Morgunblaðið - 29.11.1938, Síða 3
Þriðjudagur 29. nóv. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Deilan um
ytirkennara
Miðbæjar-
skólans
Norskusamningarnir
Samningatíl-
•raunum slitið
Óráðið hvenær
hefjast aftur
Bæjarsffórn vann
málið fyrir báðum
r jetttim
Hæstirjettur kvað í gær upp dóm í málinu:
Pálmi Jósefsson gegn borgarstjóra Reykja-
víkur f. h. bæjarsjóðs, þ. e. deilan um yfir-1
kennarastarfið við Miðbæjarbarnaskólann.
Málavextir eru þessir:
Bftir lát Sigurðar Jónssonar skólastjóra var Hallgrímur Jóus-
son skipaður skólastjóri Miðbæjarbarnaskólans, en Hallgrímur hafði
nm skeið verið yfirkennari sama skóla.
Hinn 19. ágúst 1936 samþykti skólanefnd að auglýsa yfirkenn-
arastöðuna lausa og bárust 10 umsóknir.
Á fundi nefndarinnar 27. ágúst
samþykti meirihluti hennar að
ráða Pálma Jósefsson í stöðuna
„með sömu launum og yfirkennari
hefir haft og með sama starfs-
sviði“. Frú Guðrún Pjetursdóttir
vildi ráða Elías Bjarnason.
Á fundi hæjarstjórnar 3. sept.’
1936 var að tilefni þessarar ráðn-
ingar skólanefndar samþykt af
meirjhlpta, þæjarstjórnar, ályktun,
þar sem því var yfir lýst, að ekk-
ert fast yfirkennarastarf skuli
hjer eftir vera við skólann, og
þ. a. 1. yrði engin sjerstök þókn-
un greidd úr bæjarsjóði fyrir starf
það, sem meirihluti skólanefndar
rjeði Pálma Jósefsson til. Jafn-
framt heimilaði bæjarstjórn skóla-
stjóra Miðbæjarskólans — í sam-
ráði við borgarstjóra — að ráða
Elms Bjarnason „til aðstoðar við
skólastjórnina", og skyldi honum
greidd þóknun fyrir starfið úr
bæjarsjóði:
Meirihluti skólanefndar vildi
ekki hlíta þessu, og ákvað að fá
úrskurð kenslumálaráðherra um
takmörkin milli valdssviðs skóla-
nefndar og bæjarstjótnar. Jafn-
framt lagði nefndin fyrir skóla-
stjóra að skipa Páln • í starfið, uns
úrskurður væri fallinn.
Hinn S. okt. s. á. fjell úrskurð-
,nr ráðherra (Ilaralds Guðmvmds-
sonar) á þá leið, að skólauefnfi,
bæri að ráða mann í yfirkennara-
ptarfið, og að Pálini væri rjett
ráðinn yfirkennari.
Pálmi tók við starfinu 1. sept.
1936. En þegar hann fór að liefja
yfirkennaralaunin, 175 kr., fyrir
þann mánnð, neitaði horgarstjóri
að ávísa laununum. Höfðaði Pálmi
þá mál gegn borgarstjóra f. h. hæj-
arsjóðs og krafði greiðslu 175 kr.
fyrir septembermánuð 1936 og
framvegis mánaðarlega. Kíkis-
stjórnin veitti honum gjafsókn í
málinu.
Málið var flutt fyrir gestarjetti
Reykjavíkur. Úrslitin urðu þan
þar, að borgarstjóri var algerlega
sýknaður. Dómarinn leit svo á, að
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Varnir gap gin-
og klaufaveiki
egar „Lyra“ og „Dr. Alex-
andrine“ komu hiugað í gær
um hádegi, fór hjeraðslæknir,
Magnús PjetursSon, um borð í1
skipin til þess að rannsaka hyort
nokkur hætta væri á að gin- og
klaufaveiki gæti borist með skip-
unum.
Töfðust skipin nokkuð á ytri
höfninni vegna þessara ráðstaf-
ana.
Ríkisstjórnin mun gera gagn-
gerar ráðstafanir til þess að koma
í veg fyrir að gin- og ldaufaveikin
berist til landsins, en hún hefir
hreiðst talsvert út í nágranna-
löndunum undanfarið.
Blaðið átti tal við Vigfús Ein-
arsson skrifstofustjóra í gærkvöldi
og spurði hann um hvaða ráð-
stafanir yrðu gerðar.
Sagði hann að ítarleg lög tæru
til um varnir gegn gin- og klaufa-
veiki (nr. 11 frá 1928), og myndi
ekki verða gert annað en að fyr-
irskipa nákvæma skoðun í öllum
skipum sem koma erlendis frá.
Eftir skýrslu hjeraðslæknis í
gær, eftir að hann hafði rannsak-
að skipin sem komu frá útlöndum,
þótti ekki -ástæða til að setja þan
eða neina um borð í sóttkví.
Hinsvegar munu menn, sem
kynnu að koma hingað frá sýkt-
um svæðum erlendis, verða settir
í sóttkví. Þá hefir og verið bann-
aður allur innflutningnr á dýrum
erlendis frá.
Hafið þjer athugað að með því
að kaupa happdrættismiða í happ-
drætti Sjálfstæðismanna getið þjer
eignast gagnlega hluti og jafnvel
peninga. Um leið styrkið þjer gott
og þarft málefni. Enginn Sjálf-
stæðismaður eða kona má láta
undir höfuð leggjast að vera með
í happdrættinu. Dregið verður 1.
desember.
Ríkisútvarpið birti í gær
svohljóðandi einkaskeyti
frá Kaupmannahöfn:
„Norsk-íslensku verslunarsamn-
ingunum er nú lokið, en opinber-
lega liggur ekkert fyrir ennþá um
innihald þeirra“.
★
Mórgúnblaðið har skeytið undir
forsætisráðherra og sagði hann, að
hjer væri ekki rjett hermt.
— Það liafa engir samningar
vérið gerðir ennþá, sagði forsætis-
ráðherra. Hinsvegar hefir verið
slitið samningatilraunum þeim,
sem fram hafa farið undanfarið
í Osló. Ekki hefir verið afráðið
ennþá, hvenær samningatilraunir
hefjast af nýjn.
Daugaard-Jensen, forstjóri Græn
lands-verslunarinnar dönsku, and-
aðist í Khöfn í fyrradag.
Stórviðrí
og eldsvoði
| á Siglufirði
Austan stórviðri gerði á
Siglufirði á sunnudags-
kvöld og helst til morguns.
Urðu nokkrar skemdir á hús-
um af völdum ofveðursins, sím-
ar frjettaritari vor á Siglufirði.
Talsverðar skemdir urðu á
ljóstkerfi bsejarins og húsið
Indriðabær brann kl. 5 í gær-
morgun.
Um kl. 1 leytið um nóttina
í hafði þakið fokið af húsinu og
Iflúði þá húsfreyján með barn
‘ sitt í næsta hús.
Húsráðandi lagði sig fyrir í
húsinu, en vaknaði í morgun
við reyk og var þá eldur kom-
inn í húsið.
Hús þetta var gamall stein-
bær, vátrygður fyrir 3000 krón-
ur. Engu var bjargað af innan-
stokksmunum. Eldsupptök eru
ókunn og er málið í rannsókn.
Dr. AÍexandrine kom frá Kaup-
mannahöfn um hádegi í gær.
Hitaveituvatnið
á Reykjum: Tíu
lítra aukning
Vatnsmagnið nægir til að
hita bæinn í 9 stiga frosti
Tíu lítrar hafa í þessum mánuði bæst við vatns-
magnið úr borholunum á Reykjum. Síðan sænski
verkfræðingurinn samdi skýrslu sína hafa bæst
við um 17 lítrar.
Vatnsmagnið úr borholunum er nú orðið 152 lítrar.
Með uppsprettuvatni, sem reiknað hefir verið um 40 lítr-
ar, er heildarvatnsmagnið orðið um 190 lítrar. Hjer frá dragast
7 lítrar (skv. samningi) til notkunar fyrir Reyki, Álafoss o. fl.
Eru þá eftir 183 lítrar, sern. nægja til að hita upp Reykjavík
alla í 9 stiga frosti.
í skýrslu Nordenssons var reiknaS með 168 lítrumj sem nægir til
að hita upp bæinn í 8 stiga frosti.
íþróttakvikmynd
f. S. I.
Stjópi.í. S. í. bauð í gærkvöldi
ríkisst j órninni, bæ j arst j órn,
íþróttaleiðtogum, hlaðamönnum o.
fl. að sjá kvikmyndir, sem sam-
bandið hefir látið taka af íþrótta-
mótum.
Forseti í. S. 1, Ben. G. Waage,
mælti nokkur orð áður en kvik-
myndasýningin hófst og skýrði ,frá
þyjí, að í. S. í. hefði á undan-
förniim árum látið taka kvikmynd-
ir til að sýna hjá íþróttafjelögun-
um bæði hjer í bænum og úti á
landi. Einnig hefðu kvikmyndirn-
ar verið sýndar í skólum með
þeim árangri að skólafólk hefði
fengið áhuga fyrir íþróttaiðkun-
um.
Kjartan Ó. Bjarnason prentari
hefir tekið kvikmyndirnar, en Sig-
urður Tómasson sýnt þær.
Kvikmyndasýningin í gær var í
þrem þáttum. Fyrsti þátturinn var
tekinn á sumardaginn fyrsta, 17.
júní, af sundi o. fl. Annar þátt-
urinn var af skíðalandsmótinu,
skíðaferð í. R. með Súðinni til
Isafjarðar o. fl„ og síðasti þátt-
urinn var af heimsókn þýska úr-
valsliðsins og heimsókn krónprins-
Jijónanna s.i. sumar..
Allar hafa myndirnar yfirleitt
tekist vel, þótt vænta mætti enn
betri árangurs ef í. S. í. gæti
fengið sjer hetri tæki til kvik-
myndatöku.
Stjórn í. S. í. og aðrir sem að
þessum mótum hafa staðið eiga
hinar bestu þakkir skyldar fyrir.
í ráði er að sýna þessar kvik-
myndir fyrir almenning í næstu
viku, því án efa eru margir sem
hafa ánægju af að sjá kvikmynd-
irnar.
Ungmennafjelagið Velvakandi
heldur farfuglafund í Kaupþings-
salnum í kvöld kl. 9. Húsinu verð-
ur lokað kl. 10. Lúðvíg Guðmunds-
son flytur erindi og sýnir kvik-
mynd frá Vinnuskólanum í sumar.
Viðbótin í þessum mánuði — 10
lítrar — er öll úr einni holu á
hinni svonefndu eystri sprungn.
Þessi hola hefir verið boruð með
nýja bornum undanfarið. Þegar
vatnsmagnið í henni var mælt í
hyrjun þessa mánaðar var það um
21 lítra. Nú er það um 40 lítrar.
Er það all-mikið meira vatnsmagn
en fengist hefir úr nokkurri ann-
ari holu.
Aukningin er yfir 18 lítrar. En
samtímis hefir vatnsmagnið mink-
að lítilsháttar — eða um 8 lítra —
í öðrum holum á eystri sprung-
unni, svo að nettó-aukningin hefir
orðið um 10 lítrar.
En eftirtektarvert er, að
þessi hola hefir ekkert tekið
frá holunum á hinni svoköll-
uðu vestari sprungu.
Þar er nú verið að bora nýja
holu, sem nú er að byrja að gefa
frá sjer vatn.
Þess má geta að reiknað hefir
verið með að þyrfti 283 lítra á
sekúndu til þess að hita upp bæ-
inn allan í 15 stiga frosti.
Samskotin
Q ^ ^7 krónur hárust blaðinn
U * nm helgina í sam-
skotasjóðinn, og er heildarupp-
liæðin þá orðin kr. 41.036.79.
Sæmundur. Jónsson, Fossi á síðu,
20.00. Skipshöfnin á s.s. Sigríði
170.00. N. N. (áheit) 10.00. Þórir
2.00. N. N. 5.00. E.s. Gylfi, Pat-
reksfirði, 340.00. E.s. Vörður, Pat-
reksfirði 280.00. Alls 827.00. Áður
birt 40.209.79. Samtals 41.036.79.
Snjóskriða á Sólbakka.
Ifyrradag hljóp snjóskriða milli
Sólbakka og Hvilfta. Braut
hún nokkra símastaura og ónýtti
að mestu vatnsgeymi ríkisverk-
smiðjunnar á Sólbakka. Geymirinn
var úr járnbentri steinsteypu, en
stóð allmikið upp úr jörð.
Viðstöðuiaus hríð hefir verið að
heita má í 9 undanfarna sólar-
hringa á þessum slóðum og mikl-
um snjó hefir hlaðið niður. (FIJ.).
/