Morgunblaðið - 21.02.1939, Page 3
Þriðjudagur 21. febr. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Fjórir menn farast í
lendingu á Akranesi
VílhjálmuT Þór
bankastjóri
Landsbankans
í stað Ludvigs
Kaaber
Bjarni Olafsson skipstjóri
og þrír hásetar hans
Það sviplega slys vildi til á Akranesi s.l. sunnu-
dagsmorgun, að fjórir menn druknuðu svo að
segja í flæðarmálinu. Vildi slysið þannig til,
að bát hvolfdi, sem þeir voru að koma á til lands úr línu-
veiðaranum Ólafi Bjarnasyni. Tveir menn, sem voru í bátn-
um, komust af.
Menmrnir sem fórust voru:
Bjarni Ólafsson, skipstjóri, 54 ára. Hann lætur eftir sig
ekkju og einn son, sem stundar læknisfræðinám í Háskólanum
óg tvær uppeldisdætur.
Tómas Jóhannes Þorvaldsson, Bragagötu 4, Ákranesi, 28
ára. Ókvæntur, en fyrirvinna aldraðrar móður og yngri systkina
sinna.
Teitur Benediktsson, Suðurgötu 37, Akranesi. 34 ára. Læt-
ur eftir sig ekkju og þrjú ungbörn.
Jón Sveinsson, Akri, Akranesi, 44 ára. Ókvæntur. Bjó hjá
aldraðri móður sinni.
Þeir, sem komust af voru: Jón Ólafsson og Páll Sveinsson.
Slysið vildi til um 10'leytið á sunnudagsmorguninn. Línu-
veiðarinn Ólafur Bjarnason kom á laugardag úr veiðiför.
Aflanum var skipað upp
samdægurs, en síðan var skip-
inu lagt út á skipaleguna á
Krossvík, þar sem ótrygt þótti
að láta það liggja við bryggju
sökum hvassviðris og kviku.
Flestir skipverjar voru í
landi aðfaranótt sunnudagsins,
en um borð var skipstjórinn, og
eigandi skipsins, Bjarni Ólafs-
son. Hafði hann lagt svo fyrir,
að hann yrði sóttur á skips-
bátnum kl. 10 á sunnudags-
morgun.
Bjarni Guðmundsson, stýri-
maður fór ásamt fjórum háset-
um í skipsbátnum um borð til
að sækja skipstjórann. Tals-
verður sjógangur var og hvast
af suðvestri, en bjart veður.
Þegar um borð í línuveiðarann
kom, varð Bjarni stýrimaður
eftir um borð, en Bjarni skip-
stjóri og Jón Sveinsson háseti,
sem verið hafði um borð um
nóltina fóru í bátinu. 1 bátnum
voru einnig hásetarnir fjórir,
sem farið höfðu með stýri-
manni um borð, en það voru
þf-ir Páll Sveinsson, Teitur Ber.e
diktsson, Jón Ólaf.sson og Tóm-
as J. Þorvaldsson.
Þessir sex menn lögðu af stað
í bátnum til lands og ætluðu að
lenda í Teigavör, sem er skamt
Afstöðumynd. Krossinn sýnir hvar
slysið vildi til. Teigavör er merkt
með punktalínum.
fyrir norðan hafnargarðinn. 1
þessari vör er ávalt lent smá-
bátum þeim, sem notaðir eru til
þess að fara í á milli lands og'
fiskibáta þeirrá, sem hafa legu
á Krossvík.
Tangi skagar í sjó fram vest-
anvert við vörina og þegar
brim er og lásjávað brýtur frá
tanganum yfir vörina.
Þegar þeir fjelagar voru
komnir rjett að tanganum,
skullu þrjár öldur yíir frá
FRAMH Á SJÖTTU SÍÐU.
Afundi í bankaráði Lands-
banka fslands síðdegis
í gær var Vilhjálmur Þór
ráðinn bankastjóri Lands-
bankans frá næstu áramót-
um, í stað Ludvigs Kaabers,
sem sótt hefir um lausn, sak-
ir heilsubrests.
Stjórnaríiðið hefir farið mjög
dult með þessa ákvörðun sína.
A8 vísu hefir við og við gosið
upp kvittur um það, að breyting
væri væntanleg á stjórn Lands-
bankans, en menn voru hættir að
taka þetta alvarlega.
Svo alt í einu og fyrirvaralaust
er frá þessu gengið á bankaráðs-
fundi. Engin tilkynning kemur áð-
ur um það, að Kaaber hafi sótt
um lausn. Embættinu er ekki sleg-
ið upp. Lausnarbeiðnin og ráðn-
ing hins nýja bankastjóra koma
samtímis á sama fundi bankaráðs-
ins.
Aðferðin minnir óneitanlega á
það sem nýlega gerðist í ríki ein-
ræðisherrans Hitlers, þegar skift
var um aðalbankastjóra Við Ríkis-
banka Þýskalands.
En það er í fleiru en þessu,
sem stjórnarflokkarnir islensku
sækja fyrirmyndina til einræðis-
ríkjanna, sbr. ofríki Alþýðusam-
bandsins í Hafnarfirði og nú síð-
ast skipun F.jelagsdóms, sem ætl-
að er að dæma í því máli.
BRESKA IÐNSÝNINGIN
Breska iðnsýningin var
opnuð í dag.
í ræðu, sem Dudley lávarð-
ur flutti við það tækifæri, sagði
hann, að undanfai’ið hafi yeldi
Stóra-Bretlands oft verið haft á
orði, en iðnsýningin sýndi það
á borði.
Bjarni Ólafsson, skipstjóri. Tómás Jóh. Þorvaldsson. Teitur Benediktsson.
Fjelagsdómur fær
deilu Hafnfirðing-
anna til meðferðar
Alþýðusambandið tilnefnir
tvo menn í dóminn!
FJELAGSDÓMUR kom saman í bæjarþingstofu
Reykjavíkur klukkan 6 síðdegis í gær, og var
þar tekið fyrir mál Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar gegn stjórn verkamannafjelagsins Hlíf. Bæjarút-
gerðin krefst skaðabóta af Hlíf fyrir vinnnstöðvunina við
botnvörpunginn Júní.
Fjelagsdóm sátu: Hákon Guðmundsson hæstarjettar-
ritari, forseti dómsins; Gunnlaugur Briem stjórnarráðs-
fulltrúi; Sverrir Þorbjörnsson hagfræðingur; Guðjón Guð-
jónsson skólastjóri, og Sigurgeir Sigurjónsson cand. jur.
Tveir málflutningsmenn voru mættir, þeir Guðmundur I. Guð-
mundsson cand. jur. fyrir Bæjarútgerðina og Pjetur Magnússon lirm.
fyrir Hlíf.
B.v, „Júní“ farinn
til Akraness
Togari Bæjarútgerðarinnar
„Júní“, sem legið hefir í
Hafnarfirði óafgreiddnr, með 100
smálestir af upsa, síðan S.l. fimtu-
dag, fór í gær til Akraness og
mun eiga að losa aflann í fiski-
mjölsverksmiðjuna þar. Júní gat
þó ekki lagst. upp að hrvggju þar
í gær vegna óhagstæðs veðurs.
B.v. Sviði, eign S.f. Akurgerði,
sem er eitt af þremur atvinnu-
fyrirtækjum, sem ekki hefir skrif-
að undir samninga við ,,Hlíf“,
kom í gær til H&fnarfjarðar, með
fullfermi af upsa, en helt þaðan
aftur eftir skamma viðdvöl, og
var talið að hann myndi fara til
Keflavíkur.
Verkamannaskýlinu í Hafnar-
firði hefir verið lokað, en þar
hafa Hlífarmenn liaft bækistöð
sína frá því að deilan hófst þar
til í gær.
lllíf helt ahnennan fund í G.
T.-húsinu í Hafnarfirði í gær-
kvöldi og mættu þar 250—300
manns. Samþykt var tillaga þess
efnis að skora 4 alla verkamenn,
sem hafa sagt sig úr Hlíf, að
taka úrsagnir sínar aftur og áskor-
un til Hafnfirðinga um að styðja
Hlífarmenn í deilunni.
Jón Sveinsson.
Mál þetta vakti sýnilega mikla
athygli, þar eð óvenju margir á-
heyrendur voru mættir. Meðal á-
heyrenda voru tveir dómarar
Hæstarjettar, þeir Einar Arnórs-
son dómsforseti og Gissur Berg-
steinsson.
Er forseti Fjelagsdóms hafði
sett dóminn og lýst yfir hvaða
mál væri fyrir tekið, lagði mál-
flutningsmaður Bæjariitgerðarinn-
ar frarn stefnu og sóknarskjöl,
alls 14 skjöl. Fekk hver dómar-
anna eitt eintak af þessum sk.jöl-
um og einnig iriálf 1 utningsmaður
Hlífar.
Pjetur Magnússon hað því næst
um frest; var hann veittur til kl.
6 síðdegis í dag. Mun P. M. þá
leggja fram sínar kröfur.
Gert er ráð fyrir að málflutn-
ingurinn fari fram á morgun.
Dómur getur ekki komið fyr en
í fyrsta lagi á fimtudag.
★
Menn veita því að sjálfsögðu
eftirtekt, að Fjelagsdómur er ein-
kennilega skipaður að þessu sinni,
Tveir hinna föstu dómara sitja
ekki dóminn, þ e, þeir Kjartan
Thors, fulltrúi Vinnuveitendafje-
lags Islands, og Sigurjón Á. 01-
afsson, aðalfulltrúi Alþýðusam-
bands Islands.
Ástæðan til þess að Kjartan
Thors situr ekki dóminn er sú,
að svo er fyrir mælt í lögunum
um stjettarfjelög og vinnndeilur,
að þegar „atvinnurekandi“, sem
er málsaðili, er ekki meðlimur í
.Vinnuveitendafjelaginu, skal dóm-
ari sá, sem tilnefndur er af því,
víkja sæti, en atvinnurekandinn
tilnefna dómara í lians stað.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar er
ekki meðlimur í Vinnuveitendafje-
laginu og þess vegna tilnefnir hún
dómara í stað Kjartans Thors.
Hún • tilnefndi Guðjón Guðjónsson
skólastjóra í Hafnarfirði. Hann
mun vera meðlimur í hinu ný-
stofnaða verkamannafjelagi Hafn-
arfjarðar, sem tekið var í Alþýðu-
sambandið á dögunum. En bæði
þetta nýja fjelag og Alþýðusam-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.