Morgunblaðið - 21.02.1939, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. febr, 1939.
Berard, erindreki Frakka í Burgos, og Bonnet.
Upplýsingar Roosevelts
um yfirvofandi nýjar
valdakröfur Hitlers
og Mussolinis
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Mr. Roosevelt forseti ljet orð falla um það við
blaðamenn á laugardagskvöldið, áður en
hann lagði af stað til flotaæfinganna í Atl-
antshafi, að sjer hafi borist upplýsingar, sem gæti haft í
för með sjer, að hann yrði að hverfa fyr heim til Was-
hington, en gert hafi verið ráð fyrir.
Skeyti frá New York herma, að upplýsingar þessar sjeu
um fyrirhugaðar valdakröfur einræðisríkjanna. í dag hefir því
verið lýst yfir opinberlega, bæði í Washington og í London, að
þar sje ekki kunnugt um neinar nýjar upplýsingar, sem gefi
ástæðu til sjerstaks kvíða. í yfirlýsingunni, sem gefin var út í
London, var því þó bætt við, að horfurnar hafi um nokkurt
skeið verið þannig, að hafa verði nánar gætur á öllu sem gerist.
Franco heimtarskil-
yrðislausa uppgjöf
dr. Negrin skorar
á Azana að koma
lil Madrid
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
I Burgos hefir því nú verið lýst yfir, að dr. Negriit
verði að gefast upp skilmálalaust. Þessi fregn
kemur eftir að spurst hafði að dr. Negrin væri
um það bil að leggja fram friðartilboð, sem Bretar ætluðu
að koma áleiðis til Franco. I þessu tilboði var aðeins sett
eitt skilyrði af hálfu lýðveldis-Spánar: Að pólitískum and-
stæðingum yrði sýnd miskunn.
Hvaða áhrif yfirlýsingin í Burgos kann að hafa á
friðarsamningana er óvíst að svo stöddu, I Englandi hefir
það vakið nokkurn kvíða, að sá kvittur hefir gosið upp að
Franco, Mussolini og Hitler ætli að hittast á næstunni, að
líkindum í Ítalíu.
MÓTLEIKUR MUSSOLINIS
Þessi fregn hefir að vísu verið börin til baka í Íialíu sem
uppspuni tómur. Yerði þessi ráðstefna, sem talin er vera mót-
leikur af hálfu Mussolinis til þess að koma í veg fyrir að Franco
vingist við Vestur-Evrópuþjóðirnar, haldin, er gert ráð fyrir að
dragast muni að Bretar viðurkenni stjórn Francos.
,,The Times“ segir, að bresku
stjórninni hafi engar alvarlegar
upplýsingar borist nýlega, þótt
ástandið sje alt annað en glæsi-
legt.
í Þýskalandi og Ítalíu hefir
þessi fregn vakið gremju. í
Þýskalandi er henni tekið á þá
leið, að hjeðan af sje als að
vænta frá Roosevelt. Frá slík-
um manni sje ekki hægt að
taka alvarlegar tillögur um af-
vopnun.
LIÐSSAMDRÁTTUR ÍTALA.
Fregnimar, sem helst gefa tilefni
til nokkurs kvíða, koma frá Ítalíu
í því sambandi er nefnd 100%
aukning setuliðsins í Líbyu úr 30
þús. mönnum í 60 þús. menn og
samdráttur ítalskra kafbáta náhegt
ströndum Tunis.
Hjer við bætist, að Badoglio yfir-
hershöfðingi ítala hefir verið sendur
í sjerstökum erindagerðum til Libyu.,
Leggur hann að líkindum af stað í
kvöld.
1 bresk-ítalska sáttmálanum sem
gerður var í apríl síðastliðnum er mælt
svo fyrir, að dregið skvldi úr herafla
ítala í Libyu sem þá var 60 þús.
manns. Petta gerðu Jtalir. Þótt þeir
hafi nú aukið það aftur upp í sömu
tölu og áður, er það ekki talið hrot á
sáttmálanum, að því er aðstoðar utan-
ríkismálaráðherra Breta lýsti vfir í
d: g.
NJÓSNIR í TUNIS.
I Tunis var í dag tekinn fastur yf-
irmaður innflytjendamála á skrifstofu
ítalska ræðismannsins og auk þess 15
aðrir Italir, þ. á m. forstjóri gistihúss
nokkurs. Þessir menn eru sakaðir utn
njósnir.
Miðstöð njósnaranna er siigð hafa
yerið í gistihúsi Italans, sem hand-
tekinn var.
í Djibouti í Áustur-Afríku hafa líka
nokkrir ítalir verið handteknir sakað-
ir um njósnir.
AUKIÐ UM HELMING.
í vikunni sem leið var setulið Frakka
í Djibouti enn aukið nokkuð.
Setulið Frakka í nvlendum þeirra
í Norður-Afríku hefir verið aukið síð-
an um áramót um nálægt því Jielming-.
REKUR TIL NORÐUR-
HEIMSKAUTSINS
Osló í gær.
tissneski ísbrjófnrinn Sedov
II., sem verið hefir innifros-
inn norðnr í Ishafi í tvo vetnr, er
nú kominn norðar en Nansen
komst á Fram í hinum fræga leið-
angri sínum, eða á 85. graðu 49.1
mín. norðlægrar breiddar.'
Rekur ísbrjótinn áfram með ísn-
nm norðvestur á bóginn í áttina
til nðfðurheimskautsins. (NRP. —
FB.).
Kært til Berlin
yfir stjórnar-
gerðum í Prag
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Dr. Kundt, foringí þýska
þjóðarbrotsins í Tjekkóslóva-
kíu, er lagður af stað til
Berlín, til þess ‘ að kæra við
þýsku stjórnina yfir því,
hvernig nokkrir tjekkneskir
ráðherrar rækja störf sín.
Hann er sagður ætla að
leggja fyrir þýsku stjórnina
tillögur um það hvernig hægt
sje að gera nýja skipun á
stjórn tjekkneskra mála.
45 milj. krónum varið
til vípbúnaðar á dap
í Engiandi
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
IBretlandi verður varið til víg-
búnaðar hvern virkan dag
næsta fjárhagsár (1939—1940) ca.
45 miljón krónum (2 ffiilj. ster-
lingspundum). Samtals nema víg-
búnaðarútgjöldin 12.8 miljörðum
króna.
Fimm miljarðar af þessari upp-
hæð verða teknii í sköttum og
gjöldum til ríkisins. Er það nokk-
uð ininna en síðastliðið ár og er
því ekki gert ráð fyrir að hin
gífurlegn vígbúnaðarútgjöld leiði
til skattahækkunar.
Afgangurinn, 7.8 miljarðar,
verða teknir að láni. Þann skerf
eiga komandi kynslóðir að leggja
til vígbúnaðarins.
Frá, þessu skýrði Sir Jolm Sim-
on í breska þinginu í dag. Hann.
gat þess sein dæmis um vígbúnað
Breta, að stærð skipanna, sem væri
nú í smíðum fyrir breska flotann,
væri samtals 660 þús. smálestir.
Þjóðverji sigr-
aði BirgerRuud
Birger Ruud, hinn mikli Skíða-
stökksnillingur Norðmanna,
varð að láta í minni pokann á
heimsmeistarakepninni í Zakopane.
Fyrstu verðlaunin í skíðastökki
hlaut Þjóðverjinn Bradl. Birger
Ruud varð annar, þriðji Arnholdt
Kongsgárd.
Bradl stökk 80 metra, en ekki
er ennþá komin frjetf um hvað
hverjum fyrir sig hefir verið gef-
ið í stíl.
FRAMH Á SJÖTTU SÍÐU.
fslenska hátíða-
sýningin í Khöfn
í gærkveldi
Hundrað boðsgestir (ekki
1600, eins og skýrt var
frá í F.Ú. fregn) voru viðstadd
ir íslensku hátíðasýninguna,
sem „Berlingske Tidende“ og
„Nordiske Film“ efndu til í
Paladskvikmyndahúsinu í gær-
kvöldi (símar frjettaritari vor).
Meðal boðsgestanna voru
krónprinshjónin, sendiherrar
Frakka, Belga, Hollendinga og
allra Norðurlanda, ráðherrar úr
danska ráðuneytinu, og margir
æðstu embættismenn Kaup-
mannahaf narborgar.
Leikhúsið var fagurlega
skreytt í íslenskum og dönsk-
um litum.
Kvöldið hófst með því, að
Anna Borg las upp íslenska
þjóðsönginn.
Síðar flytja ræður Alsing
Andersen ,landvarnaráðherra
og Sveinn Björnsson sendi-
herra, einsöng syngja Elsa Sig-
fúss, María Markan og
Stefano Islandi; Haraldur Sig-
urðsson og hljómsveit Kgl. leik-
hússins leika íslenska musik, og
Jón Sveinbjörnsson konungsrit-
ari sýnir skuggamyndir af verk-
um Einars Jónssonar með skýr-
ingum.
Að lokum verður íslenska
kvikmyndin sýnd og síðan stig-
inn dans.
K. R„ III. flokkur. Fyrsta æf-
ingÍB verður í kvöld kl. 7.15 í
nýja íþróttahúsinu. Drengir, sem
æfðu á. síðastiiðmi sumri hjá fje-
laginu, eru beðnir að mæta vel.
Berard, erindreki Frakka í
Burgos er nú kominn aftur til
Frakklands, og átti tal við
Bonnet í síma í kvöld. Hann
fer aftur til Burgos á morgun
og mun halda áfram viðræðum
við Jordana ,utanríkismálaráð-
herra Francos á miðvikudaginn.
Jordana er farinn til Barcelona
á fund Francos.
SKEYTI DR NEGRINS.
Dr. Negrin símaði í dag til
Azana forseta og bað hann að
koma til Madrid, til þess að
stjórn hans gæti haldið áfram
að starfa á grundvelli stjórnar-
skrárinnar.
í gær hafði Azana símað dr.
Negrin og hvatt hann til þess að
semja frið.
Ljetust sömu nóttina
eftir 48 ara hjúskap
Hjónin að Snjallsteinshöfða 1
Landmannahreppi, Rangár-
vallasýslu, Jón bóndi Ólafsson og
Jónína húsfreyja Gunnarsdóttir,
ljetust úr lungnabólgu aðfaranótt
s.l. sunnudags, bæði sömu nóttina.
Höfðu þau veikst af lungna-
bólgu bæði sama daginn fyrir
rúmlega viku og liaim lagst í
rúmið þrem klukkustundum á
undan húsfreyju. Einnig þrjár
klukkustundir skildu þau að er
þau ljetust : Jón bóndi andaðist um
kl. 3y<2, aðfaranótt sunnudags og
húsfreyja á sjöunda tímanum.
Snjal lsteinshöfðah jónin myndu
hafa átt 48 ára hjúskaparafmæli
næsta vor, ef þeim hefði enst
aldur. Þau höfðu búið að Snjall-
steinshöfða síðastliðin 8 ár; næstu
40 ár á undan höfðu þau átt bú
-að Bolholti á Rangárvöllum.