Morgunblaðið - 28.08.1938, Side 5

Morgunblaðið - 28.08.1938, Side 5
 Sunnudagur 28. ágúst 1938. i pótptAhK5 Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgBarsaaBur). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiBsla: Austurstrœtl 8. — Slnl 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuBl. í lausasölu: 15 aura elntaklB — 25 aura meB Lesbók. ÖRLAGARÍK TÍMAMÓT MORGUNBLAÐIÐ 8 7 Sumarhús & úlhverf- um bæjarins Sumarhús í Hveragerði. Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra hefir við undan- íarin áramót flutt lofgjörðar- a-æðu um verk sín á sviði fjár- análanna og gjaldeyrismálanna. Hann hefir við þessi tækifæri verið að fræða þjóðina um það, -að alt væri í stakasta lagi og -ekkert þyrfti að óttast, svo .framarlega sem ekki yrði vikið hársbreidd af þeirri braut, sem hann sjálfur hefir markað í þessum málum. Óhugsandi er, að fjármála- :;ráðherrann sje enn það mikið harn, að hann ekki sjái, að þau ummæli hans, að alt sje í stak- asta lagi eru hrein öfugmæli, og því háskalegri eru öfugmælin, þar sem þau koma frá munni fjármálaráðherrans, sem þjóðin „á að geta treyst í þessum efn- um. ★ I f jármálunum hefir f jármála ráðherrann lagt höfuðáherslu • á. það, að sjá ríkissjóði, fyrir auknum tekjum, til þess að standast hinar sí-auknu kröfur samstarfsflokksins í ríkisstjórn- inni, Alþýðuflokksins. Svo taum- laus er eyðslan, að standandi árleg útgjöld ríkissjóðs eru orðin meira en þriðjungur þess verðmætis, sem þjóðin framleið- ir. Sjá allir að slík byrði er þjóðinni langsamlega um megn. Enda er nú svo komið, að beinir skattar til opinberra 'þarfa, ríkis og bæ.iar- og sveitar- fjelaga eru komnir langt út fyrir þau takmörk, sem þekk- ist í nokkru ríki á friðartímum. ^Grundvallarreglur þær, sem hvarvetna gilda við skattaá- lagningu eru svo þver-brotnar, . að það er í raun og veru eigna- taka eða öllu heldur eigna-rán, sem hjer er heimtað af þegnun- <um. Og ekki tekur betra við, þeg- ar röðin kemur að tollunum. Þar ríkir sama öngþveitið og stefnuleysið. Flestar vörur, sem flytjast til landsins eru háðar f jórum mismunandi tollskyldum til ríkissjóðs. Þessar tollskyld- ur nefnast: Vörutollur, verð- tollur, viðskiftagjald og 12% toll-auki. Hvar í veröldinni skyldi þekkjast annað eins fálm og handahóf í tollheimtu? En alt hefir sínar orsakir. Líka það, að hjer eru ferns- konar tollar á sömu vörunni. Stjórnarflokkarnir gera þetta til þess að villa fólkinu sýn. Með þessum mörgu tollum á sömu vörunni á að reyna að dylja þjóðinni hverjir hinir raunveru- legu tollar eru. En þetta verð- ur ekki dulið. Tollarnir koma fram í verði varanna, sem fólk- ið kaupir daglega. Og það eru þeir, ásamt hinum drepandi beinu sköttum, sem skapa hina óbærilegu dýrtíð í landinu. -ár Það er sýnilegt, af skrifum Nýja dagblaðsnis, að fjármála- ráðherrann hefir í seinustu ut- anför sinni ekkert lært í gjald- eyrismálunum. Morgunblaðið gat þess ný- lega, að fjármálaráðherrann hlyti að hafa orðið þess var í utanförinni, að íslenskir seðl- ar ganga kaupum og sölum er- lendis langt undir hinu skráða gengi bankanna hjer. Þessu svarar blað fjármálaráðherrans þannig, að þar sem bannað sje að selja íslenska peninga er- endis, þurfi engan að undra að þeir sjeu ekki keyptir fullu verði. Jú; rjett mun það vera, að til er ákvæði hjer í lögum, sem bannar slíka sölu á íslenskum peningum erlendis. En þetta hefir aldrei annað verið en pappírsákvæði og það veit fjár- málaráðherrann mjög vel. Blað fjármálaráðherrans segir, að ummæli Morgunblaðsins gefi á- stæðu til að rannsakað verði hverjir það eru, sem fást við slík viðskifti og megi Morgun- blaðið þá ekki snúast illa við, þótt slík rannsókn kunni að snerta vini blaðsins. Ef fjármálaráðherrann hefði skilið sína köllun, mundi hann fyrir löngu hafa látið fram- kvæma þessa. rannsókn. En það er eins og ráðherrann hafi ekki kært sig um að upplýsa þessi viðskifti, af hverju sem það nú stafar. Enginn mun þó trúa því, að það sje af umhyggju fyrir ,,vinum“ Morgunblaðsins, að þetta hefir verið vanrækt. Þar hefir áreiðanlega önnur ástæða legið til grundvallar, enda vita allir, að það eru alt aðrir en „vinir“ Morgunblaðsnis, sem hafa ástæður og möguleika til að reka slík viðskifti. ★ íslenska þjóðin stendur nú á örlagaríkum tímamótum. Eftir rúm tvö ár fær hún tækifæri til að segja til um það, hvort hún vilji í framtíðinni vera sjálf- stæð og öðrum óháð. En eins og málum þjóðarinn- ar er nú komið, getur svo farið, að það verði annað en vilji þjóðarinnar einn, sem ræður því, hver örlög hennar verða. Ef sama sinnuleysið á áfram að ríkja um fjármálin og viðskifta- málin og verið hefir und- anfarið, er ekkert Hklegra en að það verði aðrir en landsmenn sjálfir, sem ráða örlögum þjóð- arinnar. Eimskip. Gullfoss fór frá Leith í gær áleiðis til Yestmannaeyja. Goðafoss kom frá útlöndum í gær- morgun. Brúarfoss fór til Grimsby og Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Dettifoss fór frá Grimsby í gær- kvöldi, áleiðis til Hamborgar. Lag arfoss er á Akureyri. Selfoss fór frá Aberdeen um hádegi í gær, áleiðis til Hamborgar. Eftir Hörð Bjarnason Mjög' ber nú á því, að Reykvíkingar hverfi úr bæ sínum um sumarmánuð- ina, og bað jafnvel þótt sum- ar sje aðeins að nafninu tii. Menn leita út í sveitina, í betra loft og á grænt gras sjer til hressingar og heilsu- bótar — burtu úr ryki og drunga borgarinnar. Ekki er það óalgengt, að fjölskyldur hafist við utanbæjar nær ait sumarið, einkum konur og börn, og er það augljóst, að menn skilja betur og betur þýðingu þess að grípa tæki- færíð meðan hið skamm- vinna sumar stendur hjer við. í nágrenni Reykjavíkur þjóta upp lítil sumarhús, sem flest eru raunar lítið annað en skýli, og væru með öllu óhæf til vetrardval- ar. Menn nota þarna frístundir sínar, og sumir leggja töluverða vinnu í að rækta bletti kringum húsin og fá þaðan biisílag til vetr- arins, sem betra er en ekki. Það sem sambærilegt er erlend- is við þessar byggingar Reykvík- inga, eru gróðurlmsahverfin í út- jöðrum, borga, en hverfi þessi renna smátt, og smátt saman við bæina sjálfa og verða óaðgreind- ur hluti þeirra. Hjer ber mest á slíkum vaxandi gróðurhverfum beggja vegna í Fossvogi og í Kringlumýri. Enn- fremur í Bústaðalandi við Elliða- ár, Húsin eru flest mjög ófullkom- in, eða einungis einskonar skúrar, sem þó eru vel íveruhæfir að sumr- inu. Það er vitanlegt, að almenn- ingur hefir ekki fje til þess að byggja stóra og fullkomna sumar- bústaði, og láta sjer því nægja slík sumarskýli. En' þrátt fyrir það ber þó að gæta þess, vegna framtíðarinnar, að húsin sjeu sem smekklegust, og fæi’a þau nokkuð til samræm- is hvert við annað. Ánægjan af því að búa í slíkum hverfum er meiri ef bygðin sem heild er smekk leg, heldur en ef alt er ósamstætt og relcur sig hvað á annað. Um kostnað við byggingu slíkra sumarhúsa er ekkert liægt að segja, sem algilt sje. Sumir vinna nær eingöngu sjálfir að slíkum byggingum, og sumir hafa betri tök á því en aðrir að útvega ódýr byggingarefni o. s. frv. Slíkar byggingar eru venjuleg- ast miðaðar við það sem er allra ódýrast, en þegar liverfi þessi nálg ast bæinn, er ástæða til að gæta þess vandlega, að ekki sje bygt af handahófi. Þá er þess að gæta, að þróunin mun leita í þá átt, að hverfi þessi verði til íbúðar um lengri tíma en aðeins sumarið. Þegar lóðin er komin í rækt, gerir nálægðin við sjálfan bæinn það að verkum, að smám saman færist í það horf að húsin verða notuð til íveru alt I árið. í þessu sambandi vil jeg geta þess, að þegar Hveragerði í Ölfusi var nýverið skipulagt fyrir ný- býlarækt og garðrækt, var gerð- ur uppdráttur til leiðbeiningar fyrir þá, sem vildu koma sjer upp ársríveruhúsi, sem þó einnig að sjálfsögðu/mátti eingöngu nota til sumardvalar, og birtist þessi teikning hjer. Húsið er einlyft og í því er ein stór stofa með sólbyrgi opnu en yfirþöktu, ef vildi mætti loka sól- byrginu með gleri, þrjú svefnher- bergi ásanit litlu steypubaði og eldhúsi. Gert er ráð fyrir, að steypt ur kjallari sje undir hálfu húsinu. Húsið getur hvort sem vill verið úr timbri eða steini. Teikningin er miðuð við minstu stærð, sem hægt er að komast af með til árs- íbúðar, en vitanlega er sá mögu- leiki til, að halda herbergjaskip- un skv. teikningu, en stækka að- eins grunnflötinn. Þessi teikning var gerð til þess að hafa áhrif á að sem mest samræmi fengist í bygð þessa nýbýlahverfis. Ef miða ætti við venjulegt út- boðsverð í Reykjavík, mundi bygg ingarkostnaður verða ca. 9500.00 krónur sæmilega vandað. En slík- ar byggingar verða að mun ódýr- a.Ti í nýbýlahverfum utan bæjar- ins, því eins og jeg gat um áðan er mikið unnið að húsum þessum með ódýrum vinnukrafti, auk þess sem oft á tíðum legst til ódýrara efni en alment er notað til húsa í Reykjavík. Annars vil jeg hvetja húsameist- ara yfirleitt til þess að gera til- lögur um hús, sem hafa mætti til fyrirmyndar byggingum í úthverf- um bæjarins og þar sem nýbýla- og gróðurhverfi skapast. Húsin |væru t. d. þannig gerð, að byggja mætti fyrst nokkum hluta þeirra, er standa mætti án þess að lýtí sjeu að, þar til bætt yrði við þau, þannig að úr yrði hús til árs- íbúðar. Þótt mikið sje um vert að sjálf húsin í gróðurliverfunum sjeu smekkleg og hentug, þá má þó ekki gleyma svæðunum kringum þau. Þyrfti að ákveða vel settar markalínur fyrir görðum, og leið- beininga garðyrkjuráðunauts ætti að njóta við um alt, sem lýtur að meðferð og umgengni garða, hvort sem það eru nytjagarðar eða skrúð garðar. Það er augljóst, að mikil þörf er orðin á því, að fjelitlum al- menningi sje leiðbeint um ódýrar byggingar sumarhúsa, og að jafn- framt sje aðgætt að hin nýju hverfi vaxi upp á smekklegan og skipulegan hátt. f þessari grein hefi jeg ekki drépið á nema fáein atriði, en mun ef til vill síðar taka þetta efni til nánari athugunar. Tilgangur minn með ofanrituðu er sá, að vekja athygli manna á gróðurhverfum og sumarhúsum og benda á, að það þarf að leið- beina bæjarbúum. sem litla fjár- hagslega getu liafa, en vilja og þurfa að koma. sjer upp skýlí til sumardvalar, til að geta komið slíku í framkvæmd á þann hátt, að það samræmist getu þeirra, en um leið verði bæjarheildinni til prýði. Auk þess sem hús þessi þurfa alls ekki að vera dýrari, þótt vandað sje til fyrirkomulags og útlits. Gróðurhverfin eiga það fyrir höndum að verða náinn hluti af bænum sjálfum, en þegar sá tími kemur, eiga þau að bera þann svip, að þau stingi ekki í stúf við bæinn sjálfan. en uppfvlli jafn- framt það hlutverk, sem þeim ej* ætlað. bæjarbúum til farsældar. Hörður Bjamason. Meðal farþega á Goðafossi frá útlöndum í gær voru: Jón ólafs- son og frú, Egill Árnason og frú, Halld. Kjartansson, Sonja Pjeturs- son, Skarphj. Jónsson, Páll Ófeigs- son, Gísli Ólafsson, Ágústa Pjet-. ursson, Dúa Pjetursson, Guðmunda Erlendsdóttir, Sigríður Þórðar- dóttir, Bjarni Einarsson, Kristrún Jónsdóttir, Ólöf Magnúsdóttir og fjöldi útlendinga. Ný stúka var stbfnuð síðastlið- inn sunnudag í Kolbeinsstaða- hreppi í Hnappadalssýálu. Pjetur Sigurðsson stonaði stúkuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.