prestar voru viðstaddir jarðar-
förina: Sr. Friðrik Rafnar vígslubisk-
up, sr. Benjamín Ktistjánsson í Saur-
bæ, sr. Sigurður Stefánsson, Möðru-
völlum, sr. Stefán Kristinsson að VölH
um, sr. Ingólfur Þorsteinsson í ÓlafS-
firði, sr. Sigurgéii' Sigurðsson á Isa-
firði og sr. ÓSkar Þorlákssón sókUar-
prestur í Siglufirði.
í kirkjunni flutti Sr. Friðrik Rafnar
ræðu, óg kveSjur þeir sr. Siguigéir
Sigurðsson og Halldór Kristinsson
la>knir fyrir hönd Karlakórsins Vísir.
Erlendur Þorsteinsson flutti kveðju frá
bæjarstjóm Siglufjarðar.
Kirkjukórinn, undir stjórn Tryggva
Kristinssonar, annaðist söng ( kirkj-
unni og söng m. a. þátt'úr hátíðasöngV-
um sr. Bjarna. Daníél Þórhallsson söng
einsöng við Litanie eftir Schubert. —
Karlakórinn Vísir söng frumort kvæði
eftir Hannes Jónasson viðlagið Kirkju-
hvoll.
Kirkjén var blómum og ljósum
skreytt. Heiðui’shlið úr blómum var
yfir kistunni við kórdyr og harpa,
mynduö úr lifandi blómum.
Bæjarstjórnar fulltrúar bára kist-
una í kirkju, en prestar út úr kirkju.
Gamlir samherjar sr. Bjarna í barátt-
unni fyrir sjálfstjórn Sigluf.jarðar báru
kistuna síðasta spölinn yfir Hvanneyr-
artúnið, að gröfinni í gamla Hvanneyr-
arkirkjugarðinn.
Sr. Stefán prófastur að Völlum jarð-
setti. Vísir annaðist söng í kirkjugarði.
Líkfylgdin var hin fjölmennasta, sem
sjest hefir á Siglufirði. Ollum versl-
unum var lokað meðan á jarðarförinni
stóð og vinna stöðvuð, þar sem hægt
var að koma því við.
Forkunnarfagnr silfurskjöldur var á
kistunni frá nokkrum siglfirskum kon-
um, auk fjölda blómkransa frá vinum
og ættingjum.